Vísir - 11.06.1966, Síða 11
Græða peninga
á að
brjóta hljóðfæri
„Who“ i Tívolí { Kaupmannahöfn allra snyrtilegustu piltar í
klæðaburði og útliti öilu.
Nokkrir útvaldir fengu áheym hjá John og tvær ungar stúlkur skrSfuöu niður hjá sér alla spekina,
sem féll af vörum gítarleikarans, en þessar upplýsingar ætluðu þær að nota i fyrirlestra, sem þær
ætluðu að halda í skölanum um nútímatönlist.
■yið erum ósammála um af-
” ' skaplega margt,“ segir
John einn af „Who“, sem er ein
„villtasta" bítlahljómsveitin í
Bretlandi. „Mér geðjast ekkert
sérlega vel að hinum þremur
í hljómsveitinni, það eru bara
peningarnir sem halda okkur
saman. Við höfum gott upp úr
okkur og við vitum að því fleiri
hljóðfæri sem við brjótum, því
æstari og hrifnari verða áheyr-
endurnir og því meira umtal fá
um við og þar með — meiri
peninga."
„Who“ voru nýlega í Norður
landaferð og luku henni á
þriðjudag með tvennum hljóm-
leikum, eða hávaðasamkomum
eins og hljómleikamir voru kall
aðir, öðrum í Kaupmannahöfn
og hinum I Odense og fóru
„Who“ milli borganna í leigu
flugvél.
„Who-fan-klúbbarnir“ ruku
upp til handa og fóta og félags-
menn hentu sér á bílana, sem
Who óku í, og hlutust af slys,
ein stúlka fótbrotnaði og varð
að koma með hækjur á hljóm-
leikana, en það var bara betra
fyrir hana því að hækjumar
reyndust henni bezta barefli
þegar allt ætlaði um koll að
keyra af hrifningu.
Nolckrir piltar voru leiddir út
af hljómleikunum í handjám-
um eftir að þeir höfðu lent í
loknum hljómleikum og uppá-
tækiö hefur náð tilætluöum ár-
angri: þeir hafa hlotið heims-
frægð. Skiptir tjónið af hljóö-
færaskemmdunum hundruðum
þúsunda á kvöldi, en það borgar
sig samt fyrir þá. Nú em þeir
orðnir svo ríkir að þeir kaupa
sér beztu föt sem völ er á
og ganga í þeim daglega, en á
sviöinu eru þeir f gömlu og ó-
hreinu lörfunum.
Það þótti tíöindum sæta að
þegar hljómleikunum í Dan-
mörku var lokið vom „Who“
orðnir svo æstir að Rodger tók
kaffikönnu ,og ,, skvetti úr
slagsmálum og hlotið glóða)--.. .
augu. Stúlkur veinuðu og buðú' .
fjárfúlgur fyrir eiginhandarárit
anir piltanna.
Þegar hávaðasamkoman náöi
hápunkti tók Rodger hljóönem , 1 "
ann og kastaði honum í gólfið.
Kieth velti um trommunum og
Pete og John eyðilögðu gítara
með því að kasta þeim inn í
hina dýrmætu hátalara. Kieth
hafði þó látið svo um mælt fyr-
ir hljómleikana að þeir myndu
ganga ennþá lengra f látunum,
þeir myndu spila þar til húsið
hryndi — en eftir að hljóðfærin
vom orðin ónýt varð ekki meira
á þau leikið.
„Who“ tóku upp á þessum lát
um fyrir um það bil einu ári,
þ.e. að brjóta hljóðfærin að
henni á lögregluþjón og síðan
kveiktu þeir bál f búnlngsher-
berginu.
John, sá sem segist vera Iftt
hrifinn af hinum félögunum seg
ir að hann hati danskar sígar-
ettur og danskan bjór og hon-
um leiðist öll lögin, sem þelr
leika nema „Substitute."
Er þeir vom spurðir hvort þeir
væm f aðdáendaklúbbi (fan-
klúbbi) Rolling Stones urðu þeir
stórmóðgaðir og svöruðu: Nei.
það em auðvitað Rolling Ston
es, sem em í aðdáendaklúbbi
okkar.
Jt: , . .
TÆKIFÆRISGJAFIR
Höfum úrval af listaverkum meö afborgun-
arkjörum. Kaupum gamlar bækur og antik
vörur.
Málverkasalan, Týsgötu 3, sími 17602
,WHO" eru óvinir innbyrÓis, en halda saman vegna frægðarinnar
Kári skrifar:
Hámark hljómleikanna var þegar hetjurnar tóku til við að eyöi-
■''í-cja hljóðfærin. Hér er Pete að leggja til atlögu við hátalarann
" -r gítarínn að vopni.
TZára hafa borizt ýmsar kvart
anir út af ónógum sam-
göngum við Umferðarmiðstöð-
ina nýju. Mörgum þykir stöðin
illa staðsett, fyrir það fyrsta,
en við þvf verður nú ekki gert
úr þvf sem komið er. Það heyrir
hins vegar undir Strætisvagna
Reykjavfkur að halda uppi
greiðum samgöngum til og frá
staðnum. Fólki þykir að sjálf-
sögðu nóg um að borga bfl aö
heiman frá sér á stöðina hærra
verði en farið kostar með rút-
unum út á landið.
Nýlega fluttist afgreiösla bíl-
anna, sem áður höfðu aðsetur
á Steindórsplaninu við Hafn-
arstræti út f Umferðarmiðstöð.
Þetta eru einmitt rútumar á
skemmri leiðunum, til Keflavík
ur og um Suöurland. Far með
rútu austur að Þingvöllum mun
kosta 65 kr., en leigubfll innan
úr Álfheimum eða álíka vega-
lengd að Umferðarmiðstöðinni
kostar víst eitthvað um 75 kr.
Þaö er auðvitað fjári bagalegt
ef strætisvagnaferðum er
hagað þannig að fólk treystir
sér ekki til þess að notfæra sér
þær.
Hitt er svo aftur á móti aug-
ljóst mál, að aöbúnaður allur
og vinnuskilyrði em nokkru
betri f nýju stöðinni en var á
BSÍ eða Steindórsstöðinni. Meö
því að rútumar austur á land
aka .nú Miklubraut ætti einnig
að leggjast niöur sú venja að
stanza hér og þar upp alla Suö-
urlandsbraut til þess að taka
farþega upp í, eins og tíðkaðist
hér áður. Það kann að vera ei-
orsök kvartananna. Fólki verö
ur þó að skiljast að slíkt fyrir
komulag gengur varla lengur •—
Það var við hæfi og þótti mörg
um þægilegt en slfkt hlýtur að
leggjast niður. Fólk gaknar
þess skiljanlega að hafa ekki
allt við húsvegginn hjá sér eins
og í gamla daga.