Vísir


Vísir - 18.12.1965, Qupperneq 16

Vísir - 18.12.1965, Qupperneq 16
VISIR Laugardagur 18. desember 1965. m RUSSNESKI SILDARBATURINN OLLl MILLJ. KR. TJÓNI Utanrikisráðuneytið hefur milligöngu um bótakröfur Utanríkisráðuneytið hefur tek ið að sér að hafa milligöngu um að fá Rússa til að bæta tjónið, sem síldarbáturinn Jón Garðar frá Sandgerði varð fyrir, er rússneskur sildarbátur sigldi gegnum nót hans fyrir skömmu og stórskemmd! hana. Gert hef ur veriö við nótina og kostaði viðgerðin hálfa milljón króna. Aflatjón Jóns Garðars er metið á hálfa milljón, svo allur skað- inn er 1 millj., nánar tiltek- ið 1.020.000 krónur. Lögfræðingur Guðmundar á Rafnkelsstöðum, eiganda báts- ins, Páll S. Pálsson hrl. sendi í dag til utanríkisráðuneytisins afrit af sjóprófunum, sem fóru fram í málinu í Hafnarfirði, og um veiðifæra- og aflatjón báts- ins. Á þessum tíma veiða íslenzk og rússnesk síldveiðiskip mikið á sömu slóðum og sambúðin hefur oft gengið stirðlega, því rússnesk reknet og íslenzkar síldarnætur eiga ekki saman [ sjó. Mesta hættan er fóigin í því , að rússnesku skipin sigli yfir síldarnætur íslenzku skip- anna og stórskemmi eða eyði- leggi þessi milljón króna verk- færi. íslenzk sildveiðiskip eru nú að koma sér upp sérstökum ljós merkjum, sem eiga að tákna að þau séu með nótina úti, og hef- ur náðst samkomulag við rússn esk yfirvöld um fyrirkomulag þessa ljósaútbúnaðar. Eiga rússnesk síldveiðiskip að taka mark á þessum aðvörunarljós- um, þótt misbrestur viiji verða á því, en þó er talið, að nóta- skemmdir séu töluvert minni í ár en þær hafa verið áður. íslenzku bátamir hafa yfir- ieitt ekki krafizt sjóprófa, þeg- ar nætur þeirra hafa verið skemmdar eða eyðilagðar. Sjó- próf var þó haldið I máli Jóns Garðars og einnig um daginn í máli Jóns Kjartanssonar frá Eskifirði. Afrit af sjóprófum og áætlanir um tjón er hægt að senda utanríkisráðuneytinu, er hefur síðan milligöngu í málinu, á sama hátt og [ máli Jóns Garð ars. Háteigskirkja vígð á morgun Biskup lslands mun vígja hina nýju Háteigskirkju í Reykja- vík á morgun, sunnudag, klukkan 2 eftir hádegi. Kirkjan' hefur verið í smiðum í rúmlega sjö ár og er nú byggingunni I lokið. Undanfarið hefur verið unnið við að ljúka frágangi | kirkjunnar og í gærkvöldi voru kirkjubekkimir festir niður.. Myndin var tekin við það tækifæri. Á morgun mun safnaðar-. fólk Háteigssafnaðar í fyrsta skipti hlýða á guðsþjónustu í sinni eigin kirkju, en áður var messað í Sjómannaskólanum.1 Sandbíll rennur gegnum grindverk Laust fyrir kl. eitt í gær var stórri vörubifreið frá Bensa á Vallá, fullri af sandi, ekið suður Bragagötu. Á mótum Lauf- ásvegar og Bragagötu missti ökumaður stjórn á bifreiðinni og rann hún í gegnum grindverkið við húsið nr. 48 við Lauf- ásveg og braut það, skemmdi tröppur og grindverk. - Bif- reiðin skemmdist mikið. Guðs mildi var, að ekki skyldi hljót- ast af slys, því að 11 ára drengur var við grindverkið, þegar þetta bar við, og slapp með naumindum inn í húsagarðinn. Myndin er tekin á 100. fundi bæjarstjómar Kópavogs. FRÁ 100. FUNDI BÆJARSTJÓRNAR KÓPÁVOGS: ÚTSVÖRKÓPA VQGSBÚA HÆKKIUM TÆP 29% Á 100. fundi bæjarstjórnar Kópavogs, sem haidinn var í gær, var lagt fram tii fyrri umræðu frumvarp að fjárhagsáætlun Kópa- vogskaupstaðar fyrir árið 1966. Bæjarstjóri, Hjálmar Ólafsson, hafði framsögu fyrir frumvarpinu. Umræður urðu litlar, en þær bíða að mestu til seinni umræðu að vanda. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- manna vöktu þó sérstaka athygli á því, að eins og við fyrri afgreiðsl ur fjárhagsáætlana bæjarins á nú verandi kjörtímabili lægi engin heildaráætlun um framkvæmdir fyr ir við afgreiðslu þessarar síðustu fjárhagsáætlunar á kjörtímabilinu Það mikilsverða grundvallaratriði hefði því endanlega gufað upp úr kosningastefnuskrá meirihlutaflokk anna. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að niðurstöðutölu.r fjárhagsáætlun arinnar verði 61.2 millj. kr., en þær voru I ár 47.9 millj. kr. Nemur því hækkunin 13.3 millj. kr. eða um 36%. Helztu tekju- og gjaldaliðir eru áætlaðir þannig: Otsvör verði 45.5 millj. kr. voru í ár 35 millj. kr., hækkun 11 millj. kr. eða tæplega 29%. Aðstöðugjöld verði 3.6 millj. kr. voru í ár 2.7 millj kr. SEMENTSSKIPIÐ HEITIR FAXI „Faxt“ heitir nýja sements- skipið, sem hleypt var af stokk unum á föstudaginn i fyrri viku í Noregl. Sementsverksmiðja rík isins er aB láta smíða þetta skip hjá Aukra Bruk A. S., Aukra I Noregi. Þegar skipinu var Enska jólaguðsþjónustan Enska jólaguðsþjónustan verður haldin í Hallgrímskirkju kl. 4 á sunnudaginn 19. desember. Allir eru hjartanlega velkomnir. hleypt af stokkunum, gaf frú Maríanne Vestdal, kona for- stjóra Sementsverksmiðju ríkis ins, þvi nafnið .,Faxi“. Ráðgert er, að Faxi verði fullsmíðaður í^" lok marz í vor og komi til lands ! ins í sementsflutninga í april. Það er 1275 tonn að stærí) og er ætlað til flutninga á sementi frá Akranesl til staða umhverf is landið, annarra en Reykjavik ui. hö. Gert er ráð fyrir því að skip ið gangi 11 hnúta fullhlaðið. Á skipinu verður 5 tonna krani, sem gengur á sporum eftir þvi endilöngu og verður með hon- ut’ hægt að losa um 60 tonn af sementi á klst. með aðeins 1 eða 2 mönnum í lest. Leit að konunni hætt Skipið verður 1275 :d.vv neð 1520 hestafla Deutz aðalvé! og tveimur ljósavélum, hvor 120 Engar spumir hafa borizt af týndu konunni og öll leit að henni í hefur reynzt árangurslaus með öllu Engar upplýsingar um ferðir konunnar hafa borizt frá því á þriðjudagskvöldið og engin spor ! hafa verið rakin eftir þáð. 1 gær var leit gerð með kafara í Reykjavíkurhöfn en í morgun var meiningin að fara yfir leitar svæðið í þyrlu. Frekari leit á landi verður ekki skipulögð nema ein- hverjar nýjar upplýsingar berist serri tilefni gefa til leitar. Fasteignagjöld verði 3 millj. kr. voru í ár 2.6 millj. kr. Kostnaður við stjórn bæjarins verði 4.44 millj kr., var í ár 3.72 millj kr. Kostnaður við fræðslumál verði 7.23 millj. kr., var í ár 6.375 millj. króna. Bæjarstjóri upplýsti, að kostnaður Kópavogskaupstaðar væri áætlaður 2.340 kr. á bam í barnaskólunum og 3000 kr. á bam í gagnfræðaskólunum. Er það fróð- legt til samanburðar við Reykjavík Þá skýrði bæjarstjóri einnig frá því, að á nýafgreiddum fjárlögum rikisins fyrir næsta ár væra fjár- veitingar til skólabygginga í Kópa vogi alls 6.2 millj. kr. Áætlað er aö bærinn verji til þeirra fram kvæmda 6 millj. kr. Kostnaður við félagsmál verði 13.585 millj. kr., var í ár 9.794 millj- kr. Til gatna og holræsa, viðhalds cTg nýframkvæmda, verði varið 10. 5 millj. kr, en áætlað í ár 10.658 millj. kr. Til framkvæmda og innbúskaupa annarra en gatna og holræsa, er á ætlað að verja 11.175 millj. kr., en var áætlað í ár 9.44 millj. kr. laoBODm 6 DAGAR TIL JÓLA

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.