Vísir - 18.12.1965, Blaðsíða 5

Vísir - 18.12.1965, Blaðsíða 5
5 V í SIR . Laugardagur 18. desember 1965. Eiður Sig- urðsson Sextugsnfmæli Eftir því sem kirkjubækur Isa- fjarðarkaupstaðar herma. varð sextugur fyrir skömmu, þ. e. 7. þessa mánaðar, Eiður Ágúst Sig- urðsson, starfsmaður hjá Eim- skipafélagi Islands h.f. Er skemmst frá að segja að vini hans og kunningja rak víst flesta í roga- stanz við þær fréttir. því að svo unglegur og sprækur er maðurinn, að þeir sem a.m.k. sjá hann í fyrsta sinn, mundu naumast trúa öðru en fertugur maður eða svo væri þar á ferð, þannig að rétta fæðingarárið væri 1925 eða þar um bil en ekki 1905. Skylt er þó að hafa það, sem sannara er, og telja vitnisburð kirkjubókanna réttan. Á hinn bóginn biður sá, er bessar línur ritar, afsökunar á því, að greinarkorn þetta varð í síðbúnara lagi af ásettu ráði þó og birtist því ekki á hinum rétta afmælis- degi Eiðs. Eiður er í föðurætt kominn af dugmiklum vestfirzkum sjómönn- um hið næsta, en er lengra er rak- ið aftur, af þróttmiklum frönskum skútu og duggarakörlum, sem ekki létu sér allt fyrir brjósti brenna. Voru Fransarar þessir tíðir gestir hér við land fyrr á öldum (og raunar allt fram í byrjun þessarar aldar), einkum við Vest- og Aust firði, þóttu ódælir nokkuð, ölkærir í meira lagi og djarftækir til kvenna. Létu þeir eftir sig fjölda I afkomenda cg niðja. svo sem sjá ! má enn í dag í fasi og svipmóti ! margs fólks, sem kynjað er úr þessum landshlutum. Er þetta ekki I sagt neinum til hnjóðs eða lasts i síður en svo. Móðurætt Eiðs er hins vegar borgfirzk og raunar al- kunn sóma- og dugnaðarætt, hin i svonefnda Sveinatunguætt, er rekja má til Mýramanna hinna fornu, að því er virðist. Sést því af þessu stutta vfirliti að Eiður á til gróskumikilla .‘ciarnaætta að telja. Má segja. að Tþ'ður hafi erft flesta beztc kosti ættanna, en sloppið- að mestu við það, sem al- | múginn mundi telja til ókostanna. Útþrána, gáskar og kraftinn , hefir l.ann úr ætt Wýramanna, en | léttleikann, kvenh-yllina og sjarm- | ann frá hinum fröníku forfeðrum sfnum Ungur að árum fluttist Eiður I frá ísafirði til Rvíkur og hóf störf hjá Eimskip nokkru fyrir 1930 og þar hefir hann starfað síðan óslitið fram á þennan dag, eða í meira en þriðjung aldar, og unað hag sfnum vel. Ekki hefir hann þó hafizt þar beint til mannvirð- inga. sem kallað er, enda maður inn ekki mikið gefinn fyrir að trana sér fram í metorðastiganum; metnaðarlftill er hann á sjálfur f hlut. Hafa því hæfileikar hans eigi nýtzt sem skyldi. Eiður var á „yngri“ árum sfn- um ágætur knattspymumaður, orðlagður fyrir hraða og leikni með knöttinn. Svipaður var orðstfr hans f fimleikum. Þessum fþrótt- um sinnti hann í nokkur ár, unz hann brákaðist við markvörzlu, sem betur fór ekki alvarlega, en nóg til þess, að hann gaf ekki kost á sér til þessara hluta framar. Eiður hefur alla tfð verið maður reglubundinn f háttum og rækt starf sitt vel, utan þess að hann hefir átt það til að bregða sér á leik út fyrir landsteinana þegar honum hefir svo boðið við að h rfa Hefir hann bá ekki alltaf fullnægt settum ákvæðum og serimoníum sem til slfkra ferðalaga eru gerð eða kært sig kollóttan um allt slíkt. Enginn meinlæta- maður er hann á lvstisemdir ! þessa heims, þegar þessi gállinn ! er á honum. I bikar hans hefir ! slóað góðvfc margs konar á liðn-1 um áratugum 3g enda þótt Eiður I hafi aldrei viljað ánetjast í hjóna- i ÍVERZLIÐ ÞAR ER MEST SEM URVALIÐ GEVAFÓTÓ HF. LÆKJ ARTORGI band, hefur hann vel kunnað að meta fegurð kvenna. Nú á þessum tímamótum i ævi Eiðs árna vinir hans og kunningj- ar fornir og nýir honum allrar farsældar Hann verður trúlega allra karla elztur og Reykjavik, einkum höfnin og hafnarlífið, sviplausara allt miklu þegar hann er allur. Honum verður vafalaust af sagnamönnum framtíðarinnar skipað á bekk með þjóðsagnaper- sónum, líkt og Símoni Dalaskáldi og öðrum litríkum furðufuglum og löngu horfnum góðkunningjum Reykjavíkur, því að slfkir orginal- ar munu ekki finnast á hverju strái á komandi árum, sízt nú, þegar allt er að kafna úr múg- mennskunni, andleysinu og lág- kúrunni. Magnús Pálsson. Og Leikhúskðcjar Höfum ávallt glæsilegt úrval af gleraugnaumgjörðum á alla f jölskyldima. Tilbúið samdægurs. Gjörið svo vel að líta mn. Gleraugnabúðin Lougavegi 46 iSúkkulaðiíó <SJanilluíó <~Ylougatíó cJ-ar&arberjaió skreyttar í ipöMÆum ístertur úr vannillaís og súkkulaðiís, þrjár stœrðir: &■?■■■ ?. ■>*: I ' 6 manna 9 manna 12 manna MJ<3LKURSAIÆSALAN Til jólagjafa Tókum upp f gær gott úrval af Barometum Hitamælam Smellu-hulstrum Einnig mjög fallegar Lomgnetter \

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.