Vísir - 25.01.1966, Blaðsíða 11

Vísir - 25.01.1966, Blaðsíða 11
VTSIR . Priðjudagur 25, janúar 1966. lí SIGURÁR Jón Þ. stökk 2,05 Aðalfundur Knattspyrnufélags Reykjavíkur var haldinn 14. des. s.l. í KR-heimilinu við Kaplaskjólsveg. Einar Sæmunds son, formaður KR, setti fundinn og bauð hina 80 fulltrúa vel- komna. Áður en gengið var til dag- skrár, minntist formaður þess- ara KR-inga, sem látizt höfðu á árinu: Geirs Konráðssonar og Kristins Péturssonar. er voru heiðursfélagar KR, Ásgeirs Þór- arinssonar, Ásmundar Einars- sonar, Bjöms Halldórssonar, Guðmundar H. Guðnasonar og Jóhanns Sigurjónssonar. Fund- armenn heiðruðu minningu hinna látnu félaga með því að rísa úr sætum. Fundarstjóri var kjörinn Björgvin Schram og fundarrit- ari Gunnar Felixson. Birgir Þorvaldsson las skýrslu aðal- stjómar, ásamt útdrætti úr skýrslum deilda. Á vegum aðal- stjómar störfuðu 3 nefndir á árinu: hússtjórn félagsheimilis- ins, rekstramefnd skíðaskála og skíðalyftu og fjáröflunarnefnd. Rekstur sumarbúðanna í skíða- skála félagsins gekk mjög vel. Var ekki unnt að verða við öllum umsóknum um dvöl á þeim tveim námskeiðum, sem haldin voru. í ársskýrslum hinna ýmsu deilda kom m. a. fram eftirfar- andi: Handknattleiksdeild: Árangur í mótum var allgóður, t.d. vannst Reykjavíkurmótið í meistara- og 1. flokki karla. Deildin tók á móti danska lið- inu Gullfoss, sem keppti hér nokkra leiki. Badmintondeild: KR-ingar - " * ii .;,i [ l ", 11 9c i ' !iL • ÉÍlH.'i „ , 'SiWaö :i! ■{; ijw j{Jp<jjj§ EINAR SÆMUNDSSON — formaður KR. hlutu 5 af 9 meistaratitlum á íslandsmeistaramótinu í bad- minton. Er það mjög plæsileg frammistaða hjé sv 3 ungri deild. Glímudeild: Hlutur deiidaiinu ar var mjög góður. T.d. átti KR 5 fyrstu menn I Skjaldarglím- unni og íslandsmeistara í ung- lingaflokki og drengjaflokki yngri en 13 ára. Frjálsíþróttadeild: Deildin átti mjög sterka einstaklinga i elzta aldursflokki, sem unnu t. d. 11 af 22 greinum á Meistara- móti Islands. Yngri flokkarnir voru hins vegar mjög slakir. Benedikt Jakobsson var þjálf- ari deildarinnar, eins og síðast- liðin rösk 30 ár. Knattspymudeild: Árangur deildarinnar var mjög góður í meistara- og 1. flokki, en fremur lakur í yngri flokkunum. KR-ingar urðu t.d. Reykjavíkur- meistarar og íslandsmeistarar f I. deild. KR tók á móti tveim erlendum liðum á árinu: Cov- entry P.C. frá Englandi og S.B.U. frá Danmörku. Einnig kom hingað þýzka unglingalið- ið Blau-Weiss 1890. KR tók þátt í Evrópubikarkeppni bikar- meistara, en féll úr í 1. umferð. Körfuknattleiksdeild: KR-ing- ar urðu nú íslandsmeistarar í meistaraflokki í fyrsta sinn. Einnig Islandsmeistarar í 1. flokki karla. Tekið var þátt í Evrópubikarkeppni meistaraliða. Framhald á bls. 13 Innanfélagsmót var haldið í Í.R.-húsinu 22. janúar s.L, keppt var í hástökki með atrennu og langstökki án atrennu, og enn sem fyrr á innanfélagsmótum Í.R. undanfarið, var Jón Þ. Ólafs son í sérflokki. Stökk hann 2,05 m í hástökki með atrennu, sem er prýðis- árangur. Jón er orðinn nokkuð öruggur að stökkva 2,03 — 2,05 m. og er það mest að þakka geysiöflugu uppstökki, en hann hefur ekki góðan stíl yfir ránni. Hinn nýi þjálfari Í.R.-inga Jóhannes Sæmundsson, segir ekki til of mikils ætlazt, að hann nái 2,15 m með betri stfl, en þá verður hann að leggja mjög hart að sér við æfingar. Árangur annarra keppenda var ekki góður í hástökkinu, en í langstökki var keppnin mjög jöfn milli 2, 3. og 4. manns, og. árangur sæmilegur, en Jón sig aði með 3,31 m stökki, 3 fyrstu í hástökkinu urc þessir: 1. Jón Þ. Ólafsson ÍR 2,05 m 2. Bergþór Halldórss. HSK 1,7 3. Páll Dagbjartss. HSÞ 1.60 Fimm fyrstu f langstökkin urðu þessir: 1. Jón Þ. Ólafsson iR 3,31 m 2. Ólafur Ottósson iR 3,02 3. Bergþór Halldórss. HSK 2,8: 4. Þórarinn Arnórsson, ÍR 2,9i 5. Ólafur Unnsteinss. HSK 2,8; Næsta laugardag verður sv síðasta innanfélagsmótið, þeim sem auglýst hafa verið h Í.R. Verður þá keppt í þrístök. án atrennu og hástökki án a rennu, og erum við, Í.R.-ing; spenntir að vita, hvort Jóni . Ólafss. gengur betur en síða: að saxa á heimsmetið. ískmdsmet í lyftingum Óskar Sigurpálsson úr Ár- manni setti á laugardaginn nýtt met í lyftingum, lyfti í þríþraut samtals 332 kg. sem er nýtt íslandsmet, en til að setja metið varð Óskar að setja jafnframt íslands/netj síðustu grein þraut arinnar, jáfnhöttun — Honum tókst það og jafnhattaði 132 kg. í fyrri þrautunum hafði Ósk- ar pressað 110 og snarað 90 kg. Annar í þrautinni varð Svavar Carlsen og lyfti samtals 310 kg., og er það góð þyrjun eftir slæm meiðsl, sem hann hlaut í öxl í sumar. Þriðji varð Guðm. Sig- urðsson með 292% kg. samtals. Keppt er í þyngdarflokkum í þessari grein og er Svavar í þyngsta flokki, þungavigt, en Óskar er í léttvigt, en Guðmund ur í millivigt. Mikill hugur er í lyftingamönn um að stofna til íslandsmeistara móts í vor í greininni og tekst þeim það vonandi. Það er tími til kominn að nýjar íþróttir ryðji sér fram á sjónarsviðið f íslenzl um íþróttum. Nóg er af sterkun mönnum, sem geta náð langt lyftingum, borðtennis ætti af vera mjög heppileg íþrótt sen hægt er að koma við á ótrúleg ustu stöðum, fimleikakeppni þyrftu að fara fram og vonanc verður þess ekki langt að bíð. að fimleikameistari Islands borðtennismeistari íslands o; lyftingameistari íslands verð krýndir. -jbp- KR-INGAR »69«8eo««9eoG«OMoeeMðou)0Ort*if>eMMð«e»eo«oe9eoo«otoe«ooi MIKIÐ KVAÐ AD ELLERT SCHRAM - leiddi félagana til sigurs í íslandsmótinu í knattspyrnu 1965. ••••••••••••••••••••••••••••••••a a cé EINAR BOLLASON - leiddi félaga sína til sigurs í ís- landsmótinu í körfuknattleik 1965. KARL .<ÓHANNSS0N - leiddi félaga VALBJÖRN ÞORLÁKSSON sína til sigurs í Reykjavíkurmótinu 1964. — vann stærsta afrek 1965 — varð Norðurlandameistari og „íþróttamaður ársins". t « c c (

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.