Vísir - 25.01.1966, Blaðsíða 16

Vísir - 25.01.1966, Blaðsíða 16
ÞriSjudagur 25. janúar 1966. Alþingi 7. febr. Forseti íslands hefur sam- kvæmt tillögu forsætisráðherra kvatt Alþingi til framhaldsfund- ar mánudaginn 7. febrúar 1966 kl. 14.00. Afmælishapp- drætti Varðar A Seltjamamesi. Séö vertur Nesveg. Mýrarhusaskóli tu vmstn. Á Seítjarnarnesi er verið að gera stórátak / varanlegri gatnagerð Þeir sem hafa fengið happdrætt- ismiða f afmælishappdrætti Varðar, eru vinsamlega beðnir um að gera skil sem fyrst. Skrifstofan er í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll. Sími 17104. Á fjárhagsáætlun Seltjamar- neshrepps fyrir yfirstandandi ár er gert ráð fyrir því, að verja um 35% af heildartekjum hreppslns til stórátaks í varan- legri gatnagerð, en búizt er við að eftir árið verði svo tll aliar núverandi götur þar fuilgerðar. Að auki er ætíunin að selja allmargar lóðir, við 2—3 nýjar götur, og verður irmheimtu gatnagerðargjaidi í þvf sam- Álit O.E.C.D. um íslund: ÞRÍÞÆTTAR JAFNVÆGISRÁÐ- STAFANIR NAUDSYNLEGAR Ný stefna í launa og kjaramálum æskileg Efnahags- og framfarastofnunin f Paris birti f dag ársskýrslu sína um efnahagsmálin á íslandi. Fjall- ar skýrslan um þróun og ástand efnahagsmála á íslandi. Hér fer á eftir lokakafli skýrslunnar í ís- lenzkri þýðingu: „Raunverulegar þjóðartekjur héldu áfram að aukast á árinu 1965. Framleiðslan jókst og verzl- unarkjörin bötnuðu mikið vegna hækkunar á verði útfluttra vara. j Greiðslustaðan við útlönd var á-1 fram sterk. Það dró úr hallanum á viðskiptajöfnuði (vörum og þjón- ustu) og gjaldeyrisvarasjóðurinn hélt áfram að aukast. En samhliða þessari hagstæðu þróun ríkti áfram verðbólguástand. Ráðstafanir tll þess að skapa aukið jafnvægi virð- ast þurfa að vera þriþættar. í því skyni að draga úr hinni miklu eft- Irspurn eftlr framleiðsluþáttunum virðist þörf á strangari stefnu í fjármálum rfkisins og einnig kann að verða nauðsynlegt að herða á útlánareglum bankanna. Til þess að hamla gegn víxlhækkunum verðlags- og kaupgjalds kann að vera, að stjómarvöldin vilji ganga lengra f þvf að draga úr tollvemd- , inni. 1 því skyni að þróa nýja ! stefnu f launa- og kjaramálum væri æskilegt að samræma samn- inga um þessi mál betur. Ríkis- stjómin hefur látið þessi mál veru- lega til sfn taka en samvinna laun- þega, vinnuveitenda og bænda er grundvallarskilyrði fyrir árangri á þessu sviði.“ m bandi varið beint Isl vSSkotQ- andi gatna. Fjárhagsáætlun Seltjamar- ness var afgreidd í hreppsnefnd inni þar síðast f desembermán- uði s.l. Niðurstöðutölnr hennar em 15.556 þús. kr„ sem er «n 19% hækkun frá fyrra ári. Helztu tekjur em áætlaðan Otsvör 9.800 þús. kr. (voru á- ætl. 8.700 þús. kr. f fyrra, um 12.5% hækkun). aðstöðugjöld 850 þús. kr., fasteigna- og vatns skattar 750 þús. kr., úr jöfmm- arsjóði ríkisins 1.750 þús. kr. rfk isframlag til skóla, 1Æ71 þús. kr. og úr vegasjóði rflrisins 300 þús. kr. Ti lsveitarstjómar og verk- fræðiskrifstofu er áætlað að verja um 1 millj. kr., til fram- færslu, almanna trygginga, sjúkrasamlags og heilbrigðis- mála 1.850 jjús. kr., til mennta- mála 1.650 þús. kr., til bóka- safns 160 þús. kr., til dagheim- ilissjóðs 300 þús. kr., til jarð- Framh. á bls. 6. Friðrik og Vasjúkof mætast í kvöld Vasjiikof með 7* lh - Friðrik 7 og biðskók LISTAMANNALAUNIN VEITT 126 MÖNNUM Níu af ellefu umferðum Reykja- víkurmótsins hafa nú verið tefld ar og er Vasjúkof nú efstur með 7^/2 vinning og næstur er Friðrik með 7 vinninga og biðskák. Nfunda umferð var tefld í gær kvöld og fóru leikar svo að Wade vann Kieninger, Vasjúkof vann Bjöm, O’KelIy vann Jón Kristinsson, jafntefli varð hjá Guðmundi Sigurjónssyni og Jóni Hálfdánarsyni og Böök og Frey- steini. Skák Friðriks og Guð- mundar Pálmasonar fór í bið. Áttunda umferð, sem tefld var á sunnudag fór svo að Frey- steinn vann Guðmund Sigurjóns son, Friðrik vann Bjöm, Böök og Jón Kristinsson gerðu jafn- tefli, sömuleiðis O’Kelly og Vasjúkof. Skák Guðmundar Pálmasonar og Wade fór í bið en lauk í gærmorgun með sigri Guðmundar. Skák Kieninger og Jóns Hálfdánarsonar sem fór í bið í 8. umferð er enn ólokið. Eftir níu umferðir er staðan hjá þeim efstu þannig að Vasjú- kof er efstur með 7]/2 vinning, Friðrik með 7 og biðskák, O’Kelly með 6V2 og Guðmundur Pálmason með 5 vinninga og bið skák. Tíunda umferð verður tefld í kvöld og eigast þá við: Guðm. Pálmason - Wade Guðm. Sigurjónssoh - Wade Böök — Jón Hálfdánarson O’Kelly - Freysteinn Bjöm — Jón Kristinsson Friðrik — Vasjúkof. Úthlutunamefnd listamanna- launa fyrir áriö 1966 hefur lokið störfum. Hlutu 126 listamenn laun að þessu sinni eða svipaður fjöldi og f fyrra. 12.000 króna flokkur- inn hækkar upp i 15.000 krónur og 18.000 króna flokkurinn upp f 20. 000 krónur, en aðrar breytingar eru ekki á flokkunum sjálfum. 1 Fjórir listamenn færðust nú upp í efsta flokk, Svavar Guðnason, Þorsteinn Jónsson (Þórir Bergs- son), Þorvaldur Skúlason og Rík- arður Jónsson. Tveir hækka upp í næsthæsta flokk, 30.000 króna flokkinn. Sigurður Þórðarson og Þorsteinn Valdimarsson. Ýmsar breytingar eru á neðri flokkunum gömul nöfn hverfa en ný nöfn koma inn. Jóhannes Helgi, Inai mar Erlendur Sigurðsson og B;arr Benediktsson frá Hofteigi, er gáft' út bækur á liðnu ári, eru ekki f ’istanum. Úthlutunarnefndina skipuðu Sig urður Bjamason ritstjóri (formað- ur), Halldór Kristjánsson bóndi (rit ari), Andrés Kristjánsson ritstjóri, Bjartmar Guðm.undsson alþingis- maður, Einar Laxness cand. mag., Helgi Sæmundsson ritstjóri og dr. Þórir Kr. Þórðarson prófessor. Listamannalaunin skiptast þannig: 75 þúsund krónun Veitt af Alþingi: Gunnar Gunn- arsson, Halldór Laxness, Jóhannes S. Kjarval, Páll ísólfsson og Tómas Guðmundsson. 50 þúsund krónur: Veitt af nefndinni: Ásmundur Sveinsson, Finnur Jónsson, Guð- mundur Böðvarsson, Guðmundur Daníelsson. Guðmundur G. Haga- lín, Gunnlaugur Scheving, Jakob Thorarensen, Jóhannes úr Kötlum, Jón Leifs, Júlíana Sveinsdóttir, Kristmann Guðmundsson, Rikarð- ur Jónsson, Svavar Guðnason, Þor- valdur Skúlason, Þorsteinn Jóns- son (Þórir Bergsson) og Þórberg- ur Þórðarson. 30 þúsund krónur: Amdís Bjömsdóttir, Brynjólfur Jóhannesson, Elínborg Lámsdóttir, Framh. á bls. 6. Nokkuð af Surtseyjarsíld fer í bræðslu og flökun Allmargir bátar fengu nokkurn sildarafla í gærkvöldi á miðunum í grennd við Surtsey, Voru þama Eyja- og Skagabátar og víðar að. Um miðnætti hafði veður spillzt svo, að ekki var gerlegt að halda áfram. Stormur var og bvlur ■' Vestmannaeyjum í nótt, Mikið af síldinni er smátt, en þó var innan um miklum mun berri sfld í því, sem landað var í gær en þvf sem aflaðist á laugardag. Þá var mikil veiði og nær allt kræða. Af aflanum frá í gærkvöldi fór mikið í frystingu af því sem landað var í Eyjum en af afla Skagabáta fór nokkuð í frystingu, og nokkuð var flakað, en hitt í bræðslu. Ólafur Sigurðsson var að landa þar í morgun 1000 tunnum og Skírnir 400 tunnum. Hafþór — síldarleitarskipið er nýkomið til Reykjavíkur. Veiðiskilyrði munu ekki hafa verið f Austurdjúpi norðaustur af Færeyjum að undanfömu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.