Vísir - 12.09.1966, Síða 2

Vísir - 12.09.1966, Síða 2
 k KEFLA VIK OÐRU SINNIFRAMMI FYRIR ÍSLANDSBIKARNUM Keflvíkingar fagna fyrra markinu. Jón Jóhannsson sést tij vinstri á myndinni, en hann skoraöi markið. Steinhauer á Akureyri: Kastaði 14 köstum af 17 yffir 19 metra strikið Bandaríska íþróttastjarnan Ne- al Steinhauer tók bátt í fyrsta móti sínu í gærdag á Akureyri sem gestur á móti UMSK, UMSE og ÍBA, en sunnanmenn, allir úr Kópa- vogi unnu keppnina, enda þótt þeir yrðu aö fara beint af flug- velli ti] búningsklefanna. Steinhauer sýndi ótrúlega leikni í kúluvarpinu og kastaði i keppninni lengst 19.64 metra, en kastaði aö auki sýningarköst. Af 17 köstum hans voru 14 yfir 19 metra! Er þetta frábær árangur hjá þessum unga í- þróttamanni. Auk þess tók hann þátt í kringlukastinu, og kastaði 51.18. Ekki nægði það til að slá vailar- met á bessum velli. Þorst. Löve á það eftir sem áður og er það 51.57 metrar, en Þorsteinn, sem Framh. á bls. 7. lenda í þeirra höndum í annað skipti. Fyrst unnu þeir hann i hitt- eðfyrra. Lið þeirra berst vel og krafturinn og hraðinn er mjög ógn- andi. Það verður örugglega erfitt fyrir Valsmenn að lenda í úrslitum gegn Kefiavik og það skal engu spáð um úrslit þess leiks, ef til kemur. Kjartan Sigtryggsson mark- vörður og Sigurður Albertsson, mið vörður voru styrkar stoðir varnar- innar i gærdag, en Magnús Torfa-1 son var mjög ríkjandi á miðjunni. í framlínunni voru Jón Jóhannsson og Einar mjög góðir, en Rúnar hef- ur greinilega allt of lítið úthald, en það efast enginn um getu hans, þegar æfingin er fyrir hendi. KR-liðið var mjög lélegt í gær og vart hægt að hæla neinum ein- stökum fyrir frammistöðu sína. Dómari var Magnús Pétursson og verður hann að vanda sig betur en þetta í hinum erfiða Evrópubikar- leik sínum í Wales eftir rúma viku. —jbp— Rúnar „bítill“ fékk „tiltar‘ frá Magnúsi dómara. Vann KR i gærdag með 2.*0 / Laugardal Keflvíkingar hafa nú forystuna í 1. deild eftir 2:0 sigur yfir KR í gærdag á Laugardalsvellinum í Reykjavík. Þeir hafa hlotið 14 stig úr 10 leikjum sínum, en einn leikur er þá eftir og vinni Valur Þrótt í þessum leik, sem leikinn er á miðvikudagskvöldið í Laugardal, sem ekki er ólíklegt, þá munu Valur og Keflavík lenda sam- an í hreinum úrslitaleik, eins og raunar er sæmandi í rnesta knattspyrnumóti landsins. Leikurinn í gær hafði safnað til sín 5300 áhorfendum, mesta fjölda sem komið hefur í sumar til að horfa á 1. deild. Veðrið lofaði góðu og sama var að segja um knatt- spymuna fyrstu 15 mínútur leiks- ins, en eftir það var eins og allur neisti væri úr leikmönnum og lftið af skemmtilegum leik eða tækifær- um var eftir það til sýnis. Ekki hvað sizt voru það KR-ingar sem ollu vonbrigðum og þeir hreinlega hættu eftir að Jón Jóhannsson hafði skorað fyrra mark Keflavik- ur á 19. minútu. um leik, sem allflestir áhorfenda munu hafa talið að yrði spennandi og jafn leikur. Keflvíkingar náðu þó yfirhöndinni, það var meiri áhugi í leik þeirra, liðiö er gætt þeim stóra kosti að berjast alltaf, sama hve andbyrinn kann að vera mikill. Á 19. mín. tóksl Keflavík að skora sitt fyrra mark. Rúnar „bít- ill“ Júlíusson sem meira hefur lagt fyrir sig að leika tónlist á vinnu- hjúadansleikjum í félagsheimilum landsins í sumar en að leika knatt- spymu, lagði fallegan bolta fyrir miðherjann, Jón Jóhannsson, þann marksækna mann, og það var ekki að spyrja að, Jón hélt boltanum vel og komst í ágætt færi og skaut á markið eftir að Guðmundur Pét- ursson var algerlega úr jafnvægi og á leið í annað hornið. Á næstu mfnútum ógna Keflvík- ingar tvfvegis. Rúnar á fyrst gott skot rétt yfir markið, en á 24. mín. opnast vöm KR illilega hægra meg- in, en ekki tókst að skora í það skiptið, þótt litlu munaði. En seinna markið var ekki langt undan. Á 26. mínútu kemur 2 : 0 úr mikilli þvögu við KR-markið. Kefl- víkingar voru greinilega grimmari og náðu boltanum og það var Grét- ar Magnússon hægri innherji, sem kom boltanum loks inn fyrir mark- línuna, að vísu var það með naum- indum, en engu að síður var það mark. Seinni hálfleikurinn var ákaf- lega daufur og leiðinlegur á báða bóga. Eina tækifaerið, sem umtals- vert var var skot Eyleifs á 26. mín í góðu færi, hátt yfir markið. Aðrar tilraunir voru heldur máttleysisleg- ar. Keflvíkingar standa þá frammi fyrir úrslitaleik, — eða jafnvel Islandsbikarnum, sem mundi þá KR byrjs^i vel og ógnaði í þess .....'■srrstr...... é I' I' » Staðan í 1. DEILD Staðan í 1. deiltl er nú þessi: KR-Keflavík 0:2 (0:2) Jón Jóhannsson á 19. mín og Einar Magnússon á 26. mínútu. Keflavík 10 6 2 2 21:10 14 Valur 9 5 2 2 18:12 12 Akureyri 10 4 4 2 20:16 12 KP. 10 4 2 4 19:13 10 Akranes 10 2 3 5 13:21 7 Þróttur 9 0 3 6 7:28 3 CLAY VANN MILDENBERGER Cassius Clay er ósigraður eftir Evrópuferð sina. Fyrst Cooper, þá London, nú Mildenberger, þýzki Evrópumeistarinn. Erfið- astur varð sá síðastnefndi, sem Clay vann á laugardagskvöldiö I Frankfurt í 12. lotu eftir aö Þjóðverjinn var mjög illa far- inn eftir 3 „uppercut“ högg frá Clay, og dómarinn, Teddy Waltham, sá sig tilneyddan að stöðva leikinn. Mildenberger, fyrrverandi verkamaður með kraft dína- mítsins í hnefunum, var mun meiri andstæðingur fyrir Clay en Brian London og Henry Coop er fyrr í sumar í London. Hinir 40 þús. áhorfendur á Wald Stad- ion fengu að sjá góða keppni fyrir peningana og gáfu Clay kröftugt lófaklapp að lokinni keppni og stóð það í meira en minútu. Það varð snemma séð hvernig fara mundi, hinn 24 ára heims- meistari frá Kentucky var Framh á bls. 7 Mildenberger sleglnn niður og kútveltist eftir pallinum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.