Vísir - 30.04.1966, Page 3
V í S I R . Laugardagur 30. apríl /966.
3
10,000 GISTIBEIÐNIR
morgun verður Hótel Loft-
leiðir opnað almenningi, en
þá hefur áfanga verið náð sem
má kallast einstakur í íslenzkri
byggingarsögu og á ef til vill
eftir að marka tímamót. Bygg-
ing hótelsins var skipulögð frá
upphafi og var öll vinna hinna
fjöldamörgu aðila, erlendra sem
innlendra, með þeim árangri að
hótelið verður opnað 1. maí eins
og upphaflega var gert ráð fyrir
og mörgum þótti djarft. Öll bygg
ing hússins hefur tekið um 16
mánuði. Samvinna hinna mörgu
aðila, sem að húsinu hafa unnið
hefur verið með miklum ágæt-
um, eins og árangurinn sannar
og er athyglisvert þegar tillit
er tekið til, að oft unnu sam-
tímis að verkinu um 130-140
manns af ýmsu þjóðerni.
íslenzkir iðnaðarmenn báru
hita og þunga by-ggingar hótels-
ins, en mikið var þó leitað út
fyrir landssteinana um vinnu-
kraft, bæði vegna manneklu og
sérþekkingar, sem ekki var unnt
að fá hér á landi. Þannig hafa
Norðmenn, Danir, Þjóðverjar,
Bretar, Belgíumenn, Bandaríkja
menn, Svíar, Frakkar og Finnar
lagt sinn skerf til þess að hótel
ið mætti vera sem bezt úr garði
gert miðað við það, sem frekast
verður krafizt um gerð hótela
í dag. Þrátt fyrir hátt verðlag
hér á landi hefur verið ákveðið
að reyna að stilla verði eins
mjög í hóf og unnt er. Þannig
er ætlunin að með öllum inni-
földum gjöldum kosti eins
manns herb. 344 kr. á dag, morg
unverður kr. 62.50, hádegisverð
ur kr. 156.25 og kvöldverður
kr. 250.00, sem getur ekki tal-
izt mikið miðað við þann gæða
flokk, sem hótelið er í, jafn-
vel þó sé miðað við ódýrari
Évrópulönd.
Hótelið er enda byggt í þeim
tilgangi, að gera þeim útlending
um, sem hér vilja dvelja, kleift
að búa jafn ódýrt sem þægilega.
Jafnframt er hótelið auðvitað op
ið öllum þeim utanbæjarmönn-
um, sem þurfa að gista í höfuð
borginni. Það hefur þegar komið
vísbending um það, að stjórn
Loftleiða hefur ekki farið villt
þegar hún ákvað að reisa þetta
hús, því 10.000 gistingarbeiðnir
hafa þegar borizt.
Fast starfslið hótelsins er um
100 manns. Þorvaldur Guð-
mundsson er hótelstjóri, veit-
ingastjóri er Friðrik Gíslason,
skrifstofustjóri Sveinn Guðlaugs
son, sölustjóri Friðrik Theódórs
son, móttökustjórar Geirlaug
Þorvaldsdóttir og Emil Guð-
mundsson, aðstoðarmaður hótel
stjóra Robert Goethe, yfirmat-
sveinn Karl Finnbogason, gjald
keri Bertha Johannessen, yfir-
þjónn Bjarni Guðjónsson og yf
irþerna Fríður Bjarnadóttir.
Að vonum vilja Loftleiða-
menn fagna þessum tímamótum
í sögu félagsins og hafa því á-
Framh é >ls 6
Major Björn Steenstrup og eiginkona hans eru fyrstu gestímir á Hótel Loftleiöir og rita þau hér
nöfn sín I gestabókina. Steenstrup er umboðsmaöur Loftleiöa í Svíþjóð. Meö þeim á myndinni er
Sigurður Magnússon fulltrúi.
Með fullkomnustu eldhúsum á íslandi
Myndin er tekin upp stigaganglnn neöan úr kjallara.
Hluti þeirra sem báru hita og þunga byggingarinnar. Þorvaldur G uðmundsson hótelstjóri, Gísll Halldórsson arkitekt, Þórður Kristjáns
son trésmíðameistari, Ólafur Júliusson arkttekt, Þorvaldur Daníelsson trúnaðarmaður Loftleiða og Páll Flygenring verkfræðlngur.
Erlingur Pálsson hin aldnl sundkappi vígöi sundlaugina í kjallara
hótelsins. Með honum syntu tvær 12 ára stúlkur, Guðfinna Helga-
dóttir og Sigríður ída Úlfarsdóttir. Á myndinni takast þeir í hendur
Erlingur og Arí Guðmundsson forstöðumaður baðdeildar.
Stjórn Loftleiða. Einar Arnórsson, Alfreð Elfasson, Kristján GuðIaugss.on, Sigurður Helgascn og Kristinn Ólsen.