Vísir - 13.04.1966, Síða 3
VlSIR . Miðvikudagur 13. april 1966.
3
-Wi.
Mikill ys var jafnan á hlaði Skíðahótelsins um páskana.
íþróttanna hér á landi. Mögu-
formaður
/ sól og snjó / Hlíðarfjalli
Hundruð manna skemmtu
sér í sól og snjó um páskana í
Hlíðarfjalli, skíðalandinu fyrir
ofan Akureyri. Fyrstu páskagest
irnir komu í Skíðahótelið helg-
ina fyrir páskahelgina og síð-
an smátíndust þeir að, en alls
skiptu fastagestimir í hótelinu
nokkrum tugum. Fjöldi manns
kom daglega frá Akureyri upp
eftir bæði sem áhorfendur að
og þáttakendur í skíðaiökuninni
heilar fjölskyldur notuöu sér
snjóinn, frídagana og sólskinið.
Eftir grámóskulegan skírdag
birti upp með glaðasólskini á
föstudaginn langa og eftir há-
degi var orðið krökkt af fólki
í nágrenni hótelsins og í skíða
landinu í kring. Bílamir
streymdu upp eftir, erfiðuðu síð
asta brattann unz áfangastað
I skíðalandinu í Hlíðarfjalli
eru brekkur við allra hæfi, hægt
aflíðandi fyrir byrjenduma,
sem halda sig mikið norðan við
hótelið þar sem komið hefur
verið fyrir togbraut 200 metra
niður og hins vegar brattari
brekkur uppi við Stromp, tum
laga skýli, sem er nokkur
hundruð metra fyrir ofan hótel
ið ,en frá Strompi liggur tog
braut 400 metra upp í fjalliö.
Súlur og Vindheimajökull
freista fjallamanna og í hvilft-
inni undir hábrún Hlíðarfjalls
sem liggur í skugga undan sólu
var gerð brunbraut fyrir kepp
endur í skíðaíþróttinni.
Það er ekki að ófyrirsynju að
Akureyri með eitt bezta skíða
land rétt við bæjardymar hefur
verið valin sem miðstöð vetrar-
leikarnir eru margir og hafa enn
ekki verið nýttir til fulls.
— Ég eyði nær öllum degin-
um héma úti við togbrautina,
það þarf alltaf að vera að líta
eftir, segir Frímann Gunnlaugs-
son, sem nú hefur haft yfirum-
sjón með hótelinu í hálft ann-
að ár. Þegar eru komnir hingað
40-50 gestir, en maður reiknar
með að um 80 manns komi
hingað sem dvalargestir þessa
daga. Héma í hótelinu eru 11
tveggja manna herbergi, en
möguíeikar em á að bæta þriðja
svefnstólnum við. Auk herbergj-
anna em héma svefnpokapláss
Framh. á bls. 6.
' v ..i.rnjJtam
<r- '3''* ■ <"
NDSJ
VISIS
Hér sést hin 400 m. langa togbraut
Frimann Gunnlaugsson hótelstjóri og einn dvalargestanna ræða
um bmnbrautina, er var verið aö leggja nálægt hábrún Hlíðarfjalls.