Vísir - 11.06.1966, Page 6
VlSIR • Laugardagur n. jum íuoo.
\
Stórstúkissi —
Framh. af bls 9
að sýna í verki, að hún eigi hann
skíllð.
y jt-ins og gefur að skiija hefur
mjög mismikið fjör verið í starf
semi Reglunnar á þessum langa
tíma, síðan hún var stofnuð.
Það hafa gengið yfir hana deyfð
artímabil, en mikill kraftur
verið f starfinu á milli. Mikill
tímamunur hefur verið á þvi,
hvem hljómgrunn Reglan hefur
fengið hjá almenningi í landinu.
Liggja til þess margar orsakir,
og sumar kannski ekki á yfir-
borðinu. Skal ekki farið nánar
út f það hér.
Framtíðarverkefnin
Þau eru mörg verkefnin, sem
bíða bindindismanna á ísiandi.
Víða þarf að taka til hendi. Og
til þess þarf fólk, ólatt fólk, öt-
ult fólk. Þær þrjár þúsundir
manna, sem nú em félags-
bundnar í undirstúkunum, stúk-
um fullorðinna, eru ekki nægur
liðskostur til alls þess, sem gera
þarf. Reglunni er brýn þörf á
liðsauka.
Væri ég að því spurður, hvaða
verkefni f bindindismálunum
væri mest þörf að leysa, mundi
ég svara: Það er að breyta hugs-
unarhætti almennings, gera
hann bindindissaman. Það þarf
að opna augu fólks fyrir þvf,
að bindindissamur maður er
betur farinn en hinn, sem iðkar
áfengisneyzlu, að bindindissöm
þjóð stendur traustari fótum og
er farsælli en hún væri, ef allt
flyti hjá henni í vfni. Það þarf
jafnframt að fá menn til að
skilja það, að áfengisneyzla er
ekki einkamál áfengisneytand-
ms, eins og systir stórkapelán
y’ék svo skýrlega að fyrir
skömmu. Það þarf líka að fá
menn til að skilja, að þjóðin
verður þVT' aðeins bindindis-
söm þjóð, að meiri hluti —
helzt mikill meiri hluti — þjóð-
félagsþegnanna sé bindindis-
samur og sýni það í orði og þó
einkum í verki. Þetta er það,
sem mest á rfður. Það er af-
staða einstaklingsins til áfengis-
neyzlu og bindindis; það er
skilningur einstaklingsins á því,
að persónuleg afstaða hans hef-
ur þjóðfélagslega þýðingu, að
hann er meðábyrgur fyrir á-
standinu í landinu, fyrir al-
menningsálitinu, fyrir hugsun-
arhætti þjóðarinnar.
Félagar Reglunnar á Islandi
geta ekki gefið þjóð sinni betri
gjöf á þessu afmælisári en að
reyna af fremsta megni að efia
bindindissaman hugsunarhátt
almennings. Og Stórstúkunni
getur enginn gefið betri afmæl-
isgjöf en þá, að hann taki sjálf-
ur virkan þátt í að efla þennan
hugsunarhátt. Hann þarf ekki
endilega að vera félagi f Regl-
unni. Hann þarf ekki einu sinni
að vera í neinum bindindissam-
tökum. En hann verður að vera
bindindismaður sjálfur, bind-
indismaður f orði, en um fram
allt bindindismaður f verki.
Þetta er liðsbón Reglunnar til
íslenzku þjóðarinnar á 80 ára
afmælinu. Þetta er liðsbón henn
ar til sérhvers einstaklings.
Bræðslusíld —
Framh. af bls. 4
er löndunartöf fyrir hendi á Rauf-
arhöfn.
Skal þriggja manna umsjónar-
nefnd, sem skipuð er einum full-
trúa frá Sfldarverksmiðjum ríkisins
og öðrum frá Síldarverksmiðjusam
tökum Austur- og Norðurlands og
hinum þriðja kosnum af fulltrúum
seljenda f Verðlagsráði sjávarút-
| vegsins, skera úr um það með til-
| vísun til framangreinds tilgangs
sjóðsins, hvort og hvenær svo kann
að vera ástatt að nauðsynlegt sé að
greiða fé úr sjóðnum til veiðiskip-
anna til þess að hvetja til bræðslu-
; síldarflutninga til fjarliggjandi verk
smiðja f því skyni að bjarga verð-
mætum og bæta afgreiðsluskilyröi
sfldveiðiflotans.
Gjald það, sem greitt verður úr
sjóðnum, ef til kemur, skal nema
kr. 0.10 á hvert kg. bræðslusíldar,
sem flutt er til fjarliggjandi verk-
smiðja í sfldveiðiskipunum samkv.
heimild umsjónamefndarinnar en
auk þess greiða þær verksmiðjur,
sem veita þessari bræðslusfld mót-
töku, kr. 0.07 á sfld þessa og verða
þannig greiddar 'kr. 0.17 alls í
flutningsgjald á hvert kfló um-
ræddrar bræðslusíldar.
Kostnaður við störf mnsjónar-
nefndarinnar skal í vertíðarlok
greiðast af flutningssjóðnum, ef fé
er fyrir hendi f honum, annars skal
kostnaðurinn greiðast hlutfallslega
miðað við flutningsmagn af Sfldar-
verksmiðjum ríkisins og Síldarverk
smiðjusamtökum Austur- og Norð-
urlands.
Verði eftir meira fé í sjóðnum
en kr. 500.000.00, þegar síldarver-
tfðinni lýkur og kröfur samkvæmt
framangreindu hafa verið greiddar,
skal það fé er umfram er kr.
500.000.00 greitt til síldveiðiskip-
anna í réttu hlutfalli við kflófjölda
bræðslusíldar, sem veiðiskipanna í
réttu hlutfalli við kflóafjölda
bræðslusíldar, sem þau hafa hvert
um sig landað á verðlagssvæðinu
á sumarvertfð 1966.
Umsjónamefndin ákveður um
framkvæmd á framlögum til sjóðs-
ins og móttöku á þeim og fyrir-
komulag á greiðslum úr honum sam
kvæmt framanrituðu, og gera skal
hún reikningsskil svo fljótt sem
kostur er, og sendi hún eintak
þeirra reikningsskila til verk-
smiðjanna á verðlagssvæðinu, svo
og til Verðlagsráðs sjávarútvegs-
ins.“
Bækur —
Framh. af bls 16.
kring’.a fyrir fimm bæKur og
Skálholt h.f. fy~r fjórar.
Fyrir ári síðan ákvað FéJag
fslenzkra teikn ira að standa
fyrir sýningu á bezt gerðu bók-
um ársins 1965 i þeira tiigangi
aö stuðla að bættri bókagerð og
sagði stjóm félagsins á fundi
með fréttamönn i.n í gær, að ef
sýning þessi fengi gööan nljóm
gmnn væri ætl mra að endur-
Lútið veffja stýrishjól bifreiður yður með plusteffni
Heitt á vetrum, svalt á sumrum,
Svitar ekki hendur.
Mjög fallegt og endingargott.
Mikið litaúrval. 10 ára ábyrgð.
Spyrjið viðskiptavini okkar.
Uppl. í síma 34554 (Allan daginn).
Er á vinnustað i Hæðargarði 20
ERNST ZIEBERT.
UfSSSÍ
taka slíka sýni.iga árlega. Ef
aðrir aðilar óskuðu eftir að fá
að standa að slfkri sýningu með
félaginu, t.d. bóicasöfn væri
slfk samvinna sjálfsögö. Annað
hvort ár væri haldin sýning á
Nordisk bokkunst og hefði ís-
landi þegar verið boðin aðild að
slíkri sýningu þar sem sýndar
em bezt gerðu bækur ársins á
Norðurlöndum.
Strax þegar ákveð:ð var að
efna til sýningarinnar sýndu h;n
ýmsu fagfélög mikinn áhuga á
þessu máli og tiln jfodu fui'.trúa
í dómnefnd, sem fjalla skyldi
um ytri gæöi bókanna og veita
þeim umsögn. Auglý-.ti télagið
eftir innsendingu bóka og bí.r-
ust allmargar baekur frá útgef-
endum þó ekki d'lum. Áskiídi
dómnefnd sér rétt til að taka til
dóms bækur, án þess að þær
hafi verið innsendar svo fremi
að þær féllu unVr skiimála.
Rétt til þátttöku höf61 allar
þær bækur, sem gerðar em af
íslenzkum rfkisbcrgururn á ári
hverju og útgefnar voru á þvf ári
ekki skipti máli þótt höfundur
væri erlendur.
Umsagnir fengu einungis vark
sem vom að öllu leyti unnin hér
á landi.
Dómnefndina skipuðu: Kurt
Zier, Hafsteinn G jðmundsson,
Oliver Steinn Jóha.uesson, Stef
án Ögmundsson, Magnús C.
Magnússon, Bjöm 7h. Björnsson
Ástmar Ólafsson, Jóhannes Jó-
hannesson og Regina Braga-
dóttir.
S.Í.B.S. —
Framh. af bls 16.
ing þjóða er metin, séu lífskjör
hinna sjúku gerð á mælikvarða. —
SÍBS hefur ekki enn náð sfnu mark
miði, en við bíðum eftir miskunn-
sama Samverjanum, lauk Þórður
ræðu sinni.
Gísli Jónsson, fyrrv. alþing'S-
maður og heiðursfélagi SÍBS, stóð
þvf næst upp og lýsti þvf yfir að
hann gæfi höfundalaun og fram-
seldi öllum höfundarrétti bókar, er
hann hefur lokið við að skrifa, í
minningarsjóð um látna eiginkonu
sína, Hlfn Þorsteinsdóttur, sem var
mikill aðoáandi SIBS og v* itkona
að Reykjalundi um hrfð. Bókin fjall
ar um sögu og lff foreldra Gísla,
en hún er jafnframt saga þjóðarinn
ar á tfmabilinu frá 1800-1928, þegar
seinna foreldrið lézt.
Heilbrigðismálaráðherra, Jó-
hann Hafstein, ávarpaði þin-»he‘-n
og minntist á hið merka starf, sem
sambandið hefði staðið fyrir. Það
væri reyndar engin þörf á að
minna á það, þvi oaö væri alþjóð
kunnugt. Þegar störf SÍBS eru met
in mætti þá ekki gieyma þvf, að
ekki væri nóg að ’fta á það sem
hægt væri að þreifa á, heldur bæri
einnig að meta þann anda sem
samtökin hafa gróðu ‘tc meðal
þjóðarinnar með sta.fi sínu.
Það, sem m.a. liggur fyrit þessu
þingi, er aö fá samþvkkt inn f regiu
gerð, að aðrir en siuk. ngar ireð
sjúkdóma í brjóstholi geti fengið
vist á hælum SÍBS. Það hefur vtr-
iö þannig í reynd undanfarm ár,
en hefur ekki verið fært in.i f rtgiu-
gerðina.
Af vistmönnum á hælunum þrem
ur, Reykjalundi, Vífilistöði'n og
Kristneshæli, eru nú t.d ekki nema
um þriðjungur hnrkjasjúklingar.
Þannig var stærsti fcópur örorku
sjúklinga, sem innrir.uöust 1964 og
1965, 81 sjúklingur með vefræna
sjúkdóma, en aðeins 27 með
berklaveiki. Með bæklantr (eftir
slys, meðfæddar o.fl.) voru 43, gigt
arsjúkdóma 38, hjar:a- og æöasjúk-
dóma 36, geösjúkdóma 65 og vegna
annarra sjúkdóma 41.
Annað mál, sem lagt varður fyrír
þingið, er að fá samþykd pess að
leggja til við hið opiabera að reisa
vinnustofur við Kristnethælið m.a
vegna þíss, að húsrými það, sem
hið opinbera lagöi f vran istotur hef
ur nú verið tekið imdir sjúkrastofur
Meðlimir í SÍBS eru nú um 1700
fyrir utan styrktarraeð'.imi.
Kennslutæki —
Frh. af bls. 16.
kennslu og grasafræðikennsiu og síð
ast en ekki sfzt eru bæði kort og
likön af mannslfkamanum og hin
um einstöku hlutum hans.
Kennslutækin á sýning mni eru
frá A.J. Nystrom, elzta fyrlrtæKi
Bandaríkjanna sem fæst vi5 gerö
kennslutækja og er það fyrirtæki
Áma Ólafssonar sem stendur að
sýningunni.
sumarbúðir
Aðsókn að sumarbúðum kirkj-
unnar hefur verið gt^óilega mikil
£ sumar, eins og undanfarin ár, og
hefur ekki verið hægt að taka á
móti öllum umsóknum, jafnvel þó
kirkjan sé með sumarbúðir á fleiri
stöðum nú en nokkm sinni fyrr.
Það hefur því orðið að ráði, að fá
einn staðinn enn, Sælingsdalslaug
í Dalasýslu, og reka þar sumar-
búðir f sumar tfl að reyna að bæta
úr hinni brýnu þörf.
Það er gert ráð fyrir fjórum
flokkum, og verður sá fyrsti 1.—14
júlf fyrir 7 og 8 ára stúlkur og
drengi, sá næsti frá 16.—30. júli
fyrir sama aldursflokk. Þar næst
flokkur 2.—16. ágúst fyrir stúlkur
9—11 ára, og að lokum flokkur frá
17.—31. ágúst fyrir drengi 9—11
ára. Dvalarkostnaður er kr. 120.00
á dag, og umsóknum verður veitt
móttaka hjá æskulýðsfulltrúa við
biskupsembættið á Klapparstfg 27
næstkomandi þriðjudag og mið-
vikudag 14.—15. júnf.
rfYNIINGARSALAN >f SKÓLAVÖRDUSTÍG 3 >f RÝMINGARSALAN
STÓRKOSTLEG VERDLÆK'IUN
GJAFAVÖRUR - SNYRTIVÖRUR, - SOKKAR I ÚRVALI
Aðeins fóír dngnr eftir
RÝMINGARSALAN >f SKÓLAVÖRDUSTlG 3 >f RÝMINGAPSALAN