Vísir - 21.09.1965, Blaðsíða 15
VÍSIR . Þriðjudagur 21. september 1965.
(5
EDWARD S. ARONS:
Spæjarar
=— Saga um njósnir og ástir á italíu
— Gott og vel.
— Eruð þér kominn til að semja?,
spurði Talbot.
— Ef til vill.
— Hafið þér nokkuð til að semja
um?
— Ég hefi málverkin.
—Hér?
—Nei, en ég veit hvar þau eru
geymd.
—Hvar er Cesare?
— Það veit ég ekki.
Hann gat ekki gert sér grein fyr
ir því vegna bergmálsins hvaðan
rödd Talbots kom. Það var ein-
hver undiralda í rödd hans, sem
hafði þau áhrif á hann, að hann
hugði Talbot brjáiaðan, og hann
óttaðist enn meira um Deirdre en
áður.
— Deirdre, áræddi hann að kalla
heyrirðu til mín?
Talbot rak upp kuldalegan hlát-
ur.
— Víst getur hún heyrt, en ég
held fyrir munninn á henni.
— Lofaðu mér að tala við hana.
— Nei. Hvar eru málverkin?
— Slepptu fyrst stúlkunni.
— Ég hef ekki tíma til að masa.
Hefur Cesare þau enn?
— Nei.
— Hver hefur þau þá?
— Ég vil fá að sjá hana — full-
vissa mig um, að þú hafir ekki
gert henni neitt.
— Kastaðu fyrst frá þér rifflin-
um.
Durell kastaði honum frá sér svo
að bergmálaði um allar rústirnar.
Hann bjóst hálfvegis við, að Tal-
bot myndi skjóta — en sjálfur var
hann enn með skammbyssu sína
í jakkaerminni
Nú var hann viss um, að rödd
Talbots barst til hans úr dyragætt
til hægri Milli þeirra voru flísa-
lögð göng um 20 — 30 metra löng
og líklega var Talbot í öðrum dyr-
um til hægri.
— Deirdre, kallaði hann aftur.
— Sam, hörfaðu — kallaði hún
allt í einu.
Honum var ekki Ijóst hvað var
að gerast þarna er skugga bar á.
Hann þóttist heyra fótatak fyrir
aftan sig og svo var eins og spreng
ing hefði orðið við dyrnar, sem
hann hafði gefið gætur að. Umbrot
í iörðu höfðu valdið því að gólfið
•gliðnaði sundur rétt hjá þar sem
Talbot var með Deirdre. Durell
heyrði hálfkæft hljóð — hósta, og
megna fýlu lagði um allt.
Durell æddi þangað. í sömu svif
um steig Jack fram reikandi í
spöri en með Deirdre enn fyrir
framan sig sér til hlífðar. Deirdre
æpti og Durell greiddi Talbot högg
fyrir bringspalirnar og um leið og
hann hneig niður formælandi
reyhdi Durell að ná skammbyssunni
úr greipum hans. Skot hljóp úr
byssu Talbots með einkennilega;
dhnmu hljóði, en í fárra metra
fjarlægð frá þeim kraumaði í
brennistejnshver sem opnazt hafði.
En Jack Talbot, sem var helj-
srmenni að buroum, hafði ekki gef
izt upp, æðisgengið einvigi hófst,
og Taibot kom Durell undir, og
hann glotti að brölti Durells, sem
var þó vel að manni.
— Hvar eru málverkin? Hver
geymir þau? Frannie? Svaraðu eða
Durell var viss um, að hönd
Talbots se mhann hélt á skamm
byssunni með hafði brákázt í lát-
unum, því að hann hafði bölvað,
er hann sparkaði í hana, og nú
fann hann, að grip Talbots á
skammbyssunni var að losna. Tal-
bot hafði haft hann undir þar sem
hann gat varpað honum frnm af
bergbrún, en kannski gæti hann
velt honum af sér yfir brúnina, en
hættan var sú ,að hann drægi
hann með sér í faliinu. Dureli
fannst hann heyra veikt aðvörun
aróp berast frá Deirdre. Svo tók
hann að slá á hendi Talbots svo
að skammbyssan losnaði úr greip
hans og náði Durell henni Talbot
stökk til baka, en Durell skaut
ekki. Jack færði sig aftur nær hon
um og ætiaði að sparka honum
fram af brúninni. Durell velti sér
frá henni og miðaði skammbyss-
unni á hann.
Talbot hló og gekk aftur á bak.
Durell sá, að Deirdre stóð í gætt
inni. Það var hætt að krauma
í hvernum. Hann sá, að það, sem
hann mest hafði óttazt hafði ekki
gerzt, en föt hennar voru óhrein
og rifin og hún var óhrein í fram-
an og hár hennar út um allt og,
honum fannst að hann hefði aldrei
litið fegurri sjón.
— Dee?
— Það er allt í lagi með mig,
Sam.
Nú var hanu rólegur, öruggur,
stæltur .Talbot hélt áfram að
ganga aftur á bak.
— Það er ekki hægt að áfell-
ast mann fyrir að komast eins
langt og komizt verður, sagði Tal-
bot. Engin ástæða að gera neitt
róttækt. Við gætum náð samkomu
lagi . ,
— Nei sagði Durell
— Ef ég kemst ekki til Milano á
morgun fær Pacek Fremont-áætlun
ina. Hann getur enn látið ná til
Fremont-félaganna. Og hann þarf
skrautfjöður í hattinn sinn.
— Þú hefur talað við Pacek?
— Geturðu álasað mér fyrir það
hér var mikið tækifæri.
— Ég ásaka þie fyrir margt —
og mest fyrir eitt, hvernig þú
fórst með Éllen Armbridge.
— Ellen?
— Já. ekkj sízt fyrir hvemig
þú fórst að því.
— Deirdre — taktu stöðu að
bakj mér.
— Svo þú ætlar að drepa mig?
sagði Talbot.
— Já.
— Umsvifalaust?
— Já.
Talbot fór að hlæja tryllings-
lega og stóð svo gapandi. Hann
starði á Durell og hafði loks sann
færzt um, að vonlaust var að
sleppa úr hættunni.
Nú hafði Durell náð mikilvægu
settu marki. Málverkin voru á ör-
uggum stað. Og hann hafði fund
ið Deirdre — bjargað henni.
Hann þurfti ekki annað en að
hleypa af og fingur hans var á
gikknum, er hann heyrði sagt að
baki sér.
— Hvernig væri að láta skyn-
semina ráða, herra Durell?
22. kaptituli.
Hann hafði læðzt aftan að hon-
um eins og köttur, og nú stóð
hann þarna og brosti gleitt, og
miðaði á hann skammbyssu sinni.
— Nú förum við kannski allir
að haga okkur skynsamlega, sagði
Pacek.
Durell !ét skammbyssuna síga.
Honum var efst i hug að snúa sér
við og hlevpa af, en hann vissi
hve viðbragðsfljótur Pacek var og
örugg skytta. Og Deirdre ef hún
hjúfraði sig ekki svona þétt að
honum. Hann gat vnrla hreyft sig.
Talbot fór að taia. FTonum hafði
létt. Hann sá sér leið cnna.
— Ég hef reynt að ná í yður
herra Pacek — til þess að ná sam
komulagi við yður. Ég hef dálitið,
sem þér vilduð gjarnar. komast yf
'ir.
Andlit Paceks var eins og
höggvið I stein.
— Ég veit allt um bað.
— Við getum þá verzlað?
— Þér hafið nöfnin á mönnun-
um í Fremont-hópnum svo kallaða?
— Já, ég komst yfir þau í Genf.
— Þér drápuð ungfrú Armstrong
til að ná þeim ...
— Ég var tilne'iddur, en ...
— Hvar eru þessi nöfn?
Talbot hló.
Ég ætlaði að selja yður þau, en
allt fór ekki alveg eftir áætlun. Ég
þurftj að ná aftur málverkunum,
og það er líka yður í hag, vegna
tinsamningsins?
— Og málverkin?
— Ég hef þau ekki.
— Get ég sjálfu rfundið þau?
— Ég bið yður um að hindra
mig ekki í að ná í þau. Þér þurf-
ið ekki á þeim að halda eins og
komið er. Ég er kominn á græna
grein þegar ég get komið þeim I
peninga. Og þér verðið að hjálpa
mér að komast aftur til lands og
láta mig fá peninga til þess að
bjarga mér í bili.
— Haldið yður saman, sagði
Pacek fyrirlitlega. Þér rausið full
mikið, maður sæll. Það er ég, sem
held á skammbyssunni.
Pacek sneri aðeins til höfðinu.
— Herra Durell, það var skyn-
samlegt af yður að reyna ekki að
skjóta meðan þessi maður masaði.
Látið skammbyssuna yðar detta.
Durell lét detta skammbyssuna,
sem hann hafði tekið frá Talbot.
Talbot ætlaði að beygja sig eftir
henni, en hætti við það er hann
sá svipinn á Pacek. Durell var
ekki viss um, að Pacek væri sann
færður um, að hann hefði látið
sína eigin skammbyssu detta. Hann
fór a tala vi hann og talaði hratt
til þess að reyna að hafa trufl-
andi áhrif.
— Þetta iukkast ekki Pacek, fyr
ir yður — ekki hérna. Hér er það
Apollio sem öllu ræður. Þér eruð
hér í gildru.
Pacek brosti.
— Ég hitti Apollio á leiðinni
hingað. Hann getur ekki lengur
beitt sfnu mikla valdi. En ég get
j sagt yður, að hann var á lífi þegar
ég skildi við hann.
— Það þykir mér vænt um að
heyra.
— Æ, já þessi vestræna mann
úð, þegar hentar að vera mann
úðlegur. Ég sýni fjandmönnum mín
um ekki miskunn, ef i það fer, en
ég veitti yður tækifæri í Genf til
þess að komast hjá þessu öllu. Og
nú verðið þér og unga stúlkan að
taka afleiðingunum.
— Látið þetta ekki bitna á henni.
Hún hefur engin afskipti af þessu
haft.
— Hún sleppur ekki vegna þess
að þér hafið áhuga á örlögum
hennar og það ætla ég mér að
I nota mér.
Pacek sneri sér að Talbot.
— Ég geng að tilboði yðar, sagði
| hann óvænt. Þér getið haldið mál-
i vcrkunum. Þér munuð finna þau
í höll greifans. En ég set eitt skii
yrði. Við verðum hér til sólseturs
j i morgun, þar til frestur Túvanaf
ans prins er útrunninn. Þá undir
ritar hann samningana og tæknisér
fræðingar okkar fara ti! lands hans
og miklum áfanga er náð.
— Ég geng að þessu. En það
verður að koma þessum manni fyr
ir kattarnef og stúlkunni, sagð'i
Talbot.
— Yrði það til þess að gera
allt auðveldara fyrir yður?
— Já.
Pacek horfði fast á hann.
— Við gætum kannski haft not
af yður, Talbott. Keypt málverk
in af yður óg sett peningana á
„númeraðan reikning" í banka I
Sviss. Og svo gæti ég e'inn sóðan
; veðurda gsent pjrinsinum málverk
! in og skrifað honum, að tekizt
hefði að hafa upp á þeim. Það
mundj gleðja hann. Og við gætum
kannski komið því svo fyrir, að
yfirboðarar yðar sannfærist um,
að þér hefðuð haft hreinan skjöld,
og þér fengið starf á ný — en
raunverulega yrðuð þér að vinna
fyrir okkur. Um þetta getum við
rætt seinna. Og nú vil ég fá nöfn-
in, sem þér komust yfir, er þér
drápuð Ellen Armbridge.
— Þau eru í Mílanó.
— Þau eru ekki i Mílanó, við
höfum haft eftirlit með yður skref
ÍWntun p
prcritsmiöja & gúmmlstímplagcrö
Elnholtl Z - Slmi iOtit
„Augnabl'ik sannleikans" eins og nauta-
banar kalla það, er komið, Tarzan bregður
hnífnum inn undir herðarblöð nautsins ...
... og dýrið hendist örfáa metra áfram, en
fellur þá niður .. steindautt.
VÍSIR
askrifend aþ iónusta
Áskriftar-
Kvartana- siminn er
116 61
virka daga kl. 9-19 nema
laugardaga kl. 9 —13.
VISIR
er
eina
síðdegisbloðið
kentur
út
csfila
virko
dagn
Atgreidslan
Ingólfsstræti 3
skráir
nýja
kaupendur
Simi 11661
auglýsing
VÍSI
kemur
víða |
við
VÍSIR
át í
auglýsingablað
almennings
AFGREIÐSLA
AUGLÝSINGA-
SK RIFST OFUNNAR
ER ■
INGÓLFSSJRÆtl 3
Simi 11663