Vísir - 16.08.1965, Síða 1

Vísir - 16.08.1965, Síða 1
VISIR MAÐURDRUKKNARUND AN LEIRVOGSTUNGU ir 16. ágúst 1965. - 183. tbl. 11111 • • - Mánud 55. á Maður þessi var að koma á- samt fleiri mönnum úr hesta- ferðalagi ofan úr Borgarfirði, en undan Leirvogstungu munu mennirnir hafa haft skamma viðdvöl og áð. Þá var klukkan á tfunda tímanum. Maðurinn sem að framan greinir, ienti ein hverra atvika vegna í sjónum og félögum hans tókst ekki að bjarga honum. Þegar hann var horfinn sjónum þeirra var sím- að til Reykjavíkur og óskað eftir leitarmönnum og hefur sú leit staðið óslitið í alla nótt, en í morgun fannst líkið í sjónum. Fjöldi manns hefur tekið þátt í leitinni. lögregla, skátar og fleiri og leitað bæði á sjónum og víðsvegar með fjörum. Fyrst í gærkvöldi fóru lögreglumenn með hóp leitarmanna upp að Korpúlfsstöðum og fengu þar Framhald á bls. 13. Síðdegis i gær varð mikið umferðarslys á gatnamótum Öldugötu og Ægisgötu, er strætisvagn og hópferðabifreið lentu i hörðum árekstri og || hvorki meira né minna en um \ 20 manns úr báðum bifreiðun- um voru fluttir til aðgerðar í | slysavarðstofuna. Sem betur fór reyndust meiðslin í fæstum t'ilfellunum mikil, en þó voru tvær konur, önnur íslenzk, hin útlend, flutt ar f sjúkrahús að bráðabirgða- aðgerð í slysavarðstofunni lok- inni. Þessi harði árekstur varð laust fyrir kl. hálf sjö sfðdegis í gær. Hópferðabifreiðinni R— 504 var þá ekið upp Ægisgöt- una, en strætisvagn'inn R-9371 var á leið austur Öldugötu. Á gatnamótunum skullu bflarnir saman af miklu afli og köstuð- ust við áreksturinn inn f girð- ingu og upp að húshomi suð- vestan við gatnamótin. Báðir eru bílarnir illa farnir á eftir og stórskemmdir. í hópferðabílnum voru gestir af Hótel Sögu, sem voru f kynn 'is- og skoðunarfeð um borgina og voru það allt útlendingar, sem í þeirri bifreið vora að bif- reiðarstjóra og kynni undan- Framh. á bls. 6. Um 50 sóttu um 26 sjóavmpsstöður m 1 gær varð það sviplega slys framundan Leirvogstungu 1 að maður drukknaði í sjónum Mosfellssveit. Strætisvagninn og áætlunarbílinn enduðu áreksturinn samhliða húsveggnum. (Ljósm. Víslr B.G.) • ® UM 20 MANNS SLOSUÐUSTIEIN- UM BIFREIDAÁREKSTRI / QÆR - Byrjað að innrétta eftir mánaðamót. Móttökuskilyrði mæld víða um land Umsóknarfrestur um varpsins, er nú útrunn- stöður þær, sem aug- inn. Pétur Guðfinnsson lýstar voru lausar hjá skrifstofustjóri sjón- sjónvarpsdeild Ríkisút- varpsins, sagði blaðinu í morgun, að um það bil 50 umsóknir hefðu bor- izt um þessar 26 stöður, sem auglýstar voru. Er ííklegt að skipað verði í æðstu stöðumar mjög bráðlega. Um mánaðamótin verður rýmdur fyrsti hlutl húsnæðls þess, sem sjónvarpið keypti við Laugaveg 176. Verður þegar hafizt handa við að innrétta það húsnæði fyrir sjónvarpið. Landssíminn mun annast dreifingu sjónvarpsefnisins eins og hljóðvarpsefnisins núna, og eru sérfræðingar Landssímans um þessar mundir að prófa og mæla móttökuskilyrðin víðs- vegar um Iandið, einkum í sam bandi við staðsetningu endur- varpsstöðvanna. STÚLKA HRAPAR AF HÚS ÞAKI OG BlÐUR BANA Stúlkan var að fara á milli kvistglugganna á risi hússins, þegar hún féll niður. Húsið er þriggja hæða. (Ljósm. Vísr B.G.) Um miðjan dag á laugardaginn varð banaslys í Reykjavík, er ung stúlka féll ofan af húsþaki og beið bana samstundis. Þetta varð við húsið nr. 71 við Grettisgötu, en það er 2ja hæða hús, auk riss og kiallara. Fólk var að skemmta sér í risherbergi í hús i»u og þar á meðal var þessi unga stúlka. Talið er að hún hafi ætlað sér að komast milli herbergja á rishæðinni með því að skríða út um gluggann á því herberginu, er hún var f og út á þakið — og það an svo aftur inn um glugga á næsta herbergi. Þetta mistókst þó með þeim sviplegu afleiðingum er að framan greinir. Stúlkan rann fram af þakbrúninn'i og lenti niður á gangstéttina fyrir framan húsið. Hún mun hafa látizt samstundis að því er talið er. Ekki er vitað um neina sjónar- votta, sem séð hafa þegar stúlkan hrapaði, en strax og vart varð við stúlkuna liggjandi á gangstéttinni var lögreglu- og sjúkralið'i gert að vart, en þá var ekkert lífsmark með henni.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.