Vísir - 10.01.1966, Page 16

Vísir - 10.01.1966, Page 16
Mánudagur 10. janúar 1966. 90 millj. kr. greitt í vinninga: Stuðningur við Happdrættið er stuðn ingur við Háskólann og starf hans fundi með fréttamönnum á föstudag skýrðu stjóm- endur Happdrættis Háskól- ans frá starfsemi Happdrætt- isins síðasta ár og þeim fram tíðarfyrirætlunum sem það hefur nú á prónunum. — Það ár sem nú fer i hönd nefnum við ár veltp og vinn- inga, sagði prófessor Ármann Snævarr, rektor Háskólans, en hann er formaður stjómar Happdrættisins. í ræðu sinni vakti hann at- hvgli á þeirri merku staðreynd að allar byggingar Háskólans eru reistar fyrir happdrættisfé, og kvað hann slíkt mundi vera einsdæmi. Væri það ljós vottur um mikilvægi þessa happdrætt- is og stórkostleg framlög þe.ss til menningarmála þjóðarinnar. Með því að spila í Happdræ.'i Háskólans verða menn þátttak- endur í þvi að efla vísindin í landinu, sagði rektor. Drap hann á það hve góðum undir- tektum Happdrættið hefði mætt allt frá stofnun þess 1934 Framh. á bls. 5 Guðjón Sigurðsson Sjálfkjörið í Iðju Guðjón Sigurðsson formoður í 10. sinn Á laugardaginn kl. 12 á hádegi rann út framboðsfrestur til að leggja fram lista til kjörs stjómar og trúnaðarmannaráðs i Iðju, fé lagi verksmiðjufólks í Reykjavflt. Aðeins kom fram einn listi frá stjóm og trúnaðarmannaráði fé lagsins og var hann þvi sjálfkjör inn. Stjórnina skipa: Guðjón Sigurðsson, formaður, Ingimundur Erlendsson, varafor maður, Runólfur Pétursson, ritari og Steinn Ingi Jóhannsson gjald keri. Meðstjórriéndur: Kristín Hjörv ar, Klara Georgsdóttir og Guð mundur Jónsson. Varamenn: Jón Framh. á bls. 6. Stjórn Happdrættis Háskólans. Frá vinstri: Próf. Þórir Kr. Þórðarson, próf. Ármann Snævarr, Háskólarektor, formaður stjórnar Happdrættisins, próf. Halldór Halidórsson og Páll H. Pálsson forstjóri Happdrættisins. Unnið að viðgerð á Eiðasendi Lætur af ritstjórn ÍSLENDINGS // í blaðinu „íslendingi,“ sem út kom 6. janúar, er frá því skýrt að Jakob Ó. Pétursson láti nú af ritstjóm blaðsins eftir aldarfjórð ungsstarf. Tekur Jakob við starfi við Fasteignamatið á Akureyri. í ávarpi frá blaðstjórn vegna þess ara tímamóta segir svo: „Tvennt er það einkum sem vakið hefur at hygli í ritstjórnarfari Jakobs Ó. Pet urssonar: annars vegar prúð mennska hans og hófstilling í mál flutningi, án þess þó að slá nokkru af um skoðanir, og iiins vegar leikni hans í meðferð ís- lenzkrar tungu og umhyggja fyrir þvf að henni sé ekki misboðið. Nýr fastur ritstjóri hefur enn ekki verið ráðinn að „íslendingi“ en til bráðabirgða hefur Halldór Blöndal stud. jur. tekið við því starfi en hann hefur að undan- fömu gegnt blaðamannsstörfum við „Islending." Nýi útvarpssendirinn á ESðum er nú 1 lamasessi og notast Anst flrðingar aftur við útvörpun frá gamla sendinum. Kom bilunin fram í sfðustn viku en á fimmtudag var útvarps og símafræðingur sendur austur til þess að kanna málið. Var talið að sp(Ma hefði bmnnið og ekki var vitað hvort hægt væri að gera við þetta á Eiðum án þess að fá varastykki sent að utan til viðgerðarinnar. Er bilunin á að Struku uf drykkjuhæli Aðfaranótt sl. laugardag hlupust þrír vistmenn á brott frá Gunnars- holtl og var talið, að þeir mundu hafa ætlað sér að komast til Reykjavíkur. Framh bls 6 færsluifnmn langbylgjusendisins og | að unnið væri sem óðast að við loftnetinu og síðustu fréttir hermdu > gerðum. Alúmínmálið lagt fyr- ir Alþingi í marz Dagana 4.-6. janúar fóru fram í Ziirich viðræðufundir um alúmínbræðslu í Straumsvík, milli samninganefndar ríkis- stjórnarinnar, Swiss Aluminium Ltd. og Alþjóðabankans, svo sem gert hafði verið ráð fyrir. Er nú unnið að því að ganga frá samningsuppkasti og tillög- um samninganefndarinnar, sem hún mun skila í hendur ríkis- stjómarinnar, svo fljótt sem verða má. Þingmannanefndinni hafa ver ið send skjöl um það sem gert var í desembermánuði s.l. í máli’ þessu. Fallist ríkisstjórnin á tillögur þær sem gengið verður frá á næstu vikum, er líklegt að ríkis stjómin muni getst 1agt málið fyrir Alþingi í marzmánuði, eins og iðnaðarráðherra gerði grein fyrir, þegar umræður fóm fram um málið í þinginu um miðjan desember s.l. Jakob Ó. Pétursson | Jólavaka í Langholtssöfnuði Biskup sagði Iró Rómarför Árlega er haldin jólavaka í Langholtsprestakalli, sem Vetr arstarfsnefnd safnaðarins gengst fyrlr. Meðal dagskrárliða eru að jafnaði fyrlrlestrar eða frá- sagnir og að þessu sinni sagði biskup, herra Sigurbjöm Elnars son frá Rómarför. Blaðið hringdi í morgun til séra Árelíusar Níelssonar, sem sagði að jólavakan væri einn þáttur í jólahátíðahöldum safn aðarins og hefði verið fjölmenn þótt lakara væri að hafa hana eftir jólin þar sem fólk væri þá orðið, dálítið þreytt á and- legri fæðu. « — Erindi biskups var ákaf lega fróðlegt, sagði séra Árelius og kom manni ýmislegt á óvart þótt maður væri búinn að lesa um Rómarförina í blöðum, eins Og t.d. afsökunarbeiðni páfa kirkjunnar til austurkirkjunnar á því sem gerðist árið 1054, þegar rifizt var um heilagan anda. Fleira merkilegt er tengt þessu, t.d. það að þetta er í fyrsta sinni sem lútherskum klerkum er boðið til fundar þar sem eingöngu eru rædd málefni kaþólsku kirkjunnar þar sem kaþólska kirkjan hefur aldrei fyrr viljað viðurkenna að aðrar kirkjur væru til. — Við lítum út um gluggann með þessum erindum ef svo má segja. í fyrra f’engum við for sætisráðherra til að segja frá nútíma Israel. Fleira er á jólavökunni t.d. einsöngur og kórsöngur og helgistund. Enn hátíðlegri sam koma var þó um daginn, þegar við höfðum húsfylli af öldruðu fólki og fór þá fram helgisöng ur, fólk úr æskulýðsfélögunum og eldri bekkjum skólans kom fram í hvítum skikkjum. Enn fremur má geta jólaskemmtun arinnar, sem er meira en leikur inn einn og voru þar mætt mörg hundruð böm. Sigurbjöm Einarsson biskup seglr frá Rómarferðlnnl. ,1

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.