Vísir - 03.09.1965, Qupperneq 6
6
VISIR . Föstudagur 3. september 1965
THE KINKS
HINIR HEIMSKUNNU
ÍHE KINKS
UPPSELT
Á FIÓRA FYRSTU
HLJÓMLEIKANA
Aðgöngumiðasala að 5. og
6. hljómleikunum hófst
kl. 9 í morgun í Hljóð-
færahúsi Reykjavíkur
Vatneyri —
Frh. af bls. 9:
Táknafírði og eru þeir studdir
til þess af sveitarfélögunum.
— Hreppurinn kom sér í vet-
ur upp áhaldahúsi með því að
byggja tvær samhliða skemmur.
Auk þess, sem þær eru áhalda-
hús, á að setja þar upp röra- og
hellusteypu I sambandi við
gatnagerðina, og er meiningin,
að steypustöðin komist í gang
á þessu hausti.
— Fyrir þremur árum var
tekinn í notkun nýr bamaskóli
og lagt niður skólahúsið, sem
hafði verið notað síðan 1910.
Gamla húsið var síðan innréttað
á nýjan leik og fengu þar inni
árið 1963 skrifstofur hreppsins
og bókasafn staðarins, hvort
tveggja á efri hæð. Nú er verið
að ganga frá neðri hæðinni og
verður þar fundarsalur hrepps-
nefndarinnar og nokkur smærri
herbergi.
— Hér hefur verið skipu-
iagður 5000 manna bær. Kaup-
túnið hefur þegar tengt saman
báðar eyramar, Vatneyri og
Geirseyri, en samt er hér eftir
nóg byggingarými. Sex fbúðir
eru í smíðum núna og er það
heldur minna en verið hefur
undanfarin ár. Yfirleitt hafa
verið smíðaðar hér 10 íbúðir á
ári og var svo í fyrra. Kaup-
túnið taldi um áramótin 996
íbúa, og þeir eru áreiðanlega
orðnir yfir 1000 um þetta leyti.
Við höfum ekki haldið það neitt
hátíðlegt, þótt segja megi, að
það sé merkur áfangi I sögu
kauptúns að ná 100 íbúa
stærð.
Samvinna við
nágrannahreppana
— Nýlega var byrjað á smíði
Iögreglu- og slökkvistöðvar,
sem Patreksfjörður reisir f sam-
vinnu við nágrannahreppana,
sömu hreppa og standa að bygg
ingu mjólkurstöðvarinnar. Um
leið er nú verið að ganga frá
kaupum á lögreglu- og sjúkra-
bfl. Húsið á að vera tveggja
hæða. Slökkvistöðin verður í
viðbyggingu, en lögreglustöðin
á neðri hæð hússins. Þar verða
einnig fjórir fangaklefar. Ekki
er enn afráðið, hverjir fá efri
hæðina, en komið hefur til
greina, að sýslumannsskrifstof-
uraar flytji þangað. Það má
geta þess, að um síðustu ára-
mót voru ráðnir hingað fyrstu
tveir föstu lögregluþjónamir.
— Þessi samvinna hreppanna
um byggingu lögreglustöðvar
er vísir að nánari samvinnu í
framtfðinni. Við sjáum nú fram
á stórbættar samgöngur á landi
á næstunni og þær færa saman
byggðina hér í kring. Það verð-
ur t.d. ekki nema 30—40 mín-
útna akstur héðan niður á
Barðaströnd. Sá vegur, Kleifa-
heiðin, hefur raunar verið bætt-
ur mikið þegar og sama er að
segja um veginn milli Patreks-
fjarðar og Tálknafjarðar. Sam-
kvæmt Vestfjarðaáætliminnl
verður mesta átakið hér um
slóðir f fjallveginum Hálfdán
til Bfldudals, en einnig er ráð-
gret að bæta veginn héðan úr
kauptúninu inn fyrir fjarðar-
botn út að flugvellinum. Kleifa-
heiðin er ekki lengur neinn
verulegur farartálmi. Á suður-
leiðinni er það fyrst og fremst
Þingmannaheiðin, sem er farar-
tálmi. Nú er byrjað að leggja
þar veg út fyrir nesin og verður
sá vegur opnaður eftir 3—4 ár.
Leggst þá Þingmannaheiðarveg-
urinn niður, sá leiði vegur.
Stóri flugvöllurinn
nothæfur í vetur
— Hér hafa staðið yfir miklar
flugvallarframkvæmdir. Flug-
völlurinn er handan fjarðarins
og aðeins innar en kauptúnið.
Þar var áður IítiII flugvöllur,
en nú er verið að byggja þar
stóran flugvöll, sem allar vélar
í innanlandsfluginu munu geta
notað. Tvær brautir verða þar,
og sú lengri verður 1400 metra
löng. Þetta er áætlað að sé
6,8 milljón króna framkvæmd
og þar af á að vinna fyrir 5,8
milljónir á þessu ári. Á það að
nægja til þess að gera flugvöll-
inn nothæfan. Sex vörubílar
hafa verið að aka f flugvöllinn
og er það verk langt komið, en
eftir er að valta vöilinn og
ganga frá honum.
— Þegar flugvöllurinn opn-
ast, ætti hann að vera jafngóð-
ur og aðalfiugvellir þeir, sem
Flugfélagið flýgur nú til. Þegar
heiðavegirnir hér f kring eru
orðnir góðir og færir árið um
kring, eins og meiningin er að
gera þá, verður þessi flugvöllur
mikil samgöngumiðstöð fyrir
alla Vestur-Barðastrandarsýslu,
allt norður frá Bíldudal vestur
f Vatnsfjörð.
Sigluljarðar-
skarð lokast
sennilega
í fyrradag varð Siglufjarðarskarð
aftur greiðfært bifreiðum, en það
Iokaðist fyrir helgi vegna snjó-
komu. Varð jörð alhvft f síðustu
viku niður að sjó, en nú á mið-
vikudaginn hlýnaði, og var 15
stiga hiti á Siglufirði.
í morgun var hins vegar tekið
að kólna á ný og komin súld, og
spáð er slyddu norðanlands. Mjög
er þá hætt við að skarðið Iokist
á ný.
| Skeiðorárhlaup —
Þramhaid t i.
Áskelsson jarðfræðingur þang-
að upp og sá ótvíræð verks-
ummerki eftir gos, en það mun
I samt hafa verið mjög óveru-
legt, og þess mun lítið eða ekki
hafa orðið vart úr byggð. Guð-
mundur sagði að það væri
reyndar engan veginn út'ilokað
að eldsumbrot hefðu orðið f önn
ur skipti í Grímsvötnum eftir
1934, en þeirra hafi alls ekki
! orðið vart nema í þetta eina
j skipti, sem Jóhannes Áskels-
i son sá ummerki eftir gos, ár-
] ið 1945, m.a. sá hann ösku á
i jöklinum.
Siðasta hlaup í Skeiðará kom
| f janúarmánuði 1960, og stóð
yfir dagana 10.—20. janúar.
Það var Iftið hlaup. En árið
1954 kom allstórt hlaup í ána,
það stærsta sem f hana hefur
komið frá 1938, sem var mjög
stórt. Og 4 árum áður kom einn
ig stórhlaup í ána i sambandi
við Grímsvatnagosið, sem áður
er getið.
Vfsir átti e'innig tal við Magn
ús Jóhannsson útvarpsvirkja í
morgun, en Magnús hefur á-
samt dr. Sigurði Þórarinssyni
manna mest og bezt fvlgzt með
Grfmsvötnum á undanförnum
árum og gert stöðugar mæling-
ar á hverju ári að heita má frá
1957 og stundum bæði vor og
haust.
Magnús sagði að síðast þegar
hann mældi yfirborðshæð
Grímsvatna, en það var 3ja
júní f sumar, þá hafi vatnsborð
ið verið komið nákvæmlega í
sömu hæð og þegar síðasta
hlaup kom í Skeiðará 1960. Síð-
an þá megi áætla að vatnsborð
ið hafi hækkað um á að gizka
6 metra miðað við meðalsumar
hækkun í vatninu.
Við hlaupið 1960 lækkaði
vatnsborðið í Grímsvötnum um
68 metra og myndaðist þá mik-
ið sprunguhaf á Grímsvatna-
svæð'inu. En miðað við lækkun-
ina sem þá varð í vötnunum
og miðað við yfirborðshæð
þeirra nú, mætti ætla, sagði
Magnús, að hlaupið í Skeiðará
yrði að þessu sinni um það bil
10% meira en síðasta hlaup.
Magnús sagði að all'ir þeir
aðilar, aðrir en þann sjáifur,
sem mest hafa fengizt við
Grímsvatnamælingar og athug-
anir á Skeiðarárhlaupum, en
það eru þeir dr. Sigurður Þór-
arinsson, Jón Eyþórsson og Sig
urjón Rist væru aliir fjarver-
andi, ýmist utanbæjar eða ut-
anlands. Hann sagðist því
mundu reyna að fylgjast eftir
mætti með athugunum á hlaup
um og myndi reyna að fljúga
austur yfir Grímsvötn og Skeið
ará í dag ef veður og skyggni
leyfði. Hann kvaðst í þeirri ferð
einnig rriyndu athuga hvort
breyting væri kom'in á Skeiðar-
árjökul. Ef svo væri gæti það
einnig orsakað hlaup í Græna-
lóni sem er við vesturrönd
Skeiðarárjökuls. Magnús sagði
að enda þótt ekkert samband
værj milli Grænalóns- og Skeið
arárhlaupa, þá gætu þau orðið
samtímis ef breyting kemst á
jökulinn. Hann sagði að hættan
á hlaupi úr Grænalóni væri
þeim mun meiri að þessu sinni,
sem orðið væri mjög hátt í lón-
inu.
Yfirlýsing
Vísi hefur borizt eftirfarandi yf-
irlýsing:
„I tilefni af skrifum Frjálsrar
þjóðar og Nýrra vikutíðinda um
bflaleiguna Bílinn h.f., þar sem ég
er talinn, ásamt fleirum, eiga pen
ingakröfur á hendur fyrirtækinu,
vill ég hér með upplýsa að ég hefi
aldrei átt nein viðskipti við nefnda
bílaleigu, hvorki beint né með ann
arra milligöngu.
Eru það því hreinar getsakir og
uppspuni að fyrirtæki þetta skuldi
mér fé“.
Þórhallur Þorláksson.
Singer - Vogue
árgerð ’63 til sölu. — Uppl. í síma 11660.
Hiarto bifreiðarinnar er hreyfillinn, andlitíð er stýrishjólið
Það er margt hægt að gera ti) að fegra stýrishjólið,
en betur en víð gerum það er ekki hægi að gera.
Er það hagkvæmt? - Já, hagkvæmt, ódýrt og end-
ingargott og... Viljið þér vita meira um þessa nýj-
ung - Spyrjið viðskiptavini okkar, hvort sem þeir
aka einkabifreið, leigubifreið, vörubifreið eða jafn-
vel áætlunarbifreið. - Allir geta sagt yður það.
Upplýsingar I síma 34554 frá kl. 9-12 f. h. og 6.30
-11 e.h. Er á vinnustað (Hæðagarði) frá ki, 1 — 6 eJi.
ERNST ZIEBERT. Hæðargarði 20.