Vísir - 04.02.1966, Page 11
VISIR . Fðstndagur 4. febrúar 1966.
%'. ;
EINAR SIGURÐSSON er aftur með FH í kvöld, en hann er á myndinni til hliðar. Stóra myndin er af FH-Iiðinu, en Kristján Stefánsson er þó ekki með,
því hann er erlendis.
„Dukla eru bura venjulegir menn"
— en hvernig gengur FH gegn sniBlingunum frú Tékkóslóvukíu í Evrópubika rleiknum í kvöld?
£ Blaðamaður Vísis hitti í gærdag að máli tékknesku hand-
knattleikssnillingana frá Prag, DUKLA PRAG, sem í dag er senni-
lega sterkasta félagslið í heimi, með 8 menn í landsliði, sem fyrir
nokkrum dögum lék sér að því að mola niður a-þýzka landsliðið.
# „Þetta eru ósköp venjulegir menn, hvers vegna skyldum við
ekki a. m. k. standa í þeim“, sagði einhver í kaffiboðinu, sem Ax-
el Kristjánsson, forstjóri í RAFHA í Hafnarfirði og formaður
FH, bauð til í vistlegum húsakynnum fyrirtækisins. Jú, þeir eru
venjulegir menn, en samt sem áður óvenjulega myndarlegir menn,
og bera þess vott, að þeir eru í 100% þjálfun.
Það var mikil glaðværð ríkj-
andi meðal liðsmanna, sem
reyttu af sér gamanyrðin (á
tékknesku, því miður!) Samt var
það áberandi hve mikinn aga
þessir menn búa við. Tveir
þeirra ætluðu að njóta dýrindis
vindla, sem þama voru á borð
um, en útrétt hönd bandaði á
móti þeim og vindlamir höfn-
uðu í vösum leikmannanna í
stað munna.
Allir leikmenn DUKLA PRAG
em hermenn ,annað hvort að
atvinnu eða þá að ljúka her-
skyldu. Raunin hefur orðlð sú
að margir beztu íþróttamanna,
sem koma til Dukla og byrja
að leika með liðum þeirra með
árangri, hafna eftir herskylduna
sem atvinnuhermenn, enda oft-
ast boðið upp á góð lifskjör.
Ekki mundu landvamir Tékk-
anna beysnar, ef hermenn yfir-
leitt væm jafnlítið heima fyrir
og þessir handknattleiksmenn.
Ferðalög þeirra em mjög tíð og
þeir ekki fyrr komnir heim, en
þeir eru famir að skipuleggja
nýtt ferðalag. Þannig er raunar
lílið hjá erlendum stórliðum
hvort, sem þau eiga heimkynni
vestan eða austan jámtjalds, —
atvinnumennskan hefur fyrir
löngu haldið innreið sina í evr-
ópskar fþróttir.
Fyrir hálfum mánuði keppti
liðið á Spáni og var þar í rúma
viku, þá kom Þýzkaland og nú
Island. Eftir þetta erfiða ferða
lag er ætlunin að „slappa af“
í æfingabúðum fyrir næstu á-
tök heima og erlendis.
Um leikinn á morgun var auð
vitað mikið rætt í kaffiboðinu
syðra.
Vaclav Duda, 25 ára gamall
með 32 iandsleiki sagði: Bróðir
minn kom hingað með Spartak
Plsen 1963. Hann var geysihrif-
inn af öllu hér og vakti mjög
forvitni mína á landi og þjóð.
Mér er ljóst að ísland á hand-
knattleiksmenn á heimsmæli-
kvarða og þvf kvíði ég fyrir
leiknum. fslendingar gefast
aldrei upp fyrr en í fulla hnef
ana og við slfk lið er oft erfitt
að eiga.
Vojtech Mares, nær þrítugur
leikmaður og einn af beztu hand
knattleiksmönnum heims, her-
foringi að atvinnu: Ég þekki af
eigin raun f jóra af leikmönnun-
um, sem við hittum i nýju höll-
inni ykkar annað kvöld. Það
eru þeir Ragnar, Birgir, Einar
og Hjalti. Vlð höfum nefnilega
hitzt áður, en það var á heims
meistarakeppninni 1961, og
þeim leik gleymum við seint,
því jafntefli varð í miklum
hörkuleik 15:15.
Ég talaði við þjálfara Karviná
áður en við héldum til íslands.
Hann sagði okkur að vera ekki
of vissir um sigur, því að FH-
Iiðið væri mjög sterkt lið. Ég er
það heldur ekki, en vona allt
hið bezta fyrir okkar hönd, þvf
við höfum fullan hug á að kom-
ast langt að þessu sinnl. Þetta
verður án efa skemmtilegur og
góður leikur.
Ragnar Jónsson, einn reynd-
asti Ieikmaður FH sagði:
„Ég verð með annað kvöld,
enda þótt ég hafi enn ekki jafn
að mig að fullu eftir meiðsli
sem ég fékk á hendi. Dukla er
geysisterkt lið og ég vil biðja
fólk um að gera sér ekki of há-
ar vonir með okkur. Vissulega
gerum við okkar bezta, en spum
ingin er bara hversu langt það
nær. Að vísu náðum við jafn-
tefli við landslið Tékka 1961
15:15 og þá voru fimm þessara
sömu leikmanna með í tékk-
neska landsliðinu. I þessum leik
hafði ég fyrirliðann Troyan á
móti mér, en hann er talin
bezta homaskytta heims og á
81 Iandsleik að baki og meira
en 600 leiki með félagsliðum.
Við erum annars f ágætri æf-
ingu um þessar mundir miðað
við þá æflngu, sem hægt er að
öðlast við þau skilyrði, sem
hér eru.
Birgir Bjömsson, fyrirliði FH
og margrejmdur í stórum leikj-
um sem smáum sagði: Þetta
leggst nokkuð vel í mig, þótt
undarlegt megi virðast. Það er
stór styrkur fyrir okkur að hafa
fengið Einar Sigurðsson aftur.
Og eftir allt þá era þetta bara
venjulegir dauðleglr menn. Því
skyldum við þá ekki spjara okk
ur.
... og Hallsteinn Hinriksson,
hinn aldni handknattleiksjöfur
þeirra Hafnfirðinga botnaði og
Framh. á. 6. síðu.
i Latwmm—rosmmwii m i ita—mgaa .
Þessi mynd var tekin þegar KR vann Landsmót 2. flokks 1963. Síðan eru margir þessara piita
famir að Ieika með meistaraflokki. Sá, sem borinn var út í heiðursskyni, var Hörður Markan,
en Guðmundur Haraldsson er annar frá hægri á myndinni.
Ungir fromherjor KR utan í morgun
★ í morgun héldu utan tii Engiands þrír knattspymumenn úr KR, en þeim var boðið að æfa og
jafnvel leika með varaliði enska annarar deildarliðsins Coventry, sem nú er efst í deildinni þar,
og hefur mjög mikla möguleika til að komast í fyrstu deildina á næsta ári.
★ Eins og flestir muna kom liðið í keppnisferð hingað síðastliðið sumar á vegum KR og bauð þá
tveim til þremur KR-ingum að koma utan og æfa með liðinu 2-3 mánuði. - Upphaflega átti
„markakóngur“ KR, Baldvin Baldvinsson, að vera í hópnum, en vegna vinnu sinnar sá hann sé
ekki fært að þiggja boðið.
★ I sumar má því búast við sterkri framlínu hjá KR, þegar utanfararnir, þeir Guðmundur Har-
aidsson, Hörður Markan og Einar ísfeld koma heim eftir þriggja mánaða þrotiausar æfingar
og hitta þá fyrir hinn nýja félaga í KR, Eyleif Hafsteinsson, og „markakónginn“ Baldvin Bald-
vinsson.
★ Erfitt verður áreiðanlega að velja í framlínuna, þegar við bætast menn eins og Gunnar Felix-
son, Sigurþór Jakobsson, Theodór Guðmundsson, Jón Sigurðsson og margir fleiri ungir og efni-
legir drengir, sem eru komnir úr 2. flokki.