Vísir - 16.03.1966, Side 8

Vísir - 16.03.1966, Side 8
 VISIR Utgefandi: Blaðaútgáfan VISIR Framkvæmdastjóri: Agnar ÓlafssOB Ritstjóri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóran Jónas Kristjánsson Þorsteinn Ó. Thorarensen Auglýsingastj.: Halldór Jónsson Ritstjórn: Laugavegi 178. Slmi 11660 (5 linur) Auglýsingar og afgreiðsla Túngötu 7 Áskriftargjald: kr. 90,00 á mánuði innanlands I lausasölu kr. 7,00 eintakið Prentsmiðja Visis — Edda h.f. „Vælukjóar" Forustugrein Tímans sl. sunnudag fjallaði um „ís- lenzkt framtak í hálfa öld“. Sagði blaðið, sem rétt er, að ólíkt væri að bera saman kjör alþýðufólks hér nú og fyrir 50 árum. Þar er sannarlega ólíku saman að jafna. Slík breyting mun vart hafa átt sér stað í nokkru öðru landi á hálfri öld. Og auðvitað segir það sig sjálft, að grundvöllur núverandi velmegunar hefur verið lagður með aukinni fjölbreytni atvinnuveganna. Margir stórhuga og framsýnir menn hafa komið fram í þjóðfélaginu á þessari hálfu öld — menn, sem höfðu hugkvæmni og áræði til þess að ráðast í nýjar og nytsamar framkvæmdir. Framtak einstaklingsins hefur hér verið þyngst á metunum, en samvinnu- hreyfingin á einnig sinn hlut, og ekki ótnerkan í framförunum. Stórhuga menn hafa verið og er enn að finna í öllum stjórnmálaflokkum, en þeirri staðreynd verð- ur ekki á móti mælt með rökum, að þeir hafa jafnan verið og eru flestir í Sjálfstæðisflokknum. Það er því brosleg fjarstæða hjá Tímanum, að forustumenn Sjálf stæðisflokksins hafi ótrú á íslenzku framtaki. Væri svo, hefðu ekki eins margir atorku og framkvæmda- menn skipað sér undir merki flokksins og raun ber vitni. Tíminn segir sjálfur að lífskjör landsmanna hafi batnað með „fjölbreyttari atvinnuvegum", en það er einnmitt og hefur alltaf verið stefna Sjálfstæðis- flokksins, að auka fjölbreytni atvinnuveganna. Nú virðist hins vegar svo komið hjá forustuliði Fram- sóknarflokksins, að það vill engar breytingar, engar nýjar leiðir, nema „hina leiðina“, sem enginn veit hvað er. Það er því algert vindhögg hjá Tímanum, að bera öðrum á brýn svartsýni og vantraust á íslenzku framtaki. Hann hefði ekki átt að tala um „vælukjóa", því að betri nafngift verður tæplega fundin á forustu- menn Framsóknarflokksins. Hverjir hafa „vælt“ und- anfarin ár eins og þeir um samdrátt, hungur og hörmungar af mannavöldum? Þeir hafa með öllum tiltækum ráðum, bæði í ræðu ög riti, rejmt að draga kjark úr fólki á þeim stöðum, sem aflaleysi hefur um skeið valdið erfiðleikum, og hefði fólk í dreifbýlinu almennt lagt trúnað á væl þeirra og hrakspár, væri það sennilega allt flutt suður að Faxaflóa. Og þessir „vælukjóar“ láta sér ekki segjast, þótt staðreyndirnar tali gegn þeim. Um það ber stjórn- málaályktun miðstjórnar flokksins gleggst vitni, en hún var lesin yfir landsfólkinu í fréttaauka útvarps- ins í fyrrakvöld. Og svo fengum við hana líka í Tímanum. Þar er nú ekki bjartsýninni fyrir að fara. Sjaldan eða aldrei hefur „vælukjóunum“ tekizt betur upp en þar! VfSIR . Miðvikudagur 16. marz 1966. Hákarlaskip TTverjum þeim manni, sem lif- A að hefur langa ævi, hlýtur að vera æði margt minnisstætt og eitt og annað ógleymanlegt, en misjafnlega ógleymanlegt hlýtur það að vera. Ungir menn rata einnig í ævintýri og ýmsa þá lifsreynslu, sem þeir geta aldrei gleymt. Til þess að taka undir við rikisútvarpið ,skal hér greint frá einum slíkum við- burði á lífsleið minni. Ef frá- sögnin á að geta orðið eitthvað söguleg, er viðeigandi að skýra nokkuð frá aðdraganda hins ó- gleymanlega. Þegar ég var nokkuð innan við tvítugt, stundaði ég smiðanám á vetrum en hákarlaveiðar á vor- in. Ég var aðallega við báta og skipasmíðar hjá Páli Kröyer í Efri-Höfn í Siglufirði. Þó man ég það, að einn veturinn rifum við Gránufélagshúsið og flutt- mn það lengra niður á eyrina. Þótti verzlunin þar á betri stað sem næst höfninni. Allan veturinn unnum við nokkrir menn við hákarlaskipin, þau voru nokkuð mörg og þörfn uðust alltaf meiri og minni að- gerða, en minna var um það, að ný skip væru smíðuð á þess um árum, en skipin voru vand lega skoðuð og það endurbætt, sem þurfa þótti. Yfirsmiðurinn, Páll Kröyer, mun hafa verið mjög vandvirkur og samvizku- samur í starfi sínu, var þess líka full þörf að skipin væru traust og vel búin. Páll var hinn mesti öðlingur, skipti varla nokkru sinni skapi og sagði helzt aldrei styggðar- yrði, var gersamlega laus við allan hávaða, en svo virtur var hann, að allir hlýddu honum orðalaust, einnig sá galsafulli hópur ungra manna, sem oft- ast var við uppsetningu og fram setningu skipanna vor og haust. Við þetta þurfti töluverðan mannskap eftir þvi sem upp- setningartækin voru á þessum árum. Við skipasmíðar Vinnubrögð við skipasmiðamar vom víst nokkuð misjöfn, menn Með Oddi fóm sér fremur hægt, en laun vom þá einmg svo rýr, að senni lega hafa hinir hægfara menn unnið fyrir þeim. Sögur gengu um það, að menn hlypu frá hálfreknum nagla, þegar verk- stjórinn kallaði: Matur. Þess má þá geta um leið, að sumir nagl- amir við skipasmíðamar vom alls ekki neitt fljótreknir á kaf. Smiðimir urðu stundum að liggja á bakinu í mölinni og berja upp fyrir sig og reka inn mikla gadda. í skammdeginu var vinnudag urinn útivið stuttur, birtutíminn ekki betur en að við hinir yngri vinnu var ekki að ræða. Ekki voru miklar hörkur og man ég ekki betur en að hinir yngri gætum oftast unnið berhendir. Á hinum dimma hluta dagsins, sem í skammdeginu var langur, unnum við Páll í smiðahúsi hans heima í Efri-Höfn, aðal- lega við smiði skipsbátanna. Oft var þörf á nýjum skipsbátum, þeir voru almennt kallaðir jull- ur, ekki stórir, fremur sterk- lega gerðir og urðu að geta fleytt vel 12 mönnum, þótt ekki væri sléttur sjór. Ég hafði fremur óbeit á mikl- um skarkala lífsins, vildi því læra handiðn og geta stundað störf mín í rólegheitum, og enn fastari varð þessi ásetningur minn, er ég hafði kynnzt há- karlaveiðunum, því að, þótt þar kynntist ég varla öðrum en hin um vænstu mönnum, þótti mér sjómannslífið fremur siarksamt, orðbragðið oft Ijótt, en mjög var það þó misjafnt. Það var þó ekki þetta, sem ég gat hugs að til að kjósa mér sem framtíð arstarf, en góðar endurminning ar á ég frá þessum vorum og sumrum, er ég stundaði sjóinn. Stundum gátu kvöldin verið svo ógleymanlega og undursamlega fögur, þar sem við lágum við stjóra fram á Strandagrunni, stillilogn, spegilsléttur sjór, glaða tunglskin og hafflöturinn silfurmerlaður, eða þegar kom fram á vorið, sólarlagið í allri sinni dýrð. Frá Hafnarsystrum En hverfum sem snöggvast aftur að Hafnarheimilinu. Páll Kröyer var ekkjumaður, en um hússtjómina sáu prýðilega þrjár gjafvaxta dætur hans. Þær voru oft nefndar Hafnarsystur. Þær voru geðþekkar og góðar stúlk ur. Munaði minnstu að ég tæki varanlega tryggð við Efri-Höfn, en örlög manna eru jafnan ærið torráðin gáta og annað hvort eru atvikin furðuleg eða svo stend ur einhver ósýnilegur og sterkur vilji að baki rás viðburðanna, nema hvort tveggja sé. Það er langt orðið síðan menn fyrst tóku þá trú, að maðurinn upp hugsaði sinn veg, en drottinn stýrði hans gangi. Á þessu notalega og góða heimili voru einnig þrír fullvaxn ir ungir menn, var því oft kátt á hjalla á kvöldum. Húsbónd- inn gekk jafnan snemma tii hvílu í sérherbergi sínu, en þeg ar honum þótti tími til kominn að allt yrði rótt í húsinu, barði hann ofurlítið í skilrúmið og heyrðist þá hvorki hósti né stuna í húsinu eftir það. Annað þekktist ekki en að honum væri hlýtt, en kröfur hans voru hvorki háværar né ósanngjam- ar. Oft komu góðir gestir í Efri- Höfn, þar á meðal Helgi læknir Guðmundsson, mágur Páls, einn ig séra Bjami Þorsteinsson og fleiri framámenn staðarins. Bannlög voru þá ekki enn gengin í gildi og ríkti því ekki neitt slíkt bann á þessu heimili. Páll Sjómannaminningar frá aldamótum rifjaðar upp

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.