Vísir


Vísir - 26.07.1966, Qupperneq 9

Vísir - 26.07.1966, Qupperneq 9
9 V í SI R . Þriðjudagur 26. júli líiötí. árum eftir fæðingu Gissurar — nánar tiltekið 1223 — og var þá brúðkaupsveizla mikil háð í Hruna. Þar gekk Sturla Sig- hvatsson að eiga Solveigu Sæ- mundardóttur og meðal boðs- gesxa var að sjálfsögðu faðir brúðgumans, Sighvatur Sturlu- son, sem var aldavinur Þorvald- ar f Hruna. Þorvaldur bóndi vildi sýria Sighvati böm sín. Leiddi fyrst fyrir hann börn sín og Jóru biskupsdóttur og lét Sighvatur svo ummælt að fá börn mundu mennilegri á landinu. Þá leiddi Þorvaldur böm Þóru fram, stóð Gissur fremstur þeirra og hélt faðir hans £ hönd honum. „Hér er nú ástin mín, Sighvatur bóndi", sagði Þorvaldur, „og þætti mér alimiklu varða, að þér litist giftusamlega á þennan rnann". Sighvatur varð fár við og horfði langa stund á sveininn. En Gissur var höfðingjadjarfur þótt ungur væri og horfði óhik- að og hvasst í augu Sighvats. Þá mælti Sighvatur, og held- ur stutt: „Ekki er mér um ygli- brún þá“. Og sennilega mun hafa læðzt að Dalahöfðingjan- biskups að hann skyidi feia kaþólskum manni jafn mikil- væg og ábyrgðarmikil störf og hafði Jón prestur þó gengið í berhögg, ásamt fimm prestum Skálholtsbiskupsdæmis öðrum, með því að neita að samþykkja kirkjuskipunina nýju. En Jón Héðinsson virðist hafa verið miklum hæfileikum búinn, djarfur til athafna og ákveðinn í skoðunum. Þegar Diðrik frá Mynden kom í Skálholt 1540, og veittist þar með offorsi og yfirgangi að Ögmundi biskupi sem þá var blindur og gamlaður orðinn, var Jón Héðinsson þar ráðsmaður. Honum þótti nóg um aðfarir hins útlenda ofstopamanns og er sagt að hann hafi gengið á hljóðskraf við Ögmund biskup, og það eina sem menn heyrðu var það að biskup sagði í lok samtalsins „Ráða muntu verk- um þínum séra Jón Héðinsson". En Jón safnaði, sem kunnugt er, liði og lét drepa Diðrik og sveina hans alla. Þótti það þurftarverk. VI. TL’inn þáttur þessara mann- víga árið 1540 fór fram í Séð af þjóðveginum upp í Hrunamannahrepp. HRUNAMANNAHREPP um einhver óljós uggur af unga piitinum frá Hruna. Frá því er ennfremur sagt í Sturlungu að er brúðkaupinu í Hruna lauk, hafi Þorvaldur bóndi riðið á leið með Sighvati vini sínum. Áður en þeir skildu stigu þeir af baki og ræddu raargt um vináttu sína. „Þess vildi ég biðja þig, Þorvaldur", sagði Dalakempan, „að við gætum svo til með sonum okkar, að þeir haldi vel vináttu með frændsemi" Þorvaldur leit niður fyrir sig — og heldur áhyggjusamlega. Hann svaraði: „Gætt mun, meðan við lifum báðir“. Þetta virðist hafa reynzt orð að sönnu, því Þorvaldur bóndi var dáinn þá er Apavatnsför varð, en þar skarst að fullu i odda meðal Haukdæla og Sturlunga og eftir það var ekki nema um líf og dauða, upphefð eða tortímingu þessara voldug- ustu ætta íslands að ræða. V. thi íslandssagan heldur áfram í Hruna. Þar var prestur um siðaskiptin Jón Héðinsson, rauðkollur kallaður. Hann neit- aði að láta af kaþólskum sið og lét fyrir bragðið af prestskap í Hruna árið 1542. Jón rauð- kollur gegndi um fjölda ára ráðsmannsstörfum í Skálholti, og var þar officialis, ekki að- eins í tíð Ögmundar Pálssonar síðasta kaþólska biskupsins á Skálholtsstól, heldur einnig i tið Gissurar Einarssonar fyrsta Iútherska biskupsins á staðnum. Þótti það bera vitni um frjáls- lyndi og hyggindi Gissurar Hruna. Þannig var mál með vexti að snemma í ágústmán- uði þetta ár gerði Diðrik fógeti ferð sína frá Bessastöðum við tíunda mann og ætlaði sér að taka klaustrin í Þykkvabæ og Kirkjubæ og reka klausturbúa úr þeim eins og hann hafði gert við Viðeyjarklaustur áður. En þegar hann kom austur aö Ölfusá datt honum skyndilega í hug að leggja lykkju á leið sína og fara upp í Skálholt til að hrella Ögmund biskup. Fór hann þangaC við áttunda mann, en tvo manna sinna sendi hann austur að Odda og bað þá að bíða sín þar. Hét annar Pétur Spons og var óþakkasælastur allra fylginauta Diðriks, en hinn hét Hans Fitt. En strax og Diðrik og menn hans höfðu verið vegnir í Skál- holti var sendiboði látinn fara austur í Odda og segja mönnum Diðriks að hann væri hættur við að fara austur um sveitir, þess í stað hefði hann ákveðið að ríða norður í land um Kjal- veg, og skildu þeir hitta hann í Hruna. Þegar þeir félagar, Pétur Spons og Hans Fitt fengu þessi skilaboð, þótti þeim þau næsta ótrúleg, en þorðu þó ekki annað en hlýða, og riðu ásamt sendi- boðanum á ákvörðunarstað. Slógu þeir upp tjaldi norðarlega á Hrunatúni og báðu um mat og drvkk, því þeir kváðust bæði vera svangir og þyrstir orðnir eftir langa ferð. Ráðsmaður séra Jóns Héðinssonar, sem Stefán hét var heima og kvað þá bráðum skyldi fá mat og drykk sem þá lysti. En á meðan þeir félagar biðu eftir máltíðinni lagði Pétur Spons sig til svefns í tjaldinu, en Hans ákvað að vaka. Ekki leið löng stund unz Hans heyrði hark mikið og er hann leit heim til Hrunans sá hann tólf menn koma þaðan alvopnaða og stefna á tjaldið. Vakti hann þá Pétur og kvaðst hyggja að í óefni myndi komið fvrir þeim, Pétur brá við fljótt, spratt á fætur, greip til vopna og hrað- aði sér út úr tjaldinu. í Biskupaannálum Jóns Eg- ilssonar segir frá þessum at- burði sem hér segir: Sá maður kom pá fyrst að Pétri, er Guð- mundur hét, hann var manna kaskastur og illfengur. Hann vann ekki á hluta Péturs og var hann þó tygjaður. Þá kom að sá maður er Jón hét og var kallaður Önnuson, hann tók upp öxi þeirra og kastaði rétt í höfuðið á Pétri um leið og hann sagði að þetta væri kveðja frá Diðrik. En sem Pétur fékk áverkann tók hann til hlaups og ætlaði heim á kirkju en Stefán ráðs- maður sá til ferða hans, hljóp í veg fyrir hann og tafði för hans unz hinir komu hlaupandi á eftir og drápu Pétur rétt við sáluhliðið. Það er af félaga Péturs, Hans Fitt að segja, að hann lagði á flótta vestur í flóðin hjá Hruna og maður á eftir honum sem Sigurður Bernarðsson hét. Sigurður dró Hans fljótlega uppi og lagði hann i gegn með spjóti sínu. Voru þeir dysjaðir þar sem Litluhólar heita. Sagnir hermdu að flestir þeirra sem stóðu að vígunum í Hruna hafi dáið með sviplegum hætti og kenndi þjóðtrúin því um að þeim hafi ómannúðlega farizt. VII. JPyrsti lútherski presturinn í Hruna, og sá sem tók við af séra Jóni Héðinssyni Skál- holtsráðsmanni hét Björn Ólafs- son. Hann var ekki mörg ár prestur í Hruna og dauða hans bar að með vélegum hætti. Hann var einhvers staðar ríð- andi á ferð, en féll af hestbaki og í fallinu varð tungan milli tannanna, svo þar óx ber eða þrimill. Þessi þrimill óx stöðugt og varð að æxli og lyktaði með því að bæði tunga og tunguræt- ur gróf úr presti. Lifði hann við hin mestu harmkvæli i heilt ár, en lézt í föstubyrjun 1568. Þá var hann svo horaður orðinn að sjá mátti liði og sinar á öll- um hans líkama „og líka til hryggjarliðanna, þeirra sem voru innan á hryggnum, hefði mátt sjá utan á kviðnum". VIII. |7nn kemur Hruni við fslands- söguna á 17. öld, og þá með nokkrum öðrum hætti en áður. Á árabilinu 1625—1663 er þar prestur að nafni Halldór Daðason, sem virðist hafa verið mektarprestur, því hann er um tvo áratugi skipaður prófast ur í Árnesþingi. Á miðjum bú- skaparárum sínum i Hruna fæddist honum sonur, sem var vatni ausinn og skírður Daði. Daði Halldórsson vígðist 28. júlí 1661 aðstoðarprestur föður ÞORSTBÍNN JÓSEPSSON: SVIPMYNDIR síns að Hruna, en 15. febrúar veturinn eftir ól Ragnheiður Brynjólfsdóttir í Skálholti honum son, sem olli megin- hneyksli þar sem biskupsdótt- irin hafði nokkru áður svarið fyrir samneyti við Daða. Daði missti við þetta prestskap og varð séra Halldór faðir hans að gjalda stórfé í rétt og ráðspjöll. Ástalíf þeirra Daða í Hruna og Ragnheiðar biskupsdóttur hefur orðið íslenzkum skáldum og rithöfundum að yrkisefni og þarf ekki annað en geta skáld- sagna Guðmundar Kambans „Skálholt" og skáldsögu Torf- hildar Hólm „Brynjólfur Sveins- son“. IX. irið 1686 vígöist útlendur maður til prests að Hruna. Hét sá Franz Ibsson, tók hann að fullu við Hrunaprestakalli árið 1689 og hélt til dauðadags. Enda þótt séra Franz væri útlendur að uppruna og talaði jafnan bjagaða íslenzku, var hann um margt mikilhæfur maður og vel látinn. Sagt er að hann hafi lagt sérstaka stund á tölvfsi og reikningslist og skrifað um þau efni bók, sem nú er þó ekki lengur kunn. Hann gerði itrekaðar tilraunir með komrækt í Hruna, sem mjög var fátítt hérlendis á þeim árum. Ekki munu þessar komræktartilraunir prestsins hafa borið þann árangur sem hann óskaði, þvi hann gafst að lokum upp við þær. 1 gömlum vísum er eftir- farandi vísa um séra Franz i Hruna: Séra Franz íbsson einna fróðastur þá brúðimar sá hann með silfrið ganga, hann krafðist hökuls og komst svo að orði: „látum vér sjá að séum vér prestar". Framh. á bls. 6.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.