Vísir - 07.12.1965, Síða 6
6
VÍSIR . Þriðjudagur 7. desember 1965.
I-+M
BB
Lögfræðingar halda fund um:
ENDURBÆTUR
Á RÉTTARFARI
1 kvöld verður hið merkasta
mál tekið til umræðu á fundi
Lögfræðingafélags íslands. Rætt
verður um efnið: „Aðkallandi
endurbætur á réttarfari, dóm-
stólaskipan og aðbúnaði að dóm
urum“. Verður fundurinn í
Tjamarbúð og hefst kl. 20,30.
Stutt framsöguerindi halda
þeir Guðmundur Ingvi Sigurðs-
son hrl. og dómarafulltrúamir
Jón Finnsson og Magnús Thor-
oddsen. Að erindum þeirra lokn
um verða almennar umræður.
Óhætt er að fullyrða að það
efni, sem á fundinum vérður
rætt, er mjög tímabært að tek
ið sé til umræðu, þar sem bæði
meðal starfandi lögfræðinga og
dómara eru uppi ákveðnar skoð
anir og tillögur um að ýmsum
atriðum réttarfarsins og dóm-
stólaskipunar þurfi að breyta til
betri vegar og hverfa frá göml
um háttum. Má búast við mikl
um umræðum um fundarefnið,
en hinum stuttu framsöguerind
um er ætlað að skýra málin frá
hinum ýmsu sjónarhomum rétt
arframkvæmdarinnar.
Heimdallur —
Framh. af bls. 4:
hingað Þjóðverji í starfsskiptum
og vann f banka. Héðan hafa
farið 14 stúdentar í skiptum, á
s.I. sumri voru þeir 6, en hingað
komu þá 4 útlendingar, þrír Þjóð
verjar og einn Dani. Þeir störf-
uðu 1 bönkum og á Hagstof
unni. Þakka ber aðstoð þessara
stofnana, en við vonumst til,
að útflutningsfyrirtæki íslenzk
sjái sér fært að taka á móti
slíkum starfsmanni á okkar veg-
um f framtíðinni, því að eðli
legt er, að útlendingamir kjósi
helzt að vinna hjá þeim fyrir-
tækjum er einkennast af aðalat
vinnuvegum landsmanna. Stúd-
entar, sem héðan hafa farið,
telja þessi skipti mjög gagnleg
og með aðstoð sinni hafa hin
ýmsu fyrirtæki stuðlað að betri
menntun súdentanna.
Árós —
Læknar —
Framh. af bls. 1
henni. En þegar konan snerist til
varnar barði hann hana og veitti
henni áverka. M. a. er hún með
sár á höfði, glóðarauga á báðum
augum, mölbrotnar í henni gervi-
tennur og víða marin á líkaman-
um.
Eftir þessa meðferð á konunni
snaraðist árásarmaðurinn eins
fljótt út og hann hafði komið inn
og hvarf út í myrkrið.
Konan gat hins vegar gert vart
við sig hjá sambýlisfólki sínu í
húsinu, en það hafði ekki heyrt
til hennar m. a. vegna hávaða í
útvarpstækjum sem í gangi voru.
Konan var flutt í sjúkrahús og
liggur þar nú, en lögreglan leitar
árásarmannsins.
Þjórsá —
Framli. af bls. 1
frost, oft dögum saman um 10
stiga frost og er nú svo komið,
að allir lækir eru orðnir botn
frosnir. Fossá og Sandá í Þjórs
árdal eru báðar að því er virðist
botnfrosnar og Hvítá hið mikla
fljót Árnesinga er víða lagt ísi.
Hins vegar hefur frostið enn
ekki yfirbugað hina miklu elfi
Þjórsá. enda er hún vatnsmesta
og ein straumharðasta á lands-
ins. Var tilkomumikil sjón eftir
að hafa ekið yfir Hvítá í klaka
böndum, að koma að Þjórsá, þar
sem hún vall áfram með miklum
straumþunga, á bökkimum og á
sandeyrum úti f ánni voru famir
að setjast að klakabólstrar eins
og þeir væru að byrja að þrengja
að farvegi hennar. Þannig stend
ur hin stöðuga barátta milli nátt
úruaflanna.
Annars er merkilegt að sjá
uppi í Þjórsárdal, þær miklu und
irbúningsframkvæmdir undir raf
virkjun, sem þar eru hafnar og
á það sérstaklega við um vega
gerðina. Hvarvetna er unnið að
því að styrkja og breikka veg-
inn upp Gnúpverjahrepp og mik
il ný vegalagning hefur verið
gerð f Þjórsárdal, þar er búið að
brúa myndarlega bæði Fossá og
Sandá og ágætur vegur hefur
verið lagður upp á Búrfellsháls
inn og alveg að virkjunarstaðn-
um í nánd við Tröllkonuhlaup.
Er vegur þegsi nú svo sléttur og
góður, að hann er betri en
nokkru sinni að sumarlagi, hann
er þurr og frostið hefur hert
hann og styrkt.
Neðan undir Búrfellshálsi má
svo sjá leifamar eftir þá jarð
gangaborun sem þar var gerð f
tilraunaskyni fyrir tveimur ár
um. Þar liggja ennþá járnbraut
arteinar og járnbrautarvagnar
sem notaðir voru til að flytja
jarðeftiin út, en öfært Vár inn
í göngin sakir þess að vatn hef
ur síazt þar út úr jarðlögunum
og myndar nú ísfoss sem lokar
fyrir jarðgangamunnann.
VEGIRMOKAÐIR
í dag er verið að moka snjó á
vegum á allri Norðurlandsleiðinni
til Akureyrar, þar sem ófært eða
illfært var orðið vegna snjó-
þyngsla. /
Eru moksturstæki í gangi strax
á Holtavörðuheiði, önnur moka
norður frá Blönduósi og Langa-
dalsveginn að Vatnsskarði.
Þriðju tækin eru í gangi í Skaga-
firði og ryðja leiðina bæði aust
an og vestan Héraðsvatna, vestur
á Vatnsskarð og að mörkum Öxna
dalsheiðar, og loks taka moksturs-
vélar frá Akureyri við og ryðja
leiðina þaðan inn Öxnadalinn og
upp á Öxnadalsheiði.
Hjörleifur Ólafsson hjá Vega-
gerðinni tjáði Vísi í morgun að
mokstursskilyrði væru hin ákjós-
anlegustu, víða mikill snjór að
vísu, en veður bjart og lygnt.
Taldi hann allar líkur benda til að
fært yrði milli Akureyrar og
Reykjavfkur í dag, enda munu
margir vöruflutningabílar vera á
leiðinni, auk áætlunarbíls Norður-
leiðar.
Sömuleiðis er verið að moka
norður Strandir og búizt við að
fært verði til Hólmavíkur síðdegis
í dag. Loks er verið að moka í
Dölum vestur og verður mokað
alla leið í Króksfjarðarnes í Barða
strandarsýslu.
í Húnaþingi er fremur snjólétt
vfðast þótt ófært hafi orðið í
Langadalnum. I Skagafirði er aftur
á móti mikill snjór og vegir víða
ófærir, einkum austan Héraðs-
vatna. í Eyjafirði er kafaófærð á
öllum vegum og þeír ekki færir
nema állra kraftmestu bílum.
Áætlunarbill komst þó milli Akur-
eyrar og Húsavíkur í gær, en átti
í miklum erfiðleikum og var allan
daginn á leiðinni.
■ Á Austurlandi hefur færð
versnað til muna og margir vegir
ófærir orðnir — þó er fært milli
Egilsstaða, Reyðarfjarðar og Eski-
fjarðar.
Á Suðurlandi er færð óbreytt.
I
Framh. af bls. 16
uðu alls staðar jafnvel. Sagði hann
að samkvæmt áliti lækna er starf
að hefðu á Vestfjörðum myndi
læknamiðstöð ekki vera eins hent
ug þar og t.d. á Suðurlandsundir
Iendi, í Borgarfirði, við Breiða-
fjörð, víða á Norðurlandi og jafn
vel á Austurlandi. Eins og segði
í athugasemd Læknafélags íslands
væri félágið ávallt reiðubúið að
tæða tillögur til úrbóta við þau
stjómarvöld sem hlut eiga að máli.
Sú athugasemd sem blaðinu
barst frá Læknafélagi Islands, fer
hér á eftir:
Að gefnu tilefni vill stjóm
Læknafélags íslands taka fram, að
hún telur, að vandræði þau, sem
nú ríkja hér á landi vegna lækna
skorts í dreifbýlinu, verði víðast
hvar leyst bezt á þann hátt að
komið verði á fót læknamiðstöðv
um þar sem fleiri læknar sameinist
um þjónustu á stærri svæðum en
nú taka yfir einstök læknishéruð.
Frá slíkum stöðvum fari læknar
síðan í vitjanir eftir því sem með
barf hverju sinni og með þeim
farartækjum, er bezt henta á
hverjum stað, bilum, snjóbílum,
byrlum eða öðrum flugvélum. Er
slíkt fyrirkomulag í samræmi við
4. gr. Læknaskipunarlaga frá 6.
maí 1965 og er stjóm Læknafélags
íslands þess fullviss, að það muni
víða bæta úr brýnni þörf. I
Læknasamtökin eru að sjálf
sögðu alltaf reiðubúin að ræða til
lögur til úrbóta við þau stjórnar
völd, sem hlut eiga að máli, bæði
varðandi þann vanda, sem hér steðj
ar að, sem og önnur þau vandamál
er upp kunna að koma í heilbrigð
ismálum þjóðarinnar hverju sinni.
Stjóm Læknafélags íslands.
BUICK
Kögglar —
Framh. af bls. 1
mál síldar á ári. Mundi spam-
aðurinn við slíka verksmiðju
verða nettó rúmar 5 milljónir
króna.
Við kögglaframleiðsluna
vinnur aðeins einn maður, sem
gætir vélarinnar, en I mjöl-
húsinu vinna ekki aðrir menn.
Eins og nú er, fer mikill hluti
vinnulaunanna 1 síldarverk-
smiðju fyrir vinnu í mjölhúsi,
jafnvel þó að nokkur sjálfvirkni
hafi verið innleidd við pokun-
ina.
í útskipunarkostnaði sparast
mikið fé þar sem ekki þarf
mannafla í lestum til að taka
á móti mjölkögglunum. Þá
rúmast kögglamir mun betur en
pokar og er talið að það muni
allt að 40%.
í lok greinar sinnar segir Jón
Gunnarsson: „Mér vitanlega er
ekkert, sem getur aukið fram-
leiðni í síldar og fiskimjölsfram
leiðslu íslendinga eins mikið
og það að hætta að setja mjölið
í poka. Það er hliðstætt því,
þegar hætt var að setja síldar-
lýsi á tunnur. Vonandi verður
ekki langur dráttur á fram-
kvæmdum þessa mikilsverða
máls“.
NÝJAR OTLTNUR — NÝTT GRILL
NÝTT FJÖLBREYTT ORVAL AF
AKLÆÐI - NÝTT MÆLABORÐ
BUICK HEFUR ALLT ÞAÐ BEZTA
Leitio uppíýsinga hjá Véladeild SIS, Ármúfa 3 Sími 38900