Vísir - 04.10.1965, Side 15

Vísir - 04.10.1965, Side 15
V í SIR . Mánudagur 4. október 1965. ÍE3 10. „Þama er dánarorsökin", varð mér að orði. „Nýjung í sælgætis- framleiðslu, brjóstsykur, blandað- ur blásýru. Þér getið séð molann, sem varð honum að bana, hann liggur þarna við vanga hans á gólfinu. Er unnt að efnagreina hann hér í stofnuninni, höfuðsmað- ur?“ „Auðvitað". „Það mun koma á daginn að blásýra er í molanum, sennilega líka á umbúðapappírnum. Ég vona að efnafræðingurinn hafi ekki þann leiða vana að sleikja á sér fing- urna Hver svo sem framleitt hefur þetta eitraða sælgæti hefur vit- að hve sólginn Clandon var í brjóst sykur. Hann hefur með öðrum orð- um þekkt Clandon náið. Við get- um einnig orðað það á hinn veg- inn — að Clandon hafi þekkt hann náið. Svo náið, að hann furðaði sig ekkert á að hitta hann hérna og hikaði ekki við að þiggja af honum brjóstsykur; fannst ekkert undarlegt þó að hann byði sér hann. Morðingi Clandons er þvl ekki einungis starfsmaður við þessa stofnun, heldur og einn af þeim, sem vinna £ þessari álmu. Annars mundi Clandon hafa talið ferðir hans grunsamlegar og á- reiðanlega hefði hann ekkert af honum þegið, svo mikið er víst. Þetta takmarkar rannsókn okkar verulega. Fyrstu afglöpin, sem morðinginn hefur gert sig sekan um. Og alvarleg afglöp — fyrir hann“. „Má vera“, tautaði Hardanger. „En það má einnig vera, að þú gerir þetta of einfalt og gangir út frá of mörgu sem gefnu. Til dæmis hvernig geturðu vitað að það hafi verið hér, sem Clandon var myrt- ur? Þú hefur sjálfur sagt, að við eigum hér í höggi við óvenjulega slunginn glæpamann. Er þá ekki eins líklegt að hann hafi myrt Clandon annars staðar og dregið líkið hingað til þess að villa um fyrir okkur?“ „Clandon dó hér, þar sem hann liggur", svaraði ég. Ég sneri mér að þeim, Cliveden og Weybridge. „Hve lengi er blásýrueitrunin að verka?" „Hún verkar samstundis að kalla“, svaraði Cliveden. „Hann hefur þjáðst hér £ dauða- flogunum", sagði ég. „Og þar af leiðir að hann hefur látizt hér. Skoðið þessar grunnu rispur á veggmálningunni. Ég geri ráð fyr- ir að óþarft sé að rannsaka negl- urnar á Ifkinu; það liggur svo f augum uppi hvernig þessar rispur eru tilkomnar. Það hefur verið ein- hver „vinur“ Clandons, sem gaf honum brjóstsykurinn, og þess Vegna vil ég að rannsakað verði sfgarettuhylki hans og eldspýtna- stokkurinn, ef vera mætti að hann hefði boðið þessum vini sfnum sígarettu og fingraför hans finnd- ust þó að það s^ harla ólíklegt. Það er ■vissast. að írannsaka. veskið lfka í sama skyni, því að verið getur að vinurinn hafi farið í vasa Clandons að honum látnum og leit- að f veski hans. Ég geri þó alls ekki ráð fyrir því. Hins vegar býst ég við að það geti reynzt athyglis- vert, sem fram kemur, þegar stál- hurðin þarna verður grannskoðuð. Ég þori að fullyrða, að þar finn- ast ekki fingraför annarra en þeirra sem hafa fullan rétt á að ganga þar um dyr. En það, sem mér leikur hugur á að vita er, hvort þess sjáist merki að þurrkað hafi verið af hurðinni kringum læsinguna, tímastillinguna eða handfangið". „Það mun koma f ljós“, sagði Hardanger. „Ef sú kenning þín er rétt, að sá hafi verið hér öllum hnútum kunnugur, sem var að verki, þá hlýtur það einmitt að koma f ljós. Til þess að útiloka ekki þann möguleika, að framandi hafi verið á ferðinni". Hardanger sneri sér að aðstoð- armönnum sfnum. 1 þessu bar að einn af hermönnunum með stóra handtösku og lítið búr, sem hann setti frá sér á gólfið, og hélt síðan á brott. Ég veitti þvf athygli, að Cliveden majór yppti eilítið brún- um. „Ég fer einn inn f rannsókna- stofuna", sagði ég. „1 þessari tösku er gasþéttur búningur með lokuðu öndunarkerfi, sem ég fer í áður en ég fer inn. Ég loka stáldyrunum á eftir mér, opna síðan innri dymar og hef með mér búrið með hamstr- inum. Ef hann verður enn á lífi þegar liðnar eru fimm mfnútur — þá mun mega treysta þvf að and- rúmsloftið þar inni er ekki ban- vænt“. „Hamstur?" Hardanger virti fyr- ir sér dýrið f búrinu. „Greyið litla. Hvar gaztu náð f hamstur, svona fyrirvaralaust?" „Það er hvergi auðveldara en hér f stofnuninni", svaraði ég. „Þeir fyrirfinnast hér í hundraða- tali sem tilraunadýr, auk naggrísa svo þúsundum skiptir, apa, kan- fna, páfagauka og annarra fugla. Þessi tilraunadýr eru alin upp á Alfringhambýlinu, þar sem dr. Baxter býr. Litla greyið, segirðu — dýravemdunarsamtökin mundu hafa sitthvað við það að athuga, sem hér fer fram f sambandi við tilraunirnar á þessum dýmm, en leyniþjónustan sér um ,að það ber- ist ekki út. Vitið það, að þessi til- raunadýr drápust f þúsundatali inn an þessara veggja sfðastliðið ár, mörg þeirra eftir sámstu kvalir?" „Það er hverjum heimilt að hafa sína skoðun", mælti Cliveden lá- varður kuldalega. „Ég er yður ekki að öllu leyti ósammála...“ Hann brosti en án þess að vottaði fyrir kýmni. „Og þó að hér sé kannski sá staður, þar sem sfzt skiptir máli þó að slíkar skoðanir séu látnar í ljós, þá er stundin varla heppi- lega valin til þess“. Ég kinkaði kolli lítið eitt, hann mátti skilja það sem afsökunar- beiðni, ef honum sýndist svo. Ég opnaði töskuna og tók upp úr henni búninginn, en fann í sömu svifum að, tekið var þéttingsfast um arm mér. Það var dr. Gregori. Dökk augu hans leiftmðu af ákafa bak við kúpt gleraugu og það var á- hyggjusvipur á skeggrótardökku andliti hans. „Farið ekki þarna inn, herra Cav- ell“, mælti hann lágri röddu, sem þrungin var ótta eða jafnvel ör- væntingu. „Farið ekki þama inn. Ég bið yður.. “ Ég svaraði honum engu, leit ein- ungis á hann. Mér féll prýðilega við dr. Gregori, eins og raunar alla starfsfélaga hans, undantekningar- laust. En Gregori var ekki starf- andi í Mordon vegna þess fyrst og fremst hve hann var viðkunnan- legur. Hann var þar vegna þess, að hann var einn af frægustu og snjöllustu sýklafræðingum f Ev- rópu. ítalskur prófessor í lyfja- fræði, sem starfað hafði í Mordon undanfarna átta mánuði. Ráðning hans þangað var talin stofnuninni mikilvægasti ávinningur, enda hafði hún ekki gengið þegjandi fyrir sig - það þurfti við samninga milli æðstu manna af báðum við- komandi þjóðum, áður en ftalska ríkisstjómin gaf leyfi sitt til, að 15 DIXAN ER SÉRSTAKT ÞVOTTADUFT FYRIR ALLAR TEGUNDIR ÞVOTTAVÉLA. • Vélin yðar þarfnast sérstaks þvottaefnis — þessvegna varð DIXAN til. • DXIAN freyðir lítið og er því sérstaklega gott fyrir sjálfvirkar þvottavélar. • DIXAN fer vel með vélina og skilar beztum árangri. einnig hvað viðkemur gerfiefnum. • DIXAN er í dag mest keypta efni í þvotta- vélar í Evrópu. • DIXAN er framleitt hjá HENKEL í Vestur- Þýzkalandi. A n 1 A N Kaanu, nú þarf ég að leggja fyrir þig spurningu: Heldur þú að faðir þinn gæti, vegna áhrifa frá töframanninum, verið vald ur að þvf sem hér hefur gerzt? — Ég myndi skammast mín ef svo væri, en hvers vegna tortryggðirðu okkar ættflokk? Töframaðurinn gæti hafa séð að von- laust var fyrir hann að reyna að lækna fólk ið og reynt þá að eyðileggja fyrir sjúkrahús inu í Tarzan-borg. Ég... ég verð að fara — Hvað er þetta? VÍSIR ÁSKRIFENDAÞJÖNUSTA Áskriftar- . . Kvartana- siminn er 11661 virka daga kl. 9 — 19 nema laugardaga kl. 9—13.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.