Vísir - 18.12.1965, Blaðsíða 2

Vísir - 18.12.1965, Blaðsíða 2
2 VISIR . Laugardagur 18. desember 1965. HOLLENZKIR KARLMANNAFRAKKAR NÝKOMNIR Skyrtur - bindi Knapahúfur Sokkar P. EYFELD Ingólfsstræti 2 - Sími 19928 INDVERSKU HELGILJÓÐIN BHAGAVAD - GITA eru komín út í nýrri þýðingu Sörens Sörenssonar Bókin er gefin út í aðeins 299 tölusettum eintökum, og fæst aðeins hjá bókaverzlunum > Reykjavík hiá ótgefanda. Prentsmiðjn f*u-V>Mn ’ai 1 h ÍSAFOLD Sdpennandi óLáfdóög-ur á bóbamarhaÉi 1965. Dœgradvöl diplomata Eftir Roger Peyrefitte 205 bls. Kr. 230.OO . Segja má að þessi skáldsaga hafi blátt áfram vakið uppnám, þegar hún kom út fyrst fyrir nokkrum árum. Peyrefitte var um langt skeið háttsettur embættismaður í utanríkisþjónustu Frakka, og sá grunur hefir leikið á, að bókin ■ Dægradvöl diplomata sé byggð á reynslu hans sjálfs. Þykir Peyrefitte meir en alllítið ber- orður um líf og starf, ástir og áhugamál diplo- mata. í sumar varð Peyrefitte frægur á nýjan leik, er bók hans Gyðingurinn kom út, en í þeirri bók heldur hann því fram, að menn eins og Kennedy forseti, de Gaulle, Eisen- hower forseti o.fl. séu Gyðingaættar. Dægra- dvöl diplomata er spennandi skáldsaga og verður sjálfsagt mörgum íhugunarefni. Hinir vammlausu (THE UNTOUCHABLES) Eftir Paul Robsky. Ásgeir Ingólfsson þýddi. 162 bls. Kr. 220.oo Ekki þarf að kynna hina vammlausu fyrir íslenzkujn lesendum. Þeir þekkja bókina Þá bitu engin vopn, sem kom út í fyrra, og hina vammlausu þekkja þeir úr sjónvarpinu. Höf- undurinn, Paul Robsky segir um þessa bók sína: Hér er sögð í fyrsta sinn sagan af grun- semdum, sem ríktu í röðum hinna vamm- lausu — um þrjá þeirra, sem sviku félaga sína — um óhugnanlegar hefndir glæpafor- ingja Chicago. Gúró og Mogens Eftir Anitru. Stefán Jónsson, námsstjóri þýddi. 220 bls. Kr. 220.OO Norska skáldkonan Anitra varð alkunn hér á landi, er skáldsagan ,Silkislæðan“ kom út. Ekki minnkuðu vinsældir hennar er skáldsag- an Gúró kom út í fyrra. Gúró og Mogens er algerlega sjálfstæð saga, ættarsaga og ástar- saga — góð skáldsaga sem menn munu ekki leggja frá sér fyrr en hún er lesin öll. >okauerz íun ^óa^oídar RAKARÁSTOFUR eru opnar til kl. 9 í kvöld. Rakarameistarafélag Reykjavíkur. LAUSAR STOÐUR TIL LEIGU Einbýlishús á Seltjarnarnesi. Nánari uppl. í símum 16814 og 14714. Stöðuryfirlögregluþjóns almennrar löggæzlu, yfirlögregluþjóns umferðarmála og þriggja aðstoðarlögregluþjóna eru lausar til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi borgarlögreglu- manna. Umsóknarfrestur er til 1. janúar 1966. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 16. desember 1965.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.