Vísir - 12.10.1965, Page 6
6
V í SIR . Þriðjudagur 12. október 1965.
mm
Fjárlögin —
./
Framhald af bls. 9.
gallaðra hlustunarskilyrða á
Norður- og Austurlandi, og
þykir bera brýna nauðsyn til
að ráða bót á þeim eftir því,
sem við verður komið. Tekjuaf
gangur er áætlaður 70 þúsund
kr.
Sjónvarpið
Sjónvarp. Gert er ráð fyrir
launum til 30 fastra starfs-
manna. Til viðbótar við tekjur
af aðflutningsgjöldum koma
tekjur af rekstri sjónvarpsins,
en gert er ráð fyrir, að hann
hefjist á næsta ári. Áætlunin
er gerð af ríkisútvarpinu með j
hliðsjón af skýrslu sjónvarps
nefndar, en það telur mjög
erfitt að gera slíka áætlun, þar
sem flest málin séu enn á undir
búningsstigi og beinn rekstur
ekki hafinn
Rfkisprentsmiðjan Gutenberg
Tekjur eru áætlaðar hækka um
1 millj. kr. Gjöld hækka alls
um 1010 þúsund kr., þannig að
rekstrarhagnaður lækkar um 10
þúsund kr.
Landsmiðjan. Tekjur hækka
um 1310 þús. kr., og gjöld á-
ætluð jafnhá tekjum.
Tunnuverksmiðjur ríkisins.
Tekjur og gjöld eru áætluð jafn
há. Velta er áætluð hækka um
2680 þúsund kr.
Innkaupastofnun ríkisins.
Tekjur af vörusölu hækka um
978 þús. kr. Gjöld eru áætluð
jöfn tekjum.
Rfkisbú. Á Bessastöðum
hækka tekjur um 656 þús. kr„
en gert er ráð fyrir því, að
mjólkurframleiðslu þar verði
hætt að mestu, en lögð megin
áherzla á rekstur hænsnabús
og ræktunar holdanauta, og er
það í samræmi við álit nefnd
ar, er skipuð var 24. júlí 1964,
til þess að gera tillögur um
framtíðarskipan á rekstri Bessa
staðabús, en venjulegur halli
hefur verið á þvf undanfarið.
Gjöld eru áætluð jöfn tekjum.
Svo segir í greinargerð fjár
lagafrumvarpsins .Allt of langt
mál væri hér að rekja allar
breytingar á einstaka gjalda-
eða tekjuliðum frá því í fyrra.
Drepa má þó á niðurgreiðslur
og uppbætur sem greiddar eru
úr ríkissjóði, mönnum til fróð-
leiks.
Nigurgreiðslur og
uppbætur.
Niðurgreiðslur vöruverðs inn
anlands eru áætlaðar 16 millj.
kr, hærri en í núgildandi fjár
lögum, eða um 559 millj. kr.
Ctflutningsuppbætur (á land
búnaðarvörur) eru áætlaðar 214
millj. króna eða 26 millj. kr.
hærri en í núgildandi fjárlög-
um..
Þá má einnig geta þess að
gert er ráð fyrir 100 millj. kr.
í frumvarpinu til þess að mæta
launahækkunum opinberra
starfsmanna og annarra, sem
vinna á vegum ríkisins. Hér f
er þó þegar falin 4% kaup-
hækkunin sem þegar hefur náð
fram að ganga.
1 fjárlagafrumvarpinu er ekki
gert ráð fyrir fjárveitingum til
aðstoðar við sjávarútveginn,,
svipuðum þeim og reyndist!
settar með sérstökum lögum og
má búast við að svo verði aft-
ur gért ef til þeirra verður
gripið.
Uppdrátfur —
Framh. af bls. 16
á skika þeim sem kallaður er
Vínland má sjá firði tvo sem
líkjast einkennilega mikið
strandlínunni við St. Lárens-
flóa og Nýfundnaland. Hefur
norskj landkönnuðurinn Helge
Ingstad nú sérstaklega bent á
. ’-essi einkenn; og telur hann
að þau sanni nú enn betur
kenningar hans um að Vínland
hafi verið, þar sem Nýfundna-
land er nú.
Á uppdrættinum sem nú birt
ist hér geta lesendurnir séð, að
Vínland er markað sem stór
eyja lengst til vinstri á mynd-
inni. Inn í eyjuna skerast að
austanverðu tveir firðir. Nyrðri
fjörðurinn er mjög þröngur og
þykir hann minna á hið mjóa
Fagureyrarsund milli Labrador
og Nýfundnalands en ekkl hef-
ur mönnum þá verið ljóst að
hægt væri að komast í kringum
Nýfundnaland.
Syðri fjörðurinn er miklu
víðari og minnir sérlega mikið
á St. Lárens-flóa fyrir sunnan
Nýfundnaland. Er það varla til
viljun að þessi líking er þarna
finnanleg
Einnig má á það benda, að
uppdrátturinn af Grænlandi er
ótrúlega likur landinu eins og
það er í raun og veru. odd-
hvasst suður á bóginn að
Hvarfi með mörgum fjörðum.
Og ísland hefur að nokkru sitt
sérkennilega mót, þar er greina
má á því Vestfjarðakjálkann,
en annars voru mörg kort af
íslandi frá þessum tíma lögunar
laus.
Hlýtur þessi ótrúlega ná-
kvæmni á landabréfinu af þess
um íslenzku löndum á sama
tíma og önnur lönd ýmis eru
rangt gerð að styrkja þá skoð-
un, að sá sem gert hefur þenn
an uppdrátt hafi haft undir
höndum fslenzkan uppdrátt frá
þessum tímum sem nú sé týnd
ur.
Slys —
Framh. af bls. 16
flutt í Landspítalann ásamt full
orðnu konunni. Hvorugan pilt-
inn £ VW-bílnum sakaði og ekki
Kortafundurinn lítið merki-
/r
legur fyrir Islendingu
— segir Björn Þorsteinsson sagnfræðingur
Vísir spurðist fyrir hjá Bimi Vigneras skjal frá 1498, skýrslu um
Þorsteinssyni sagnfræðingi sem er
manna fróðastur um sögu Græn-
lands og Vínlands að fornu um
kort það af Vínlandi sem fundizt
hefur. Fer frásögn hans hér á
eftir:
„Fundizt hefur kort, sem sannar,
að 15. aldar menn voru betur að
sér I landfræðisögu en flestir
fræðimenn 20. aldar.
Það er vant að sjá eða skynja
úr fjarlægð, hvaða gildi þetta kort
hefur. Vitlausum útlendingum get
ur þótt svona kort merkilegur
hlutur, þótt það sé nauðaómerki-
legt í sjálfu sér. Við vitum öll hér
á landi og reyndar einstakir menn
í öðrum löndum einnig, að Bjarni
Herjólfsson fann Ameríku og sigldi
frá Eyrarbakka. Leifur heppni
Eiríksson kaupir af honum skipið
og fer að hans tilvísan og kannar
lönd á Austurströnd Kanada. Síðan
gerðu Grænlendingar út óteljandi
leiðangra vestur yfir hafið. Við
eigum heimildir um leiðangra Leifs,
Þorvalds bróður hans, Þorfinns
karlsefnis, Freydísar Eiriksdóttur,
Eiríks biskups Gnúpasonar 1121,
og loks kemur hingað til lands
Marklandsfar, þ.e. grænlenzkt
skip, sem var í förum milli Græn-
lands og Kanada 1347.
Við vitum með sannindum, að
Grænlendingar stunda Ameríku-
ferðir, siglingar vestur til Kanada
og Nýfundnalands frá því um 990
og fram til miðrar 14. aldar, en
Norðmenn, íslendingar og fleiri
þjóðir áttu síðan bein skipti við
Grænlendingar. Englendingar taka
að sigla til Grænl. um eða upp úr
1420. Og nál. 10 árum síðar munu
þeir vera komnir á Nýfundnalands-
svæðið.
Merkasti landfundaatburður síð-
ferð Cabots til Nýfundnalands árið
áður. En í þessari skýrslu segir að
Bristolmenn hafi fundið og kannað
Nýfundnaland en otras tiempos.
Þetta sagði Pomero mér að merkti
„í gamla daga“ á íslenzku. Þeir
gömlu dagar voru um 1430.
Bristolmennimir sigldu á ísland
og sigldu á Grænland og Ameríka
glataðist aldrei úr landafræði
Evrópu frá því að það fannst.
Á það má benda að það hafa
verið gerð merkilega rétt kort af
Grænlandi og Norður-Atlantshafi
um 1427 og um 1430. Á þessum
kortum er gert ráð fyrir að hægt
sé að sigla frá Noregi vestur til
Kína og Japans. Þessi kort eru
komin í hendur Toscanellis, italsks
læknis og kortagerðamanns 1439,
en hann teiknaði síðan kort handa
Kolumbusi.
Annars er þessi saga rakin,"
sagði Björn Þorsteinsson, „mjög
ítarlega í ritgerð sem ég hefi skrif-
að í Sögu, tímarit Sögufélagsins, og
kemúr út innan skamrns".
nauðsynlegt að framkvæma í ustu aldar gerðist suður á Spáni
fyrra. Voru þær ráðstafanir þá ! 1956, þá fann bandarískur prófessor
Hjartkær eiginmaður minn
GEIR KONRÁÐSSON
Laufásvegi 60
andaðist 10 þ. m. Jarðarförin ákveðin síðar.
Guðbjörg G. Konráðsson.
Útvarpið framdi
ekki frúnaðarbrof
Það var mishermt í fregn hér í
blaðinu í gær að Ríkisútvarpið
hafi lesið fréttina um fund Vín-
landskortsins í hádegisútvarpinu á
sunnudag. Fréttin var ekki lesin
fyrr en í kvöldfréttum kl. 7,30.
Hefur því fréttastofa útvarpsins á
allan hátt virt hin strengilegu fyr-
irheit bæði NTB fréttastofunnar
og Yale bókaútgáfunnar um bann
við birtingu fregnarinnar um
landabréfið þar til á sunnudags-
kvöldið kl. 18.30. Þessi birtingar-
fyrirmæli voru ótvíræð, bæði til
blaða og útvarps. Fréttaskeytin,
sem hingað bárust frá norsku
fréttastofunni NTB voru öll með
greinilegum fyrirmælum um að
birta fregnina ekki fyrr en á
sunnudagskvöld og hið sama hafði
Yale University Press ítrekað í
bréfi, sem öllum íslenzku blöðun-
um barst í síðustu viku. Enginn
fréttaaðili, blað eða útvarp, þurfa
því að vera f vafa um að birting
fregnarinnar fyrir þennan tíma var
allsendis óheimil.
heldur ökumann vörubifreiðar-
innar sem í árekstrinum lenti.
Vísir átti í morgun tal við
Borgþór Þórhallsson, rannsókn
arlögreglumann, sem hafði
rannsókn málsins með höndum.
Hann var þá búinn að yfir-
heyra ökumenn beggja bifreið-
anna sem hlut áttu að máli og
auk þess nokkur vitni. En hann
kvaðst enn eiga eftir að yfir-
heyra nokkra sjónarvotta. Það
myndi hann gera í dag og bjóst
við að úr því lægju orsakir slyss
ins ljósar fyrir.
Nöfn hinna slösuðu kvaðst
Borgþór ekki geta gefið upp,
að svo komnu máli vegna þess
hve alvarleg meiðsli þeirra
væru.
Bruninn —
Framhald af bls. 1.
sjö karlmenn og ein kona. Þrátt
fyrir það komust þau aðeins
með naumindum út úr eldinum.
Slökkviliðið fékk tilkynningu
gegnum brunaboða um eldinn
kl. 20 mín. yfir 2 og var nokkr
um mínútum síðar komið á stað
inn. Slökkviliðsstjóri er Pétur
Blöndal og hefur hann með sér
20 manna vaskt lið sem er kall
að út og komu þeir fljótt á stað
inn.
Eldur var þá talsvert mikill
inni í húsinu og nokkru sfðar
brutust eldtungur út um eina
hurðina á neðri hæð. En nm kl.
3 höfðu þeir náð yfirhöndinni.
enda var veður stillt og nm kl.
3.30 höfðu þeir að mestu slökkt
eldinn.
Það er ömurlegt um að litast
í húsinu, þar er allt eyðilagt af
eldi og reyk. Ekkert var í hús
inu af flögðum tunnum en nokk
uð af tómum tunnum, 100 tn.
af salti sem allt er ónýtt, nokk-
uð af veiðarfærum svo og ým
iss konar birgðir aðrar
Vinnuskúr
Góður vinnuskúr, 10—12 ferm., óskast tfl
kaups, einnig óskast á leigu um óákveðhm
tíma skemma eða braggi, sem nota mætti
sem verkstæði. Sími 32756 eftir kl. 7 í kvöíd.
\
Husetur
Vantar háseta á góðan línubát. Upplýsingar
á herbergi 404, Hótel Borg.
Nuuðunguruppboð
Annað og síðasta uppboð á vélbátnum
Straumi G.K. 302 fer fram í bátnum við Suð-
urgarðinn í Hafnarfiarðarhöfn á morgun, 13.
okt. kl. 14.00.
BÆJARFÓGETINN I HAFNARFIRÐI.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í skurðgröft fyrir vatnsveitu í
Þykkvabæ (um 20 km) Útboðsgagna má vitja
á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen og
hjá Sigurbjarti Guðjónssyni Hávarðarkoti
Þykkvabæ gegn 500 kr. skilatryggingu. Til-
boðum skal skilað til Sigurbjartar Guðjóns-
sonar Hávarðarkoti Þykkvabæ eigi síðar en
mánudaginn 18. þ. m. kl. 4. e.h.
ÓDÝRT
Vinnuskyrtur, vinnubuxur, nærfatn
aður, öokkar. Hagstætt verð.
EtŒlA
/r?eð fafriaðinn á fjölskylduna
Laugaveg 99, Snorrabrautar megín - Sími 24975