Vísir - 13.04.1966, Síða 8

Vísir - 13.04.1966, Síða 8
8 nnnHnMn^H| )) Bmg Utgefandi: Blaðaútgáfan VISIR / Pramkvæmdastjóri: Agnar Ólafssw \ Ritstjöri: Gunnar G. Schram ( Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson ) Préttastjórar: Jónas Kristjánsson \ Þorsteinn Ó. Thorarensen / Auglýsingastj.: Halldór Jónsson \ Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 linur) ( Auglýsingar og afgreiðsla Túngötu 7 , ) Askriftargjald: kr. 90,00 á mánuði innanlands ( I lausasölu kr. 7,00 eintakið / Prentsmiðja VIsis — Edda h.f \ Bætf gjaldeyrisaðstaða glöð stjómarandstöðunnar hafa löngum haldið því \ fram, að staða þjóðarbúsins út á við hafi ekkert batn- ( að síðan 1958, þegar vinstri stjómin gafst upp. Tím- ( inn hefur látið sína færustu blekkingarmeistara setja /< upp dæmi þessu til sönnunar og vonað að almenn- ) ingur tryði þeim niðurstöðum, sem þannig em \ fengnar. \ Nú hljóta að vísu allir, sem muna hvernig komið ( var 1958, að sjá hver reginmunur er á ástandinu nú // og þá. Það er því næstum óskiljanlegt að stjórnar- / andstæðingar skuli enn halda áfram þessum blekk- ) ingum. Auk þess sem reynslan sjálf segir, hafa þær \ margsinnis verið reknar ofan í þá með tölum, rfem ( ekki verða vefengdar. Síðast var það gert núna fyrir ( páskana á ársfundi Seðlabankans, í ræðu Jóhannesar / Nordals. Þar talaði hlutlaus embættismaður og lagði / fram tölur um efnahagsþróunina, sem með engu móti ) er haégt að rengja. Hann sagði m.a.: \ — Þegar Seðlabanki íslands hóf starfsemi sína ( fyrir fimm árum, var hin veika gjaldeyrisstaða enn ( eitt megináhyggjuefnið í efnahagsmálum. Netto (/ gjaldeyriseign var í lok marz 1961 aðeins 148 millj. / kr., og íslendingar höfðu á árinu 1960 orðið að grípa j til þess ráðs, að taka verulegt yfirdráttarlán hjá Al- \ þjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusjóðnum, til þess ( að skapa frjálsari grundvöll gjaldeyris- og innflutn- ( ingsviðskipta. Síðan hefur gjaldeyrisstaðan batnað ár / frá ári eða alls um tæpar 1800 millj. á hálfum áratug, / þ. e. a. s. árin 1961 til 1965. Lán til langs tíma hafa ) að vísu aukizt á sama tíma um 979 millj. kr. en megin \ orsök skuldaaukningarinnar hefur verið hinn mikli ( innflutningur skipa og flugvéla, sem á þessum árum / hefur numið 2300 millj. kr. að verðmæti. í hlutfalli / bæði við þjóðarframleiðslu og gjaldeyristekjur hefur ) skuldastaðan gagnvart útlöndum verið verulega batn- \ andi síðustu árin. \ Þetta eru staðreyndir, sem stjórnarandstæðingar ( ættu ekki að reyna að mótmæla, ef þeir vilja ekki / afhjúpa óheilindi sín fyrir alþjóð enn meira en þeir / þegar hafa gert. En þegar þeir hafa verið króaðir ) þannig upp við vegg, grípa þeir jafnan til þess ráðs, \ að segja að þetta sé ekki stjórninni að þakka, heldur ( því, hve vel hafi aflazt. í því sambandi er rétt að taka / hér upp þessi orð seðlabankastjórans í fyrrnefndri )) ræðu: )) — Ég tél óhætt að fullyrða, að aukið aðhald og \\ fastari stefna í peningamálum hafi átt sinn þátt í hag- (( stæðri þróun efnahagsmála hér á landi undanfarin // íimm ár, og þá ekki sízt í bættri aðstöðu þjóðarbúsins / út á við. ) Það ér m. a. þessi fastari stefna í peningamálum, \ sem formaður Framsóknarflokksins á ekki nógu ( sterk orð til aö fordæma. Hann var líka fjármála- (t ráðherra í vinstri stjórninni! // VlSIR . Miðvikudagur 13. apríl 196«. Tvö fyrirferðamikil ori IVýyrði geta þau sennilega ekki heitið, nema þá að einhverju leyti, en svo hressi- legt nýjabragð var að þeim báð- um, að þau munu hafa vakið töluverða athygli og orðið mörg um minnisstæð, sérstaklega annað orðið. Það var Sigurður Líndal hæstaréttarritari, sem notaði það orð í ræðu, er vakti verðskuldaða þökk margra. Hitt orðið kom fyrir í útvarpsstól- ræðu og ef ég man rétt, var það séra Grímur Grímsson, sem notaði það orð. — Orðin voru: Afskræming og lífsþæginda- græðgi. Dresturinn talaði um aldarfar „afskræmingarinnar", en Sigurður Líndal lýsti með orð- inu „lífsþægindagræðgi" einu mjög áberandi einkenni vel- gengnisáranna. Svo yfirgripsmikil eru þessi tvö orð, að þau væru nægilegt efni I allmikla, fróðlega, tfma- bæra og lærdómsríka bók. Þau ná yfir tvö umfangsmikil ein- kenni aldarfarsins. Afskræm- ingarfaraldurinn hefur brotizt út í ýmsum myndum og á mörgum sviðum og er háskalega mannskemmandi, því að hann skemmir og fótumtreður fegurð arskyn manna, en það er for- spilið að víðtækari afmenntun og afmönnun. Hann snýr rang- hverfunni út, gerir hvítt að svörtu, satt að lognu og fegurð að ljótleik. Á bak við alla þessa af- skræmingu aldarfarsins hljóta að vera einhver „diabolisk“- myrkravöld, sem vilja I eigin- gjömum tilgangi hraða sem mest niðurlægingu mannkyns, til þess að geta á eftir hreykt sér hátt á rústunum. Þessi nið- urrifsiðja er svo lúmsk, að fjöldi manna varast hana alls ekki, en gerir gælur við hana. Blöðin fóma henni oft tölu- verðu rúmi. Ýmist er þá talað um eitthvað „abstrakt" eða kennt við „atómaldarfar" eða „reiða“ menn, helzt unga. Þessi afskræmingariðja hefur rutt sér til rúms í klæðnaði, í skemmtunum, í húsaskreyting- um, lystum, myndagerð, músík, söng, bókagerð, ljóðum, reyf- umm, sorpritum og ýmsu öðru. Hið nýjasta lubbatízkan, bítla- músik og öskur. Stutt er síðan eitt víðlesnasta blað landsins fómaði einhverju stelpufiðrildi úti í löndum meiru en heilli blaðsíðu. Marg- ar myndir voru þar af henni og sérkennin ekki slóðaleg: Otvalin til að leika „ástríðufullar ástir" — „ábyrgðarlaus, kærir sig kollóttan um nútíma siðvenjur", — „haldin sama uppreisnarand- anum og aðrir ungir“ landar hennár, finnst ekkert athuga- vert við að nota fána þjóðar sinnar fyrir gluggatjald, er „flöktandi f lífsgleði sinni“ — „ýmist togar í hár sitt“ eða „nagar neglumar", eða „stikar fram og aftur eins og ljón í búri og þyrlar hárinu í allar áttir“. Þetta er engin smávægis heimsfrétt! Þarna er fyrifmvnd- in. Skyldi íslenzku stúlkunum ekki lítast vel á hana. Þær sjást alloft í strætisvögnunum þyrla hárlubbanum í allar áttir og með hann niður í augum. Allt skal þjóna þessu eina, að rækta kæruleysið, eftirhermuhneigð- ina og ómyndarskapinn. — Afskræming aldarfarsins. Nóg er enn ótalið. Lffsþægindagræðgin er smit- faraldur í velferðarríkjunum, ekkert síður hér í landi en ann- ars staðar. Hún þrífst á kostn- að þeirra þjóðfélagslegu dyggða, sem eru lífsnauðsyn hverri þjóð: fornfýsinnar, þjónustuvilj- ans, þjóðrækninnar og þjóð- hollustu. Ekki gerir þessi pest sér mannamun, fremur en ann- ar smitfaraldur, hún nær til Pétur Sigurðsson. allra stétta, einnig forystu- mannanna. Sigurður Líndal komst svo að orði í ræðu sinni: „Öll hugsun þeirra og öll ræða þeirra snýst um tíma- bundin og meira og minna til- gangslítil lífsþægindi, tiltekinna hagsmunahópa í þjóðfélaginu og sjálfir hafa þeir forystu í ill- vígum deilum um þessi efni. Þetta felur þá raunverulega í Pólýfónkórinn hélt tvo sam- söngva í Gamla bíói nýlega. — Stjómandi var Ingólfur Guð- brandsson. Verkefnavalið var frá ýmsum tímum (16., 17. og 20. öld), en samt voru verkin ekki eins ólík og vænta mætti, þar eð flest þeirra voru ávextir hinnar heiðu stflvitundar, þegn- ar gömlu Evfóníu umfram allt, og í slíkum félagsskap hefur Pólýfónkórinn fyrir löngu sann- að yfirburði sína, svo sem kunn ugt er. Það var nokkuð misráðið að hefja samsönginn á hinum vandasömu „Alla riva“ eftir Pal- estrina og „Moro lasso“ eftir Gesualdo, kórinn þurfti fyrst að „ná sér á strik" í hinum létt- vægari og auöveldari ensku madrigölum, sem fylgdu á eftir á efnisskránni. („Belia Angiol- etta“ eftir Gesualdo hefði vel mátt sleppa). Það eru madrigal- arnir í tveimur seinustu madrig alaheftunum (af sex), sem hafa haldiö nafni Don Carlos, músi- kants og morðingja, Gesualdo, prins af Venosa, á lofti, og „Moro lasso“ er einn þeirra. Mikill fengur væri, ef kórinn sér, að þjóðin í heild á enga leiðtoga. — Þeir forystumenn, sem kjömir eru, t.d. til Alþingis eru í raun og veru aðeins odd- vitar og hagsmunaverðir tiltek- inna hópa í þjóðfélaginu". Ræðumaður segir svo, að hér með sé komið að einum „meg- invanda þjóðfélagsins": „Þessi vandi er sá, að íslend- ingum hefur enn ekki tekizt að skapa sér þjóðarforystu. For- ystuleysið er tvímælalaust al- varlegasti vandi, sem að íslend- ingum steðjar og það hlýtur að verða höfuðverkefni næstu kynslóðar að leysa þann vanda. Ef íslendingar leysa hann ekki sjálfir, getur farið svo að aðr- ar þjóðir geri það.“ í sambandi við þessi orð Sig- urðar Líndals rifjast nú upp minningar frá liðnum árum. Það mun hafa verið fyrir rúm- um tveim áratugum, að við — örfáir menn — höfðum fundi heima hjá mér tvo vetur, oft hálfsmánaðarlega. Aðalaum- ræðuefnið var alltaf stjórn- skipulagið. Einn helzti hugsuð- urinn þar var Halldór Jónasson hagfræðingur, sem nú er ný- látinn, en gott er að minnast. Þessir fundir urðu upphaf að hreyfingu, sem vakti töluveröa athygli, samtök mynduðust, sem gáfu jafnvel út blöð til framdrátt ar þessari hreyfingu, stjórnar skrárfélög voru stofnuð í Iand- inu og tvisvar komum við á Þingvallarfundum um málið. Á síðari fundinum voru meðal ann arra ýmsir þjóðkunnir menn og var það góður og gagnlegur fundur. Þar voru þá kjömir tveir þjóðkunnir menn — tveir Jónasar til forystu og fannst Framh. á bls. 6. sæi sér fært að flytja okkur fleiri slíkar gersemar. Eftir hlé heyröust fyrst tvær skopstæl- ingar á áðurnefndum „þegnum Evfóníu". Kórinn flutti brot kín veskrar speki (úr Vegi Laó Tze) á ensku, og samkvæmt þvi heyrðist einraddaður ávæningur af „pentatonik“, og síðan ódul- búin „rakarastofu harmónía" upp á ameríska vísu. Þannig fór Jón S. Jónsson með 2500 ára kínverska vizku. Seinasti hluti efnisskrárinnar var helgaður hinum einstæða og viðkvæma meistara, Hugo Distler. Það var drengilegt tón- skáld, sem leiddi hefðina sér viö hönd inn á ný sviö — og þaö í trássi við ríkjandi afmenntun- arviðbjóðinn í Pýzkalandi — og sú tryggð kostaöi hann í raun og veru lífiö : Berlín, 1. nóv- ember 1942. Fimm „Mörike- Chorlieder" hans vom hámark samsöngsins — umfram allt „Eldriddarinn" — bæði efnis- Iega og hvað túlkun snerti. Þar gekk söngstjórinn fullkomlega til móts við hin vönduðu lista verk með magnaðri tjáningu. Þorkell Sigurbjömsson.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.