Vísir - 26.03.1966, Blaðsíða 8

Vísir - 26.03.1966, Blaðsíða 8
p VÍSIR . Laugardagur 26. marz 19BU. VISIR ☆ Dtgefandi: Blaðaútgáfan VISIR Framkvæmdastjóri: Agnar Ólafs90H Ritstjóri: Gunnar G. Schram ASstoSarrltstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóran Jónas Kristjánsson Þorsteinn ó. Thorareasen Auglýsingastj.: Halldór Jónsson Ritstjórn: Laugavegi 178. Slmi 11660 (5 Unur) Auglýsingar og afgreiðsla Túngðtu 7 Askriftargjald: kr. 90,00 á mánuði innanlanðs 1 lausasölu kr. 7,00 eintakiS Prentsmiðja Vísis — Edda hi. Nafnaleikur Kommúnistar sjá fram á fylgistap í næstu borgar- stjómarkosningum. Það er eðlileg þróun og í sam- ræmi við það sem undanfarin ár hefur verið að ger- ast í öðmm lýðræðislöndumu Er þess t. d. skemmst að minnast, að kommúnistar í Finnlandi töpuðu mörg- um þingsætum í þingkosningunum fyrir fáum dög- um, og má þó segja að þeir standi þar beint undir vemdarvæng Rússa. Á hinum Norðurlöndunum em þeir alveg áhrifalausir í stjómmálum. Hér á íslandi hefur allt logað í ófriði innan komm- únistaflokksins um langt skeið. Hvað eftir annað hefur legið við sprengingu, og ekki útséð enn nema svo fari. Þannig hefur ástandið í þeim herbúðum oft verið áður, og þá hefur jafnan orðið þrautalendingin að reyna að „breiða yfir nafn og númer“ með því að gefa flokknum nýtt heiti. Nú hefur verið boðaður stofnfundur Alþýðubandalags í Reykjavík. Það er að vísu ekki nýtt nafn, en nú á að réýná a£ }át$ svo út, að þarna séu hin raunverulegu stjómmála- samtök „alþýðunnar“, alveg óskyld öllum kommún- isma! Það er annars skrýtið að sjá auglýst að nú eigi að fara að stofna „Alþýðubandalag" í Reykjavík. Ýmsir hafa haldið að þau „samtök“ væru þegar til hér, og hefðu bæði þingmenn og borgarfulltrúa. En það er von að almenningur ruglist í þessu, þegar Kommún- istaflokkurinn, Sameiningarflokkur alþýðu — Sósí- alistaflokkurinn og Alþýðubandalagið eru allt eitt og sama tóbakið, en nöfnin notuð sitt á hvað, eftir því sem vænlegast þykir til blekkingar á hverjum tíma. En veldur flokksnefnan öllum þessum nöfnum? Þessi nýja viðurkenning Þjóðviljans á Alþýðubanda- lagsnafninu verður sennilega að skoðast sem sigur Hannibals og félaga hans, en þó er rétt að bíða með allar fullyrðingar í því efni þangað til framboðslist- inn kemur fram. — Og fyrir næstu Alþingiskosning- ar gæti svo farið, að ástæða þætti til að skíra flokk- inn einu nafni til viðbótar. Þeir spá enn! i Einhver spámaður Framsóknar hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að verði alúmínverksmiðja reist hér á landi muni efnahagsástandið fljótlega verða svipað og í Vietnam. íslenzkir atvinnurekendur muni gefast upp og láta útlendinga um „framleiðslumálin“. Þessa speki tekur ritstjóri Tímans upp í forustugrein. Það er hlálegt, að blað, sem alltaf er að saka ríkis- stjómina um ótrú á íslenzku framtaki, skuli sjálft birta þann spádóm, að ekki muni þurfa nema eina alúmínverksmiðju til þess að íslenzkir atvinnurek- endur leggi árar í bát. Hver var að tala um „vælu- kjóa“ á dögunum? TjEIR eru fáir meðal okkar, sem ekki játa það, að á- fengið getur verið, og er oft og tfðum, einn mesti bölvaldurinn, sem við eigum við að stríða á þessari miklu véla- og tækni- öld. Það sanna okkur hin tíðu slys, ekki sfzt umferðarslysin, sem mörg stafa af ofdrykkju, og valda þeim dauða og ör- kuml, sem fyrir þeim verða, en mikillar andlegrar áreynslu þeim, sem tjóninu valda og komast llfs af, samvizkubits, sem nagar þá alla ævi. Eigna- tjónið er auk þess gffurlegt, svo milljónum skiptir f einstökum tilfellum. Slfkri blóðtöku hefur okkar fámenna og fátæka þjóð ekki ráð á. Við eigum svo margt heflsu neytandans, gerir hann vanmáttugan I baráttunni við sýklasjúkdóma og eyðileggur hvert Uffærið af öðru í líkama hans. Ég er orðinn gamall maður, en á langri læknisævi verður ekki hjá því komizt, að margt og hörmulegt hafi maður upp- lifað, sem beint og óbeint verð- ur rakið til áfengisneyzlu. Þetta hefur gjört mig að bindindis- manni. Jafnframt hefi ég sann- faérzt um að bezta vömin gegn ofdrykkjunni og öllum hörm- ungunum, sem sigla í kjölfar hennar er sterkt og jákvætt al- menningsálit, sem fordæmir of- drykkjuna og hvetur alla á að leggjast á eitt með að efla það. Það verður bezt gert að mfnu viti með því að auka bindindi meðal landsmanna, sérstaklega meðal æskulýðsins. Það er vísindaleg staðreynd, að áhrif alkohóls era alltaf lam- VÍNBINDINDIER BRÝNNAUÐSYN Bjami Snæbjömsson EFTIR BJARNA SNÆBJÖRNSSON LÆKNI ) eftir ógert í okkar harðbýla og strjálbýla landi. Við höfum sorglega mörg dæmin um efnilegt fólk, sem við höfum vænzt svo mikils af, en hefur orðið áfengisnautninni að bráð, brotið niður starfsþrek þess og siðferðisþrek og í stað þess að verða landi og þjóð til mikils gagns, hefur það orðið að rekaldi, flestum til leiðinda og ama. Oft og tíðum hneigzt til glæpa, stundum til að geta svalað drykkjufýsn sinni og stundum af þvf, að þeir voru ofurölvi og vissu ekki hvað þeir vora að hafast að. Hversu mörg heimilin leggj- ast ekki f rúst vegna áfengis- neyzlu hjónanna, annars þeirra eða beggja, og hversu margt bamið lendir ekki á hrakhólum og fær lélegt uppeldi af sömu ástæðum? Eftir þvf sem þéttbýlið eykst og eftir þvf sem peningamir liggja lausari fyrir, eykst á- fengisneyzlan meðal lands- manna og verður fyrr en varir orðin að þjóðarógæfu ef ekki er spymt við fótum. „Það þarf sterk bein til að þola góða daga“. Kvi miður eru þeir of margir meðal okkar, og það meira að segja meðal framámanna þjóðarinnar, sem telja það að vísu hörmulegt hvemig áfengið verkar á sumt fólk, en telja að slfkt komi þeim harla lítið við. Þeir hafi nægilegt siðferðis- og starfsþrek til að bera þótt þeir neyti áfengis „í hófi“ og vilja ekki fara á mis við þá „á- nægju“, sem áfengið veitir þeim. En trúið mér, þessir menn gæta þess ekki fyrr en um sein- an, að það er afar erfitt að halda áfengisneyzlunni f skefj- um. Fyrr en varir er áfengið orðið að nautnalyfi, sem grefur undan andlegri og líkamlegri andi, svipað og er um áhrif svæfingameðalanna klóróforms og ethers, sem era náskyld alkoholi efnafræðilega séð. Gott upeldi stefnir að fágaðri framkomu unglingsins, hjálp- semi og tillitssemi við aðra og gerir honum yfirleitt ljóst, hversu mikilvæg sé í samskipt- um mannanna þessi gullvæga kenning Krists: „Það sem þér viljið að mennimir geri yður, það skuluð þér og þeim gera“. Kenna honum að hafa hemil á fýsnum sínum og gæta fullkom- ins velsæmis. Það era þessar kenndir, sem lamast fyrst við áhrif alkohóls. Það er þvf ekki að ófyrirsynju að flaskan er höfð sem hálparkokkur er tæla á stúlkur til óskírlffis. Þær eiga því að varast alla áfengisneyzlu og það því fremur sem þær vita, að öll vfxlspor f kynferðismál- um bitna margfalt meira á þeim, en hinum aðilanum og yndisþokki þeirra hverfur er þær gerast ölvaðar. I kjölfar þessarar lömunar fylgir svo lömun á dómgreind neytandans. Hann á æ erfiðara með að greina rétt frá röngu. Honum flnnst hann vera gáfaðri en ella, skemmtilegri og andríkari, þótt einungis sé um raup að ræða eða fylliríisröfl. Þreytutilfinn- ingin, dapurleikinn, feimnin og hlédrægnin hverfur, en þess í stað kemur kæruleysið. Það eru þessi einkenni, sem gera alkó- hólið hættulegt. En þessir eigin leikar þess gefa ekki nema stundarfróun, standa einungis yfir á meðan áhrifin vara. 1 slíkum tilfellum er varanlegasta ráðið til úrbóta, að sýna sam- vizkusemi í námi og starfi, en gefa sér tíma til að eyða frí- stundum sínum til að blanda geði við jafnaldra sína eða sér eldri og reyndari af báðum kynjum. Félagslyndi og heilbrigt skemmtanalff, þar sem ekki er haft vín um hönd er þezta ráð- ið til að útrýma feimni, hlé- drægni og minnimáttarkennd, en eykur sjálfstraustið og gerir manninn að nýtum þjóðfé- lagsþegn. jyjargur unglingurinn neytir víns í fyrsta sinn af því hann vill sýnast maður með mönnum. Það eru þó ekki of- drykkjumennirnir, ræflamir og rónamir, sem hann vill líkjast, heldur hinir svokölluðu hóf- drykkjumenn, selskapsmenn, hanastélsunnendur eða hvaö maður á að kalla þá. Oft hefi ég heyrt slíka menn hneykslast á framferði unglinganna á skemmtunum, sem haldnar eru í hinum glæsilegu félagsheim- ilum vfða úti á landi og eiga ekki nógu sterk orð til að lýsa skepnuskapnum, sem þar ríkir og hversu umhorfs hafi veriö á staðnum eftir slíkar skemmtan- ir. Vandlæting þessi og hneyksl- un er i fyllsta mála réttmæt, en verður hún tekin alvarlega þeg- ar þessir menn bera hana fram? Hafa þeir ekki með framferði sínu verið að vísa unglingun- um veginn? Er það í sjálfu sér sök ungmennanna að Bacchus hefur afskræmt fyrirmyndina þegar þeir voru að reyna að Iíkja eftir henni, en voru of örgeðja og skorti reynslu til að halda sér innan þess ramma, sem fyrirmyndin hefur tamið sér í hanastélsboðunum? Áfengisneyzla manna er ekk- ert einkamál þeirra þótt þessir menn vilji svo vera láta. Þeir vita það, að áfengisneyzlan get- ur verið ægilegur bölvaldur og er þegar orðin það meðal okkar. Vilja þeir nú leggja hönd á plóginn og foröa reynslulitlum Frh. á bls. 11.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.