Vísir - 23.03.1966, Blaðsíða 5
VÍSIR . Miðvikudagur 23. marz 1966.
5
utlcnd £ noriZim
i mor^.tin
tlör
f
mox'tun
Franska sendiherranum í
Washington var í gær afhent orð-
sending frá Bandaríkjastjórn til
fyrirgreiðslu og er litið á hana sem
svar frá Johnson forseta til de
Gaulle varðandi ákvarðanir hans
um að leyfa hvorki bandarískt lið
né bandarískar hersveitir i land-
inu, og að taka ekki þátt í hinu
samræmda vamakerfi Norður-
Atlantshafsbandalagsins.
Talið er, að í orðsendingunni,
sem ekki hefir verið birt enn, hafni
Johnson þessum skoðunum, og lýsi
yfir, að Bandaríkjastjóm telji mik-
ilvægt, að vamakerfið haldist og
samstarf um vamir, og það án
Frakklands ef í það fer.
við fréttamenn á fundi með þeim
í gær og kvað Bandaríkjastjóm eiga
um þessi mál viðræður við banda-
lagsþjóðir sínar í Norður-Atlants-
hafsbandalaginu.
Hann minntist einnig á Kína.
Kvað hann Bandaríkin vilja tengsl
við Kína, en leiðtogar Kína væm
á öðru málfr, og þeim að kenna að
tengsl sem gætu leitt til viðskipta
og annars samstarfs, væm ekki
komin á.
Johnson.
Yfirlýsing Svía
um utanríkismál
Hann kvað Kína ekki vilja sam-
Johnson ræddi þessi mál nokkuð ! komulag í Vietnam.
1 NTB-frétt frá Stokkhólmi
segir, að sænska ríkisstjómin hafi
í yflrlýsingu til beggja þingdeilda
lýst yflr þeirri skoðun, að Viet-
nam-styrjöldin verði ekki til lykta
leidd nema með samkomulagi og
með gagnkvæmum tflslökunum.
Frá sænskum sjónarhólum skoð-
að er það sjálfsagt, að suður-viet-
namska frelsishreyfingin fái aðild
að samkomulagsumleitunum.
Torsten Nilsson utanríkismála-
ráðherra las upp yfirlýsinguna í
neðri deild þingsins.
í henni segir og, að framfylgja
verði kröfunni um viðskiptalegar
refsiaðgerðir gegn Rhodesiu svo
að dugi.
Að því er varðar kostnaðinn við
að hafa gæzlulið á Kýpur segir, að
viðhorf og ástand sé nú óviðun-
andi, og stjómin vænti þess, að gert
verði átak til þess að koma málum
í lag, og gætu Sameinuðu þjóðimar
með fullum rétti krafizt þess af
báðum aðilum, að þeir greiddu
fyrir lausn málsins.
í yfirlýsingunni segir, að afstaða
Svíþjóðar til kjarnorkuvopna sé,
að stefna skuli að haldgóðu sam-
komulagi til þess að hindra út-
breiðslu kjamorkuvopna. Stórveld-
in gætu gert sitt til með þv£ að
aðhyllast sáttmála í reynsluskyni
og banna allar tilraunir með kjam-
orkuvopn og með því hætta fram-
leiðslu efna til þess að framleiða
kjamorkuvopn.
1 yfirlýsingunni segir, að Svíþjóð
vænti þess, að auka-innflutnings-
tollurinn í Bretlandi verði felldur
niður fyrir árslok.
Dr. Verwoerd forsætisráðherra
Suður-Afríku hótaði f kosningar-
ræðu í gær f Port Elisabeth, að
gripið yrði til viðeigandi ráðstaf-
ana, ef brezk herskip eða flugvélar
stöðvuðu suður-afrísk skip.
Forsætisráðherrann tók fram, að
ekki væri neinn fótur fyrir frétt-
um, að þetta hefði þegar gerzt.
Hann kvað engin skip frá Suður-
Afríku hafa verið stöðvuð, en ef
tilraun yrði gerð til slíks bæri
skipstjórum að neita að láta í
té nokkrar upplýsingar um farm
skipa sinna.
Gagnaðgerðir
í Rhodesiu vegna útvarps.
1 Rhodesiu hefir verið gripið til
þess ráðs að tmfla útvarpssending-
ar frá Bechuanalandi til Rhodesiu.
Þar var sett á stofn útvarpsstöð
á vegum brezka útvarpsins til þess
að Rhodesiumenn fengju fréttir um
Rhodesiumálið frá sjónarhólum
brezku stjórnarinnar. Þv£ er neitað
í Salisbury, að um útvarpstruflanir
sé að ræða, en fréttamenn segja,
að fyrir 2 mánuðum hafi verið
reist truflunarstöð £ Bulawayo og
sé önnur starfandi £ Salisbury, en
þetta eru mannflestu staðir lands-
ins. Fréttaritarar segja að ekki séu
truflaðar aðrar útsendingar en
þær sem fjalla um það, sem um-
heimurinn segi um Rhodesiu.
Visað úr Iandi.
Tveimur af starfsliði brezka
landstjórans £ Rhodesiu hefir verið
visað úr landi.
þingsjá Vísis
þin g s já Ví s i s
þings|á Vísis
Á fundi f efri deild Alþingis i
gær mælti Magnús Jónsson, fjár
málaráðherra fyrir stjómarfrum-
varpi um breytingu á lögum um
tollskrá. Ráðherra sagði, að um
sl. áramót hefði
rikisstjómin
lýst þvi yfir, aö
hún myndi beita
sér fyrir því aö
auðvelda inn-
flutning á tilbún
um húsum og
húshlutum I því
formi að lækka tolla á þeim
hlutum. Framkomið frumvarp
væri því flutt til staðfestingar
þessari yfirlýsingu. Ástæöan til
þess aö rikisstjómin vildi beita
sér fyrir þessu og tilgangur
hennar með þessari yfirlýsingu
og aðgerðum hennar í sambandi
viö þetta mál, væri tvíþætt:
Um væri að ræða aö stuðla aö
lækkun byggingarkostnaðar og
draga almennt úr hinni miklu
spennu, sem ríkti í byggingar-
iðnaðinum hér á landi. Þaö sem
einnig heföi ýtt undir framgang
þessa máls væru byggingaráætl-
anir, sem ríkisstjórnin ætti hlut
að og náöst heföu í kjarasamning
um. Þessar byggingaráætlanir
væm nú þegar komnar á byrj-
unarstig hér á íslandi. Ráöherra
sagði að meginatriði framvarps
ins væru þau, aö gert væri ráö
fyrir aö lækka tolla á tilbúnum
húsum og húshlutum úr 60%
og í 40%. Einnig væri áformaö
að lækka tolla á innfluttu sem-
enti úr 35% og í 20%. Þessi
breyting ætti ekki að vera Sem
entsverksmiðju rikisins til skaða,
heldur til hvatningar. í sambandi
við þessar breytingar yrði auð
vitað aö gera ýmsar breytingar
á tollskránni og væru þær breyt
ingar til samræmingar. Ráðherra
sagði einnig að á undanförnum
árum hefðu verið gerðar ýmsar
breytingár á tollskránni og heföi
hún verið endurskoðuö I sam-
ræmi við Brilsselsamningana
svonefndu og siðan hefði rikis
stjómin reynt eftir fremsta
megni að fylgjast meö þróun þess
ara mála i nágrannaríkjunum.
Einnig hefðu háitollar verið lækk
aðir stig af stigi. En þetta væri
eigi nóg og ríksstjómin ætlaði
ekki að láta hér staöar numiö.
Tollskrána þyrfti að taka til enn
rækilegri endurskoðunar, og
einnig þyrfti að marka stefnu
íslands í tollamálum. I þessu
sambandi hefði ríkisstjórnin fal
ið tollanefndinni og GATT-nefnd
inni aö gera athugun á þessu ári
hvort auðið væri fyrir Islend-
inga að lækka aðflutningstolla á
næstu 4—5 árum um allt að
50%, og ættu niðurstöður nefnd
arinnar að liggja fyrir nú næsta
haust. Málinu var siðan visað
til 2, umr. og fjárhagsnefndar.
Almannatryggingar.
Þorvaldur G. Kristjánsson (S)
mælti fyrir nefndaráliti meirihl.
heilbrigöis- og félagsmálanefndar
efrideildar um framv. um breyt-
ingu á lögum um almannatrygg-
gerða í þeim tilfellum, er beint
heflsutjón lægi við. Sagði ræðu-
maöur, að ákvæði um þessi efni
væra til staðar i núgildandi lög-
um um sjúkrasamlög, en ákvæö
um þessum hefði aldrei verið
beitt, og væri ástæðan til þess sú,
hve mikill skortur væri á tann-
læknum í landinu. Það þætti ekki
skynsamlegt, að sjúkrasamlagið
keppti við skólana um þá starfs-
krafta er fyrir væru, en biði I þess
stað eftir því að skólatannlækna
málin kæmust í betra horf. Frum
varpiö hefði verið sent til um-
sagnar tveim aðilum og hefði
Tannlæknafélag Islands ekki get
að tekið afstöðu til málsins, og
Tryggingastofnun ríkisins ekki
getað fallizt á samþykkt frum-
varpsins. Þess vegna legði meiri
hluti nefndarinnar til, að frum-
varpið yrði fellt.
Alfreð Gíslason (K) mælti fyrir
nefndaráliti minni hluta nefndar-
innar, en hún leggur til, að frum
varpið verði samþykkt.
Að lokinni umræðu var frum-
varpiö tekið til atkvæöagreiðslu
og var það fellt með 9 atkvæöum
gegn 6.
Fólksflutningar
með bifreiðum.
í neðri deild mælti Ingólfur
Jónsson samgöngumálaráöherra,
fyrir stjómarframvarpi um breyt
ingu á lögum um skipulag á fólks
flutningum með bifreiöum. S^gði
ráöherra, að núgildandi lög um
þessi efni heföu nú gilt óbreytt
um 10 ára skeið. Á þessu tima-
bili hefðu þær samgöngur, sem
lög þessi giltu um, tekið nokkr-
um breytingum, sérstaklega hefðu
hópferðir og skipulagðar skemmti
ferðir um landið með innlenda og
erlenda skemmtiferðamenn aukizt
að mun og orðið stór þáttur i þess
um flutningum. Lög þau, er gilt
heföu um þessar hópferöir og
skemmtiferðir, væru nokkuð ó-
skýr i núgildandi lögum og væri
hlutverk þessa frumvarps því að
bæta úr þvi meö skýrari ákvæð-
um. Frumvarpinu var síðan vfsað
til annarrar umræðu og samgöngu
málanefndar.
Lífeyrissjóður
togarasjómanna.
Pétur Sigurðsson (S) mælti fyr-
ir frumvarpi, er hann flytur um
lífeyrissjóö togarasjómanna og
undirmanna á
farskipum.
Frumvarpið fel-
ur í sér heimild
til handa félög-
um sjómanna að
tryggja starfs-
menn sína í sjóð
um þessum.
Sömuleiðis er útgerð farskipa,
varðskipa og togara heimilt að
tryggja skipverja sfna, þótt þeir
séu eigi lögskráðir ,ef þeir starfa
viö skip hennar, sem er I viðgerð,
flokkunarviðgerð eöa öðrum störf
um í þágu útgerðar. Sjómönnum,
sem stunda nám i sjómannafræð-
um er og heimilt samkvæmt fram
varpinu aö kaupa sér réttindi í
sjóðnum fyrir þann tfma, sem úr
hefur fallið af þessum sökum, og
ákveður stjóm sjóðsins iðgjald
þeirra ,er þaö gera. Að lokinni
framsöguræðu flutningsmanns var
frumvarpinu vísað til annarrar um
ræðu og heilbrigðis- og félagsmála
nefndar.
Ný mál.
í gær vora lögð fram nokkur
ný mál á Alþingi. Helgi Bergs op
fleiri bera fram frumvarp um
breytingu á vegalögum. Þá var
einnig lagt fram sameiginlegt
nefndarálit iðnaðamefndar neðri
deildar um stjómarfrumvarp um
Iðnlánasjóö, en nefndin leggur til
að frumvarpið verði samþykkt
Nokkrir nefndarmenn áskilja sé.
þó rétt til aö flytja breytingarti
lögur ef fram koma. Einnig voru
lögð fram nokkur önnur nefnda'
álit.
☆