Vísir - 16.12.1965, Blaðsíða 7
VÍSIR . Fimmtudagur 16. desember 1965,
7
Bygging alúmínverksmiðju við Stnmm
Framh. af bls. 1
Unnið sleitulaust að
samningsuppköstum
Eins og kunnugt er fóru fram
framhaldsviðræður milli sömu að-
ila og áður hér í Reykjavfk, dag-
ana 1.-3. des. og gaf þá iðnaðar-
málaráðuneytið út fréttatilkynn
•ingu þess efnis, að samkomulag
hefði náðst í viðræðum milli full-
trúa aðilanna í meginatriðum.
Það sem næst lægi fyrir væri að
ganga frá samningsuppköstum
með margháttuðum fylgiskjölum
og myndu lögfræðingar aðila
vinna að því í desember. Það hafa
komið fram óskir um, að frá því
yrði nokkuð nánar greint hér í
þinginu, hvað aðhafzt hefur verið
síðan í maí á þessu ári og hvað
líklegt sé, að framundan verði um
meðferð málsins innan ríkisstjóm-
ar og á Alþingi.
Ég gerði grein fyrir því hér í
umræðunum á Alþingi í vor, að ég
teldi málið þá vera komið á nokk-
uð nýjan vettvang, þ.e. af hreinu
umræðustigi og á þann grundvöll,
að þess bæri að freista, hvort
samningar gætu tekizt milli aðila.
Á þessu stigi májsins höfðu að
eins verið gerð frumdrög af Is-
lands hálfu að svokölluðum aðal-
samningi við hið svissneska fyrir-
tæki og jafnframt fmmuppdrög að
orkusölusamningi. í lok maímán-
aðar bárust okkur íslendingum ný
samningsuppköst af hálfu Sviss-
lendinganna og síðan hefur sleitu-
laust verið pnnið að því að koma
slíkum samningsuppköstum í það
horf, er báðir aðilar gætu við unað
Ég vil geta þess, að samnings-
uppköst Svisslendinganna frá því
í maímánúði ollu okkur nokkrum
vonbrigðum og hafa skapað ýmsa
erfiðleika e.t.v. ekki sízt vegna
þess, hvemig þeir voru þá form-
aðir af hálfu lögfræðilegra ráðu-
nauta hins svissneska fyrirtækis
og höfðum við sitt hvað við það
að athuga. Gerði ég þingmanna-
nefndinni strax í Zúrich þann 17.
júní, grein fyrir þpssu og nefndin
fékk þessi uppköst Svisslending-
anna til meðferðar eftir heim-
komu.
Þingmannanefndin kynnir
sér reksturinn
Ég vil skjóta þvi hér inn, að um
þetta leyti hafði orðið að ráði, að
þingmannanefndin tæki sér ferð á
hendur erlendis, til þess að kynn-
ast betur byggingu og rekstri alum
iniumbræðslna, eða verksmiðja.
Nefndin fór því til Noregs í júní-
mánuði og kynnti sér þar bygg-
ingaframkvæmdir við aluminium-
verksmiðju, sem Svisslendingar eru
að reisa þar í Husnes í samvinnu
við Norðmenn, en gert er ráð fyrir
að þar sé um að ræða aluminium-
verksmiðju af sömu stærð og ráð-
gert hefur verið hér. Á sama tíma
kynnti nefndin sér í Þrándheimi
þær rannsóknir, sem vísindastofn
un þar innti af höndum fyrir hönd
raforkumálastjórnarinnar í sam-
bandi við ismyndanir i Þjórsá og
aðra erfiðleika í sambandi við
byggingu raforkuvers við þetta
stærsta fallvatn landsins. Síðan var
haldið til Sviss og heimsóttar aðal-
stöðvar Swiss-Aluminium { Zúr-
ich og jafnframt skoðaðar alum
iniumbræðslur og. verksmiðjur,
sem framleiða úr aluminium, sem
sama fyrirtæki á og rekur í Suð
ur-Sviss. Hygg ég, að nefndar
mönnum hafi með þessu móti gef
izt nokkuð góður kostur á því að
kynna sér eftir því sem verða
mætti, hvemig hið svissneska fyr
irtæki er upp byggt og hagar
rekstri sínum og allt hafi það orð
ið þingmönnum til nokkurs lær-
dóms.
Aðalsamningur og raf-
orkusamningur athugaðir
Þann 13., 15. og 16. júlí voru
haldnir fundir í þingmannanefnd-
inni að nýju, þar sem farið var ít-
arlega yfir samningsuppköstin að
aðalsamningi og raforkusölusamn
ingi, sem okkur höfðu borizt í lok
maímánaðar. í þessa endurskoðun
þingmannanefndarinnar fór mikið
verk, en hún hafði áður verið und
irbúin áf ráðunautum og sérfræð-
ingum ríkisstjómarinnar ásamt
mér sem iðnaðarmálaráðherra.
Þeir sem áttu hér hlut að máli
voru dr. Jóhannes Nordal, formað-
ur stóriðjunefndar, Hjörtur Torfa-
son, lögfræðingur, Steingrímur Her
mannsson, verkfræðingur, Eiríkur
Briem, rafmagnsveitustjóri og
Brynjólfur Ingólfsson, ráðuneytis
stjóri í iðnaðarmálaráðuneytinu.
Fundur ákveðinn í
desember
Ekki reyndist fært að koma fund
um á að nýju milli fulltrúa hinna
þriggja aðila, fyrr en 12. okt. sl.
en þá komu hingað fulltrúar Swiss
Aluminium og Alþjóðabankans
á þriggja daga fund. Að loknum
þeim fundi var ákveðið að efna til
nýs fundar í byrjun desembermán.
en á milli þessara fpnda þurfti
hins vegar að vinna ýmis verk á
grundvelli viðræðna og álitsgerða
frá október-fundunum. Af því til-
efni fóru lögfræðingar okkar,
Hjörtur Torfason og Brynjólfur Ing
ólfsson, til fundar f New York í
byrjun nóvembermánaðar með lög
fræðingum Svisslendinganna og A1
þjóðabankans og formaður stór
iðjunefndar ásamt ráðuneytisstjór-
anum í iðnaðarmálaráðuneytinu
fóru einnig til fundar við aðalfor-
stjóra Swiss-Aluminium í Zúrich
um miðjan mánuðinn. Jafnframt
fór Steingrímur Hermannsson til
Noregs til þess að afla upplýsinga
um sérfræðileg atriði í sambandi
við aluminiumvinnslu og hafa þar
samráð við sérfræðinga og fjár
málamenn um aðstöðu Norðmanna
við slíkan atvinnurekstur, ef vera
mætti; að okkur gæti orðið það að
nokkru liði. Naut hann í því sam
bandi aðstoðar Hans Andersen,
ambassadors í Osló. Þingmanna-
nefndinni voru gefnar ítarlegar
skýrslur um þessar viðræður og
annað það, er máli skipti í sam-
bandi við þær og lialdnir jafn-
framt tveir fundir þann 26. og 30.
nóvember.
Rætt við bæjarstjórn
Hafnarfjarðar
Ég vil skjóta því hér inn, að eftir
að lögð hafði verið fram skýrsla
ríkisstjórnarinnar á Alþingi í maí-
mánuði, þótti ástæða til þess. að
hefja viðræður við bæjarstjóm
Hafnarfjarðar, en líkur bentu þá
þegar til þess, eins og fram kom
í skýrslunni, að hentugast mundi
að staðsetja væntanlega alumin-
iumverksmiðju við Straumsvík, rétt
sunnan Hafnarfjarðar. Þegar svo
enn stóðu fyrir dyrum viðræðu-
fundir fulltrúa ríkisstjómarinnar
og Swiss-Aluminium í október sl.,
er ætla mætti, að kynnu að skera
nokkuð úr um framvindu málsins
þótti rétt að taka upp formlegar
viðræður við bæjarstjóm Hafnar-
fjarðar um málið, og óskaði ég þá
eftir því með bréfi 8. október að
bæjarstjóm Hafnarfjarðar tilnefndi
fulltrúa af sinni hálfu, til form-
legra samningaumleitana við ríkis
stjómina um þá þætti verksmiðju
málsins, sem Hafnarfjarðarkaup-
stað varða. Af hálfu Hafnarfjarðar
hafa síðap tekið þátt I slíkum við-
ræðum bæjarráðið sem skipað er
þremur mönnum, og bæjarstjórinn
Hafsteinn Baldvinsson.
Þá ber einnig að hafa í huga, að
eftir að landsvirkjun var stofnuð
samkvæmt lögum frá síðasta Al-
þingi hefur meðferð raforkusölu-
samningsins og athuganir í sam-
bandi við hann, fyrst og fremst ver
ið í höndum stjórnar landsvirkjun
ar.
Frumdrög af öllum samn-
ingum á næsta leiti
Eftir síðustu viðræðufundi milli
fulltrúa ríkisstjórnarinnar, Swiss-
Aluminium og Alþjóðabankans,
sem haldnir voru hér fyrstu dag-
ana í desember, taldi ég málum
hafa miðað það verulega áleiðis,
að líklegt væri, að koma mætti
saman á næstunni frumdrögum að
öllum þeim samningum, sem hér
gæti verið um að ræða í því formi
sem viðunandi væri. Þótti þá ráð-
legt að ákveðá nýjan fund með
samningsaðilum í byrjun janúar-
mánaðar. Af okkar hálfu þótti þá
ástæða til að ætla, að upp úr því
gætum við, sem höfum verið í
I samningaviðræðum og haft stoð af
þingmannanefndinni fyrr og síðar
skilað frá okkur tillögum til rík-
isstjómarinnar. En sjálf ríkis-
stjómin hefur ekki haft aðstöðu
til þess að fara yfir samningsupp
köstin, sem um er að ræða, þó að
jafnan hafi verið haft samráð inn
an stjórnarinnar, eftir því sem
föng stóðu til. Hefur þá einnig
fjo-ir mér vakað, að þingemnn
fengju slík samningsuppköst jafn
liiiða til meðferðar eins fljótt og
gengið verður frá þeim eftir næsta
fund og búið verður að þýða það,
sem þýða þarf. Fælist í þessu, að
þingmenn allir gætu haft málsskjöl
in til meðferðar vemlegan langan
tfma, áður en að því kæmi, að
ríkisstjómin teldi sig reiðubúna til
þess að ganga til ákvarð.ana í mál-
inu.
Fylgiskjöl samningsins
En gert er ráð fyrir því, að áður
en málið yrði lagt fyrir Alþingi
mundi iðnaðarmálaráðherra undir-
skrifa aðalsamninginn fyrir hönd
íslenzku ríkisstjórnarinnar, en hon
um er ætlað að öðlast lagagildi
ef Alþingi fellst á efni samnings-
ins. En með því fororði eða skil-
yrði mundi ráðherra undirrita.
Þessum samningi mundu svo fylgja
til Alþingis eftirfarandi fylgiskjöl:
1) raforkusölusamningur, sem und
irritaður yrði einnig með skilyrði
af hálfu landsvirkjunarstjómar f.
h. okkar íslendinga, 2) samningur
um staðsetningu verksmiðjunnar
við Straumsvík og byggingu hafn-
ar, en gert hefur verið ráð fyrir
því, að Hafnarfjarðarbær hefði að-
ild þess máls í samráði við ríkis-
stjómina, 3) samningur um banka
tryggingar, sem svissneska fyrir-
tækið mundi gera við okkur, fyrst
og fremst til öryggis því, að engir
misbrestir yrðu á efndum þeirra
varðandi byggingarframkvæmdir
sem þó mundu ekki hefjast fyrr en
12-18 mánuðum eftir að sjálf Búr-
fellsvirkjun hefði hafizt. I fjórða
lagi er gert ráð fyrir ýmsum að-
stoðarsamningum, sem svissneska
fyrirtækinu er ætlað að gera við
hið íslenzka aluminiumfyrirtæki
sem jafnan hefur verið gert ráð
fyrir að stofnað yrði sem hlutafé-
lag. og mundi þá jafnframt stofn
samningur slíks félags fylgja sem
fvlgiskjal til þingsins.
Málið fyrir Alþingi I marz
Þetta er I stórum dráttum það,
'sem ég á þessu stigi hef um þetta
mál að segja fram yfir þær upplýs-
ingar, sem fram komu í skýrslu-
gerð ríkisstjórnarinnar í maímán
uði' sl. Tilboð í Búrfellsvirkjun í
Þjórsá eiga að hafa borizt hingað
upp úr 20. janúar, en verkið hef
ur verið boðið út á alþjóðavett-
vangi og þykir öruggt að mörg til
boð munu berast, bæði frá erlend
um aðilum pg frá íslenzkum aðil
um e.t.v. að .pinhverju leyti í sam
vinnu við erlenda aðila. Ég tel
ekki líklegt, að til undirskrifta
samninga komi fyrr en í lok febrú
armánaðar og málið kæmi þá til
meðferðar x Alþingi í marzmánuði
Sámtímis væri eftir að ganga frá
samningum við Alþjóðabankann
um þær lánveitingar, sem við hann
hefur verið rætt til virkjunarfram
kvæmdanna.
Efni hinna einstöku greina hinna
margháttuðu samningsuppkasta tel
ég ekki tímabært að víkja að nú.
Bæði ríkisstjóm og þingmenn eiga
eftir að fá öll þessi skjöl til með
ferðar áður en til slíkar umræður
gætu hafizt hér á Alþingi. Öll meg
inatriði málsins komu raunar
fram I skýrslugerðinni í vor, en
tíminn sem liðið hefur síðan hefur
í það farið að koma þeim megin-
sjónarmiðum í samningsuppkösí
og form, sem við teljum að menn
gætu sætt sig’við.
Vel ráðið að hafa fulltrúa
allra flokka í nefndinni
Ég veit að ég hef í þessum fáu
orðum mínum ekki sagt neina ný
lundu fyrir háttvirta þingmenn,
því þeir hafa haft vitneskju um allt
málið frá fulltrúum sínum í þing-
mannanefndinni. Um það var nokk
ur ágreiningur í öndverðu hvern
ig sú þingmannanefnd skyldi vera
skipuð. Ég tel, að það hafi ráðizt
vel að fulltrúar allra flokka áttu
sæti f nefndinni. Það hefur tví-
mælalaust orðið málinu til stuðn-
ings. Hins vegar breytir það að
sjálfsögðu engu um afstöðu þing
mannanna til málsins, þeir hafa
gert fyrirvara um það mjög skil
merkilega, fulltrúar stjórnarand-
stöðunnar, að þeir starfi í þessari
nefnd eins og hve'rri annarri þing
nefnd, óháð því, þegar að því kem
ur hvort þeir séu með eða á móti
málinu, en út í það skal ekki fara
nú, það er þingheimi nokkuð kunn
ugt frá efnisumræðum, sem fram
fóru hér á sl. vori.