Vísir - 24.09.1966, Blaðsíða 6

Vísir - 24.09.1966, Blaðsíða 6
6 V í SIR. Laugardagur 24. september 1966. QSffe eldhús Síaukin sala, enn meiri fjölbreytni og fleiri gerðir. Þessi stærsta sýning á eldhúsinnréttingum hér á landi er nú flutt í ný húsakynni í mið- biki borgarinnar að Suðurlandsbraut 10 gegnt íþróttahöllinni. Ennfremur: Úrval af stálhúsgögnum, eldhús borðum og -stólum. Nýjustu gerðii af vegg skápum og skrauthillum. SKORRI H.F. Suðurlandsbraut 10. Nýr sími: 3-85-85 Moskvitch bifreiða- eigendur athugiö Geri við Moskvitch-bifreiðir. — Fljót og góð afgreiðsla. — Uppl. í síma 14113. Sölubörn — Sölubörn mætið í barnaskólunum í Reykjavík, Kópa- vogi, Silfurtúni, Hafnarfirði, Seltjarnamesi ! og á skrifstofu Sjálfsbjargar, Bræðraborgar- stíg 9 kl. 10 f.h. á morgun og seljið merki og blað Sjálfsbjargar. SJÁLFSBJÖRG ! Háseti Háseta vantar á 56 tonna trollbát. Uppl. í síma 40944. Bíll til sölu Moskvitch ’60 til sölu að Hvassaleiti 9. Bif- reiðin er í góðu ásigkomulagi. Uppl. í síma 40651. Bifreið Skuldabréf 5 manna bifreið, árg ’58 fæst gegn 3—5 ára skuldabréfi. Sími 24088. Samtökin um umferðarslysavarnir Varúð á vegum vilja vekja athygli á, að símanúmer þeirra er 2-05-35 Vakir—Keflavik Á morgun kl. 16 fer fram úrslitaleikur ís- landsmótsins í knatt* spymu á Laugardals- vellinum í Reykjavík. — Mótinu lauk svo, að Val- ur og Keflavík urðu stigahæst og þurfa því r Aætlun — Framhald at bls. 16 úr athugunum úr þessum tveim- um ferðum. í október förum við til Eyjafjarðar og verður þaö síðasta ferðin. Verður þá eink- um leitazt við að kanna hlut- verk Akureyrar sem miðstöðv- ar noröanlands. — Þrír menn hafa einkum verið í þessum ferðum, Þór Guðmundsson frá Framkvæmda bankanum, Valdimar Kristins- son frá Seðlabankanum og ég. Þá hefur Jónas Haralz, forstööu maður Efnahagsstofnunarinnar einnig farið með okkur. Við höfum skipt með okkur verkum, hefur Valdimar aðallega annazt félagsmálahliðina, Þór atvinnu- málin og ég samgöngumál og opinberar framkvæmdir. — Við skilum sérstökum skýrslum til Atvinnujöfnunar- sjóðs um hvem hluta svæöis- ins, og að lokum heildarskýrslu til rikisstjómarinnar, og verður það hin svokallaða Norðurlands áætlun. Væntum við að ljúka því verki í vetur, sagöi Bjami að lokum. Kona fyrir bíl Það slys varð í gærkvöldi laust fyrir klukkan 10 að gömul kona varð fyrir bíl á Suðurlandsbraut á móts við númer 6. Bíllinn var á leið austur götuna og virðist hafa ekið allgreitt. Konan ætlaði i að fara yfir götuna að strætisvagna \ biðskýli, er hún varð fyrir bílnum. ' Ekki var vitað um meiðsli kon-; unnar i gærkvöldi, en er hún var! flutt á slysavarðstofuna var hún ; með rænu. Hinsvegar höfðu skór hennar, gleraugu, og ýmislegt laus legt, sem hún hélt á tvístrazt ó- trúlega viða um götuna. Þá varð og slys í gær á Háa- leitisbraut. Átta ára gamall piltur, Guðmundur Engilbertsson að nafni, var þama á reiðhjóli sinu og varð fyrir bifreið. Hann slasaðist nokk- uð og var fluttur á sjúkrahús. Bílokaup 15812 VegUa hins gífurlega innflutn- ings nýrra bifreiða undanfarið getum við nú boöið vlösklptavin- lun vorum hagstæöara verö og skilmála en þekkzt hefur á nýj- , um og nýlegum bifrelöum. — Opiö til kl. 9 á hverju kvöldi alla virka daga. — Opiö til kl. 7 í dag, laugardag. — Opiö frá kl. 1—7 sunnudag. ★ Biiar viö allra hæfi. ★ Kjör viö allra hæfi. ir Komiö, skoðið, hringiö Bílakaup 1£312 SKOLAGÖTU 55 v/RAUÐARÁ að leika aukaleik um ís- landsmeistaratitilinn í ár. Stórborg ? — Framhald af bls. 16 staöahreppur, Hafnarfjöröur, Seltjarnameshreppur og sá hluti Mosfellshrepps, soVn er í Lágafells-, Varmár-, Áiafoss-, og Reykjahverfi. Ibúatala þessa svæöis var 1. desember s. I. sam tals 100.171. Frá þessu segir í fréttaþætti í nýútkomnum Fjármálatíöind- um. Slófur — Framh. af bls. 1. fór að draga úr mestu ösinni og varð afgreiðslan þá miklu við- ráðanlegri að sögn Friðriks Þórðarsonar fulltrúa. — Við höfum selt heilmikiö í dag. Komu húsmæöur í stríðum straumum og var biðröð fyrst framan af, sagði Friðrik. Mest voru tekin 10—15 slátur til eins heimilis, en algengast er að tek- in séu 3—5 slátur fyrir heimiliö. Um fimmleytið höfðum við af- greitt um 200 slátur. Kostar eitt slátur 89 kr. með hreinsuðum vömbum og sviönum og söguð um haus. Á þriðjudag byrjar slátursal- an aftur og er fjóra daga vik- unnar en þar sem ekki er slátr- að um helgina hefst salan ekki fyrr en þá. Heldur slátursalan áfram fram í þar næstu viku eða eins lengi og slátrað er daglega. Fundu 10 lík — Framhald af bls. 1. mennimir voru aðeins í tvo daga og eina nótt á jöklin- um og fundu bein og líkams- leifar af 10, sem hægt var að fullyröa um en auk þess fann leiðangurinn bein af tveimur, en ekkl er hægt að fullyrða um það að svo komnu máii, hvort þar hafa fundizt leifar af þeim tveim- ur, sem eftir eru. 12 menn vom I flugvélinni, þar af var áhöfnin 9 manns. — Þetta tókst mjög vel, sögðu íslenzku flugbjörgunarmennirii- ir, þegar fréttamaður Vísis hitti þá, úti í ísbrjótnum á ytri höfn- inni við komu þeirra í gær- kvöldi. — Við fengum mjög gott veður og vorum selfluttir upp á jökulinn með þyrlu. Við komum að jöklinum um sólarhring eftir að við fórum héðan eða snemma á miðvikudagsmorgun. Héldum við þegar upp á jökulinn og vor- um búnir að tjalda um hádegið. Þá byrjuðum við gröftinn, en um 60 cm lag af jöfnum snjó lá yfir flakinu, sem var tvístrað yfir stórt svæði. Unnum við aö grefti allan þann dag fram á kvöld og næsta dag. Um nóttina gistum við í tjöldunum. Greið- lega gekk að finna líkin, sem voru mjög illa farin og með öllu útilokað að nokkur mann- anna hafi lifað af slysið. Næst- um allar líkamsleifar, sem viö fundum, voru bein, aöeins ein höfuðkúpan var með eitthvert skinn og hár. Þegar allar þær líkamsleifar, sem búizt var við að myndu finnast og sérfræðingar banda- ríska flotans höfðu kannað flak- ið, var það sprengt upp og eldur borinn að því, sem gat brunnið. Var þaö gert til að forö ast það að flakið gæti villt fyrir £ leit að annarri flugvél, sem gæti farizt á svipuðum slóðum. Happdrætti — Framhald af bls. 16 haftakerfi. sem stjómað var ofan frá með nefndum og ráðum, boð- um og bönnum. Verzlunarhöft hafa verið leyst og gjaldeyrissjóði safnað, traust á fjármálum þjóðarinnar heilr ver- ið endurvakið erlendis og hún þar með fengið greiðan að- gang að erlendum lánsfjármarkaöi til stórframkvæmda við uppbygg- ingu atvinnulífs og stórvirkjanir í fallvötnum landsins. Hvort þessi framvinda heldur á- fram, fer eftir ákvörðun kjósenda við almennar þingkosningar næsta vor. Við Sjálfstæðismenn erum stað- ráðnir í þvi að heyja þá kosninga- baráttu með ráðum og dáð, f fullu trausti á góöan málstað. Mikið liggur við að landshapp- drætti Sjálfstæðisflokksins nú beri tilætlaöan árangur. Við heitum á hvem og einn að veita sitt liðsinni til þess, að svo megi verða. Minnumst þess, að Sjálfstæðis- flokkurinn er langstærsta stjóm- málaaflið £ þjóðlífinu. Samhugur okkar og samvinna hef ir skapað þetta sterka afl. Fjármálaráð flokksins hefir for- göngu um þetta happdrætti, sem nær til allra kjördæma landsins. Við biðjum ykkur að veita þessu máli skjóta og góða úrlausn". Rif — Framh. af bls 9 Af þessu er flest komið nema steypta akbrautin, auk þess að nokkuð vantar á stálþilið og dýpkunina. En í haust á að reka niður 150 metra langt stálþil í vinkil á það sem fyrir er og síðan á að dýpka þar við þilið og i höfninni. Þessar framkvæmdir hefjast sennilega í október — nóvember. Dýpkun Rifshafnar verður trúlega fyrsta verkefni hins nýja sanddæluskips Vita- málastjómarinnar, sem von er á til landsins með haustinu. Með þessum umbótum verö- ur gott viðlegupláss fyrir um 30 báta í Ri 'shöfn og farskip geta komizt þangað inn með góðu móti og losað og fermt við stálþilið. En stækkunarmöguleii: ar eru miklir. —0— TTér hefur lítiö verið fjallaö um útgerðar- og athafna- sögu Rifshafnar. Hún er nokk- uð þyrnum stráð eins og hafn- argerðin framan af. Fýrstu fisk- verkunarhúsin voru heldur ó- kræsilegir braggar. En nú er mikill bjarmi yfir allri útgerð i Rifi. Sveitarfélagiö á Hellissandi reisti fyrir nokkrum árum ver- búðir — aðstöðu fyrir bátana í landi. Og sveitarfélagið hygg- ur á byggingu verbúða fyrir sjó mennina i haust. Á sandinum, sem dælt var upp úr höfninni eru nú að rísa 4 myndarleg fiskverkunarhús 500—1500 ferm að flatarmáli. Ibúðarhúsum fjölgar bæði á Hellissandi og á Rifi, voru ein 14 í smíðum í fyrra og byrjað var á 4—6 húsum í sumar. Meö tímanum má bútst við aö byggö in í Rifi og á Hellissandi verði ein heild, en nú eru um 2 km á milli. Þama verður trúlega einn blómlegasti útgerðarstaður landsins innan nokkurra ára- tuga — því að aflinn bregzt ekki undir Jökli.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.