Vísir - 04.02.1966, Blaðsíða 3
v ioík . rvaiuuagui ■*. icuruar imn>
Bygginganefnd rannsókna
stofnana sjávarútvegsins afhenti
f gær sjávarútvegsmálaráð-
herra byggihgu þá að Skúlagötu
4, sem hún hefur séð um að
koma upp og fullgerð var í árs-
lok 1965. Er ráðherra hafði tek
ið við byggingunni afhenti hann
Rannsóknastofnun fiskiðnaðar-
ins og Hafrannsóknarstofnun-
inni bygginguna tii eignar og
fullra umráða.
Athöfnin fór fram f sam-
komusal byggingarinnar, en
hann er f þeim hluta, sem fyrst
var fullgerður og Rannsókna-
stofa Fiskifélags islands hafði
aðsetur í á árunum 1953-1961.
Davfð Óiafsson fiskimála-
stjóri og formaður bygginga-
nefndar raktj fyrst f stuttu máli
Davíð Ólafsson, fiskimálastjórí og formaður byggingamefndar, flytur ræðu sína við afhendinguna. I fremstu bekkjaröð sitja:
Dr. Þórður Þorbjamarson, forstöðumaður Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins, Eggert G. Þorsteinsson sjávarútvegsmálaráð-
herra, Hafsteinn Bergþórsson, sem'sat i byggingamefnd, Gunnlaugur E. Briem, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsmálaráðuneyt-
inu, Jón Jónsson, forstöðumaður Hafrannsóknarstofnunarinna r, og Vilhjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjóri.
Rannsóknastofnunum sjávar-
útvegsins afhent Skúlag. 4
sögu fiskirannsókna og fiskiðn-
aðarrannsókna, allt frá því að
dr. Bjami Sæmundsson hóf fiski
rannsóknir hér við land fyrir
aldamót og dr. Þórður Þorbjam
arson hóf rannsóknir á sviði
fiskiðnaðar og vinnslu sjávar-
afurða með stofnun Rannsóknar
stofu Fi'skifélags íslands árið
1934.
Árið 1945 var stofnuð nefnd
til að athuga möguleika á efl-
ingu rannsókna og varð þá
ljóst að fyrst og fremst þurfti
að fá byggingu, sem gæti rúmað
alla rannsóknarstarfsemi í þágu
sjávarafurða. Árið eftir vom
sett lög um að útflutningsgjald
yrði grei'tt af sjávarafurðum og
skyldi gjald það renna i bygg-
ingarsjóð. Var húsið síðan byggt
í áföngum, flutt var inn í I.
áfanga árið 1953 en i árslok
Framh a bls 6
Eggert G. Þorsteinsson sjávarútvegsmálaráðherra og Jón Sig-
urðsson, formaður sjómannasambandsins.
Magnús Jónsson fjármálaráðherra og Gunnlaugur Briem ráðu
neytisstjóri.
Dr. Unnsteinn Stefánsson haffræðingur og Jakob Jakobsson
fiskifræðingur.
Margeir ónsson útgerðarmaður, Davíð Ólafsson fiskimálastjóri, Magnús Gamalíelsson út-
gerðarmaður, Gunnar Flóvenz, framkv.stj. Síldarútvegsnefndar, og Sigurður Jónsson, fram-
kv.stj. Síldarverksmiðja rikisins.