Vísir - 10.01.1966, Page 11
V1SIR . Mánudagur 10. janúar 1966.
77
FHFERA FRAM / ÞRWJU UMFERB
Vann Fredensborg oftur í Evróp ubikurleiknum í
gærkvöldi og vunn sumunlugt með 35:28
FH er komið meðal 8 Evrópuliða í Evrópubikarkeppninni í handknattleik. Það
var enginn vafi á því að FH var betra liðið í viðureigninni við norsku meistar-
ana Fredensborg. Sigurinn í síðari leiknum var 16:13 og samtals unnu FH-ingar
með 35:28 eða með 7 mörkum. Sigurinn í gær gat orðið stærri, en síðustu mínút-
umar notuðu FH-ingar til að „slappa af“. Það var ástæðulaust að leggja út í
tvísýnu með leikmenn því greinilegt var að önnur og stærri átök em í vændum.
FH átti nú sinn bezta leik um langt skeið, mun betri leik en á föstudaginn. Norð
menn skomðu fyrsta markið eftir 7 mín. leik, en bræðumir Geir og Öm Hall-
steinssynir komu á eftir með þrjú falleg mörk og færðu liði sínu forystu, sem
hélzt allan leikinn. Á 20. mín. var FH búið að ná 6:3, og þriggja marka forskot hélzt
út hálfleikinn en í hálfleik var staðan 10:7.
í seinni hálfleik byrjuðu FH-
menn mjög vel. Vömin virtist ekki
síðr! en sóknin, og færi eitthvað
í gegn máttu menn vera vissir um
að Hjalti Einarsson í markinu sæi
fyrir því. Norðmenn fóm líka illa
með tækifæri. Áttu þeir m. a.
skot i stöng úr vítakasti. FH skor
aði hins vegar hvað eftir ann-
að og komst i 14:7. Loks á 16.
min. i seinnl hálfleik skoraði Sve-
stad 14:8, og hafði Fredensborg þá
ekki skorað mark í 20 mínútur.
Nú voru aðeins 14 mín. eftir af
leik. Til að Norðmönnum ætti að
auðnast að vinna FH samanlagt
þurftu þeir að skora 10 mörk og
greínilegt var að kraftaverk yrði
að koma þeim til hjálpar. Nú var
eins og losnaði um leikmenn FH
og þeir gerðu ekkl eins mlkið og
fyrr tíl að skora, vömðu sig á
j að Ienda í mikilll hörku.
Norðmenn náðu að skora 14:9
og 14:10 bæði úr vitaköstum en
| FH svaraði með tveim mörkum á
móti. Fredensborg skoraði 16:11
og Páll Eiríksson „brenndl af“
vítakastí en hafði áður skorað ör-
ugglega 4 mörk úr vítalcöstum. Á
siðustu mínútunum skoruðu Norð-
menn tvö mörk og það þríðja var
á leiðinni í netið, þegar flautað
var af. En sem sagt leiknum lauk
16:13.
Var úrslitunum fagnað innilega
af mannfjöldanum. sem hafði fylit
Laugardagshöllina og óspart látið
í sér heyra allan leikinn.
Handknattleikurinn í gær var
mjög góður og þá ekki sizt hjá
FH. Hins vegar var leikurinn ekki
eins spennandi fyrir áhorfendurna,
— til þess voru yfirburðir Hafn-
firðinganna of miklir og segja má
að strax í fyrri hálfleik hafi fólk
séð að Norðmennirnir gætu ekki
unnið leikinn. í liði Norðmann-
anna sjálfra gættí jafnvel nokkurr
ar svartsýni, að minnsta kosti var
ekki hægt að lesa annað úr Ieik
þeirra, sem var mun daufari en á
föstudaginn, sendingar margar ó-
nákvæmar og liðið í heild ekkl gætt
þeim áhuga sem var svo áberandi
í fyrri leiknum.
í liði FH áttu margir góðan leik,
raunar allir leikmenn liðsins, Páll
Eiríksson kom nú fram í sviðs-
ijósið sem hættulegur maður fyrir
Norðmennina og skoraði 7 mörk,
þar af 4 úr vítaköstum sem voru
mjög vei framkvæmd. Bræðumir
Geir og Öm voru báðir góðir og
er Geir án efa einn snjallasti ein-
staklingur liðsins með knöttinn
ásamt Ragnari. Geir er nú nemandi
í íþróttaskólanum á Laugarvatni
og var nú hvattur af öllum neai-
endum skólans og skólastjóra,
Áma Guðmundssyni, en hópurinn
tók sér á hendur ferð til að sjá
leikinn. Ragnar Jónsson var mjög
góður sem fyrr og það er ekki vafi
á að Ragnar er ekki síður hættu-
legur þegar hann spilar í stað
þess að skjóta um of. Án efa á
hann eftir að verða snjall í línu-
sendingum þegar hann hefur æft
þær upp en linuspilið er í minnsta
lagi hjá FH og e.t.v. ein af veiku
hliðum liðsins í dag. Birgir Bjöms-
son átti ágætan leik og Hjalti
Einarsson varði hvað eftir annað
stórkostlega vei og er nú án efa
okkar bezti markvörður.
Af Norðmönnunum bar mest á
Jon Reinertsen sem skoraði 6
marka liðsins, en ágætan lefk áttu
Knut Larson, Ame Johansen og
Kai Ringlund.
Fredensborg varð nú að bíta í
það súra epli í þriðja sinn í Evr-
ópubikar að komast ekki áfram,
Framh á bls o
NOHDMENNIRNIR:
„Hrífmr af FH"
Norsku leikmennimir og far-
arstjóramir voru að vonum
nokkuð óánægðir með úrslit
leikjanna hér í Reykjavík, enda
komu þeir hingað með talsverð-
ar vonír um að fá nú í fyrsta
sínn tækifæri til að komast á-
fram í Evrópubikarkeppninni
eftir að hafa verið stöðvaðir
tvívegis af dönskum liðum.
„Sigur FH var sanngjarn",
sagði Klepperás, markvörðurinn
góðkunni, þegar fréttamaður
talaði við hann að leik loknum.
„Breiddin í FH-Bðinu er mikil
og það kom okkur á óvart að
mæta allt í einu allt öðmm
skyttum í dag en á föstudags-
kvöldið. FH var sannarlega vei
að sigrinum komið, það er iétt
og leikandi á móti þessum
þungu sleðum okkar“, sagði
hann. Og hvað um „koIlegann“
í Hafnarfjarðarmarkinu? „Mér
finnst Hjalti Einarsson vera
langbeztl maður Iiðsins, og
markvarzla hans er einhver sú
bezta, sem ég hefi nokkm sinni
séð“.
Lördahl, fararstjóri sagði:
,.Ég er mjög hrifinn af FH.
Þeir em léttir og ieikandi, en
virðast ekkl leika eftir neinni
sérstakrí „taktík“. Það er allt
í lagi í þeirra tilfelli, því að það
gefur góðan árangur, eins og
sjá má. Ég vona bara að Iiðið
ykkar fari langt í keppninnl“.
Kleven, fararstjórl: „FH-liðið
leikur góðan handknattleik. Við
urðum að láta í minni pokann
fyrir betra Iiði. Þá er það mark
varzlan hjá Hjalta Elnarssyni.
Hún er einhver sú stórkostleg-
asta, sem ég hefi séð. Og við
höfum ekki bara notið góðs
handknattleiks, heldur frábærr-
ar gestrisni, sem við munum
seint gleyma“.
Ragnar Jónsson skorar fallega.
ÍSLANDSMÓTIÐ HAFIÐ:
KR OG FRAM SIGRUÐU
„Núna skiljum við þessar eilífu afsakanir erlendu Iiðanna,
þegar þau hafa leikið á Hálogalandi“, sögðu margir handknatt-
Ieiksmannanna, sem gengu til fyrstu leikjanna í íslandsmót-
inu um síðustu helgi. „Þetta er ótrúleg breyting eftir að hafa
æft nokkum tíma í nýju höliinni“.
Leikmenn FH ganga af vellinum eftir sigurinn yfir norsku meistumnum
íslandsmótið hófst með tveim
leikjum í 1. deild á laugardags-
kvöldið að viðstöddum nokkrum
hópi manna og fóm tveir all
skemmtilegir leikir fram.
Fram vann Val með 23:19 en í
hálfleik var staðan 13:12 fyrir
Fram. Framarar höfðu náð góðri
forystu með 8:3, en í seinni hálf
leik komust Valsmenn 2 mörk
yfir, en undir lokin kom greini-
lega í ljós hvor aðilinn var sterk
ari, — Fram tók forystuna og
tryggði sigur með góðum enda-
spretti.
KR vann Ármann í seinni leik
kvöldsins og vann 22:17. Höfðu
KR-ingar yfir allan leikinn með
2-3 mörk og var sigur þeirra
aldrei í verulegri hættu og voru
þeir greinilega sterkari aðilinn.