Vísir - 24.09.1966, Blaðsíða 3

Vísir - 24.09.1966, Blaðsíða 3
V 1 S I R . Laugardagur 24. september 1966 m 3 í sumar hefur verið mikið um framkvæmdir á Akranesi, jafnt á vegum bæjarin sem og á veg um einstaklinga og fvrirtækja Brá Myndsjáin sér til Akraness á dögunum og tók myndir af húsum og mannvirkjum. Hefur þegar komið ein síða um Drátt arbraut Akraness h.f. en nú birt ast myndir af þeim framkvæmd um öðrum, sem áberandi voru. Verið var að undirbúa götuna Krókatún undir steypun, en í sumar hafa 3 götur aðrar verið steyptar, samanlagt töluvert á annan km. á lengd. Hefur verið variö um 3 millj. kr. í gatnagerð á vegum bæjarins í sumar. Gerð varanlegra gatna hófst ek-ki að ráði fvrr en eftir árið 1960, en síðan hefur verið gert stórátak í þeim málum á Akranesi. Er búiö að stevpa yfir 10 km. sem er um þriðjungur af götunum í bænum eða ilest allar aðalgöt- urnar. Er ráðgert að allar aðal- göturnar verði orðnar steyptar næsta haust og að allar götur verði orðnar varanlegar eftir 8 ár. Hefur ekki veriö ákveðið með hvaða hætti tengigötur og í Unnið við undirbyggingu Krókatúns, •• ■; ■ «• * Við Esjubraut eru 26 einbýlishús í smíðum. F ramkvæmdir á Akranesi búðargötur verði gerðar varan legar, en líklegt er talið að þær verði malbikaðar og olíubornar 40 íbúöir hafa verið í smíðum í bænum í sumar. Eru þær iang flestar í einbýlishúsum, en Byggingarsjóður Akraness er með eitt fjórbýlishús í smíðum til að útrýma heilsuspillandi hús næði. Auk þess er verið að reisa eitt tvíbýlishús. Við eina götuna, Esjubraut, var úthlutað 26 lóðum undir einbýlishús sem nú er unnið við af kappi. Búið er að gera fokhelda nýja byggingu við sjúkrahúsið, sem er rekið eins og fjórðungs- sjúkrahús og nýtur réttinda sem ;• ■■;. ■•:• AV- , Nýja byggingin við sjúkrahúsið á Akranesi mun stækka sjúkrahúsið um helming. Hluti byggingarinnai verður tekinn í notkun að ári. Neðn hæð bókhlöðunnar er þegar risin. slíkt. Mun sjúkrahúsið stækka um helming þegar nýja bygg- ingin verður tekin £ notkun. Hluti af byggingunni verður tek inn £ notkun þegar á næsta ári. Bæjarsjóður hefur notið stuðn- ings ýmissa aöila £ sambandi við byggingu sjúkrahússins. Má þar nefna Július bónda á Leirá, sem fór i söfnunarferð upp á eigin spýtur um sveitir Borgarfjarðar og Mýrasýslu og safnaöi um 1 millj. kr. sem hann hefur afhent til spítalans. Spftalinn nýtur enn góðs af Bióhöllinni sem Har- aldur Böðvarsson afhenti spital anum að gjöf 1942 til að standa undir rekstri l.ans. Af öðrum framkvæmdum má nefna að verið er aö reisa hús fyrir héraðsbókasafnið en hús- næðið sem það er nú til húsa í er orðið ófullnægjandi. Er nýja húsið 320 ferm. á 2 hæðum. Bvrjað er að vinna við grunn inn á nýju íþróttahúsi. Skapast þar aðstaða fyrir skólana og í- þróttafélögin á staðnum til í- þróttaiðkana. I §> Laugardalsvöflur lírslit Á morgun, sunnud. 25. sept. kl. 4 leika til úrslita VALUR - Í.B.K. Dómari: Steinn Guðmundsson. Verð aðgöngumiða: Stúka kr. 100.00 Stæði kr. 75.00. Börn kr. 25.00. Komið og sjáið mest spennandi leik ársins Hvor sigrar? Mótanefnd

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.