Vísir - 20.01.1966, Blaðsíða 16
Fimmtudagur 20. janúar 1966
Átta stéttarfélög undir sama jtaki
Félrcgsheimili vígt í gær
Formenn stéttarfélaganna 8, sem standa að Sameignarfélaginu Bjarg. Myndin var tekin við
vígslu félagsheimilis þeirra í gær.
Átta verkalýðsfélög í Reykja-
vík, sem áður höfðu aðeins eitt
herbergi sameiginlega fyrir
skrifstofuhaid sitt hafa nú eign
azt myndarlegt félagsheimili,
efstu hæð hússins nr. 7 við Óð-
insgötu í Reykjavík.
Vígsla félagsheimilisins fór
fram [ gær að viðstöddum for-
ystumönnum verkalýðsfélag-
anna átta, félagsmálaráðherra
og fjölda gesta.
Verkalýðsfélög þau sem hér
eiga hlut að máli eru: Bókbind-
arafélag íslands, Félag Garð-
yrkjumanna, Félag framreiðslu-
manna, Félag Matreiðslumanna,
Félag starfsfóiks í veitingahús-
um, Félag ísl. hljómlistarmanna,
Offsetprentarafélag íslands og
Prentmyndasmiðafélag íslands.
Sjúkra- og styrktarsjóðir félag-
anna eru eigendur þessa félags-
heimilis og stofnuðu félögin
með sér sameignarfélag, Sam-
eignarfélagið Bjarg, um rekstur
inn. Stjóm félagsins skipa: Jón
Maríasson, formaður, Grétar
Sigurðsson gjaldkeri og Geir
Þórðarson, ritari.
Húsnæðið er 205 fermetrar á
einni hæð og hefur því verið
skipt niður í 9 skrifstofuher-
bergi, eitt fyrir hvert félag og
ein sameiginleg skrifstofa, eld-
hús, snyrtiherbergi og sam-
komusal. Kostnaðarverð félags-
heimilisins er um 2 y2 miHj. kr.
Atvinnuleysistryggingasjóður
lánaði verulega upphæð til
kaupanna og Iðnaðarbanki ís-
lands veitti félögunum mikla
fyrirgreiðslu með lánum.
Rannsékn haldið áfram /
árásarmálinu á togaranum
Árásarmennimir tveir, sem
veittust að Jóni Albertssyni 1. vél-
stjóra á b.v. Bjama Ólafssyni, og
frá hefur verið skýrt í Vísi áður,
eru báðir ungir menn, rúmlega tvi-
tugir.
Heita þeir Ingvar Már Þor-
geirsson fæddur 1939 og Gestur
ísleifsson fæddur 1944.
Rannsókn stendur yfir í Sjó-
dómi Reykjavíkur í máli þessu og
er enn ekki með fullu búið að
upplýsa tildrögin til árásarinnar.
Hitt liggur ljóst fyrir að þeir réð-
ust að vélstjóranum liggjandi í
rúminu og börðu hann með
geneverbrúsa í höfuðið svo hann
hlaut þrjá allmikla skurði á enni.
Þá mun vélstjórinn hafa tognað
eða meiðzt i baki I átökum við
skipverja er hann reyndi að verja
sig.
FRIÐRIK SAMDI
UM JAFNTEFL!
Við rannsókn í málinu hefur
komið fram að á leiðinni milli ís-
lands og Bremerhaven hafði verið
mikil drykkjuskaparóregla um
! borð í togaranum og m. a. höfðu
árásarmenningir báðir verið si-
drukknir langleiðina heim.
Við réttarhöldin hafa þeir báðir
játað að hafa barið Jón Albertsson
vélstjóra. Nokkur atriði eru þó ó-
upplýst ennþá vegna þess að ekki
hefur tekizt að ná i vitni sem
viðstödd voru í skipinu þegar árás-
in var framin.
Sjódóm skipa i þessu máli Bjöm
Friðfinnsson fulltrúi ■ borgardóm-
ara, sem jafnframt er dómsforseti,
en meðdómendur þeir Eiríkur
Kristófesson og Halldór Jónsson.
Tvö umferðarslys
1 gærkvöld var 6. umferð
Reykjavíkurmótsins tefld. Úrslit
urðu þau að Friðrik og Böök gerðu
jafntefli, sömuleiðis Guðmundur
Sigurjónsson og Vasjúkof og Guð-
mundur Pálmason og Jón Hálfdán-
arson. O’Kelly vann Bjöm Þor-
steinsson en skákir þeirra Wade
og Freysteins og Kieningers og
Jóns Kristinssonar fóru f bið.
7. umferð Reykjavíkurmótsins
verður tefld í kvöld og eigast þá
við:
Björn Þorsteinsson — Guðm.
Pálmason.
Friðrik Ólafsson — O’Kelly.
Vasjúkof — Böök.
Jón Kristinsson — Guðm. Sig-
urjónsson.
Freysteinn Þorbergsson —
Kieninger.
Jón Hálfdánarson — Wade.
Keppendur eiga fri á morgun og
á laugardag verða tefldar biðskák-
ir úr 5.. 6. og 7. umferð.
Aðulfimdur V.R,
Aðalfundur Verzlunarmannafé-
lags Reykjavíkur var haldinn í
gærkvöld og að loknum venjuleg-
um aðalfundarstörfum fór fram
stjómarkjör. Þar sem enginn listi
hafði komið fram var fráfarandi
stjóm sjálfkjörin. Hana skipa:
Guðm. H. Garðarsson formaður,
Magnús L. Sveinsson, Bjöm Þór-
hallsson, Hannes Þ. Sigurðsson,
Helgi Guðbrandsson, Gretar Har-
aldsson, Óttar Októsson, Bjarni
Felixson, Halldór Friðriksson og
Rfkharð Sigurbaldason.
í gærkvöldi varð umferðar-
slys í Kópavogi, en minna en
búizt var við í fyrstu.
Slysið varð um hálfáttaleytið
á mótum Kársnesbrautar og Há-
brautar. Drukkinn maður var á
gangi eftir götunni er bifreið
kom aðvífandi og lenti maður-
inn fyrir henni og kastaðist í
götuna. Hann missti meðvitund,
en mun hafa raknað fljótlega
við, því þegar í slysavarðstof-
una kom var hann illviðráðan-
legur sökum drykkjuláta.
Ekki fundu læknar á honum
teljandi meiðsli og var honum
leyft að fara heim.
Annað slys varð í gær af
völdum umferðar. Það varð á
Reykjanesbraut suður í Njarð-
víkum skömmu eftir hádegið í
gær. Þar var ekið á kvenmann
og hlaut hún einhver höfuð-
meiðsli, en ekki hættuleg að því
er talið var.
Lézt af völd-
um meiðsla
Auðunn Pálsson frá Bjargi á
Selfossi, sem varð fyrir jeppa-
bifreið við Ölfusárbrú s.l. Iaug-
ardagsmorgun og höfuðkúpu-
brotnaði, Iézt af völdum meiðsla
sinna í fyrrakvöld og komst
aldrei til meðvitundar.
Auðunn vár fluttur í Landa-
kotsspítala strax eftir slysið og
þar lá hann unz hann lézt. Hann
var hátt á sextugsaldri, fæddur
10. maí 1908 og lætur eftir sig
konu og sjö uppkomin börn.
ERFITT VERDUR AD
BJARCA TOGARANUM
— Aðstaðan er mjög erfið,
sagði Geir Zoega, umboðs-
maður brezka togarans, Wyre
Conquerer, í viðtali við Vísi
í morgun. - Tvö sandrif eru
fyrir utan togarann, þannig
að það skip, sem mundi reyna
að draga togarann út, yrði
iiklega að vera í mílufjar-
lægð. Og það næst lítið tog
á mflulangan vír.
— Landhelgisgæzlan hefur
tekið að sér að kanna mögu-
leika á björgun, sagði Geir
Zoega. — Þeir hafa þrjá
menn á strandstað síðan í
gær og svo má reikna með
því, að varðskip komi á vett-
vang á næsta stórstreymi,
sem verður eftir helgina, og
reyni þá að draga togarann
út. Þegar að því kemur, verð-
ur allt að vera tilbúið um
borð í togaranum og vél hans
í gangi til að létta dráttinn.
í morgun var Wyre Conqu-
erer enn heill og réttur fyrir
á strandstað, en nú er hann
farinn að ramba töluvert. Er
óttazt, að hann taki að snú-
ast og leggist að landi. Ef það
gerðist yrði miklu erfiðara að
eiga við björgun, því þá væri
ekki hægt að draga hann
beint út. Ef veðrið helzt eins
gott og verið hefur, getur tog
arinn ef til vill staðið þarna
óskemmdur fram yfir helgi,
en talið er úti um togarann,
ef skyndilega gerði suðvestan
átt.
Með þorramatinn, Skarphéðinn Lýðsson og Sigurður Friðriksson.
Sniglar og kræklingar
Á morgun gengur þorri í garð og
um leið getur hver sem er gengið
inn í Naustið og keypt sér þorra-
matinn, sem er orðinn árlegur fasta
réttur á þeim góða og gegna
veitingastað á þessum árstíma.
Að vanda verður þorramaturinn
borinn fram í trogum og getur þar
hver valið á milli eða étið alla þá
súrsuðu, reyktu og höngnu rétti,
sem trogið geymir og haft með
flatbrauð og smjör, hákarl, súrsaða
| selshreifa og bringukolla, blóðmör
og lifrarpylsu, hangikjöt, lunda-
bagga svo eitthvað sé talið.
Um leið og þorramaturinn er
kynntur gestum er boðið upp á
nýjungar og það er sjávardj**rétti.
Naustið býður nú upp á sem
forrétt skeldýr, lystilega framreidd,
snigla, sem er herramannsmatur.
maríneraðan krækling og glóðar-
steikta humarshala. Á þetta allt
að vera lystaukandi mjög -og aðeins
inngangurinn að enn meira áti.