Vísir - 01.03.1966, Blaðsíða 16

Vísir - 01.03.1966, Blaðsíða 16
Þriðjudagur 1. marz 1966 Spilakvöld Sjálfstæðisfólk, munið spilakvöld Sjálfstæðis- félaganna annað kvöld. Flugmenn hjá Loftleiðum mátmæla takmörkua á áfengisinaflutaiagi Flugliðar hjá Loftleiöum hafa skrifað til fjármálaráðherra þar sem þeir mótmæla hinum nýju ákvæðum um innflutning flugmanna á áfengi. En sam- kvæmt þessum nýju reglum mega flugmenn hafa með sér i hvert sinn er þeir koma frá út- löndum einn áfengisfleyg (1 pela og 3 pakka af sígarettum. Er það miklu minna magn en þeir hafa fengið aö flytja meö sér til þessa. En auk þessa mun innflutningur flugmanna á ýms- um öörum vörutegundum svo sem kjöti verða bannaður eða stórum takmarkaður. Mótmælin sem hér um ræðir fjalla þó aðeins um áfengi og tóbak. Vilja flugliðar fá leyfi til Hurkalegar árásir á peaiaga kassahjá tveim fyrirtækjum 1 nótt var brotizt inn hjá fyrirtækinu Kistufelli í Braut- arholti 16, en þar hefur það verkstæði og varahlutaverzlun fyrir bíla. Eftir að inn í húsið var kom- ið hirti þjófurinn eða þjófamir með sér verkfæri af verkstæð- inu, kúbein, meitla, hamra og annað sem til þurfti og réðust með þeim á læstan peninga- kassa. Dælduðu þeir hann og skemmdu, en hafa einhverra hluta vegna gefizt upp við hann áður en þeim tókst að brjóta hann upp. Það var heldur ekki af miklu að missa þvf kassinn var tómur! Annað innbrot var framið í nótt í skrifstofur Júpiters og Marz í Aðalstræti 4. Var farið inn á þann hátt að brotin var Stakk móður sína — og sjólf- an sig á eftir með hníf Aðfaranótt s.l. laugardags gerð- ist sá atburður hér í borg að ungl- ingspiltur stakk móður sína i brjóstið og veitti sjálfum sér á- verka á eftir. Kvöldið áður hafði þeim mæðg- inum orðið sundurorða út af því að hann vildi fara út að skemmta sér en hún vildi ekki að hann færi. Hann fór engu að síður og kom þá til nýrrar sennu á milli þeirra, sem lyktaði með því að pilturinn stakk móður sína í brjóstið með brauðhníf. Hann skýrði siðar svo frá að það hefði verið óviljaverk, hnífurinn hefði óvart rekizt í hana. Fóru þau mæðgin eftir þetta atvik upp á næstu hæð húss- ins þar sem dóttir konunnar og tengdasonur bjuggu og þaðan var símað eftir sjúkrabifreið, sem flutti konuna í slysavarðstofuna. Á meðan þessu fór fram og á meðan verið var að flvtja konuna út í sjúkrabifreiðina fór pilturinn, sonur hennar niður í kjallara og þegar að var komið rétt á eftir lá hann þar meðvitundarlaus í blóði sínu. Hafði hann stungið sig með hníf f brjóstið en hnífblaðið lent á rifbeini, sem hefur forðað hon- um frá meiriháttar áverka. Er hann ekki talinn hættulega slas- aður. Verzlunarmannadeilan: Lokað í þrjá daga? Sáttafundur í deilu verzlunar- manna og kaupmanna verður haldinn í kvöld. Eins og kunnugt er hefur Verzlunarmannafélag Reykjavíkur boðað verkfall f matvörubúöum á fimmtudag, föstudag og laugardag, ef samn ingar ekki takast. Viðræður aðila hafa staðiö undanfama daga ,en ekki enn náðst samkomulag. Hafa kaup- menn boðið nokkra beina kaup- hækkun, en henni til viðbótar verulegar aðrar kjarabætur, svo sem miklar flokkatilfærslur, mikla aukningu á veikindadög- um o. s. frv. Jafngildir það veru legum kjarabótum, sérstaklega fyrir afgreiðslufólk í kjöt og mat vömbúðum. Vegna hugsanlegs verkfalk nefur Félag matvörukaupmanná og kjötverzlana samþykkt eftir farandi ályktun: „Vegna boðaðs verkfalls Verzl unarmannafélags Reykjavíkur fimmtudag til laugardags í þess ari viku verða verzlanir félags manna lokaðar framangreinda daga komi til verkfallsins. Þeim tilmælum er þvf beint til neyt- enda að þeir geri innkaup sfn á þriðjudag og miðvikudag í þess- ari viku“. Meö tillögunni kveðast kaup- menn vilja undirstrika samstöðu sína f máli þessu og hindra að til nokkurra árekstra geti komiö vegna vinnustöðvunar verzlunar fólks, í verzlununum. rúða í útidyrahurð og komizt sfðan upp á efri hæð og þar enn farið inn í ýmis herbergi og skrifstofur með þvf að brjóta rúður í hurðum. Ekki varð séð í morgun að neinu hefði verið stolið, enda ekki þau verðmæti geymd í skrifstofunum sem venjulegum þjófum koma að gagni. Fyrir sfðustu helgi var fram- ið hörkumikið innbrot í Hilmi h.f. Skipholti 33. Þar hefur undanfarið verið unnið að viðbótarbyggingu við húsið og geymdu smiðirnir þar gnægð hinna ákjósanlegustu verkfæra fyrir innbrotsþjófa svo sem kúbein, slaghamra, meitla og þess háttar. Með þessum tækjum réðust þjófamir á stóran og eldtraust- an peningaskáp, hið mesta bákn og hömruðu á honum unz þeim hefur tekizt að meitla á hann gat. 1 gegnum það hirtu þeir 1900 krónur í' peningum og rúmlega 17 þús. kr. f ávísunum. Verðmætatjónið er þó mest í skápnum sjálfum, sem er tug- þúsunda króna virði. að flytja inn meira áfengismagn og telja mjög á sig hallað f sam anburði við farmenn á skipum. Álit okkar er, segir í bréfinu, að magn það af tollfrjálsum vam ingi sem sjómönnum verður leyft að flytja inn í landið á hverjum tuttugu dögum, sé tals- vert meira en okkur verður leyfi legt að hafa með okkur á sama tfma. Þá álítum við að með hinni nýju reglugerð verði brotin á okkur hefð, þar eð hingað til hefur okkur leyfzt að flytja með okkur einn kassa (24 flöskur) af sterku öli í stað áfengis, en reglu gerðm nýja gerir ekki ráð fyrir að sfík verði leyft. Blaðið hafði samband við Run ólf Sigurðsson, flugvélstj., sem hafði einna helzt forustu í að safna undirskriftum þessum. Hann sagði að bréfið hefði legið frammi til undirskriftar í af- greiðslu Loftleiða á Reykjavfkur flugvelli og hefðu um 200 manns, flugmenn, loftsiglinga- fræðingar, flugvélstjórar og flugfreyjur undirritað það. Þar væru að vfsu lfka fáemar útlend- ar flugfreyjur, sem ekki ættu þar heima, en auk þessa væru allmargir úr flugliðahóp erlendis, er ekki hefðu getaö undirritað. Hann taldi að þessar nýjn tak- markanir á innflutnmgi áhafna hefðu raunverulega kjaraTýmun í för með sér, sérstaklega fyrir flugfreyjur, en þær litu almennt svo á að þessi innflutningur hefði stórmikla þýðmgu fyrir kjör þeirra. Runólfur sagði ennfremur að það hefði komið til tals meðal flugliða að flytja með sér sér jafnmikinn áfengisskammt og áður inn í landið og láta þá skeika að sköpuðu um það hvort þeir yrðu sektaðir eöa yrðu látn ir afplána sektir í fangelsum. ÞjófaaðarfaraUur á kveaveskjum Fyrir siðustu helgi var þjófur staðinn að verki í einu veitinga- húsi Reykjavíkur, er hann var að stela peningum úr kvenveski. Hafði utanbæjarstúlka farið á dansleik í einu samkomuhúsi borg- arinnar s.l. föstudagskvöld, en skil- ið veski sitt eftir á borðinu á með- an hún fékk sér snúning. Þegar hún kom aftur að borðinu var bú- ið að hirða peningaeign hennar úr veskinu, 800 kr. en þjófurinn náð- ist nær samstundis og varð að skila þýfinu. Þjófnaðir sem þessir eru næsta algengir í veitingahúsum, hefur lögreglan tjáði Vísi, og er það oft engu síður kvenfólk heldur en karlmenn sem stela. í því sam- bandi má geta þess að nýlega var þremur kvenveskjum stolið á einu og sama kvöldi úr einu veitinga- húsi borgarinnar. Fundust veskin öll inni á kvennasalemi litlu síðar, en tóm að sjálfsögðu. stórkaupmanna í nýja miðbænum Stórkaupmenn hyggjast reisa mikla byggingu í nýja miðbænum við Kringlumýrarbraut, eins og þegar hefur komið fram f Vfsi. Verður það 27.000 rúmmetra bygg ing með um 7100 fermetra gólf- flöt og er reiknað með að þama verði aðsetur fyrir 25—30 helld- sala. Heíldsölumiðstöð þessi, sem verð- ur hin fegursta bygging samkvæmt útlitsteikningum, er teiknuö af arkitektunum Jósef Reynis og Gísla Halldórssyni. í kjallara byggingarinnar verða vörugeymslur fyrir fyrirferðarlitl- ar vörur. Á jarðh. verða verzlanir aðallega á vegum heildsalanna. Verður innangengt milli þessara verzlana. Er fyrirhugað að þama verði einkum vélaverzlanir, heim- ilistækjaverzlanir o.s.frv. Á 2. og 3. hæð verða skrifstofur og í miðju húsinu verða sýningaherbergi. Á efstu hæðinni, sem verður inndreg in verður sjáifsafgreiðslumatstofa fyrir starfsfólk hússins og þá verð ur þar einnig fundarsalur o.fl. I nýju heildsölubyggingunni skap- ast aðstaða til samvinnu milli fyr irtækjanna og hefur verið rætt um að hafa sameiginlega útsendinga- þjónustu, sendlaþjónustu, út- keyrslu, og ef til vill símaþjónustu og aðra fyrirgreiðslu. Heildsölubyggingunni hefur enn ekki endanlega verið ákveðinn stað ur, en eins og fyrr segir, verður hún í nýja miðbænum í nágrenni Kringlumýrarbrautar og Miklu- brautar. Munu byggingarfram- kvæmdii faef jast eins fljótt og auð- ið verður. í bygginganefnd eru: Jón Jó- hannesson, Björgvin Schram, Þór- hallur Þorláksson, Ölafur Guðna- son og Kristján Þorvaldsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.