Vísir - 21.09.1965, Blaðsíða 4
V í SIR . Þriðjudagur 21. september 1965.
Siðferðisþroski og siðmenning
jpétur Sigurðsson regluboði
og ritstjóri Einingarinnar
hefur sent Vísi eftirfarandi
grein þar sem hann ræðir
siðvæðingarefni.
Stíflum sorarennslið frá út-
varpinu (BBC) og snúum við
siðferðishrapinu.
TTndir þessari fyrirsögn var
prentuð ræða, sem enski
rithöfundurinn, Peter Howard,
flutti f Lóndon nokkru áður en
Kennedy forseti Bandaríkjanna
féll frá. Hann vék þá fyrst að
sáttmála forsætisráðherranna
tveggja, Bandarikjanna og
Rússlands, og segir, að hann hafi
„snortið hjarta mannkvnsins"
en meira þurfi þó til en sátt-
mála um að útiloka atóm-
sprengjutilraunir. „Heppnist
sáttmálinn", segir þar, „bíður
okkar ný siðmenning. Þessi tvö
stórveld.i veita þá heiminum
forustu". Ræðumaðurinn held-
ur svo áfram:
„Bretar verða þá að ráða við
sig, hvort þeir vilja leggja lið
mótun hins nýja samfélags
manna eða standa álengdar,
fylla vasa sína, minnka í áliti
niður úr öllu valdi, og vænta
hins bezta,
Án siðferðisþroska mun frels-
ið hverfa frá mannanna böm-
um. Egi frelsi að halda velli,
verður Guð að stjóma ráða-
gerðum manna. Hið nýja sið-
leysi. Hin nýja guðfræði, nýir
félagshættir aðeins hið foma
Sódómu og Gómorru líf. Hin
nýja Bingódýrkun kemur i stað
Baalsdýrkun fyrri alda.
LÍTILMENNI HAFA DREGIÐ
OSS DJÚPT NIÐUR.
Engin þjóð, sem mannkyns-
sagan getur, hefur risið hærra
okkar eigin þjóð, en engrar
stórþjóðar sæmd hafa lítilmenni
dregið jafnskyndilega og djúpt
niður. Þjóðinni, sem beygði
Hitler og hefur öldum saman
verið vörn lftilmagnans, en ógn
harðstjóranna, gætu nútíðar-
menn eins og Wassallas, Pro-
fumos og Rachman hrundið í
glötun.
Við stöndum andspænis skap-
gerðar- og siðferðisbilun, sem
rúið getur okkur sem þjóð öll-
um okkar virðuleik og dyggð-
um. Þessi öld krefst skapgerð-
arstórmenna. Hér bjargar ekk-
ert samningamakk né ráðaleys-
isfálm.
Það er setið á svikráðum við
völd okkar og erfðir. I sigti er
þar jafnt konungsvaldið, kirkja,
rfkisstjóm og Iöggjafarþing,
þessar traustu stofnanir feðra
vorra. Hver af stofnunum þess-
um mun taka forustuna og búa
þjóðina til varnar, snúast við-
eigandi gegn hættunni og
leggja á ný traustan grundvöll
andlegs lffs þjóðarinnar og sið-
ferðis? Þori enginn að ráðast f
þetta, þá hljótum við að dæm-
ast til að heyra hark og hlakk
framandi ásælni innan garðs
högg siðmenningar okkar.
Verið viss, að þeir sem nú
hilma yfir með spillingunni og
biðja henni vægðar, eru miklu
hættulegri en málsvarar Hitlers
áður fyrr. Margir þeirra, sem
þá stóðu vel á verði, em nú
fremstir í að blinda þjóðina.
Konungsfjölskyldan nýtur
vissulega sérstakrar hollustu og
áster þjóðarinnar. Fordæmi
hennar gseti áorkað meiru en
milljónir áminninga. Hún verð
ur að forðast að eiga nokkurt
samneyti við menn, sem temja
sér spilltar lifnaðarvenjur. Ef
ráðgjafar hennar bregðast því,
að segja henni sannleikann um
þá menn, sem notfæra sér vin
áttu á hæstu stöðum til þess að
breiða yfir makk við spilling-
una, þar hún að fá sér nýja, ráð
holla leiðbeinendur í þessum efn
um. Konungsfjölskyldan verður
að gera öllum lýð það ljóst, að
hún vilji ekki sinna neinni
þeirri leiksýningu né almennum
samkvæmum, þar sem Guð er
smáður, en siðleysinu þjónað.
Kirkjan verður enn á ný að
lifa og starfa fólkinu til heilla.
Það er hræðilegt umburðar-
lyndi, sem þolir andkristinn æp
andi innangarðs. Allt klerklegt
kossaflens við ókristilegar stefn
ur verður að þurrkast út.
Ríkisstjórn, og þeir sem ætla
sér að mynda ríkisstjórn kom-
andi daga, verða að lýsa því hik
laust yfir, að þeir ætli ekki að
hefja til valda þá menn, sem
þjóna siðleysinu i einkalífi sínu.
ganga. að öll ungmenni hneigist
að siðleysi, en oft er sannleik-
urinn sá að eldri kynslóðin
unir vel óþverranum og afsakar
sig með þeim ósannindum, að
nútíma ungmenni krefjist af
þeim þess háttar lífernis og
uni sér þá betur heima, líkt
og lúsin í óhreinindunum.
METNIR SEM ÚRKAST.
Milljónir manna erlendis líta
á brezku þjóðina sem úrkast og
hégóma Frásagnirnar og upptaln
ingin á hinum furðulega og ó-
geðslega lifnaði, sem þrífst í
þjóðfélaginu .hefur vakið hryll
ing í sál okkar allra. Vissu-
lega er hér völ á mönnum, sem
lausir eru við hórdóm, sviksemi,
siðleysi og drykkjuslark, til
þess að - stjórna okkur, og
stjórna vel.
Við verðum að horfast í augu
við sannleikann. Sökina á þessu
á ekki fremur einn flokkur en
annar, og sökin er ekki vel-
gengninnar heldur, þótt menn,
sem keppa að auðsöfnun en af-
rækja heiðarleik og heilbrigt sið
ferði, sem segja skal til um
umflýjanleg og að það sé hlut
skipti vestrænnar stjórnvizku
að sjá til þess, að þetta geti
haft sinn gang, án þess að til
atómvopnastyrjaldar komi. Þeir
segia að kommúnisminn muni
hafa hreinsandi áhrif á kirkju
og trúarlíf, og endurvekja hug
rekki og skapgerðarþroska
fólksins. Menn, sem þannig
mæla, skilja hvorki eðli komm
únismans né h’ið viðeigandi svar
við honum.
Þetta gæti verið hin happa-
sælasta stund þjóðfélagsins.
Með heilbrigðu f'ölskyldulífi,
grandvörum og af Guði leiddum
stjórnarháttum, gæti þjóðin
gert öllum þjóðum það ljóst,
að við v’iljum ekki sætta okkur
við samfélag, sem stiómast af
efnishyggiu, hvort sem hún er
austraen eða vestræn.
Hjörtu manna í Bretlandi
hungrar enn og þyrstir eftir
sannleika Guðs. Milljónir manna
karla og kvenna, við vinnu sína
eða heimafyrir, hljóðir og hugs
and’i, næstum íýndir í svelg
nútímahringiðunnar, munu
fagna öruggri forustu manna,
— Eftir Pétur Sigurðsson ritstjóra
Þjóðin verður að fá að vita, að
þeir, sem njóta vilja þeirra for
réttinda að vera leiðtogar, séu
fúsir til að greiða það gjald, að
lifa hreinu og heiðarlegu lífi.
Þeir menn, sem á þessum alr
vörutímum mannkynssögunnar,
eru ófúsir til að greiða þetta
gjald, verða að finna sér ein-
hver önnur störf en f þjónustu
opinberra mála.
ZERMATT-SKÓLPRÆSI
Löggjafarþingið (Parliament-
ið) þarf að fjalla um hin sið-
spillandi áhrif útvarpsins (BBC)
Frá sumum dagskrárliðum út-
varpsins streymir stundum inn
í heimilin siðspillngarfrárennsli
sem líkja má við bilaða skólp-
ræsið í Zermatt. Þetta sýkir
samfélagið. Það er lítt skiljan-.
legt, hvemig menn, gæddir
kristilegri samvizku, geta hald-
að áfram forustustarfinu við út
varpið. Að gera sér vændi að
atvinnugrein má heita sakleysið
sjálft til samanburðar við það
útvarpsefni, sem ræktar sið-
leysi heillar þjóðar. Þar er úa-
varpað óþverra í umboði og und
ir yfirskini menningar. (Þetta
er einnig satt um óháða sjón-
varpið).
Það var mál til komið, að
vandað fólk hverfi frá starfi
við útvarpið og mótmæli þar
með þvi, að haldið sé áfram að
bera á borð fyrir alþjóð slíkan
óþverra.
Sumir áfellast blaðamennina.
Þeim er stundum gefið að sök,
að þeir láti að rödd samvizku
sinnar. Þökkum Guði að til eru
enn blaðamenn, er láta stjóm-
ast af samvizkusemi. Fjarri fer
því. að blöðin hafi hreinar hend
ur varðandi hinn umrædda ó-
þverra, en þakklátir megum við
vera fyrir blöð eins og Express
Newspapers, sem standa drengi
lega gegn þeirri ólyfjan, sem
ríkisútvarpið flytur f sumum út-
varpsþáttum sínum. Hugsa sér
þann óhroða, sem þannig er
dyngt í æskulýðinn jafnt sem
hina eldri! Og sú saga er látin
hversu fara ber með velgengn-
ina, geri sig að heimskingjum.
Sökin er ekki heldur eingöngu
manngarmsins né óláns kven-
sniftarinnar. Sökin liggur hjá
mönnum, konum og körlum,
allra stétta og allra flokka, sem
velgengnis hafa notið, en hafa
árum saman, fyrst í laumi og
síðar meira upphátt, afneitað
því í breytni sinni, að nokkur
munur sé á réttu og röngu.
Háski nútímans er ekki sá, að
dagarnir séu vondir, heldur hitt,
að menn draga í efa að nokkuð
sé til sem getur kallazt rétt eða
rangt, nokkur algildur siðferðis-
mælikvarði. í þjóðfélaginu hafa
ávallt þrifizt meinsemdir, en
það er fyrsta skipti í sögunni að
utanaðkomandi menn, sem hata
okkur, og geta örvað hnignun-
ina til þess á sínum tfma að
geta gert útaf við okkur, að þá
skuli vænir menn á meðal vor
halda því fram, að skilgreining-
in illt og gott sé úr gildi fallin.
Sú samfélagsheild, er saman-
stendur af flokkum íhalds
frjálslyndis og sósíalisma, hef-
ur brugðizt okkur. Forréttinda-
mennirnir hefðu átt að gerast
hinar réttu fyrirmyndir í grand-
varleik, en f stað þess hafa þeir
jafnt f svefnherberginu, hótel-
um, knæpum, klúbbum, Ie’ik-
húsum og hjónaskilnaðarréttin
um, haft forystuna f skriðufall
inu niður brekkuna. Þetta er
uppreisn gegn guði og siðferðis
fráhvarf háttsettra manna af
kyni hins bláa blóðs, og leiðir
óhjákvæmilega út f Rachmans
rauða helvfti. Hér er um að
ræða þau óheilindi sem sbkkt
hafa þjóðum niður í siðspillingu
og sýna umburðarlyndi og vægð
þvf, sem kynslóð fram af kyn-
slóð hefur réttilega talið óþol-
andi.
NÚ GÆTI VERIÐ HAPPASÆL-
ASTA STUNDIN
Hver skal svo framtfð okkar
verða? Einstöku stjórnmála-
menn segja sín á milli, að heims
yfirráð kommúnismans séu ó-
sem gæddir eru sannfæringar-
og viljaþreki, hvort sem hún
kempr frá höil eða hreysi, frá
hægri eða vinstri, frá íhalds-
flokki eða verkalýðs. Þjóðin bíð
ur eftir e’inhverjum nútíma
Churchill, sem á friðartíma
okri fyrir oss á sviði siðgæðis-
mála hliðstæðu þess, sem hann
afrekaði á styrjaldarárunum er
hann biargaði skinni okkar.
Siðferðilega endurhervædd
gæti brezka þjóðin lagt báðum
stórveldunum lið við lausn
vandamála þeirra. Við getum
veitt rétta svarið við hættu
sundurþykkjunnar í h’eimi
kommúnismans eins og Iíka
við skaðsem’i flokkadráttar og
félagslegra ranginda í þeim
heimshluta, sem kommúnism-
inn situr ekki að völdum, en
fæðir af sér með þessu komm
únisma.
Andstæður nútímans eru
þessar, að þjóðir, sem játa trú
á Guð, en breyta eins og hann
væri ekki t’il, og þjóðir, sem af
neita guðstrúnni, en æskja sér
nú þeirrar nýju manngerðar,
sem Guð einn getur skap-
að, óska sér þeirrar forustu,
sem brezka þjóðin, búin sínum
sönnu erfðav»njum, gæti látið
í té.
Enn einu sinn’i þurfum við að ’
víkka sjóndeildarhringinn. Þessi
þjóð, sem á tuttugustu öldinni
bar út um heimsálfur erfðavenj
ur mannúðar, réttlætis og heið
arleika, verður að taka að sér
það hlutverk. getur gert það og
ég hygg að muni gera það ,að
umskapa nútímaheim’inn í þá
veröld sem einn viðurkennir
Guð sem stjórnanda í viðfangs
efnum manna.“
Hér lýkur þessu orðhvassa
og andríka spjalli rithöfundar-
ins, sem vissulega má teljast
til siðbótarmanna brezku þjóð-
ar’innar. Eins og hjá öðrum þjóð
um, hefur þar oft verið alvar-
legt ástand varðandi andlega
menningu og siðferði þjóðarinn
ar, einnig stjórnmál, en þessi
þjóð hefur verið svo gæfusöm
að fæða jafnan af sér mikla
menn ,sanna siðbótarmenn og
hæfa le’iðtoga. Það hefur bjarg-
að, og svo mun fara enn. Hér
við má bæta því, að í sfð-
gæðismálum eru Bretar nú um
stundir engin undantekning.
Aðrar þjóðir eru engir englar,
og við íslendingar ekk’i heldur.
Hver verður hæð okkar, ef við
mælum okkur við hina full-
komnu siðferðismælikvarða
kristindóms og guðstrúar?
Þetta ættum við að athuga og
fylla svo flokk þeirra marma,
sem Vilja, ekki aðeins í orði,
heldur og í verki, umskapa
heiminn til samræmis fegurstu
hugsiónum mannkynsins.
Viðvíkjandi hinum hörðu orð
um, sem Peter Howard fer hér
um brezka ríkisútvarpið, skal
hér minnt á orð, sem dagskrár-
stjóri fslenzka ríkisútvarpsins
sagði við undirritaðan fyrir
nokkru. Þau voru þessi: Útvarp
ið á að vera kurteist. Það á að
miðast við gott heimlli". Þetta
er göfugmannlega mælt og hin
sannasta og bezta krafa, sem
sett hefur verið fram varðandi
þetta furðulega þjónustutæki al
mennings. Breytum samkvæmt
þessu.
Pétur Sigurðsson.
Maður óskast
Óskum eftir að ráða duglegan mann til starfa
strax.
Nánari upplýsingar gefur verkstjórinn.
SMURSTÖÐ SÍS
Hringbraut 119 . Sími 17080
Brauðskólanum
Langholtsvegi 126
Köld borð — Smurt brauð
brauðtertur
Snittur —
BRAUÐSKÁLINN
Sími 37940 og 36066.