Vísir


Vísir - 04.10.1965, Qupperneq 4

Vísir - 04.10.1965, Qupperneq 4
A V í SIR . Mánudagur 4. október 1965. KR meisfori — ■i «.» vVw a V* « Framh. af bls. 3 að vippa boltanum yfir á síð- ustu stundu. Á síðustu sekónd- um leiksins átti Baldvin tæki- færi, komst einn upp en skant fram hjá. Liðin í þessum leik voru nokkuð góð og knattspyman sem sýnd var hinum fjölmörgu áhorfendum var ágæt, enda þótt harkan væri fullmikil undir lokin. . Af KR-ingunum voru beztir Heimir markvörður, Hörður Felixson og Sveinn Jónsson, en framlínan var ekki sérlega vel með á nótunum fannst mér. Baldvin sást varla í þessum leik, en skoraði þó sigurmarkið í mótinu (að venju!), en hættu- legasti leikmaðurinn í framlín- unni var Gunnar Felixson. Kristinn átti líka ágætan leik. Af Akurnesingum voru beztir þeir Eyleifur og Ríkharður. Báðir voru þeir mjög góðir í þessum leik, eða þar til þeir urðu að yfirgefa völlinn. Eyleif- ur tætti oft af sér varnarmenn KR, en Ríkharð hef ég ekki fyrr í sumar séð svo frískan. Matt- hías var og ágætur og Björn Lárusson og Skúli hafa heldur ekki verið svo góðir í sumar. Framvarðalínan var hins veg- ar ekki eins „stabíl" og hún hefur verið í sumar. Jón Leós- son var t.d langt frá sínu bezta. Eða þá Kristinn Gunnlaugsson? Hann átti að geta komið f veg fyrir bæði mörkin, en passaði stöðuna ekki sem skyldi Hins vegar skiluðu bakverðimir báð- ir sínu nokkuð vel. Dómari var Hannes Þ. Sig- urðsson Hann dsemdi yfirleitt vel, 'enda var leikurinn lengst af prúðmannlega leikinn. Hins veg- ar var eins og hann missti stjórnina undir lokin, þegar leikmenn höfðu ekki lengur stjóm á skapi sínu. Glevmdi hann m. a hornspyrnu sem átti að framkvæma en tók útspymu í staðinn. — jbp — LÉTTLÉTTARALÉTTAST VAXOL er nýr þvotta- og viðhaldslögur fyrir plast-, gúmmí- og linoleumdúk og flísar, sem þvær og bónar samtímis. VAXOL er framleitt úr jurtaolíu sem rotnar ekki, það eykur slitþol gólfsins og gefur fallega áferð. VAXOL inniheldur glycerin, sem fer vel með hendur yðar. HEILDSÖLUBIRGÐIR BJÖRN WEISTAD HEILDVERZLIJN Slm 19133 PÓSTHÖLF 579 LÉTT LETTAR ALÉTTAST

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.