Vísir - 13.04.1966, Page 16
Seldi fyrir
rúmnr 2,2
millj. kr.
Togarinn Júpíter seldi í gær í
Hull 243 tonn fyrir 18.643 ster-
lingspund eða rúmlega 2,2 milljón-
ir fslenzkra króna. Sama dag seldi
í Grimsby togarinn Askur 122 tonn
fyrir 10.644 pund. Egill Skallagríms
son seldi í Hull 157 tonn fyrir
13.044 sterlingspund, eins og skýrt
var frá í Vísi í gær.
Fóstbræður halda Ijóðatónleíka
— í tilefni 50 ára afmælisins
í sambandi viö 50 ára afmæli
Karlakórsins Fóstbræðra, sem
minnzt veröur í næstu viku,
gengst kórinn fyrir sérstökum
hljómleikum í Austurbæjarbíói
n.k. laugardag, 16. apríl þar sem
einsöngvarar kórsins, þeir Er-
lingur Vigfússon, Kristinn Halls
son og Sigurður Björnsson, auk
frú Sigurveigar Hjaltested og
þýzku óperusöngkonunnar Sieg-
linde Kahmann, munu flytja
mjög fjölbreytta efnisskrá.
Auk einsöngslaga og laga-
flokka eftir Jón Þórarinsson,
Hugo Wolf, Beethoven, Mozart
og Hándel, syngur blandaður
kvartett hina frægu Liebeslied-
er-walser eftir Brahms, sem nú
verða fluttir í fyrsta sinn opin-
berlega hér á landi. Undirleik á
hljómleikum þessum munu ann
ast þau Guðrún Kristinsdóttir,
Ólafur Vignir Albertsson og
Ragnar Björnsson.
Þau Sieglinde Kahmann og
Sigurður Björnsson, sem bæði
eru fastráðnir söngvarar við ó-
peruna í Stuttgart, koma til ís-
lands gagngert vegna afmælis
Fóstbræðra. Sama máli gegnir
um þá Erling Vigfússon og
Ragnar Bjömsson, er báðir
dveljast við framhaldsnám i
Köln.
Fullyrða má, að hér gefist tón
listarunnendum einstakt tæki-
færi til að heyra hina fremstu
listamenn flytja vandaða og ó-
venjulega efnisskrá, sem því
miður verður ekki hægt að end-
urtaka, með því að fjórir lista-
HEILDARAFLINNREYNDIST VERA
1,2 MILLJÓN TONN
Urðu íslendingar önnur mesta fiskveiðiþjóð Evropu?
1 Ægi timariti Fiskifélags ís-
lands, 6. tölublaSi þessa árgangs
birtist m. a. tafla um fiskafla
Rafn Magnússon.
landsmanna áriS 1965. Aflinn á
si&asta ári var 1198 þúsund tonn
eða 225 þúsund tonnum meira
en áriS 1964. Er þetta lang mesti
afli, sem nokkumtíma hefur
komlS á land hér á elnu ári og
má mest þakka þaS sildarafian-
um á siSastliSnu ári.
ísland var fjórða aflahæsta
þjóðin í Evrópu árið 1964, Norð-
menn voru þá með mestan fisk-
afla í álfunni eða 1608 þús. tonn
Spánverjar komu næstir með
1197 þús., þá Bretar með 975
þús., ísland var nr. 4 með 973
þús. og Danir nr. 5 með 871 þús.
Ekki er vitað um heildarafla-
magn Dana, Breta og Spánverja
árið ’65, en ef það hefur ekki
aukizt þá frá árinu 1964, eru
Islendingar orðnir aðrir í röð-
inni, hvað snertir fiskafla, og
þarf ekki að miða við fólksfjölda
í þessu tilfellj. Fiskafli Norð-
manna fór hins vegar upp í 2
millj. lesta árið ’65.
fyrir borð og drukknaði
Það sviplega slys varð á páska-
dagsmorgun, að Rafn Magnússon,
matsveinn á Þormóði goða, féll
fyrir borð og drukknaði, er skip-
ið var statt f Reykjanesröst á heim
siglingu úr söluferð til Cuxhaven.
Enginn sjónarvottur var að slysinu
er talið að Rafn muni hafa misst
jafnvægið, er hann var að hella úr
gangi úr fötu út fyrir borðstokkinn
Rafn Magnússon átti heima að
Ásgarði 143, og lætur hann eftir
sig eiginkonu, Svanfríði Benedikts
dóttur, sex böm innan við fermingu
Mestur hiuti heildaraflans
1965 er síld, eða tæp 763 þúsund
tonn en síldarafli jókst mjög á
árinu, eða um nærri 220 þús,1
tonn. Þorskaflinn minnkaði hins
vegar um 34 þúsund tonn, úr
415 þús. árið 1964 í c!81 þús.
árið 1965. Loðnuveiðin á einnig
nokkurn þátt f þessari aflaaukn-
ingu. Árið 1964 veiddist aðeins
um 9Vá þús. tonn af loðnu en
nærri 50 þús. síðastliðið ár. Einn
Sieglinde Kahman.
mannanna hverfa aftur tíl út-
landa þegar í næstu viku.
Aðgöngumiðar að þessum
ljóðatónleikum á laugardaginn
verða seldir í Bókaverzlun Lár-
usar Blöndal á Skólavörðustíg
og í Vesturveri.
ig jókst humar og rækjuafli
nokkuð frá árinu 1964.
Það skal tekið fram, að undir
þorskafla eru hér flokkaðar skyld
ar fisktegundir eins og ýsa,
karfi, ufsi o. fl., en megin hluti
hans er þorskur.
Færeyingur nær drukknað■
ur á Akranesi
— Annar skarst illa á handlegg
og stálpaða stjúpdóttur. Hann var
sonur Magnúsar Jónssonar frá
Selalæk og Aðaiheiðar J. Lárus-
dóttur.
Þegar Rafns var saknað, var ieit
gerð að honum i skipinu og kom
þá fram að aðstoðarmatsveinn
hafði séð hann fara upp á þilfar
með fötuna. Er annar skór hans
fannst út við borðstokkinn, þótti
sýnt hvað orðið hefði, var skipinu
þá strax snúiö við, en þungur sjór
var í röstinni og mikil iðuköst,
og bar ieit þar engan árangur.
Færeyskum skipverja, Andreas
Johansen, var bjargað úr bátahöfn
inni á Akranesi aðfaranótt föstu-
dagstns langa, en hann hafði failið
í sjóinn er hann var á leið út í bát
og var orðinn rænulaus er honum
var bjargað. Var hann fluttur f
sjúkrahúsið á Akranesi og mun
hann nú vera oröinn vel hress.
Bjöm H. Björnsson varðstjóri
átti mestan þátt í björgun Færey-
ingsins og baö Vísir hann að segja
frá björguninni.
— Við Helgi Daníelsson vorum
á vakt um nóttina, sagði Bjöm, og
ki. 1.42 var hringt í okkur og sagt
að maður hefði failið í bátáhöfnina.
Við gripum ljósker og ókum í of-
boði niður á bryggju og vorum
komnir þangað þremur mínútum sið
ar. Þá voru nokkrir menn fyrir á
bryggjunni og tveir voru í sjón-
um, mátti greina þá á milli bát-
anna, en mjög lágsjávað var. Virt-
ist annar þeirra, sem var Færey-
ingurinn Andreas Johansen, rænu-
lítill, en öm Steingrímsson, sem
hringt hafði í okkur eftir að hafa
gert tilraun tii að bjarga Andre-
asi var aftur kominn í sjóinn og
var búið að kasta til hans björgun-
arhring.
— Ég sá ekkert annað að gera
en fara úr jakkanum og taka af
mér húfuna, og klifraði niður stig
ann og henti mér í sjóinn. Tók ég
Andreas björgunarsundtaki og
synti með hann að bátnum Reyni,
þar sem ég náði í nælonspotta og
gat bundið um Andreas. Emi tókst
sjálfum að binda sig í spottann og
þegar búið var að draga þá upp
var Andreas rænulaus og Öm
mjög þjakaður og orðinn rænu-
lítill. Þriöji maðurinn, Valur Þór-
oddsson, sem haldið hafði Andreas
uppi meðan Öm hijóp í símann,
komst í land. Þegar búiö var að
draga Öm og Andreas upp synti
ég að stiganum en það var svo
lágsjávað að ég náði ekki í neðsta
þrepið, en maðurinn, sem stóð á
bakkanum gat teygt sig niður og
kippt í hálsmálið á mér og lyft
mér nóg tii að ég náði upp í stig-
ann.
— Þegar ég heimsótti Andreas
á annan páskadag var hann orðinn
ágætlega hress og hitalaus.
— Annar Færeyingur varð fyrir
siysi hér um páskana, sló hann
úr rúðu aðfaranótt annars í pásk-
um. Skarst hann mjög mikið á
handlegg og voru tveir eða þrír
læknar að gera að sárum hans
lengi nætur. Að öðru leyti var ró
legt hjá lögreglunni hér um pásk
ana, sagði Bjöm að lokum.
Alfreð
Gíslason
Kristján
Guðlaugsson
Sesselja
Magnúsdóttir
Jón
Sæmundsson
Ingóifur
Haildórsson
Sigríður ~ Jón Halldór
Jóhannesdóttir Jónsson
Ámi Þ.
Þorgrímsson
Gunnlaugur
Karlsson
Listi Sjálfstæðisflokksins / Kefíavík
Framboðslisti Sjálfstæðisflokks-
ins 1 Keflavfk til bæjarstjórnarkosn
inga 22. maf 1966 verður þannig
skipaður.
1. Alfreð Gfslason, bæjarfógeti. I maður, 5. Ingólfur Halldórsson
2. Kristján Guðlaugsson verzlunar kennari, 6. Sigríður Jóhannesdóttir
maður, 3. Sesselja Magnúsdóttir [ frú, 7. Jón Halldór Jónsson fram-
frú, 4. Jón Sæmundsson útgerðar- kvæmdastjóri, 8. Ámi Þ. Þorgríms-
son fulltrúi, 9. Gunnlaugur Karls-
son útgerðarmaður, 10. Marteinn
Ámason bóksali, 11. Garðar Péturs
son rafvirkjameistari, 12. Jóhann
Pétursson kaupmaður, 13. Tómas
Tómasson lögfræðingur, 14. Magn-
ús Jónsson húsasm., 15. Hreggvið-
ur Bergmann forstjóri, 16. Helgi
Jónsson vörubifreiðastjóri. 17. Kári
Þórðarson, rafveitustj., 18. Guð-
mundur Guðmundsson, sparisjóðs-
stjóri.
Að þessu sinni verða kosnir 9
bæjarfulltrúar í Keflavík en áður
hafa þar verið 7 fulltrúar.
*