Vísir - 03.09.1965, Qupperneq 5
5
V1SIR . Föstudagur 3. september 1965.
u'tlönd
iorgun
útlcnd í uercun útlönd í. morguh.'
jatlönd morgun
HÆbon oýr vandi á höndum vegna
andláts forseta neðrí málstofunnar
Brezka útvarpið skýrði frá
því í morgun, að Harold Wil-
son forsætisráðherra mundi
ræða við leiðtoga hinna flokk-
anna afstöðu til vals nýr for-
seta í neðri málstofunni, í stað
Sir Harry Hyltons, forseta mál-
stofunnar, sem lézt snögglega
í gær, sextugur að aldri. Hneig
hann niður á götu og missti
meðvitund og báru tilraunir
sem lögregluþjónn gerði til þess
að koma honum til meðvitund-
ar ekki árangur, og var hann
fluttur í sjúkrahús meðvitundar
laus og lézt þar skammri stundu
síðar.
Sir Harry var sextugur að
aldri. Hann var kjörinn á þing
sem frambjóðandi íhaldsflokks
ins og hafði verið forseti neðri
málstofunnar í 6 ár. Samkvæmt
hefð greiðir forsetinn ekki at-
kvæði, og þar sem Verkalýðs-
flokkurinn hefir nú aðeins
tveggja atkvæða meirihluta í
málstofunni — og ef þar á ofan
bættist, að íhaldsflokkurinn neit
aði að leggja til forseta, og einn
af þingmönnum Verkalýðs-
flokksins yrði að skipa sætið,
mundi Wilson ekki hafa nema
einS atkvæðis meirihluta í mál-
stofunni. Er auðsætt að honum
er nýr og mikill vandi á höndum
Þess er og að geta, að tvennar
aukakosningar eru framundan.
Líkur eru nú meiri en áður
fyrir þingkosningum á hausti
komanda, einkanlega ef úrslit
aukakosninga yrðu ekki Verka
lýðsflokknum £ vil, en hann er
sagður eiga vísan öruggan
meirihluta í öðru kjördæmi því,
sem kosið verður í innan tíðar,
og ef til vill í báðum.
Framundan kunna að vera erf
iðir tímar fyrir Wilson — og all
ar götur má hann búast við
harðri sókn af hálfu íhalds-
flokksins við forustu Edwards
Heath’s hins nýja leiðtoga
flokksins.
PAPPANDREU
STOÐ
Ofviðri og
fióð á Ítalíu
Ofviðrl og vatnavextir hafal
í valdið allmiklu manntjóni og <
> eignatjóni á Ítalíu allt frá suður ’
[strönd Sikileyjar til Alpafjallaí
i í norðri.
I morgun var vitað með vissu |
| að 27 menn hefðu látið lífið <
> og þúsundir manna orðið að yfir <
[ gefa heimili sín. Samgöngur eru J
ii ólestri og símakerfi landsins.
Meðai svæða ,sem urðu harð<
J ast úti, var úthverfi í Rómaborg.
> Þar drukknuðu margir, þeirra<
• meðal fóik, sem sat í bifreið- J
, um sínum, er vatnið kom eins<
>og steypiflóð inn í bæinn, eftir<
J að vamarveggur á bökkum Arg-
> entofljótsins hafði brostið.
A Sikiley létu 10 lífið. ÞarJ
J náði vindurir.n 120 km. hraða <
>á klukkustund.
Pappandreu stóð einn uppi með
þá skoðun á fundi Konungsráðs-
ins griska í gær, að efnt skuli til
nýrra kosninga nú þegar.
Konungsráðinu tókst ekki að
WILSON
finna lausp á stjöimarkreppunni á
fundinum., .
Stjómmálafréttaritari Brezka út-
varpsms segir, að svo sé litið á, að
flokksleiðtogunum beri nú að leysa
málið — þeirra sé að taka á sig
þá byrði sem hvíldi á konunginum.
En Pappandreu hefir áfram mik
ið fylgi meðal almennings. Vitað
er þö, að það hefur spillt fyrir hon
um, að kommúnistar eru háværast-
ir fylgismanfia ha'ns, og þeir eru
sakaðir um að hafa æst til götu-
uppþota, og komið hafa fram ásak-
anir á hendur Pappandreu í þá átt
að iýðræðinu stafi hætta af stefnu
hans vegna stuðnings kommúnista
við hann, en ef þeir næðu áhrifum
og völdum í landinu yrði úti um
allt lýðræði.
$>• Brezka útvarpið hefur birt
frétt um að gull- og doilara-
forðinn hefði minnkað um 24
milljónir punda í ágúst og væri
það þriðji mánuðurinn í röð,
sem hann hefði minnkað. Hann
nemur nú 923 millj. stp. Búizt
hafði verið við öllu meiri rým-
un í ágúst, og hækkaði ster-
lingspund örlítið í gær á pen-
ingamarkaðinum.
£> Arthur Greenwood, nýiendu-
málaráðherra Breta, sagði í gær,
að hvorki hermdarverk eða
morð myndu hafa þau áhrif á
Breta, að þeir hvikuðu frá þeim
ásetningi, að komið yrði á fót
sambandsríki í Suður-Arabíu
eigi síðar en 1968. Þetta var
sagt £ tilefni morðsins á Sir
Arthur Charles, forseta Löggjaf
arráðsins i Aden.
► Landvamaráðherra Kína
sakaði i gær sovézka leiðtoga
um að fylgja sömu endurskoð-
unarstefnu og Krúsév gerði, en
hún væri Bandaríkjunum i hag,
og samtimis gagnrýndi hann
Rússa fyrir að duga Norður-
Vietnam litið.
Átökin íKashmir valda hraðvaxandi
á hyggjum heims- og þjóðuleiðtoga
Fregnir i gærkvöldi og morgun
herma, að áhyggjur heims- og
þjóðaleiðtoga út af horfunum í
Kashmir séu hratt vaxandl. Líklegt
er, að öryggisráðið verði kvatt sam
an til fundar, en að þessu sinni
ekki vegna þess að annar eða báð-
ir aðilar deilu óski þess, heldur
vegna þess að ráðið telur horfum
ar svo ískyggilegar, að því beri
að taka að sér fmmkvæðið í
hendur, þótt alls óvíst sé hvemig
aðilar (Indland og Pakistan) taki
því.
Það er Goldberg aðalfulltrúi
Bandaríkjanna, sem af eigin hvöt-
um ræðir þessa leið við aðra full-
trúa ráðsins, en hann er forseti
Öryggisráðsins þennan mánuð.
Fréttum £ gærkvöldi og morgun
um bardagana ber ekki saman
Pakistanar segjast halda áfram
sókn, hafa náð herfangi og tekið
150 indverska hermenn til fanga,
en samkværht indverskum fréttum
var hlé á bardögum.
Indverjar sökuðu Pakistana um
að beita bandarískum skriðdrekum
og bandarískum orrustuþotum af
Sabre-gerð og F-104 flugvélum, en
Pakistanar saka Indverja um að
draga saman Iið í Vestur-Bengal
til innrásar i Austur-Pakistan.
(Minna má á hér, þegar um ásak
anir í garð Pakistan er að ræða,
þ.e. að þeir beiti bandarískum her
gögnum, að Pakistan hefir oft mót-
mælt bandarískri vopnasölu til Ind
lands (sem jókst vegna hættu á
styrjöld við Kína) þar sem vopnin
kvnnu að verða notuð gegn Pakist-
an).
í NTB-fréttum I gær var haft
eftir indverskum talsmanni að Sa-
bre-þotur frá Pakistan hefðu gert
árás á bæ á Chamb-svæðinu og 40
manns látið l(fið í árásinni. Tals
maðurinn sagði það „bull og vit-
leysu“ að Pakistanar hefðu hertek
ið 15 indverska skriðdreka.
í NTB-frétt frá Karachi var sagt
að Pakistanflugvélar hefðu skotið
niður indverska flugvél af GNAT-
gerð.
MIÐLAR KANADA MÁLUM?
í NTB-frétt frá Ottawa segir, að
Paul Martin utanríkisráðherra
Kanada hafi kvatt á sinn fund full
trúa Indlands og Pakistan. Ekkert
liggur opinberlega fyrir um viðræð
urnar, en talið að hann hafi beðið
þá að þreifa fyrir sér um hversu
tekið yrði, ef Kanada tæki að sér
að miðla málum.
ÁLIT NEW YORK TIMES
1 ritstjómargrein i New York
Times í dag er rætt um þá ábyrgð,
sem hvílir framar öðrum á Sovét-
ríkjunum, Bretlandi og Bandaríkj-
unum, vegna þess að öll þessi rfki
hafi látið báðum ríkjunum á Ind-
landsskaga, Pakistan og Indlandi í
té vopn, og ættu þessi ríki að taka
þá sameiginlegu afstöðu, að vopn
um frá þeim verði ekki beitt £ á-
tökunum, og myndi Öryggisráðið
vafalaust hlynnt því, að þau fylgdu
sömu stefnu, en ef beitt vrði neit
unarvaldi í ráðinu, mundi reyna
fyrr en nokkur hefði búizt við eða
óskað eftir, á frjáls samskot til
friðargæzlu.
Ný alþjóðaróðstefna
um skiptingu farðnæðis
Alþjóðleg ráðstefna um skipt-
ingu og hagnýtingu jarðnæðis,
sem miðar að því að sérfræðing-
ar á þessu sviði um heim allan
skiptist á skoðunum og reynslu,
verður haldin sumarið 1966.
U Thant framkvæmdastjfjri Sam-
einuðu þjóðanna og dr. B. R. Sen
forstjóri Matvæla-, og landbúnaðar-
stofnunarinnar (FAO) hafa i sam-
einingu boðið 121 ríki að senda
fulltrúa til ráðstefnunnar, sem
haldin verður í aðalstöðvum FAO
í Róm.
Þetta verður í annað sinn sem
efnt er til alþjóðaráðstefnu um
þessi efni, sú fyrri var haldin fyrir
15 árum. . .