Vísir - 10.01.1966, Page 10
w
V í SIR . Mánudagur 10. janúar 1966.
borgin í dag
borgin í dag
borgin í dag
Næturvarzla í Hafnarfirði að-
faranótt 11. jn.: Kristján Jóhann
esson, Smyrlahrauni 18. Sími
50066.
Útvarpið
Mánudagur 10. janúar.
Fastir liOir eins og venjulega.
13.15 Búnaðarþáttur: Á nýju ári.
Glsli Kristjánsson ritstjóri
flytur.
1IL35 Við vinnuna. Tónleikar.
14.40 Við ,sem heima sitjum. Sig
rún Guðjónsdóttir les skáld
söguna „Svört voru seglin“
eftir Ragnheiði Jónsdóttur.
1740 Fiðlulög.
IS.OO Or myndabók náttúrunnar.
Ingimar Óskarsson talar
um íslenzkar gróplöntur.
18.30 Tónleikar.
20.00 Um daginn og veginn.
Andrés Kristjánsson rit-
stjóri talar.
20.20 Spurt og spjallað í útvarps
sal. Þátttakendur: Ágúst
Þorvaldsson, alþm., sr. Ei-
rikur J. Eirfksson þjóðgarðs
vörður, Guðmundur J. Guð
mundsson verkamaður og
Styrmir Gunnarsson lög-
fræðingur. Stjórnandi um-
ræðnanna: Sigurður Magn
ússon fulltrúi.
21.20 „Kindur jarma í kofunum"
Gömlu lögin sungin og leik
in.
21.30 Útvarpssagan: „Paradísar-
heimt“ eftir Halldór Lax-
ness. Höfundur flytur.
22.15 Hljómplötusafnið í umsjá
Gunnars Guðmundssonar.
23.05 Að tafli. Sveinn Kristins-
son flytur skákþátt.
23.40 Dagskrárlok.
Tilkynning
■ Kvenfélagasamband Islands,
Leiðbeiningarstöð húsmæðra að
Laufásvegi 2 er opin kl. 3—5
alla daga nema laugardaga, simi
10205.
Söfnin
Landsbókasafnið, Safnahúsinu
við Hverfisgötu.
Lestrarsalur opinn alla virka
daga kl. 10—12, 13—18 og 20—
22 nema laugardaga kl. 10—12
og 13—19.
Útlánssalur opinn alla virka
daga kl. 13—15.
Spáin gildir fyrir þriðju dag
inn 11. jaúar.
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Framkvæmdir eða fyrir-
tæki, sem þú hefur í undirbún
ingi, virðast þurfa nánari at-
hugunar við. Láttu ekki kunn-
ingja eða vini freista þín til að
ana út i neitt þess háttar, fyrr
en tryggilega er frá öllu gengið.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Þú virðist i nokkrum vanda
staddur vegna óvæntrar ákvörð
unar einhvers nákomins eða
kunningja þíns. Þetta raskar tals
vert skipulögðu starfi þínu, en
láttu það ekki á þig fá, mestu
varðar að fá þessu kippt í lag.
Tviburamir, 22. maí til 21.
júní: Láttu ekki ánægjuna
hlaupa með þig í gönur þó að
bjartara virðist framunan. Þú
átt enn óleystan ýmsan vanda,
og það tekst þér því aðeins, að
þú lítir raunhæfum augum á
hlutina. Þetta á einkum við um
peningamálin.
Krabblnn, 22. júni til 23. júlí:
Þér þykir hrósið gott, og þess
vegna er hætta á að þú látir
blekkjast af smjaðri þeirra, sem
vilja notfæra sér kapp þitt og
dugnað, en láta sem minnst
koma, fyrir. Sýndu þeim ekki
neina tilhliðrun, þú átt þitt.
Ljónið, 24. júli til 23. ágúst:
Þér berst frétt eða tilboð, sem
þú ættir að athuga náið ,það er
ekki að vita nema að þú getir
hagnazt sæmilega í því sam-
bandi. Ekki er ósennilegt að þú
eigir eftir að komast þar í all
harða keppni — hafðu því vað
ið fyrir neðan þig.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.:
Góður dagur í ýmsum viðskipt
um, en hætt við að rómantikin
reynist viðsjál. Þú ættir þvi að
gæta þín í öllu, sem snertir
hið gagnstæða kyn, einkum und
ir kvöldið, Einnig ætturðu að
forðast öll lengri ferðalög eftir
megni.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.: k
Þú verður ef til vill að taka ein i
hverja ákvörðun í dag, sem á /
eftir að hafa alvarlegar afleið 1
ingar fyrir þig. Þú skalt því i
ekki flana að neinu, einkum t
ættirðu að athuga ýmis smá- /
atriði, sem ekki virðast skipta 1
neinu i fljótu bragði. ]
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.: 1
Farðu gætilega í umferðinni, l
hvort sem þú stjómar sjálfur í
ökutæki eða ekki. Kannski /
finnst þér árið ekki byrja sem 1
bezt en það lagast von bráðar \
þegar þér hefur unnizt tími til i
hvíldar og athugunar. /
Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21. I
des.: Það eru að gerast atburðir /
einkum í sambandi við fom- 1
kunningja af gagnstæða kyn- 1
inu, sem eiga eftir að verða þér í
til mikillar blessunar ,ef þú í
endurskoðar afstöðu þína gagn 1
vart honum og treystir honum 1
betur en áður. í
Steingeitin, 22. des. til 20.
jan: Þú ættir ei að ráðast í ferða
lög í dag eða vera meira á ferð
inni en þú endilega þarft. Ef þú
stýrir ökutæki skaltu gæta
fyllstu varúðar. Trúðu varlega
fréttum, sem þér kunna að ber
ast og snerta kunningja eða ná
inn vin.
Vatnsberinn 21. jan til 19.
febr.: Þér gengur ýmislegt i hag
einkum fyrri hluta dagsins. Þú
ættir því að koma sem mestu 1
af því I framkvæmd þá, sem
þér finnst mikilvægast. Bjóðist
þér aðstoð, ættirðu að taka
henni, en fylgjast vel með öllu
engu að síður.
Fiskamir, 20 febr. til 20.
marz. Láttu vin þinn skilja
hvað þú vilt varðandi samvist-
ir ykkar, og vertu ekki feim- 1
inn við að taka frumkvæðið, ef
þvi er að skipta. Það verður
ykkur báðum til hamingju, þó
að þú sjáir ekki nú hvernig vand
kvæði í því sambandi mega
leysast.
Bókasafn Kópavogs. Útlán á
þriðjudögum, miðvikudögum,
fimmtudögum og föstudögum.
Fyrir börn kl. 4.30—6 og fuil-
orðna kl. 8.15—10. Barnabókaút-
lán í Digranesskóla og Kársnes-
skóla auglýst þar.
Ameríska bókasafnið Haga-
torgi 1 er opið: Mánudaga, mið-
vikudaga og föstudaga ki. 12—21
þriðjudaga og fimmtudaga kl. 12
til 18.
Bókasafn Sálarrannsóknarfé-
lagsins, Garðastræti 8 er opið
miðvikudaga kl. 17.30—19. Lán
aðar eru út bækur um sálræn
efni.
Ásfrímssafn, Bergstaðastræti
74 er opið sunnudaga, þriðjudaga,
og fimmtudaga frá kl. 1.30—4.
Listasafn íslands er opið þriðju
daga, fimmtudaga, laugardaga og
sunnudaga ki. 1.30—4.
Listasafn Einars Jónssonar er
lokað um óákveðinn tíma.
Þjóðminjasafnið er opið eftir-
talda daga: Þriðjudaga, fimmtu-
daga, laugardaga og sunnudaga
kl. 1.30—4.
Minjasafn Reykjavíkurborgar,
Skúlatúni 2, er opið daglega frá
kl. 2—4 e. h. nema mánudaga.
Tæknibókasafn IMSÍ — Skip-
holti 37. Opið alla virka daga frá
kl. 13—19, nema . laugardaga kl.
13—15 (1. júnf—1. okt lokað á
laugardögum).
Bókasafn Seltjarnarness er op
ið mánudaga kl. 17.15—19 og 20-
22 miðvikudaga kl. 17.15—19 og
föstudaga kl. 17.15
Fundahöld
Dansk kvindeklub spiiler sel-
skabswhist Tirsdag den 11. jan.
kl. 8.30 i Tjarnarbúð.
Bestyrelsen.
Kvennadeild Slysavarnarfélags.
ins í Reykjavík heldur fund mánu
daginn 10. jan. kl. 8,30 i Slysa-
varnarfélagshúsinu Grandagarði.
Til skemmtunar: Gamanþáttur,
Gunnar Eyjólfsson og Bessi
Bjarnason. Sýndar skuggamynd-
ir. Sameiginleg kaffidrykkja og
hljóðfærasláttur. — Stjórnin.
Kvenfélag Bústaðasóknar. Spila
fundur í Réttarholtsskóla mánu-
dagskvöld kl. 8.30 — Stjómln.
Aðalfundur
Aðalfundur Kvenfélags Grens-
ássóknar verður í Breiðagerðis-
skóla kl. 8.30 mánudaginn 10.
jan. Aðalfundarstörf og lagabreyt
ingar. — Stjórnin.
Blöð og tímarit
Heilsuvernd 6. hefti 1965 er ný
komið út. Það flytur m. a. þetta
efni: Máttur sólar eftir Jónas
lækni Kristjánsson, Jólahugleið-
ing eftir séra Jón Thorarensen,
greinar um Veganhreyfinguna eft
ir Bjöm L. Jónsson lækni, hirð
ingu húðarinnar eftir dr. med.
Wemer Tiegel, æðakölkun og syk
ur eftir dr. med. M, O. Bruker.
í ritinu eru uppskriftir eftir
Bryndfsi Steinþórsdóttur hús-
mæðrakennara, fréttir frá lands
þingi NLFÍ, smágreinar um mat
arliti, DDT í dýrum suðurheim-
skautsins, hjartasjúkdóma, dýra
fitu og erfiðisvinnu, sykur og
feitisneyzlu, um frumorsakir æða
kölkunar, skordýraeitur og fiska
líf o. fl.
Ritstjóri er Björn L. Jónsson
læknir.
Árnað
heilla
Nýlega voru gefin saman í hjóna
band af sr. Sigurjóni Þ. Árnasyni
ungfrú Guðlaug Sveinbjörnsdótt-
ir og Stefán Sigurðsson, Lauga-
vegi 8.
(Nýja myndastofan, Laugavegi
43b. Sími: 15125).
Á jóladag voru gefin saman í
hjónaband af séra Ólafi Skúla-
syni ungfrú Jónína Helgadóttir
og Víkingur Sveinsson, Sogavegi
130.
(Nýja myndastofan Laugavegi
43b).
Þann 30. des. voru gefin saman
í hjónaband af sr. Árelíusi Níels-
syni ungfrú Edda K. Haraldsdótt-
ir og Baldur Gunnarsson, Njáls-
götu 72.
(Nýja myndastofan Laugavegi
43b).
Sjónvarpið
Eins og áður hefur verið skýrt
frá hafa staðið yfir að undan-
förnu prófanir á sendi íslenzka
sjónvarpsins á Vatnsendahæð.
Kyrrstæð stillimynd hefur verið
send út öðru hverju síðan 24.
desembér s.l. Stillingu á sendin-
um er nú að mestu lokið.
Til að gefa sjónvarpseigendum
kost á að athuga hvort myndin
næst á móttökutæki þeirra hefur
verið ákveðið að hefja regluleg
ar útsendingar á henni, ásamt
hljóðmerki, föstudaginn 7. jan.
Fyrst um sinn verður þessi útsend
ing frá kl. 13 til 21 ( kl. 1—9 e.h.)
alla daga nema miðvikudaga.
Sent er á rás nr. 11 samkvæmt
Evrópukerfi.
í flestum tilfellum mun þurfa
ný loftnet eða breytingar á þeim
loftnetum, sem fyrir eru. Enn er
ókannað hversu langdræg stöðin
er, en myndin ætti að geta sézt
vel í Reykjavík og nágrenni.
Þeim, sem erfiðlega gengur að
fá skýra mynd, er ráðlegt að leita
til seljenda tækjanna um leiðbein
ingar, eða nauðsynlegar lagfær
ingar á þeim.
Happdrætti
Frá Lögreglukór Reykjavíkur
Dregið var í happdrætti lög-
reglukórs Reykjavíkur 23. des.
s.l. Upp komu eftirtalin númer:
1. v. Volkswagen-bifr. nr. 654
2. — Sjónvarpsviðtæki — 4119
3. — Saumavél — 6666
4. — Flugferð. USA. — 9044
5. — Tveir farm. R.sk. — 2958
6. — Farm. Gullfoss — 3601
7. — Flugf. Kaupmh. — 8426
8. — Herraföt — 5768
9. — Herraföt — 7619
10. — Bílfar — 7582
Vinninganna skal vitjað hjá að-
alumboðsmanni happdrættisins,
Guðbirni Hanssyni, Skeggjagötu
14, Reykjavík, sími 11888.
• BELLA*
legt — það er ekkl einn elnasti,
sem ég get prófað nýja kossekta
varalitinn minn á.