Vísir - 16.12.1965, Side 1
MikiS hvassviðri með úrfelH
gekk yfir sunnan og vestanvert
landið í gær og nótt. Orsakaðist
það af mjög djúpri lægð sunnan
úr hafi sem kom upp að landinu
í gær, og telur Veðurstofan hana
vera með dýpri lægðum sem yfir-
leitt gerast hér við land.
Með morgninum tók mjög að
hvessa og náði veðurhæðin 12
vindstigum á Stórhöfða í Vest-
mannaeyjum um hádegisleytið í
gær. Annarsstaðar um sunnan og
vestanvert landið var víðasthvar
8—10 vindstig þegar hvassast
varð.
Skammt undan Reykjanesi
breytti lægðin um stefnu, til norð-
vesturs í stað þess að fara yfir
landið og fylgdi henni mjög mikil
úrkoma. Mest rigndi í Kvígindisdal
við Patreksfjörð eða 21 mm á
tímabilinu frá kl. 5 siðdegis í gær
Framh. á bls. 6.
Fulltrúar allra fíokka fjölkiíu um alúmínmálið
Skýrsla Jóhanns Hafsfeins iðnaðarmála-
ráðherra um byggingu alúmínverksmiðju
fimdi í sameinuðu Alþingi í gærkvöldi flutti Jóhann Haf-
stein, iðnaðarmálaráðherra skýrslu rikisstjómarinnar um þær
viðræður sem hafa átt sér stað um byggingu alúmínverk-
smiðju hér á landi. Fer ræða ráðherrans í heild hér á eftir.
Þann 5. maí sl. lagði ríkisstjóm-
in fram á Alþingi skýrslu um þá
athugun á byggingu aluminium-
verksmiðju hér á landi, sem fram
til þessa hafði farið fram að til-
stuðlan ríkisstjómarinnar og á
vegum stóriðjunefndar.
Allítarlegar umræður urðu um
þessa skýrslu í þinginu næstu daga
Áður en hér var komið hafði
stóriðjunefnd þann 14. nóv. 1964
skilað ftarlegri skýrslu til ríkis-
stjórnarinnar um aluminiumverk-
smiðju og stórvirkjun, en þar voru
störf nefndarinnar og gangur við-
ræðna við erlend aluminiumfyrir-
tæki rakin fram til þess tima.
Skýrsla þessi ásamt fylgiskjölum
var afhent öllum alþingismönnum
sem trúnaðarmál skömmu síðar
þ.e. 23. nóv. Einnig höfðu þing-
mönnum verið afhentar skýrslur
stóriðjunefndar um framhaldsvið-
ræður í málinu, sem fram fóru í
desembermánuði 1964 í Ziirich og
í Washington í marz 1965 og loks
í Reykjavík dagana 31. marz og
1. apríl. Aðilar þeir sem tóku þátt
í þessum viðræðum voru fulltrúar
íslenzku ríkisstjórnarinnar, fulltrú
ar Swiss-AIuminium og fulltrúar
frá Alþjóðabankanum.
Með þessari skýrslugerð og um-
ræðum um hana má segja að gerð
hafi verið til hlítar grein fyrir
hvernig horfur voru á þessum tíma
f þessu máli. Jafnframt hafði það
gerzt, að fyrir Alþingi hefði verið
lagt frumvarp til laga um lands-
virkjun og var það afgreitt á síð-
asta þingi, en í því frumvarpi
fylgdu ítarlegar skýrslur og grein-
argerðir sérfræðinga um þær rann
sóknir, sem fram höfðu farið hér
á landi um möguleika til stórvirkj-
ana í fallvötnum landsins.
Einnig hafði þingmannanefnd
skipuð fulltrúum þriggja þing-
flokka unnið að athugun málsins
frá því 9. febrúar, en eftir að fram
var lögð skýrsla rikisstjómarinnar
þann 5. maí var fjölgað f nefndinni
og einnig teknir f hana fulltrúar
Alþýðubandalagsins, þannig að síð
an hafa allir þingflokkar átt sæti
í þessari þingmannanefnd.
Framh. á bls. 7.
Jóhann Hafstein
iðnaðarmálaráðherra
Skreytt fyrir jólin
Jðlaundirbúningur er f fuli-
um gangi og ekki sfzt í barna
skólum borgarinnar þar sem
krakkamir kepptust við að
skreyta stofurnar sfnar f morg
un. Það er áreiðaniega eitt af
því skemmtilegasta, sem þau fá
að gera í skólanum og tilhlökk-
unin til jólagleðinnar og jóiafrís
ins eykur vinnugleðfna. Svo ýtir
undir metingurinn hver hafi fail
egasta stofu og fallegasta töfiu
skreytingu.
í Vogaskólanum var verið að
undirbúa jólahátíðahöldin í
skólanum í morgun. Stór
grenitré lágu í forsal og átti
að fara að skreyta þau. I hverri
stofu var verið að vinna við
skreytingarnar, þeir drátthög-
ustu í bekkjunum lögðu sig alla
fram við að teikna sem fallegast
á töfluna, jólasveinarnir voru
vinsæíastir bæði sem skreyting
á töflum og í gluggum og víðar.
Sum voru að hengja upp jóla-
skraut í loft og á veggi og önn
ur voru að ganga frá jólagjöf
unum en hver krakki fær eina
jólagjöf frá einhverjum í bekkn
um og er dregið um gjafimar..
Allir unnu kappsamlega því
að jólagleði fyrstu bekkjanna
átti að hefjast eftir hádegið.
Ingólfur Jónsson
landbúnaðarmálaráðherra
Um hádegisbilið í dag var
hin íslenzka matstofa og
kynningarstaður Iceland
Food Center í Regent Street í
London opnaður af Ingólfi
Jónssyni landbúnaðarxáð-
herra. Viðstaddir athöfn
þessa voru um 70 gestir. Auk
ráðherrans vou þama Guð-
mundur í. Guðmundsson
sendiherra, stjórn fyrirtækis
ins og nokkrir íslendingar,
þeirra á meðal Bjöm Bjöms
son kaupm., sem hefur unnið
mikið að þessu máli.
Af brezkum mönnum, sem
þarna voru má nefna John
Mackie talsmann brezka land
búnaðarráðuneytisins í þing-
inu, Lady Phillips fram-
kvæmdastjóra Verkamanna-
flokksins í lávarðadeildinni,
Joseph Godber landbúnaðar-
ráðherraefni Ihaldsflokksins.
Lord Mountevans, þingmenn-
ina dr. Reginald Bennett frá
íhaldsflokknum og Louis Cart
er Jones frá Verkamanna-
flokknum og Mr. Doddson
fulltrúa brezka utanríkisráðu
neytisins.
Ræða Ólafs Johnsons
Ólafur Ó. Johnson formaður
stjórnar flutti fyrst ræðu þar
sem hann bauð gesti vel-
komna. Hann ræddi um fyrir
hugaða starfsemi Iceland
Food Center, sem ætti ekki
aðeins að vera matstofa, held
ur líka íslenzkur sýningar-
Framh. á bls. 6.
Um sjötíu gestir viðstaddir opnun
lceland Food Center í London