Vísir - 21.06.1966, Blaðsíða 6

Vísir - 21.06.1966, Blaðsíða 6
6 VI S I R . Þrið'/Bidagur 21. júní 1968. Blaðið Suddeutscche Zeitung birtir þessa skopmynd varðandl Moskvu- helmsðkn De Gaulie. Fyrirmyndin er úr ævintýrinu um Rauðhettu. Amma gamla (rússneski bjömlnn) liggur i rúminu og Rauðhettu (De Gaulle) verður starsýnt á hana og segir líkt og í ævintýri: „Æ, hvað þú ert skritinn, amma“ De Gaulle í Moskvu De Gaulle Frakklandsforseti lagði i af stað í dag árdegls til Moskvu í| einkaþotu af Caravelle-gerð. Heim, sókn forsetans i Sovétríkjunum stendur i 12 daga. Meiri viöbúnaður er undir komu De Gaulle til Moskvu en dæmi eru til áður fyrir komu erlends þjóð- höfðingja og ber sá undirbúningur vitni hve mikilvæga sovétleiðtog- amir telja heimsóknina. Heyrzt hef ur m.a. aö De Gaulle veröi boðið fyrstum erlendra manna 1 stöð þar sem geimförum er skotið á Joft. Stjómmálafréttaritarar benda á, að sovétstjómin aðhyllist þá stefnu De Gaulle að draga úr áhrifum Banda ríkjanna í Evrópu og sé eins og hann andvíg þvf, að Vestur-Þýzka- land fái kjarnorkuvopn eða hlut- deild í stjóm þeirra. Búizt er við samkomulagi um aukin viðskipti og menningarlegt samstarf og að þótt sennilega verði enginn sáttm. gerður verði heimsóknin til þess að treysta samstarf Sovétríkjanna og Frakklands. De Gaulle forseta var haldin mik il veizla 1 Kreml í gær. í ræðu mælti hann þar eindregið með sam starfi milli Frakklands og Sovét- ríkjanna til þess að uppræta þá stirfni l erfiðleika, sem eru í afstöðu og breytni milli vestrænu ríkjanna annars vegar og hinna aust lægu hins vegar. Hann kvað aukið samstarf milli Frakklands og Sovétríkjanna mundu verða til þess að hjálpa Evr ópuþjóðunum að komast á þá braut sem leiðir til einingar og jafnvægis og friðar 1 heiminum. Podgomij forseti svaraði ræðunni og sagði, að Frakkland og Sovétrík in gætu sameiginlega látið áhrifa sinna gæta annars staðar á jörðinni þar sem „nú geisar styrjöld." VIÐRÆÐURNAR HÓFUST f MORGUN. Viðræðumar hófust 1 morgun og fara þær fram í Jeketerinskisalnum i Kreml. Auk De Gaulle forseta taka þátt í þeim: Couvé de Murville i utanríkisráðherra og Philippe Baud I et ambassador Frakklands f Mosk- vu, en af hálfu Sovétríkjanna Leonid Breshnev, flokksleiðtoginn Alexei Kosygin forsætisráðherra, Nicolai Podgormisj forseti og Andr- ei Gromiko utanríkisráðherra. ENGINN SÁTTMÁLI. Menn ætla að heimsóknin muni leiða til mjög aukins samstarfs milli Frakka og Rússa á stjómmálsviðinu en yfirleitt hefur verið talið, að ekki mundi verða gerður neinn sérstak- ur sáttmáli. Undir þetta álit hefir tekið sein- ast McGeorge Bundy fyrrverandi ráðunautur Kennedys heitins for- seta og sfðar Johnsons (Bundy var 5 ár í Hvíta húsinu) og sagði hann fyrir þingnefnd f gær, að það væri fjarstæða að ætla, að nokkur sér- stakur sáttmáli yrði gerður. Hann gagnrýndi annars utanríkisstefnu Frakka og kvað hana bera ábyrgð- arlevsi vitni. Síldin — Framh. af bls. 1. Norska eftirlitsskipið, Nom- in, kom til Seyðisf jarðar 17. júnf og á, það að fylgjast með norsku sfldarskipunum á miðunum f sumar. Búizt er víð að um 50 norsk skip stundi veiðar hér og sennilega miklu fleiri, ef . veiðin við Noreg gengur illa. Þessi skip tilkynntu um afla siðasta sólarhring. Raufarhöfn: Jörundur II 160 tonn, Helga 150, Sæúlfur 130. Dalatangi: Seley 130 tonn Jón ---------------------t-------------------------- Maðurinn minn og faðir okkar < KRISTINN ÁRMANNSSON, fyrrv. rektor verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 23. júní kl. 13,30. Blóm em vinsamlega afbeðin. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á minningarsjóð um hann við Menntaskólann í Reykjavík. Gjöfum er veitt viðtaka f skrif- stofu skólans og í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. Þóra Ámadóttlr og böm Finnsson 100, Þórður Jónasson 150, Sóley 60, Guðbjörg GK 20 Guðbjörg OF 50 Sigurfari 25 Keflvíkingur 50, Sigurvon 45, Guðbjörg ÍS 40, Guðmundur Þórðarson 70, Gullberg 110, Barði 200, Helga Björg 60, ól- afur Friðbertsson 160, Þrymur 25, Lómur 40, Ólafur Magnús- son 130. Samningar — Framhald af bls. 16 er rekinn af ríkinu. í starfsstúlkna- félaginu Sókn eru um 700 meðlim ir. Gangnastúlkur á sjúkrahúsum, stúlkur sem vinna í eldhúsum sjúkrahúsa og fleiri eru meðlimir þess. Drukknun — Framhald af bls. 16 Guðmundi, en það bar ekki ár- angur. Eftir að vonlaust var að bjarga Guðmundi, sigldu þeir aftur til lands og tókst piltin- um að stöðva vélina rétt áður en þeir sigldu upp í grýtta fjör- una. Prestoköll — Framh. af bls. 1. en á eftir erindunum verður málinu vísað til umræðuhópa. Má búast við miklum umræðum um þetta mál, sem leggja á fyrir kirkjuþing I haust og síðan fyrir Alþingi. Fara umræðumar fram f Hátíða- sal Háskólans. Prestastefnan stendur yfir í þrjá daga en að henni lokinni verðuri aðalfundur Prestafélags íslands á föstudag. Við guðsþjónustuna í Dómkirkj- unni í morgun predikaði séra Þorl bergur Kristjánsson í Bolungarvfk en fyrir altari voru séra Birgir Snæbjömsson frá Akureyri og séra Magnús Guðjónsson, Eyrarbakka. Eftir guðsþjónustuna géngu hempuklæddir prestar í kirkjugarö inn og lögðu blómsveig á leiði dr. Jóns Helgasonar biskups. 1 kvöld flytur séra Jón Guðnason útvarps erindi um biskupinn., f dag kl. 2 flytur biskupinn, herra Sigurbjöm Einarsson yfirlits skýrslu sfna, en að henni lokinni hefjast umræður þær, sem skýrt hefur verið frá á undan. Loftleiðir — Framh. af bls. 1, og Viscount vél Flugfélagsins tekur enn færrl farþega, en þess ar tvsr tegundlr en þær teg- undir sem fslenzku flugfélögin nota á leiðum ttl og frá SAS- löndunum. Á þessu stigi málsins hefur Ss- lenzka utanríkisráðuneytið með málið að gera fyrir hönd Loft leiða og hafði blaðið f morgun samband við Níels P. Sigurðs- son, deildarstjóra þar og spurð ist fyrir um gang mála. Nfels sagði, að hinn íslenzki aðili í málinu hefði farið fram á viðræðufund allra aðilanna síðar í sumar og hefði sá fundur verið ákveðinn í Kaupmanna- höfn í lok ágústmánaðar. Gang ur málsins hafði verið hugsaður sá, að hinn íslenzki aðili gerði tillögur sínar í málinu og sfðan gerðu SAS-löndin sínar athuga semdir við þær, af þau hefðu einhverjar athugasemdir fram að færa, og ætti þessu að vera Iok ið fyrir byrjun fundarins f Höfn í lok ágústmánaðar. Níels sagði það því rangt, sem hefði komið fram í blöðum, að SAS-löndin hefðu sett þau skilyrði fyrir lend ingarleyfi Loftleiða i þeim lönd uro að Loftlelðir hækkuðu far- gjöld sín til móts við fargjald það sem er hjá SAS flugfélaginu og öðrum IATA félögum og að auki fengju Loftleiðir ekki að fljúga með fullar vélar til og fró þessum löndum. Slíkar kröfur hefðu ekki komið fram, sem von legt væri, því eins og hann hefði sagt áður, væri það ekki í verka hring þessara aðila að gera til- Iögur á þessu stigi málsins, held ur hins íslenzka aðila. Bændur Framhald af bls. 16 ina við Iausn málsins ásamt stjórn Stéttarsambandsins og Framleiðsluráði. í þessa sex manna nefnd voru kosnir; Af Suðurlandi: Ölver Karlsson Þjórsártúni og Sigmundur Sig- urðsson, Syðra-Langholti. Af Norðurlandi eystra: Stefán Val- geirsson, Auðbrekku. Af Norð- urlandi vestra: Pálmi Jónsson, Akri. Af Vesturlandi: Guðmund ur Ingi Kristjánsson, Kirkjubóli. Af Austurlandi: Friðrik Sigur- jónsson, Ytri-Hlíð, Vopnafirði. Kórar — Framhald af bls. 16 reyna að halda slík mót fram- vegis á fimm ára fresti. Hingað til landsins eru mættir kórmenn fjögurra kóra erlendra ásamt söngstjórum, yfirmönnum og eiginkonum, alls 168 gestir. Lögreglustjórinn I Reykjav:k, Sigurjón Sigurðsson setti nor- ræna lögreglukóramótið í gær við Sjómannaskólann, en þar hafa hinir erlendu gestir aðset- ur. Að loknum kvöldverði var síðan æfing og í morgun var samæfing kóranna. Verður úti- söngnum í kvöld hagað þannig að fyrst syngur hver kór 2—3 lög, en að lokum syngja þeir allir saman eitt lag frá hverju landi. Hefst útisöngurinn með því aö allir kóramir syngja saman lag, sem Páll ísólfsson hefur gert og helgað mótinu en. textinn er „Á samhljóma vængjum" eftir Steingrím Thor' steinsson. Lýkur útisöngnum. einnig með þessu lagi. Reykjavíkurborg bauð til há-. degisverðar I dag og síðan var farið I kynnisferð um borgina. Á morgun verður farið i ferða- lag austur að Skálholti og veriS- ur helgistund í Skálholtsdóm- kirkju. Flytur Ingólfur Guð- mundsson á Mosfelli, sem eir fyrrverandi lögregluþjónn bæin og ávarp. Að athöfn lokinni leikur Páll Kr. Pálsson orjsel- verk eftir Pál Isólfsson. Á fimmtudagskvöld verða út- varpsupptökur og kl. 17.15 verða tónleikar í Háskóla,bíói og verður þangað boðið ö'ilum þeim sem studdu LögregltfRór- inn við undirbúning mó'tsins. Um kvöldið verður síðan kveðju hóf. Allir þátttakendur 1 lögueglu- kóramótinu munu bera merki mótsins en það teiknaði CMafur Guðmundsson lögregluþjánn og er það byggt upp á lögreglu- stjömunni og fánum bfierður- landanna og merkj Reykjavíkur komið fyifir í hinum sex horn- um stjöriHinnar. FormaiJur Lögreglukórsins er Ingólfur borsteinsson en fram- kvæmdast jóri mótsins er söng- stjórinn, ,'Páll Kr. Pálsson. Útsým — Framh. af bls 9 legum borgarbrag. Einn daginn verður skoðunarferð um borg- ina, m., a. Schönbrunn, Stephans dóml.ic'kju og Beethovenhúsið, en anaars er tilhögun frjáls. Hér minnifr hvert fótmál á líf snill- inga, sem lifðu í sárri fátækt á veraldarvísu en eftirlétu heim- inu: ódauðleg listaverk af auð- legð anda síns. Áletranir á veggjum húsanna minna á, að hér bjó Beethoven eitt sinn, þama samdi Mozart Töfraflaut- unn,. hér bjuggu Grillparzer og Schubert og svo mætti lengi telfja. Efnt verður til ferðar í V-'toiarskóg og Grinzing, og 4 dagar llða fljótt við glaum og gkíði i Vínarborg. Þaðan verður flogið til Dubrovnik á Dalmatíu- stjrönd Júgóslavíu og dvalizt þar á yndisfögrum baðstað síðustu víku ferðalagsins. Fyrr á öldum var Dubrovnik keppinautur .Feneyja, og hvítir múrar hennar :gnæfa enn stoltir og tígulegir og vitna um veldi og forna frægð. , Gist verður i hinu nýbyggða hóteli Argentína, bezta hóteli í borginni, og hafa öll herbergi einkabað og sólsvalir með út- sýni yfir hafið. Á síðari árum er Júgóslavía orðin eitt vinsæl- asta ferðamannaland Evrópu og Dubrovnik er þekkt nafn í ferða mannaheiminum, enda vinsæl- asti sumardvalarstaður landsins, þar sem ein af tónlistar- og leiklistarhátíðum álfunnar er sett á svið í heillandi umhverfi i júli og ágústmánuði ár hvert. Fagurt landslag, litríkur suð- rænn gróður, nýtízkuhótel, glampandi sólskin yfir hvítum baðströndum og dimmbláum haffleti er baksvið þðSs sumar- leyfis, sem hér bíður sólþyrstra íslendinga. Að lokum gefst þátt- takendum kostur á að dveljast nokkra daga í London á heim- leið. Svo vinsæl er Dubrovnik, að fjöldi Norðurlandabúa, sem eitt sinn hefur komið þangað, sækir þangað ár eftir ár. Saga — heimsótt ein af Iitskrúðugustu borgum Mexíkó, silfurborgin Taxco. Frá Taxco verður haldið til Acapulco á Kyrrahafsströnd inni, en það er dýrlegur bað- staður, sem kallaður hefur ver- ið Riviera Mexíkó. Þar verður dvalið í tvo daga á baðströnd- inni í dásamlega fögru um- hverfi. Frá Acapulco verður síð- an ekiö til Mexico með við- komu í Cuernavaca. Síðasti dagurinn í höfuðborg inni er til frjálsrar ráðstöfunar fyrir ferðafólkið. Flogið veröur aftur til New York á heimleið, og þar gefst fólki kostur á að skoöa sig um í þrjá daga. HÚS TIL SÖLU íbúð á Paetreksfirði er til sölu í skiptum fyrir húseign í Reykjavík eða Kópavogi. Sími 41173. Skrifstofuhúsnæöi Til leigu ca. .'3;5 eða 60 ferm. húsnæði í Austur- stræti 6, leigist fyrir skrifstofur eða álíka rekstur. Sínrar 12644 og 17213.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.