Vísir - 26.07.1966, Qupperneq 6
o
V í S IR . Þriðjudagur 26. júlí 1966.
Laugaráskirkja —
Framhald at' bls. 16
Jensson, sem trúnaðarmann
nefndarinnar.
Þessum 17 tillögum, sem bár-
ust hefur verið komið upp í hús
næði Arkitektafélagsins að
Laugavegi 26 og lýsti formaöur
dómnefndar, Þór Sandholt,
mati hennar við opnun þeirrar
sérstæðu sýningar í gær. Kvað
hann kirkjubyggingar hafa orð
fyrir að vera eitt skemmtileg-
asta verkefni, sem arkitektar
fengjust við, enda sýndi þessi
samkeppni aö svo væri. Störf
nefndarinnar sagði hann, hefðu
verið allvandasöm. Rökstuddi
hann lítillega mat nefndarinnar.
Megin kostir 1. verðlaunatillög-
unnar væru heiliegt og sterkt
form í sannfærandi samstillingu
við land og umhverfi, auk þess
að innra skipulag væri hentugt
og uppbygging yrði einföld.
Lax —
Framh af bls. 1.
gengið 1540 Iaxar í gegnum
hann.
Bezti veiðidagurinn í sumar
var s.l. sunnudag. Þá veiddust
39 laxar á þrjár stangir. Heppn-
asti veiðimaðurinn í sumar er
Kristján Sigurmundsson. Hann
hefux tvívegis fengið 14 laxa f
ánni, en hefur auk þess veitt
stærsta laxinn, rúmlega 16
punda. Athyglisvert er að Krist-
ján hefur fengið mikinn fjölda
af sínum löxum á flugu, en
Kristján er ekki einsdæmi um
það, heldur hafa fengizt yfir
100 laxar á flugu í Elliðaánum
í sumar.
Bezti veiðistaðurinn í sumar
hefur verið fyrir neðan fossinn.
Þar hafa fengizt nálægt 100
laxar eða um fjórði hlutinn af
allri veiðinni í sumar.
Mjög skiptar skoðanir eru á.
meðal Iaxveiðimanna, hvaða á-
hrif breytingarnar við ósinn
hafi haft. Flestir telja að neðsti
hylurinn hafi eyðilagzt við
breytingarnar, en einnig telja
flestir að laxinn eigi nú auð-
veldara með að ganga upp í
smástreymi og geri það rekar.
Verðfall —
Framhald af bls. 16
fyrir henni. Það mun ekki að-
eins hafa áhrif á söluverð á
freðfiski okkar 1 V.-Evrópu og
Bandaríkjunum, heldur mun
þessi lækkun einnig geta haft
áhrif á verð á fiski til A.-Evrópu
landanna.
Eins og skýrt var frá í blöð-
um fyrr í sumar varð töluvert
verðfall á fiskimjöli og lýsi á
heimsmarkaðinum í vor. Stafaði
það af miklum síldveiðum á
Noröursjónum og við Perú.
Verðið á þessum vörum hefur
þó eitthvað þokazt upp á við
aftur.
Sjónvarp —
Framhald af bls. 16
spurði hann, hvort Ríkisútvarpið
hefði ákveðið einhverjar gagnráö-
stafanir í málinu. „Nei, það hef-
ur ekkert verið ákveðið, hvað gera
skuli."
— Var ekki fundur í útvarps-
ráði i gær?
— Nei, það var enginn fundur
í útvarpsráði í gær, en í dag verður
ef til vill fundur í því, en það er
aðeins venjulegur fundur.
— Getið þér sagt um, hvort mál-
ið verði tekiö fyrir þar?
— Það getur vel verið aö svo
verði.
Skýrsla —
Framhald af bls. 16
far. Sú síld sem veiddist fékkst
aðallega 30 til 17 sjómílur suð-
ur af Jan Mayen. Aflinn sem
barst á land í vikunni nam
9.191 lestum. Saltað var í
9.606 tunnur og 7.788 lestir
fóru í bræðslu.
Heildarmagn komið á land á
miðnætti laugardagskvölds var
169.741 lestir og skiptist þannig
eftir verkunaraðferðum:
í salt 1.738 lestir (11.895
upps. tn.) í frystingu 22 lestir. í
bræðslu 167.981 lestir.
Á sama tíma í fyrra var heild
araflinn sem hér segir: •
í salt 75.865 upps. tn. (11.076
Iestir). I frystingu 4.512 uppm.
Raftækjavinnustofa
Hef í dag opnað Raftækjavinnustofu að Sogavegi 50.
Mun ég þar annast viðgerðir á heimilistækjum. Einnig
mun ég annast nýlagnir. Viðgerðir og breytingar á
eldri raflögnum.
HARALD ISAKSEN,
Sogavegi 50. - Sími 35176.
tn. (487 lestir). í bræðslu 891.-
259 mál (120.320 lestir).
Samtals nemur þetta 131,883 1.
Helztu löndunarstaðir eru:
Reykjavík 17,476, Bolungarvík
3.157, Siglufjörður 1.420, Ólafs-
fjörður 2.851, Hjalteyri 411,
Krossnes 6.932, Húsavik 2.342,
Raufarhöfn 27,498, Vopnafjörð-
ur 10,477, Borgarfjörður evstri
591, Seyðisfjörður 40.004, Nes-
kaupstaður 26.939, Eskifjörður
13,881, Reyðarfjörður 7.174,
Fáskrúðsfjörður 7.010, Breið-
dalsvík 879, Djúpavogur 1.762.
Evrópa —
Framh. af bls. 4
að frambúðar skipulag komist á í
Evrópu, verður það að vera á sam-
bandsríkjagrundvelli, — þá yrði að
setja á stofn Bandaríki Evrópu.
Kennan kvaðst ræða þessi rnál
meö það í huga, að um þau næð'st
friðsamlegt samkomulag, en ef Vi-
etnamstyrjöldin leiddi til heims-
styrjaldar væri framtíð Evrópu eins
ótrygg og nokkurrar annar heims-
álfu. Hann kvaðst þó vona og trúa
að Vietnamstyrjöldin yrði leidd til
lykta með friðsamlegu samkomu-
lagi. (Þýtt). a.
Hruni —
Framh. af bls 9
X.
fkg loks eru það örlög Hruna
kirkju hinnar fomu, þeirrar
sem stóð uppi á Hrunanum.
Samkvæmt þjóðsögunni var
eitt sinn prestur í Hruna, sem
mjög var gefinn fyrir skemmt-
anir og • gleðskap. Lagði hann
það í venju sina jólanótt hverja
að efna til dansferðar mikillar
í Hrunakirkju, ásamt tilheyr-
andi drykkju og spilamennsku
langt fram eftir nóttu áður en
hann hóf émbættisgjðfð.
Móðir .prests hét Una og var
henni þetta athæfi sonar síns
mjög á móti skapi. Hafði hún
ítrekað orð á því við prest að
hann léti af þessu athæfi sínu,
en hann sinnti því ekki og hélt
uppteknum hætti eftir sem áð-
ur. Svo var það eina jólanótt-
ina að gleðskapurinn stóð eitt-
hvað lengur en venjulega og
kom að því að Unu prestsmóður
var nóg boðið. Lagði hún leið
sína út í kirkju og bað son sinn
að hætta dansinum og byrja að
messa. Prestur kvaðst vilja
dansa einn hring til og kvað
nægan tíma vera til guðsþjón-
ustunnar. Þá gekk móðir hans
út, en á leiðinni fram kirkju-
gólfið heyrði hún eftirfarandi
visu kveðna:
Hátt lætur í Hruna
hirðar þangað bruna;
Svo skal dansinn duna,
að drengir megi það muna.
Enn er hún Una,
og enn er hún Una.
Maður stóð fyrir utan kirkju-
dymar þegar Una kom út, var
sá ljótur og ófrýnn og þóttist
hún vita að þetta væri myrkra-
höfðinginn sjálfur. Náði hún
sér í hest og reið allt hvað af
tók til næsta prests, ef hann
gæti með einhverjum ráðum
afstýrt yfirvofandi ógæfu.
Presturinn varð við tilmælum
hennar og fór með henni upp
að Hruna, en þegar þangað
kom var kirkjan og kirkjugarð-
urinn horfinn svo ekki sá urmul
eftir. Hafði hvort tveggja sokk-
ið í jörð niður og heyrðist enn
ýlfur, gaul og vein niðri í jörð-
inni. Eftir þetta, segir sagan,
var kirkjan flutt niður fyrir
Hrunann, þangað sem hún er
nú, enda hefur aldrei verið
dansað síðan á jólanótt 1
Hrunakirkju.
TILKYNNING
um framlagningu skattskráa Reykjanesum-
dæmis og útsvarsskráa eftirtalinna sveitar-
félaga:
Keflavíkurkaupstaðar
Kópavogskaupstaðar
Hafnarfjarðarkaupstaðar
Grindavíkurkaupstaðar
Miðneshrepps
Gerðahrepps
Njarðvíkurhrepps
Garðahrepps
Seltjarnarneshrepps
Mosfellshrepps.
Skattskrár allra sveitarfélaga og Keflavíkurflugvaílar í
Reykjanesumdæmi, ásamt útsvarsskrám ofangreindra
sveitarfélaga, liggja frammi frá 26. júlí til 8. ágúst að báð-
um dögum meðtöldum. Skrárnar liggja frammi á eftir-
greindum stöðum:
1 KÓPAVOGI:
Á skattstofu Kópavogsbæjar og hjá umboösmanni á annarri
hæð Félagsheimilisins. Skrifstofa umboösmanns verður op-
in kl. 1 e. h. til kl. 7 e. h. dagana 26. júit og 27. júlt, en
síðan alla virka daga nema laugardaga kl. 4 til ki. 7 e.h.
í HAFNARFIRÐI:
Á skrifstofu Hafnarfjaröarbæjar og á skattstofunnL
I KEFLAVIK:
Hjá umboðsmanni á skrifstofu Keflavíkurbæjar.
Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI:
Hjá umboðsmanni Guðmundi Gunnlaugssyni á skrifstofu
flugmálastjómarinnar.
í HREPPUM:
Hjá umboösmönnum og á skrifstofum fyrrgreindra sveitar-
félaga.
I skattskrám alls umdæmisins eru eftirtalin gjöld:
1. Tekjuskattur
2. Eignaskattur
3. Námsbókagjald
4. Almannatryggingagjöld
5. Lífeyristryggingargjald atvinnurekenda
6. Atvinnuleysistryggingargjald
7. Iðnlánasjóðsgjald
8. Launaskattur (ógreiddur).
Sérstök skrá yfir álögð iöngjöld einstaklinga liggur frammi
meö skattskránni, en iðngjöld félaga birtast í skattskránni.
í skattskrá umdæmisins verða einnig kirkjugjöld og kirkju-
garðsgjöld, þar sem sóknamefndir og kirkjugarðsstjómir
hafa óskað þess.
í þeim sveitarfélögum, er talin em fyrst upp í auglýsingu
þessari, eru eftirtalin gjöld til viðbótar áður upptöldum
gjöldum:
1. Tekju- og eignaútsvar
2. Aðstöðugjald.
Innifalið í tekju- og eignaskatti er 1% álag til Bygginga-
sjóðs ríkisins.
Kærufrestur vegna tekju- og eignaútsvars, útsvars, að-
stööugjalds, iðnlánasjóðsgjalds, launaskatts og iðngjalds,
er til loka dagsins 8. ágúst 1966.
Kærur vegna útsvars skulu sendar viðkomandi framtals-
nefnd, en vegna annarra gjalda Skattstofu Reykjanesum-
dæmis, Hafnarfirði, eða umboðsmanns í heimasveit.
Kærur skulu vera skriflegar og skulu hafa borizt réttum
úrskurðaraðila í sfðasta lagi að kvöldi 8. ágúst 1966.
Álagningarseðlar, er sýna gjöld og gjaldstofna verða sendir
til allra framteljenda. Jafnframt liggja frammi á Skattstofu
Reykjanesumdæmis í Hafnarfirði skrár um álagðan sölu-
skatt í Reykjanesumdæmi áriö 1966.
Hafnarfirði, 25. júlí 1966.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi.