Vísir - 03.09.1965, Page 2

Vísir - 03.09.1965, Page 2
VISIR . Föstudagur 3. september 1965 Neðan á einangruninni er hvítt nylonnet og mun gefa salnutn sérkennilegan og fallegan svip. :.. ■ • - ' Fjöldi iðnaðarmanna vinnur þessa dagana inni í Laugardal við að ljúka smíði hins glæsilega í- Búið er að ganga frá iþróttahöllinni að mestu að utan eins og sjá má. Verið er að vinna að vegargerð frá Reykjavegi niður að „höllinni“, en annar vegur kemur að frá Dalbraut og verður hringakstur meðfram, en bilastæði sameiginieg fyrir íþróttahöllina og Laugardalsvöllinn. IÞROTTAHOLLIN SENN TILBÚIN Baðherbergi og búningsklefar eru að verða t'lbúnir. Þarna er Ingi S. Bjarnason múrari að ganga frá flisalögn á baðherbergi. þróttahúss. Ef allt gengur eins og reiknað er með í dag, má búast við að keppt verði í húsinu í des- emberbyrjun. Að vísu verður ekki allt komið í lag þá í húsinu, áhorf enda svæði t. d. ekki, en gólf hússins verður þá komið, búið að ganga frá lýsingu og búningsherbergjum og böðum fyrir leikmenn. Um 2000 manns eiga að geta horf t á leiki í íþrótta- húsinu. — í dag birtum við myndir úr Laugardal, þar sem verið er að vinna að lokasmíði hússins. ! Rafvirkjameistarinn í íþróttahúsinu var búinn að príla upp á efsta vinnupall og var að setja ljósaperur í hin nýju loftljós, sem búið var að ganga frá. Þannig verður lamparöðin i i- þróttahöllinni. Ljósmagnið ætti að vera nægjanlegt, enda útreikn- að af ljóstæknifræðingum.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.