Vísir - 21.06.1966, Blaðsíða 7

Vísir - 21.06.1966, Blaðsíða 7
VISIR. ÞHðjudagur 21. júní 196b. 7 Axel Thorsteinson: — Skyndiferð til Moskvu — II að þá geti þeir valið úr þeim Flugstöðvarbyggingum á al- þjóðaflugvöllum svipar svo mjög hverra til annarra, að þær vekja ekki sérstaka athygli ferðalanga, sem víða hafa farið. Og í Sheremetyevo-flugstöðinni, sem er í um 35 km. fjarlægð frá Moskvu, 0£ er alþjóðaflugstöð hennar, eru byggingar, skipulag og afgreiðslutilhögun með sama hætti og gengur og gerist í slík- um flugstöðvum í öðrum lönd- um — aðeins nafn borgarinnar á rússnesku MOCKBA — með risastórum stöfum á aðalbygg- ingunni, vakti sérstaklega at- hygli mína. Öll afgreiðsla gekk mjög greiðlega. Vegabréf voru tekin til skoðunar sem að lik- um lætur, en öllum farþegum afhent þau aftur áður en ekið var til borgarinnar. Fyrir voru til þess að taka á móti okkur fulltrúar INTOUR- IST — ferðaskrifstofu ríkisins — þeirra meðal tvær stúlkur, stiga hiti á Celsius — komst upp í 36 stig mest meðan við dvöldumst í borginni, en ekki var hitinn, að mér fannst til ó- þæginda, á leið til gisthússins, enda var þetta snemma morg- uns. Hotel National er í miðri borginni og handan torgsins fyrir framan það blasir við Kreml og Rauða torgið. Er ég renndi augum þangað áður en inn var farið fannst mér það enn mikilfengri sjón en mig hafði grunað, að líta sólu roðin hin gullnu hjálmþök kirknanna í Kreml. „Hotel National" er í gamalli, en mikilli ’ byggingu, og minnti mig i ýmsu á gömul frönsk gisti hús, sem ég hefi gist í, í París og víðar. í allrúmgóðum forsal var afgreiðsla sem að líkum lætur, blaða og póstkortasala o. fl. en til vinstri allmikill salur, þar sem menn geta setið og hvílst, og þar er upplýsinga- skrifstofan og alþjóðabúðin því starfi. Hver okkar frétta- manna um sig fékk í rauninni íbúð til umráða, stórt íveru- herbergi, með skrifborði og síma, hægindastólum og borð- um, og úr því innangengt í lítið svefnherbergi með fyrirhengi, og sér baðherbergi við hliðina á svefnherberginu. Allt var hreint og þokkalegt. Gólf í herbergjum og göngum teppalögð. Geta vil ég þess, að gist hefi ég í gisti- húsi í París sem gestur opin- berrar stofnunar, þar sem þrifn- aður þoldi ekki samanburð hvað hreinleika snertir við National. KETILKAFFI. Morgunverðar neyttum við í gistihúsinu, en annarra máltíða í öðrum gistihúsum eða mat- stofum. Við fórum víst allir í bað félagarnir hver í sínu „ríki“ eftir komuna í gistihúsið og vorum nokkuð síðbúnir til morgunverðar. Morgunverðar- tíma raunverulega lokið, er við kunnu þó fáein orð í ensku og allt bjargaðist, en stúlkurnar í upplýsingadeildinni voru greini lega búnar að fá dágóða æfingu í að tala ensku. Það var tek- ið fram í leiðbeiningum til er- lendra ferðamanna, að þeir megi ekki búast við að hafa not af ensku nema á stærstu gistihúsunum — og raunar vart, að menn tali annað en rússnesku. en framundan er risaátak á sviði ferðamála, 40 gistihús á að reisa á næstu 5 árum, m. a. stórt gistihús í Moskvu, og einn liður þeirrar áætlunar er þjálfun starfs- liösins, og er þar enskunám innifalið. MORGUNGANGA. Þennan fyrsta dag var ekk- ert ,,á prógramminu" fyrr en kl. 13 svo að viö fórum á stjákl fréttamennirnir upp á eigin spýtur, og vil ég skjóta því hér inn í, að við vorum ávallt algerlega frjálsir ferða okkar, erlendra. — Þá vakti það þegar athygli að í þessari 6—7 millj- óna borg breiðra stræta og stórra torga er annar svipur, en vestrænna borga stórta og smárra. Mér varð hugsað til aðalgatnanna í Kaupmannahöfn Brussel, París, Lundúnum, svo að einhverjar séu nefndar, þar sem hið frjálsa framtak ríkir og samkeppni, er af leiðir að á grunnhæðum húsa við allar götur eru veitingastofur og sölubúðir, og mikil áherzla er lögð á gluggasýningar á vam- ingi, — það var svo miklu minna um þetta í Moskvu, þótt „til sé í dæminu“, aö maður rekist á gluggasýningar, og þær fáu, sem ég sá voru smekk- legar. Við héldum, félagarnir í átt- ina til Rauða torgsins og Kremlturna — Þótt við vissum, að til stæði að fara þangaö síðar við leiðsögn. Þar sem ekki mátti fara styztu leið yfir torgið fyrir framan gistihúsið — urðum viö aö taka á okkur krók nokk- um, og á tveim stöðum á leið- inni var farið um stiga og göng undir akbraut, til þess að kom- Leiðin lá um grafhýsi Lenins helgidóma Kremlkirkna sem áttu að vera túlkar okkar og til leiðbeiningar og annarrar aðstoðar. — önnur þeirra — Zoya Kurancheva, reyndist á- gætlega fær í enskri tungu og hafði jafnan greið og ýtarleg svör á takteinum, hvað sem um var spurt. Sjálfur Vladimir I. Babkin, ráðherra og yfirmaður ferðamála, bar það lof á hana, er við sátum fund meö honum og helztu starfsmönnum hans í Intourist, að hún væri fremst allra hvað hæfileika og reynslu snertir í hópi hinna mörgu, sem stofnunin hefði til leiðbeiningar gestum og ferðafólki. Hin stúlk- an, Nelly Katzelman, talaði sænsku og þýzku og varð ekki síður vinsæl í okkar hópi. Og Zoya Kurancheva lét dæl- una ganga á leiðinni inn f Moskvu og fræddi okkur um eitt og annað. Var frásögn hennar fjörleg og „stytti leiðina" inn i borgina, en landslag er heldur sviplítið og „lítið fyrir augaö“. . Og mun ég nú rekja það helzta, sem fyrir augun bar og á daga okkar dreif, þann stutta tíma, sem við gátum dvalið f Moskvu, og vek athygli á, að þótt við færum víða um borgina og sæjum margt, miðað við dvalartímann, voru þessi kyni. eins og að dreypa á glasi með góðum miði, sem ganga varð frá án þess að geta notið hans nema að litlu leyti. Hafa mun ég í huga, að skjóta inn í frásögnina fróðleiksmolum, og ekki mun ég geta stillt mig um að segja eitthvað frá áhrifum þeim, sem ég varð fyrir, og hugarslangri, í þessari milljóna- borg, sem er um svo margt ó- lík öðrum, sem ég hefi í komið. „HOTEL NATIONAL". Eftir þriggja stundarfjórðunga akstur var staðar numið fyrir framan Hotel National, þar sem SAS hefir aöalbækistöð sína í borginni, en þar var okkur búin gisting. Veður var hið fegursta, ekki ský á himni, og yfir 30 Hin gullnu hjálmþök kirknanna í Kreml voru sólu roðin. (minjagripasala) og ekki hægt að verzla nema fyrir erlendan gjaldevri. Slíkar verzlanir eru eru víðar og aö sjálfsögðu í flugstöðinni. „National" er eitt af mörgum gistihúsum borgar- innar, þar sem erlendir ferða- menn gista, hin eru Metropol, Berlin, Ukraina, Sovetskaya, Leningradskaya, Pekin, Minsk og Moskva. Kynni fengum við nokkur af tveimur þeirra, Metropol og Berlin, og vík að því síðar. Engin íveruherberjzi eru á grunnhæð National, heldur á c “'ri hæðum, og eru þar einnig matstofur o ,fl. í forsal niðri er ekki lyklavarzla og eftirlit eins og tíðkast í vestrænum gistihús um, — lyklavarzla er á hverri hæð fyrir sig og gegna konur vorum allir komnir I matstof- una. Fram var borinn venjuleg- ur morgunverður og gengu kon- ur um beina, og líklega hefir það verið sökum þess hve seint við komum, að „serveringin" var ósköp blátt áfram, því að ein hinna ágætu kvenna er þarna voru gekk um með gríðar stóran ketil og hellti lútsterku ketilkaffi í bolla manna, þetta var sem sagt „ekta“ ketilkaffi, eins og maður fékk í sveitinni á æskuárum, og bragðaðist vel. Hina morgnana var allt annar háttur á og framreiðslan eins og tíðkast í nútíma gistihúsum. mAlakunnAtta starfsfólksins í gistihúsinu var næsta lítil, einkum gæzlu- kvennanna á hæðunum, en þær alls engum hömlum háöir, nema að sjálfsögöu þeim sem gestum ber að sýna sínum gest gjöfum, með því að neyta þess og njóta, sem þeir reyna fyr- ir gesti sína að gera. — Þá vil ég geta þess, aö meðal norsku fréttamannana voru tveir, sem lært höföu rúss- nesku f verzlunarskóla og voru slarkfærir í talmálinu. Á morg- ungöngunni vakti þegar athygli breiðar götur og hreinlegar og mikil umferð á götunum, var hvarvetna stöðugur straumur fólks á gangstéttum, og bif- reiðaumferðin var mjög mikil, og langflestir bílanna af rúss- neskum gerðum, en innan um þó erlendir, Volkswagen og f-Ieiri, en ókunnugt er mér hvort þeir voru í eigu innlendra eða ast á gangstéttina hinum meg- in.' Var slíkt vfða. Neðanjaröar samgöngukerfi borgarirmar er víðfrægt — það er „stolt henn- ar“ vegna listaverkaskreyting- ar stöövanna, það er eins meö þær og göturnar, að þar er allt hreinlegra miklu en er í stórborgum annarra landa. Þetta bar á góma, er ég hitti sendiherra okkar dr. Kristin Guðmundsson, en hann kvað íbúa Moskvu sízt standa íbú- um Lundúna að baki í aö hirða vel trjá- og blómagarða sína, en þeir eru kunnir fyrir góða umhirðu garða sinna. GUM Er á Rauða torgið kom geng- um við fram hjá GUM, stór- verzlun í mörgum deildum, sem rekin er af ríkinu. Ekki fór- um viö þó inn þeirra erinda að verzla — tilgangurinn á þessari göngu var aðeins að njóta góða veðursins og skoða okkur um á eigin spýtur — og sáum við eftir því siðar, að hafa ekki litiö inn í GUM, því að við fengum blátt áfram ekki tækifæri til þess síðar, að heitið gæti, að verzla annars staðar en í alþjóöaverzlununum — og var þaö eingöngu vegna þess hve dvölin var stutt. — Geta vil ég þess hér meðan ég man, ef einhver vildi vita eða þyrfti um það að vita, að í rúblunni eru 100 kópek, og er verðgildið miðað við dollar 90 kópek en 2,52 rúblur jafngilda sterlings- pundi. Við létum okkur nægja að þessu sinni að renna augum úr nokkurri fjarlægð á grafhýsi Lenins og þá miklu fylkingu, sem ætlaði að leggja leið sína um það þá um daginn, en þama mun hafa verið allt að 3. kfló- metra löng breiðfylking fólks, greinilega úr öllum áttum hins víðlenda Sovét-samveldis og mjög margt ferðamanna erlend- is frá. HJARTA BORGARINNAR — OG ALLS SOVÉTSAMVELDIS- INS. Þegar við næst komum þama og nú við leiðsögn Zoyu Kuran- chevu var sama góðviöriö og enn heitara — 36 stiga hiti þeg- Framh. á bls. 5.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.