Vísir - 25.03.1966, Blaðsíða 6

Vísir - 25.03.1966, Blaðsíða 6
6 V í SIR . Föstudagur 25. marz 1966. ^— ......... I1H—WB- ■m.HII -""'■■"■■■■■I—i^———m Filippus ptins gengur út úr ráðherrabústaönum á le!ð í brezka sendiráðið. Iþróttir — Framh^ af bls. 11 vtrtist vera að fará út af. En Stef- án Jónsson dó ekki ráðalaus heldur stökk eftir boltanum og blakaði honum fram hiá Þorsteini Bjöms- syni, markverði Fram, og staðan var 19:18. Vöm Hauka stóð sig nú vel og það var eins og Framarar væm vondaufir. Skot Guðjóns yfir vömina lenti fram hjá 2. mín. fyrir leikslok og nú var byrjað að Ieika maður gegn manni af Fram. Þetta opnaði alla línuna fyrir Stef- áni og hann skoraði síðasta mark- ið 20:18 og undir Ieiksiok varði Logi enn einu sinni stórvel. Nú loks má segja að Haukar séu sloppnir af „hættusvæðinu“ í 1. deiid. Með 8 stig geta þeir ekki fallið og er frammistaða þeirra í j deildlnni til sóma. Beztu menn í gær fundust mér vera þeir Stefán Jónsson, Logi Kristjánsson, Matthfas Ásgeirsson og Ásgeir Þorsteinsson. Liðið í heiid var sterkt og vömin ekki sízt. Framliðið átti ekki sem verstan dag en beztu menn vom Gunnlaug- ur (hvar væri Fram statt án hans?), Sigurður Einarsson og Þorsteinn Bjömsson. Dómari var Björn Kristjánsson j og dæmdi ekki eins vel og hann | ætti að geta og GETUR gert. Athyglin var ekki vakandi og nið- urstöðumar, sem hann oft komst að voro heldur fljótfærnislegar. Flest mörk í leiknum skoruðu: Gunniaugur 10 (4 úr vítum), Sig- urður Einarsson 4, Frfmann 2, Guðjón 1 fyrir Fram. — Ásgeir og Stefán 6 hvor, Matthías og Sigurð- ur Jóakimsson 3 hvor, Viðar og Gunnar 1 hvor fyrir Hauka. — jbp — Færð — Framh. af bls. 16 höldnu yfir hana í fyrrakvöld og hefur gott veður haldizt síð an. Biðu tíu bílar í Fornahvammi eftir að komast yfir heiðina þá og 7—8 í Brú í Hrútafirði. Fóru ýta og tveir trukkar yfir heið- ina og ruddu leiöina og var heiðin orðin fær um sjöleytiö í fyrrakvöld. Höfðu bílamir þá lent í mikl um hrakningum og tók það t.d. áætlunarbílinn til Hólmavíkur tvo daga að komast þangað frá Reykjavík. Var bíllinn tepptur í Foma- hvammi en komst daginn eftir í Guðlaugsvík í Strandasýslu og tli Hólmav. í gærmorgun. Sneri áætlunarbíllinn þegar við og kom aftur til Reykjavíkur í nótt Tilrmin — Framh at ols 16 vélar og stefna þannig að algerri vélvæðingu síldarsöltunarinnar. Steinar var fvrir nokkrum ár- um verksmiðjustjóri á Raufar- höfn, en síðan er hann einn af fleiri eigendum síldarsöltunar- stöðvarinnar Bjargm á Raufar- höfn og þar er ætiunin að gera þessa tæknilegu tilraun í sum-1 ar. Framkvæmdin er f því fólgin að raða saman í samstæðu nokkrum þeirra véla sem að gagni koma. Og skal hér nú skýra frá fyrirkomulagi vélanna eftir upplýsingum frá Steinari. Fyrst kemur flokkunarvél sú sem þegar hefur verið tekin f notkun og reynzt vel. Hún gróf- flokkar síldina, skilur frá smá síld sem ekki er hægt að salta. Þá á næst að koma vél, sem Steinar er nú að undirbúa smfði á. Það er vél sem fyrst raðar síldinni rétt til þess að haus- skera hana, síðan haussker hún og slógdregur síldina. Á undan- fömum árum hafa verið í notk- un hér erlendar vélar sem haus- skera og slógdraga síld, þær hafa ekki hentað aðstæðum við mikla síldarsöltun á Norður- eða Austurlandi. Þær hafa verið góðar þar sem hægt hefur verið að geyma síldina f frysti og vinna hana eftir hendinni, en á síldinni fyrir norðan gegnir allt öðru máli, þvi að þá hvolfist sfldin yfir stöðvamar. En vélin sem Steinar hefur í smíðum er miklu stórvirkari og á að geta hausskorið 450—500 síldir á mfnútu. Það hefur lfka verið galli við hausskurðarvélar þær sem notaðar hafa verið, að þær hafa lítið vinnuafl sparað, þar sem stúlkur hefur þurft til að raða síldinni rétt i þær. En með . röðunarvélinni sem fylgir haus-| skurðarvél Steinars verður sá j kostnaður algerlega sparaður. Þessi vél á að geta unnið 200— 300 tunnur af síld á klst. Hún afkastar þrefalt meira en þær erlendu hausskurðarvélar, sem hér hafa verið notaðar. Næsti liður í vélasamstæð- unni er að síldin á að ganga úr hausskurðarvélinni yfir í þunga- flokkunarvél, sem Steinar hefur einnig í undirbúningi. Sú vél vinnur þannig að síldirnar ganga á færibandi og er hver einstök síld vegin og rennur samkvæmt þeirri vigtun eftir rennum fyrir hvem stærðarflokk. Þar verður t.d. einn flokkur 280 síldir í tunnu, annar 350 síldir, þriðji 380 sildir í tunnu o.s.frv. og á að fást með þessu mjög sam- stæð síld í söltunina. Síðasti liðurinn f vélasam- stæðunni verður svo hin rúss- neska vöðlunar og niðurlagning- arvél, sem Rússar hafa notað með ágætum árangri við að leggja síldina niður í tunnur. Þegar hefur verið fengin slík vél hingað til lands og er hún til sýnis hjá bæjarútgerðinni í Reykjavík. Þannig er uppröðun vélanna. Steinar segir f samtali við Vísi að nú fyrir sumarið ætli hann að ljúka við röðunar og haus- skurðarvélina og taka hana í notkun. En smfði vélanna er dýrt fyrirtæki og örðugt með fjármagn. Er ekki víst að hon- um takist að smíða flokkunar- vélina fyrir sumarið, lætur hana sitja á hakanum. En þegar allar þessar vélar eru komnar eiga þær að mynda eina sjálfvirka samstæðu og er ætlunin að einn maður geti stjórnað allri samstæðunni. Má sjá af því hvílíkur geysilegur vinnuspamaður verður að vél- um þessum. Síldarvertíðin fyrir norðan og austan hefur og breytzt þannig á síðari ámm, að mjög erfitt hefur verið að fá söltunarfólk og það hefur beðið langtímunum saman aðgerðar- Iaust, borið lítið úr býtum en útgerðarmenn haft stóran kostn að af því, svo að ef tilraun þessi tekst vel þýðir hún stórfellda framför í sfldarútveginum. Vöruflutnsnðiiii. — Framhald af bls. 1. arinnar hélt fund með frétta- mönnum í gær og skýrði frá eft- irfarandi: Á aöalfundi Vöruflutninga- miðstöðvarinnar þann 19. marz s.l. voru m. a. til umræðu bygg- ingarmál stöövarinnar og útveg- un lánsfjár svo og endurbætur á rekstri hennar. Þótt fyrirtækið sé ekki nema fimm ára gamalt hafa verkefni þess aukizt svo gífurlega, að vörugeymslan að Borgartúni 21 er löngu oröin allt of lítil, og hefur þvf að undanfömu verið unnið að undir búningsframkvæmdum við stööv arbyggingu, sem yrði til fram- búða.r. Ráðinn var arkitekt til þess að teikna húsið Ormar Þór Guðmundsson og fór hann á- samt stjómarformanninum, Þor- steini Kristjánssyni og fram- kvæmdastjóranum fsleifi Run- ólfssyni út til Norðurlanda í haust til þess að skoða slíkar stöðvar og kynnast starfsem- inni. Þegar hefur verið gerð grein fyrir fyrsta áfanga en um áfram hald verksins er ekki enn hægt að segja vegna óvissu um útveg un lánsfjár, en starfsemi félags- ins hefur mætt skilningi hjá stjómarvöldunum og standa von ir til þess aö úr þessum málum rætist innan tíðar. Þrengslin f vömgeymslu stööv arinnar að Borgartúni 21 há mjög allri starfsemi, þar er að- eins 100 fermetra geymsla, en vörumagnið sem fór gegnum stöðina á s.I. ári, var um 30 þúsund tonn og hafði aukizt um 20% frá árinu áður, og annast stöðin afgreiðslu fyrir 40 bfla, sem flytja vöirur til 45 kaup- staða og kauptúna og byggðar- laga á Vestur, Norður og Austur landi, allt frá Akranesi til Homa fjarðar, en flutningum sunnan- lands getur stöðin ekki sinnt fyrr en nýja athafnasvæðið er komið í gagnið. Stjóm Vöruflutningamiðstöðv arinnar skipa nú: Þorsteinn Kristjánsson, Egilsstöðum, formaður, Birgir Runólfsson, í Siglufirði, Kristján Hansen, Sauðárkróki. í varastjóm Pétur j Jónsson, Akureyri og Njáll Þor geirsson, Stykkishólmi. Fram- kvæmdastjóri er lsleifur Run- ólfsson. Filippus — Framhald af bls. 1. Brezki sendiherrann heilsaði prinsinum fyrstur manna á flug vellinum f gær, sfðan forsætis- ráðherra og aðrir, sem tóku á móti honum, en það vora hand hafar forsetavalds, lögreglu- stjóri, deildarstjóri í utanríkis- ráðuneytinu, og starfsmenn brezka sendiráðsins. Var síðan haldið til Ráðherrabústaðarins, þar sem prinsinn bjó og skömmu síöar hélt hann til mót töku í brezka sendiráðinu. í gærkvöldi kl .8,15 hófst svo kvöldverðarboð forsætisráð- herra í Ráöherrabústaðnum og var þangað boöið um 20 manns. Þegar prinsinn ko m ígær var eitt af því fyrsta, sem hann spuröi um hvenær veiðitíminn byrjaði o gátti hann þar við lax veiðar, en þegar hann kom hing að í opinbera heimsókn fyrir rúmum tveimur árum fór hann m.a. á laxveiðar. Þegar hann fékk svarið að laxveiðitíminn byrjaði ekki fyrr e f júlí í sum ar varð honum að orði: „Ans- ans vandræði". Prinsinn er mikill fuglaáhuga maður og þegar hann steig út úr bílnum við ráðherrabústað- inn í gækvöldi leit han strax nið ur á tjörn ,e nlíklega hefur hann orðið fyrir vonbrigöum því að hún var ísi lögð og ekki fugl að sjá við þann eda tjamarinnar. 1 morgun aftur, er pirnsinn vaknaöi heyrði hann í gæsum og þótti honum það und arlegt. ' í morgun, við brottför Fillip usar prins var þó nokkur mann fjöldi saman kominn á flug- vellinum og veifaði til hans og hann brosti og veifaði á móti. Til að kveðja hann vom mætt ir ráðuneytisstjóri og deildar- stjóri úr utanríkisráðuneytinu, lögreglustjóri, brezki sendiherr- ann og starfsmenn sendiráðsins. StrákiBgöng — Framh. af 1. síðu. Ekki er vitað til að nein &- kvörðun hafi verið tekin um hvort botninn verður steypt- ur eða ekki, en það mun verða mjög dýrt, því steypu- efni yrði að sækja um allt að 30 km. veg. Grjótinu sem úr jarðgöng- unum kemur hefur verið ekið í heljarmikinn bing, og við hann hefur verið komið fyrir grjótkvörn sem Siglufjarðar- kaupstaður á. Er það hug- myndin að mala grjótið og nota síðan sem ofaníburð í götur á Siglufirði, og jafnvel göngin sjálf. ! RÝMINGARSALA ] Seljum í dag og á morgun ullarpeysurnar margeftirspurðu, slæður, húfur, hanzka og margt fleira. Rýmingarsalan stendur aðeins yfir í tvo daga vegna breytinga á verzluninni. Notið þetta tækifæri og lítið inn. HATTABÚÐIN HULD, Kirkjuhvoli. íbúðir v/ð Flókagötu Hús til sölu við Fiókagötu, í húsinu eru: Tvær 156 ferm. íbúðir með bílskúr. 4ra herb. ris og 4ra herb. jarðhæð. Húsið selst allt í einu lagi eða hver íbúð út af fyrir sig. Þetta er einn eftirsóttasti staðurinn á markaðinum í dag. FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN Austurstræti 12 Símar 14120, 20424 og kvöldsími 10974. HÁSETA VANTAR strax á handfærabát. Uppl. í síma 10344. KIUKKAN WIKV0LD OG LAUGARDAG TIL KL. 4. KRÓNAN Mávahlíð 25, sími 10733

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.