Vísir - 21.09.1965, Síða 8
8
tza
V í SIR . Þriðjudagur 21. september 1965.
VISIR
Otgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR
Framkvæmdastjóri: Agnar Ólafsson
RAtstjóri: Gunnar G. Schram
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson
Þorsteinn Ó. Thorarensen
Augiýsingastj.: Halldór Jónsson
Sölustjóri: Herbert G.uSmundsson
Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald: kr. 80,00 á mánuði innanlands
í lausasölu kr. 7,00 eintakið
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f.
Sigur Ludvig Erhards
K osningaúrslitm í Vestur Þýzkalandi reyndust mik-
iil sigur fyrir kanslara landsins, Ludvig Erhard, og
stefnu hans. Flokkur hans bætti bæði við sig atkvæð-
mn og vann nýtt þingsæti. Sigurinn færði honum þð
ekki hreinan meirihluta á þingi landsins, fremur en
síðasterkosið var, en tryggir þó áframhaldandi stjóm
kristilegra demokrata í samvinnu við flokk frjálsra
demokrata. Úrslitin tryggja líka áframhaldandi
völd Erhards, ekki aðeins á þingi landsins, heldur
einnig innan síns eigin flokks. Síðustu mánuðina
hefur hópur þingmanna, með formann flokks-
ins Adenauer og Strauss í fararbroddi, gagnrýnt
stjóm Erhards, einkum á sviði utanríkismála. Ef
flokkurinn hefði tapað atkvæðum og misst meirihluta
aðstöðu sína er líklegast að sá armur hefði orðið yfir-
sterkari og Erhard verið komið úr forystu flokksins.
Nú dregur hins vegar ekki til þeirra atburða, og frama
vegur Franz Josef Strauss í þýzkum stjómmálum
virðist því ekki greiðfær næstu árin. Munu margir
frjálslyndari menn landsins fagna því.
JTlokkur jafnaðarmanna bætti einnig við sig nokkru
atkvæðamagni, en þrátt fyrir það eru úrslitin ósigur
fyrir flokkinn og þó sér í lagi fyrir formann hans og
kanslaraefni, Willy Brandt. í fyrsta sinn frá styrjald-
arlokum voru taldar góðar horfur á sigri jafnaðar-
manna og þáttaskilum í æðstu stjóm landsins. Þeir
draumar jafnaðarmanna rættust ekki. Þýzkir kjós-
endur sýndu meiri varúð og meiri íhaldssemi en
foringjar flokbsins hugðu. Þeir kusu ekki að hætta
sér út í ævintýri með nýjum mönnum við stjórnvölinn
og tóku undir kjörorð Erhards* „Engar tilraunir",
þegar á hólminn var komið. Sú niðurstaða mun að
öllum líkindum valda því að Willy Brandt verður ekki
lengur kanslaraefni flokksins og varla mikið lengur
formaður hans. í ljós hefur komið að þótt hann sé
hinn ágætasti borgarstjóri Vestur-Berlínar nýtur
hann ekki þess trausts í landinu sem við var búizt
og hefur ekki megnað að kveikja þann eldmóð sem
til sigurs dugði.
I einni og sömu vikunni hafa þjóðir Noregs og Vestur
Þýzkalands kosið að fela mönnum einstaklingsfram-
taksins forsjá mála sinna. Það mat byggist á reynslu
liðinna ára. Sú mikla velmegun, sem nú ríkir í flestum
löndum álfunnar stafar fyrst og fremst af því að
afli einstaklingsins hefur verið beitt fyrir vagn al-
mennings. Þjóðir álfunnar skilja að aukning fram-
leiðslunnar og verðmætasköpunarinnar í þjóðfélag-
inu verður greiðust í skjóli frelsisins á sem flestum
sviðum athafnálífsins. Höft og hömlur ofskipulagn-
ingar og ríkisafskipta eru hins vegar dragbítur fram-
faranna. Það er athyglisverður sannleikur sem endur-
speglast í úrslitum þingkosninganna í þessum tveim-
ur ágætu lýðræðisríkjum.
Kennsla í Verzlunarskólanum hófst nýlega. Fréttam. Vísls leit inn í tíma í 2. bekk, sem var í bókfærslu
hjá Þorsteini Magnússynl. Stúlkur voru í greinilegum meirihluta i bekknum, á aldrinum 15 til 16 ára.
KENNSLA HAFIN í
VERZLUNARSKÓLANUM
/
Verzlunarskóli Islands var settur, deild. Árið 1926 lengdist námið
við hátíðlega athöfn i samkomusal
skólans s.l. fimmtudag.
Skólastjóri minntist í upphafi
Sigríðar Ámadóttur skriftarkenn-
ara, sem lézt í sumar. Hafði hún
kennt samfleytt í 40 ár við skól-
ann, frá 1909 til 1949. Bað hann
viðstadda að rísa úr sætum i ýircj-
.ingarskyni við hina látnu lconii. '
Síðan lét skólastjóri þessi getið
\)að á þessu ári ætti Verzlunarskóli
’íslands 60 ára afmæli. Kennsju-
(starf við skólann hófst 12. okt.
1905. Af því tilefni rakti skóla-
Jstjóri sögu Verzlunarskólans í stór i Brautskráðust fyrstu stúdentar frá
um dráttum. Hann var fyrst 2ja ára ' Verzlunarskóla íslands vorið 1945.
skóli, er skiptist í efri eg neðri Síðan vék skólastjóri að skóla-
um 1 vetur, þannig að hann var þá
orðinn 3ja ára skóli, og 1935 var
hann gerður að fjögurra ára skóla.
Er viðskiptadeild var stofnuð við
Háskóla íslands þótti einsætt að
góðir nemendur úr Verzlunarskól-
anum yrðu að fá þar aðstöðu til
framhaldsnáms. Leiddi þessi þróun
ftnk stofnunar lærdómsdeildar með
réttindum til að brautskrá stúd-
enta.
Var reglugerð um stofnun lær-
dómsdeildar gefin út 1942. Tók
deildin til starfa haustið 1943.
starfinu á vetri komanda. Skráðir
nemendur eru nú fleiri en nokkru
sinni fyrr, samtals 527 í 20 bekkj-
ardeildum.
Fimmti bekkur er nú i fyrsta
sinn tvískiptur.
Við skólann starfa nú samtals
30 kennarar auk skólastjóra. Fast-
ráðnir kennarar eru nú, að skóla-
stjóra meðtöldum 16. Skólanum
hafa bætzt 2 nýir fastráðnir kenn-
arar, Friðrik Sigfússon B. A., sem
kennir ensku og Lýður Björnsson
cand. mag. sem kennir landafræði
og sögu.
Að lokum ávarpaði skólastjóri
nemendur með ræðu og ámaði
þeim heilla á vetri komanda.
Sending til norsks ráöherra
og stofnun sjómannafélags
Á þjóðhátíðardegi Norð-
manna 17. maí sl. sendi Sigfús
Elíasson dulspekingur, kirkju-
og menntamálaráðherra Noregs,
Herra Helge Sivertsen, eintak
af nýútkomnu skáldverki, sem
hann kallar „Öndvegissúlur Ing
ólfs Amarsonar.“
Útgáfa þessi er í stóru broti
32 bls. og með táknrænni hlífð-
arkápu, með merki þvf sem kall
ast „Innspekilykill — Þrenn-'®’
ingartáknið" og stjömu yfir.
Verkið er gefið út í tölusettum
eintökum og í tvöfaldri talna-
röð, önnur fyrir Noreg, hin
fyrir Island.
Er Sivertsen, kirkju- og
menntamálaráðherra hafði með
tekið þessa sendingu svaraði
hann með þakkarskeyti til höf-
undarins.
Það er tekið fram í þessu
sambandi, að höfundurinn hafi
gefið handritið og alla vinnu
leggur hann til við prófarkalest-
ur og útbreiðslu verksins hér
á landi og annars staðar.
Að lokum skal svo skýrt frá
því, að hinn 14. marz. sl. átti
Sigfús Elíasson frumkvæði að
því að stofna nýtt sjómannafé-
lag hér á landi sem kallast Sjó.
mannafélagið „Leiðarstjaman“
Er það alger nýjung við þetta fé
lag, að það mun starfa ein-
göngu á andlegum grunni.
Sigfús Elíasson
Lélegasta íslands-
síldveiði Norðmanna
Formaður félags norskra síld-
veiðimanna á íslandsmiðum, Sören
Vermundsen í Stafangri skýrir frá
því í gær, að síldveiðarnar á Is-
landsmiðum hefðu í sumar verið
einhverjar þær lökustu sem Norð-
menn myndu eftir. Heildarveiðin
af bræðslusíld er aðeins 140 þús.
hektólítrar á móti nærri 900 þús.
hl. í fyrra. Reknetaveiðarnar hafa
heldur ekki gengið vel, heildarafl-
inn til söltunar þar er aðeins um
30 þúsund tunnur, þó 6 — 7 bátar
hafi verið að veiðum þar.
Svo slæm hefurr síldveiðin við
ísland ekki verið 1 manna minnum.
Það er þó ekki aðeins lítil síld á
miðunum við ísJand sem veldur
þessu, heldur einnig hitt að síld
veiði hefur vepið mjög góð bæði
£ Norðursjó og við Norður Noreg,
svo að margir bátar hafa fremur
kosið að hverfa til veiða þangað.
HSB