Vísir - 20.01.1966, Síða 6
6
VISIR . Fimmtudagur 20. janúar 196t>.
500 manns leita —
Framhald af bls. i.
inn gæti bent til þess að flugvél
in hafi flogið inn Seyðisfjörð
yfir Fjarðarheiði og á flugleið
í áttina til Reykjavíkur yfir Jök
uldal. Hinn flokkurinn gæti
bent til þess að flugvélin hefði
flogið suður með Austfjörðum,
suður að Homafirði. Tilkynning
ar þessar em mjög misjafnar,
sums staðar virðist alveg ör-
uggt að flugvél hafi verið á
sveimi ,annars staðar er þetta
óljósara. En vegna þessa er nú
svo komið að aðalleitarsvæðið
er ekki lengur við Norðfjarðar-
flóa, heldur austur af Horna-
firði og færist einnig inn á
Fljótsdalshérað.
Hér verður nú gefið yfirlit
yfir þetta mikla starf, sem er
imnið af hjálpsemj og bræðra-
þeli. Verður fyrst sagt frá leitar
starfinu f gær og síðan gefið
yfirlit yfir það sem er að gerast
í dag í þessu.
Leitin í gær
1 gær var aðalleitarsvæðið
við Norðfjarðarflóa og firðina
og fjöllin þar fyrir norðan og
sunnar. Bækistöð leitarmanna
var Neskaupstaður. Þar voru
komnir leitarmenn úr Reykjavfk
og Egilsstöðum auk heima-
manna. Var skipt niður í 4—6
manna flokka sem fengu hver
sitt ákveðna svæði og kunnugur
maður látinn vera f hverjum
flokki.
t>rír flokkar fóru frá Neskaup-
stað til Mjóafjarðar og leituðu út
að Dalatanga. Áætlað hafði verið
að taka þá um kvöldið um borð
f skip á Dalatanga, en þá var kom
ið brim þar, svo að þeir urðu að
ganga aftur inn að Brekku í Mjóa-
firði.
Margir flokkar voru f fjalllend-
inu milli Norðfjarðar og Mjóafjarð
or og leituðu upp. Fannardal og alla
leið upp í Fönn. Þarna var farið
svo að segja upp á hverja nfpu.
Flokkar fóm Hellisfjörð, Viðfjörð
og Norð-fjarðarhomið, Barðsnes og
telja þeir sig hafa leitað af sér
allan gmn þar. Þegar kom upp á
nfpurnar sunnan við Norðfjörð rák
ust þeir á Ieitarmenn þar, sem
höfðu komið frá Eskifirði og leitað
sunnanvert fjalllendið. Eskifjarðar
menn leituðu með norðanverðum
Reyðarfirði, Seljafjall og Svínalág.
Reyðarfjarðarmenn tóku svæðið
þar fyrir vestan og sunnan, Skarðs
fjall og alla leið út að Vattamesi
og þar mættu þeir leitarmönnum
frá Fáskrúðsfirði sem höfðu leitað
fjöllin fyrir norðan Fáskrúðsfjörð.
Á þessu svæði sem nú hefur ver-
ið rakið var leitin skipulögð og fast
mótuð, þannig að menn telja sig
hafa gengið úr skugga um að flug
vélin fyrirfinnist þar ekki. Þó áttu
leitarflokkar eftir ýmsa smáskika,
sem haldið verður áfram við í dag.
Á fjörðunum þar fyrir sunnan var
einnig leitað á ýmsum takmörkuð
um svæðum, sem hættulegust eru
talin, en þar þarf að halda leitinni
áfram og framkvæma hana skipu-
lega.
1 gær munu sjö flugvélar hafa
leitað á þessu svæði og skal tek-
ið fram, að eftir hádegi birti upp,
svo að skyggni var mjög gott.
Vitnisburður um
flugvélarhljóð.
Nú skal lítillega rekja þá vitnis-
burði, sem borizt hafa frá Aust-
fjörðum um að fólk hafi orðið flug-
vélar vart einmitt skömmu eftir að
síðast heyrðist til flugvélarinnar.
Eins og sagt var frá í fréttum í
gær, heyrðist síðast til flugvélar-
innar í talstöðinni 'ki. 22,12 um
nóttina.
BIFREIÐA-
EIGENDUR
Félag ísl. bifreiðaeigenda opnaði í dag ljósa-
stillingarstöð til stillingar á bifreiðaljósum
samkvæmt hinni nýju reglugerð.
Gjörið svo vel að panta tíma með fyrirvara.
Símar 33614 og 38355.
TIL SÖLU
3 herb. íbúð í Kópavogi selst tilbúin undir tré-
verk og málningu með sameign kláraðri.
Bílskúr fylgir uppsteyptur.
3,4 og 5 herb. íbúðir seljast tilbúnar undir tré-
verk og málningu við Hraunbæ.
Eldri íbúðir víðs vegar í bænum. Litlar útb.
FASTEIGNASTOFAN
Austurstræti 10, 5. hæð. Sími 20270
SENDISVEINAR
Sendisveinar óskast hálfan eða allan daginn.
H/F EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
Sumir vitnisburðimir benda til, að
flugvél hafi flogið nokkru seinna
inn yfir Seyðisfjörð og síðan inn
yfir Hérað og Jökuldal i átt til
Reykjavíkur. Þannig heyrði fjöldi
manna á Seyðisfirði, um 25 manns
að flugvél flaug inn yfir Seyðis-
fjörð eftir klukkan 22.30. —
Á Eiðum í Eiðaþinghá heyrð-
ist í flugvél undir kl. 23,00 og á
Vaðbrekku i Jökuldal heyrðist i
flugvél um kl. 23,30. Allt gæti
þetta komið heim við að hin týnda
flugvél hefði verið þarna á flug-
leið í áttina til Reykjavikur, og alls
er þannig vitað um átta staði í
beinni línu, þar sem flugvélar varð
vart. tímaákvarðanir á öllum stöð-
unum koma samt ekki saman.
Skipulögð leit er ekki enn hafin
á þessu svæði, þar sem samgöngur
þarna eru mjög erfiðar en björg-
unarsveit frá Akureyri er á leið
í Herðubreiðarskála.
Aðrir vitnisburðir gætu bent ti!
þess að flugvél hefði verið á ferð
á sama tíma suður með Aust-
fjörðum. Það er upp úr 22,30 sem
tveir menn í Álftafirði telja sig
hafa heyrt þar í flugvél og annar
þeirra kveðst hafa séð flugvélar-
ljós. Þá varð maður á Stafafelli í
Lóni var við flugvélardyn en hann
gefur upp tímann um eða eftir
miðnætti. Fleiri álíka vitnisburðir
hafa komið af suðurfjörðum Aust-
fjarða, en tímasetningar passa
ekki vel saman.
Gengið hefur verið úr skugga
um það, að flugvél frá vamarlið-
inu sem var þessa nótt að fljúga
meðfram suðurströndinni og síðan
austur vfir hafið, var ekki á þess-
um slóðum.
Þá hafa borizt fregnir um það
víðar af landinu m. a. frá Reyk-
holti í Borgarfirði, frá Hellu og
frá Múlakoti á Síðu, að heyrzt hafi
til flugvélar en lítið hægt að byggja
á slíkum fréttum.
Nú er mest áherzla lögð á að
leita á • svæðinu á surtnanverðum
Austfjörðum við Hornafjörð og
Vatnájökul. f morgun fór Friend-
ship vél Flugfélagsins frá Reykja-
vík fullskipuð leitarmönnum úr
björgunarsveitinni Ingólfi og Hjálp-
arsveit skáta austur til Hornafjarð-
ar og á að leita á svæðinu þar.
Víðtæk leit úr lofti
Úr lofti leita í dag um 10 flug-
vélar og er leitarsvæðið alla leið
frá Heklu og austur á Austfirði.
Lítil vél af svokallaðri KZ-A
tegund leitar umhverfis Heklu og
vestan við Eyjafjaliajökul.
Douglas Dakota-vél frá vamar-
liðinu leitar um Eyjafjallajökul og
Mýrdalsjökul og þar upp af.
Bjöm Pálsson leitar á Bonansa-
vél sinni um Vatnajökul og norður
að Öskjuvatni.
Neptune-flugvél frá vamarliðinu
Ieitar alla strandlengjuna austur á
Austfirði.
Helikopter landhelgisgæzlunnar
fer til Homafjarðar og fer yfir tor-
sóttasta fjalllendið þar norður af.
Cherokee-flugvél frá Flugsýn-
og Cessna-vél frá Flugmiðstöðinni
leita austur af Homafirði og við
Álftafjörð.
Og loks munu tvær fiugvélar frá
Flugsýn af Heron-gerð og Dúfu-
gerð leita frá Homafirði og Beru-
firði yfir hálendið og inn á Fljóts-
dalshérað og Jökuldal.
Bækistöð leitar
á Egilsstöðum
Á landi fer nú fram hin víðtækasta
flugbjörgunarleit sem gerð hefur
verið hér á landi. Verður skipu-
lögð leit framkvæmd um alla sunn'
anverða Austfirði og á hluta af
Pljótsdalshéraði, við Loðmundar-
fjörð og Borgarfjörð eystra, um
Dyrfjöll og einnig kringum Horna-
fjörð. Örðugast er hins vegar að
framkvæma leit á öræfunum kring
um Jökuldal vegna erfiðrar færð-
ar, en þár er haft samband við
bændur á bæjunum og þeir beðnir
um að skyggnast um. Er varla of
í lagt að segja að um 500 manns
muni taka þátt í leitarstarfinu í
dag.
Miðbækistöð leitarinnar hef ur nú
verið flutt frá Norðfirði og upp
að Egilsstöðum.
Skipverji
drukknar
Það sviplega slys varð á tog-
aranum Marz í vikunni sem leið
að einn skipverji féll fyrir borð
og drukknaði.
Skipverjinn hét Þráinn Magn-
ússon, til heimilis að Hverfis-
götu 83 í Reykjavíík, 27 ára að
aldri.
Enginn áhorfandi var að slys-
linu, en togarinn var á leið á
veiðar, þegar það varð. Vissu
menn síðast um Þráin, að hann
drakk kaffi með félögum sínum
um níuleytið s.l. fimmtudags-
kvöld, en morguninn eftir var
hann horfinn.
Erlendir togarasjó-
menn slasast illa
Um hádegið í fyrradag komu tveir
brezkir togarar til Patreksfjarðar
með slasaða menn.
Var annar togarinn Wyre Marin-
er frá Fleetwood. Hafði fyrstj vél-
stjóri brennzt mjög illa, þegar rör
í vélinni sprakk á hann. Var mað
urinn skaðbrenndur upp að mitti.
Var hann strax fluttur í sjúkrahús
til læknisrannsóknar og taldi lækn
irinn hann ekki eins illa farinn og
útlit var fyrir.
Hinn togarinn var Lord Hotham
frá Fleetwood. Hafði skipið fengið
á sig brotsjó með þeim afleiðing
um að stýrimaðurinn slóst illa til
og meiddist töluvert. Eftir læknis-
skoðun var honum samt leyft að
fara út aftur.
Var veður rysjótt um nóttina,
þegar þetta gerðist.
Liggur annar Englendingur flla
slasaður á sjúkrahúsinu í Patreks
firði. Kom togarinn Barley frá
Grimsby með hann fyrir fáum dög
um og lagði hann í land. Hafði
slitnað togvír í skipinu með þeim
afleiðingum að skipverji þessi varð
fyrir og mölbrotnuðu báðar pípur
{ öðrum fæti.
Jarðarför
JÓNS ÁSBJÖRNSSONAR
fyrrverandi hæstaréttardómara
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 21. janúar
kl. 2 e. h.
Vinir og vandamenn
TILKYNNING
Samkvæmt samningum milli Vörubílstjórafélagsins Þróttar í Reykjavík og Vinnuveit-
endasambands íslands og samningum annarra sambandsfélaga verður leigugjald fyrir
vörubifreiðir frá og með 18. janúar 1966 og þar til öðruvísi verður ákveðið eins og
hér segir:
) Nætur- og
Fyrir 2 V2 tonna vörubifreiðir ... Kr. Dagv. 143,50 Eftirv. 166,10 helgid.v. 188,60
— 2i/2-3 tonna hlassþ — 160,40 183,00 205,50
_ 3 -3i/2 — — 177,30 199,90 222,40
— 3/2-4 — — — 192,80 215,30 237,80
4 -4/2 — — ... — 206,90 229,40 251,90
— 4/2-5 — — ... — 218,20 240,70 263,20
— 5 -5i/2 — — ... — 228,00 250,50 273,00
— 5i/2-6 — — ... — 237,90 260,40 282,90
— 6 —61/2 — — — 246,30 268,80 291,30
— 6i/2-7x — — — 254,70 277,20 299,80
— 7 -7i/2 — — ... — 263,20 285,70 308,20
- 7i/2-8 - - - 271,60 294,20 316,70
Aðrir taxtar breytast samkvæmt því.
Landssamband vörubifreiðastjóra.