Vísir - 17.05.1966, Blaðsíða 4

Vísir - 17.05.1966, Blaðsíða 4
4 V1 S I R . Þriðjudagur 17. maí 1966. Fullkomið gatnakerfi skipulagt í Reykjavík í bókinni „Aðalskipu- lag Reykjavíkur 1962— 1983“ fjallar einn kafl- inn um framtíðarkerfi gatna á borgarstæðinu á Seltjamarnesi. Er þar rætt um skiptingu gatna í hraðbrautir, tengibraut ir, safnbrautir og húsa- götur, og hvaða hlut- verki hver flokkur gatna á að gegna. Sömuleiðis er þar áætlun um röð fyrstu framkvæmda. — Birtast hér þættir úr þessum kafla bókarinn- ar. PÖ5S VDfr0« Kortlð sýnir fyrirhugaö gatnakerfi á borgarlandlnu á Seltjamamesi. Gatnaskipulagið byggist á skýrri aðgreiningu gatna í eigin legar umferðargötur og aðrar götur. Umferðargötunum er skipt f þrjá flokka: fyrsta flokks götur eða hraðbrautir, sem eru einkum fyrir ferðir milli borg- arhluta; þá eru annars flokks umferðargötur, hér kallaðar tengibrautir, sem eru einkum fyrir ferðir innan einstakra borgarhluta, og loks þriðja flokks umferðargötur, kallaðar safnbrautir, sem þjóna umferð- inni innan einstakra hverfa. Aðrar götur hafa það takmark- aða hlutverk að veita aðkomu að hverju einstöku húsi eða stofnun innan hvers hverfis. Mikill ökuhraði á hraðbrautum. Hraðbrautimar eru gerðar fyrir mikinn ökuhraða og mikla umferðarrýmd. í heild eiga þær að vera með svipuðu sniði og svonefndar bifreiðabrautir í öðrum löndum. Þar eru tvær aðgreindar akbrautir (a.m.k. fjórar akreinar og miðræma), enginn aðgangur að húsum, skurðlaus gatnamót og sérstök mannvirki, þar sem aðrar götur tengjast við þær. Að jafnaði munu tengingar við hraðbraut- ir og mót þeirra innbyrðis verða gerð með skábrautum, og fer gerð tenginganna eftir umferðar magni og mikilvægi brautanna Af gatnamótum hraðbrautanna eru aðeins tvenn fyrirhuguð þannig, að brautirnar skerist í sama fleti. Það eru mót Suður- götu og Geirsgötu og mót Snorrabrautar og nýrrar strand götu. í mörgum köflum í kerfi hraðbrautanna eru gatnastærðir töluvert meiri en lágmarksregl ur fyrir bifreiðabrautir gera ráð fyrir. Á kafla af Miklubraut verða 8 akreinar, en 6 akreinar annars. Á ýmsum öðrum hrað- braututn er gert ráð fyrir 6 ak- reinum, svo sem á Snorrabraut, Kringlumýrarbraut, Skúlagötu og hluta hinnar fyrirhuguðu strandgötu i framhaldi Skúla- götu. „Vemdun" gatna í hrað- brautakerfinu verður að vera alger alls staðar, þar sem þær liggja að óbyggðum svæðum. En þar sem hraðbrautir liggja um fullbyggð hverfi, er varla hægt að vemda þær eins ræki- lega, því f mörgum tilvikum verður ekki hjá því komizt að veita húsum nokkra aðkomu- möguleika. Ráðgert er, að eftirfarandi götur verði hraðbrautir: Hring- urinn: Suðurlandsvegur, Elliða- vogur, Kleppsvegur, Sætún, Skúlagata, Geirsgata, Ánanaust, Hringbraut, Miklabraut, Vest- urlandsvegur. Einnig Lækjar- gata, Fríkirkjuvegur, Sóleyjar- gata, ný gata vestan og sunnan Öskjuhlíðar, ný Fossvogsbraut í botni dalsins, Suðurlandsveg- ur. Suðurgata verður aðal- braut. Þá em það Snorrabraut, Öskjuhlíð og vesturendi Bú- staðavegar að Kringlúmýrar- braut. Loks verða Kringlumýr- arbraut og Hafnarfjarðarvegur hraðbrautir. 4 akreina tengibrautir. Tengibrautir eru aðalæðamar innan hvers borgarhluta, og þær mynda að sínu leyti ramma um einstök borgar-, hverfi. Eftir því sem kostur er á, eiga þær að bera eigið svip mót svo að þær séu auðþekktar í gatnakerfi borgarinnar. Þörfin á umferðarrýmd og gatnagæð- um skapar þá meginreglu, að tengibrautir séu með fjórum akreinum og miðræmu, án að- gangs að húsum, en að gatna- mót þeirra við aðrar götut megi vera í einum fleti. 1 sambandi við lauslega stærðarákvörðun á gatnamótum hefur verið gerð tilraun til út- reiknings á væntanlegum um- ferðarljósum fyrir þær tengi- brautir, sem erfiðastar verða í framkvæmd. Kom í ljós, að hægt mun að gera gatnamótin f einum fleti, en að á allmörgum stöðum þarf að auka gatna- breiddina til þess að koma fyrir biðreinum handa bifreiðum, sem ætla að taka beygjur. Á frumdrætti að tæknilegu formi gatnakerfisins sést, að á nokkr- um tengibrautunum hefur orðið að sleppa miðræmunni. Þetta stafar af því, að hér er um að ræða götur, þar sem möguleikar til breikkunar eru mjög tak- markaðir. 1 sumum tilvikum er þó fært að breikka þær til að koma fyrir biðreinum við gatnamót. Uppistaðan í mörgum tengibrautanna eru götur, er hafa nú miklu þjónustuhlut- verki að gegna við hús og stofn anir. Af því getur hlotizt, að eigi verði hægt að fullnægja algjörlega þeirri kröfu, að eng- in hús hafi aðgang frá tengi- brautum. Tengibrautir verða m. a.: Eiðisgrandi, Nesvegur, Ægis- sfða, Suðurgata sunnan Miklu- brautar, Hofsvallagata og áfram austur Vesturgötu, Kirkju- stræti, Grettisgata, Tryggva- gata, Hverfisgata, Laugavegur austan Hverfisgötu, Suðurlands braut, • Höfðatún, Flókagata, Langahlíð og Nóatún norður að Laugavegi, Dalbraut, Grensás- vegur, Sjkeiðarvogur, Bústaða- vegur, Háaleitisbraut sunnan Miklubrautar, Réttarholtsvegur. Lítið álag á safnbrautum. Safnbrautir þjóna ekki nema hverju hverfi fyrir sig og yfir- leitt mun umferðarálag á þær ekki verða mjög mikið. Auk þess munu safnbrautir þurfa að veita aðgang að mörgum hús- um og stofnunum, er nú þegar liggja að þeim. Að jafnaði mun þurfa að ætla tvær akreinar fyrir ökutæki og leggja þeim, eftir þvf sem starfsemin við götuna gefur tilefni til. Á göt- um þar sem þungt umferðará- lag er, og á gatnamótum, þar sem umferð verður stjórnað með ljósum, getur þurft að breikka akbrautir, m. a. til þess að nægilegt rými fáist fyrir biðreinar. Rólegar húsagötur. Húsagötur eiga ekki að full- nægja meiri umferðarþörfum en svo, að tvær akreinar duga, ef þær eru einungis notaðar fyrir farartæki á ferð. Hins vegar verður að gera'strangar kröfur um rými á götunum eða við þær, þar sem stöðva megi bif- reiðir eða leggja þeim. Tilhögun á húsagötum er mjög háð að- stæðum á hverjum stað, eink- um þeirri starfsemi, sem þar er. Á uppdráttum af gatnakerfinu sem hér eru sýndir, eru aðeins frumdrættir að þeim götum, sem eru f umræddum flokki. í gatnaáætluninni er fjallað um þennan gatnaflokk aðallega til að lýsa þeim endurbótum, sem einnig þarf að gera á þessum þætti gatnakerfisins. Miklar endurbætur. Núverandi gatnakerfi verður að teljast frumstætt í saman- burði við það kerfi, sem lagt er til að komið verði upp. Til tölulega fáar götur eru nú eins vel úr garði gerðar og þeim er ætlað að verða síðar og verður því í meginatriðum að gera ráð fyrir aukningum og endurbótum á öllum þáttum kerfisins. Þær framkvæmdir munu taka langan tíma og kosta mikið fé. Er það því sérstakt verkefni að gera á- ætlanir um skipulagningu fram- kvæmdanna í áfanga, svo að um ferðarkerfið fullnægi umferðar- þörfinni hverju sinni og á þann veg, að sem mest gagn verði jafnan að hverri fjárfestingu. Það liggur í hlutarins eðli, að eigi er unnt að fastákveða fram kvæmdaáætlun fyrir svo langt tímabil sem til 1983. En gagn legt er að móta meginstefnur um framkvæmdir á ýmsum svið um á skipulagstímabilinu og kveða á um það, í hvaða röð meiri háttar mannvirki eiga að koma til framkvæmda á næstu árum. Allt skipulagstímabilið verða. stöðugar endurbætur á gatoa- kerfinu, að fara fram, þar sem sinnt er einstökum takmörkuð- um verkefnum á stöðum, þar sem þörfin er brýnust hverju sinni. Það mun tíðast verða á gatnamótum, þvf að þar kemur Frdamhald á bls. 5.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.