Vísir - 21.06.1966, Blaðsíða 9

Vísir - 21.06.1966, Blaðsíða 9
 illliiil - i: '•' •íslendingar á ferð í Riidesheim einum vin- ferðamanna bæ Rfnar- landa. VlSIR. Þriðjudagur 21. júni 1966. HALDIÐ I SUMAR eftir viid fyrir ákveðinn tíma. Ferðir þessar munu verða mjög ódýrar og reynt að stuðla að því að þátttakendur geti þó séð það markverðasta í hverri borg þótt æskiiegt hefði að sjálfsögðu ver- ið að njóta til þess lengri tíma, en vegalengdin og tíminn leyfa ekki lengri viðdvalir í hverri borg. Ferð þessi mun án efa eiga eftir að skilja margar ógleym- anlegar endurminningar hjá þátttakendum enda verður allt reynt til þess að gera hana þannig úr garði. Þátttaka i þess- ari ferð hefur farið fram úr öllum vonum og var aðsókn svo mikil að fjöldi manna varð frá að hverfa. Þess vegna hefur ferðaskrifstofa okkar tryggt sér fyrir næsta ár skip til svipaðrar ferðar sem við annað hvort munum léigja einhverjum sam- tökum eða setja upp sjálfir og höfum við þá í huga að geta uppfyllt óskir fleiri þátttakenda en nú með því að skipuleggja ferðina á dálítið annan hátt. Auk þessa höfum við einnig tryggt okkur skip í seinni hluta maí næsta ár og júní mest allan sem er minna að stærð og tek- ur um 312 farþega og væri ákaf lega heppilegt t. d. til ferða til Norðurlanda um Eystrasalt og Vestur-Evrópu og er það að sjálfsögðu einnig til leigu sam- tökum og höfum við nú þegar boðið ýmsum samtökum bæði þessi skip óformlega en gerum það formlega innan tíma þegar viðræður eru komnar á slíkt stig, þannig að reikna má með að með þessari ferð karlakórs- ins sé stigið merkilegt skref til nýbreytni í ferðamálum okkar Islendinga. í Að lokum vildi ég nefna eitt dæmi af fjölmörgum sem gæti gefið nokkra innsýn í hvað við erum að bjóða upp á. Ferðaskrifstofa okkar getur t. d. boðið upp á hnattferð sem að jafnaði er talin kosta um kr. 100.000.00 hvort heldur er fyrir einstaklinga eða hópa fyrir ca. 65.000.00 og er þá allt talið með. Flogið mest alla leiðina og er gisting og matur innifalin og i mörgum tilfellum einnig fjöldirin allur af skoðunarferð- um í borgum. Hvert fótmál minnir á líf snillinganna segir Ingólfur Guðbrandsson, Útsýn TTtsýn býður að vanda upp á fjölda glæsilegra utan- landsferða, og er úr vöndu að ráða, er gera skal upp á milli þeirra. Svo góða dóma hafa Út- sýnarferðir hlotið á sl. 12 árum, að ekki er ofsögum sagt, að í vitund ferðafólks sé nafnið Út- sýn trygging fyrir ferð með úr- Spánar. Aðsókn er jafnan mikil i Útsýnarferðum, og er nú upppantað í allar hópferöir Út- sýnar í sumar a,5 tveimur und- anskildum. Ein af ferðum Útsýnar í ár er til Suður-Þýzkalands, Aust- urríkis og Júgóslaviu, en þær ferðir hafa verið sérstaklega rómaðar af þátttakendum síðast liðin ár. Ferðin tekur 17 daga, og ferðatilhögun sú, að flogið verður til Kaupmannahafnar hinn 22. júlí og fyrst stanzað þ^f í 2 daga. Þaðan verður flog- ið til Miinchen, höfuðborgar Bayem í Þýzkalandi og dvalizt þar i 3 daga. I Munchen býr rúmlega milljón íbúa og er borgin fræg fyrir fagrar listir og glaðværan borgarbrag, enda telja margir hana skemmtileg- ustu borg Þýzkal. Nálægt MUn- chen em Bad Reichenhall, Bercheesgaden og Königssee, allt frægir staðir vegna frá- bærrar náttúrufegurðar. Verður farin dagsferð þangað og einnig til hinnar fögru Salzburg í Austurríki. Frararstjóri verður hinn góðkunni óperusöngvari Sig. Bjömsson, en hann stundaði nám ámm saman í Munchen og er gagnkunnugur á þessum slóð um. Ferðinni er síðan haldið á- fram til Vinarborgar, sem óum- deilanlega er ein fegursta og merkasta borg Evrópu og mið- stöð tónlistar og leiklistar frá fomu fari. Fleiri Islendingar leggja nú leið sína þangað en áður, og allir heillast af fegurð hennar og léttum og skemmti- Framh. á bls. 6. íslendingurinn kann vel aö meta Dubrovnik í Júgóslavíu. valsaðbúnaði og traustri farar- stjórn. í sumar efnir ÚTSÝN tii um 30 hópferða, einkum til Norð- urlanda, Bretlands, Vestur- Evrópu, Mið-Evrópulanda, þ. e. Þýzkalands, Sviss, Austurríkis, Júgóslavíu og Frakklands, en flestar em ferðirnar til Ítalíu og Listin er oð koma óþreyttur heim segir Jón Helgason, Sunnu Tjegar orlofi er eytt 1 fram- andi landi, er það einkum þrennt, sem kemur til greina um tilhögun ferðarinnar: Að sjá sem mest, kynnast framandi þjóðlífi, njóta hvíldar. Á naumum tíma, sem allur þorri manna hefur til sumar- dvalar, kjósa flestir að sameina þetta eftir beztu getu, þ. e. að hafa bæði gagn og gaman af ferðinni, og það tekst ef menn stiila sjálfri yfirferðinni í hóf. Ferðaskrifstofan Sunna miðar flestar orlofsferðir sinar við þetta sjónarmið, að menn komi bæði hvíldir c. fróðari heim, en að öðmm Sunnuferðum ólöst- uðum má telja ferðina París- Sviss-Rínarlönd hafa þessa kosti I rikustum mæli. Lágmarkstími fer í ferðalög en góður timi gefst til að kynn- ast þrem ólíkum miðevrópu- þjóðum. Menn fá náin kynni af Paris, — einni glæsilegustu stórborg heims, og hinni sér- stæðu stemningu Rinarbyggðar- innar og dvelja í heila viku á einum unaðslegasta stað, sem fjallalandið Sviss hefur upp á að bjóða. Að óreyndu þykir sumum nóg um slik rólegheit, en að ferð lokinni hafa menn eigi átt nógu sterk orð að lýsa ánægju sinni með dvölina í Luzem, sem flestir kalla Para- dís á jörð, og hefðu kosið að geta dvalizt þar miklu lengur. Auk óvenjulegrar náttúrufeg- urðar býður Luzern m. a. upp á skemmtilegar gönguferðir í gróðurríku umhverfi eða nota- legu bæjarhverfi, siglingar og sund í Vierwaldstatter-vatninu, kvöldskemmtanir og ódýran spilabanka. — Þá skipuleggur Sunna ógleymanlega fjallaferð og tveggja daga Italíuferð með- an sæluvikan stendur yfir. I heimleiðinni gefst tækifæri til dvaiar í Kaupmannahöfn eða London. Gott ferðalag seður eym ekki síður en augu, það er listin að skoða lönd og hlusta á æðaslög þjóða þeirra — og koma 6- þreyttur heim . Lítið um ferðir Islendinga til Mexíkó, segir Njáll Simonarson, Sögu lyTexíkó er vinsælt ferða- 1 mannaland, og ferðamanna straumurinn þangað eykst hröð um skrefum. Lítið hefur þó ver- ið um ferðir Islendinga þangað suður, og hefur fjarlægðin sennilega vaxið mönnum í aug- um. Staðreyndin er samt sú, að i dag er hægt að fljúga frá Reykjavík til Mexikó á svipuð- um tíma og það tekur mann að aka í bfl milli Akureyrar og Reykjavikur. I september mun Ferðaskrif- stofan Saga efna til fyrstu hóp- ferðarinnar héðan suður til hinnar sólriku Mexikó. Verður flogið um New York til Mexikó City í fyrsta áfanga. Meðan dvalið er i höfuðborginni verður farið í kynnisferðir og það markverðasta skoðað, svo sem hinn víðkunni „fljótandi garður“ Xochimilco, Listahöll- in, þar sem horft verður á þjóð- dansa og svo gefst mönnum auðvitað kostur á að horía á nautaat. Frá Mexíkó City veröur far- ið í átta daga ferðalag með langferðabil um sum af feg- urstu héruðum landsins. M. a. verður komið til San Miguel Allende, paradísar lista- manna og Guanajuato, sem er ein af elztu námuborgum lands ins. Þá verður siglt út I smáeyj- una Janitzio, og fylgzt með fiskveiðum Tarascan Indíán- anna, en þeir eru meðal frum- byggja landsins. Ekið verður til San Jose Puma, þar sem er að finna frægar heilsulindir, og Framh. á bls. 6. Kftvi'

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.