Vísir - 24.09.1966, Blaðsíða 16
VISIR
m AÐ LJÚKA
Norburlandsáætlunin verður tHbúin i vefur
— Yfirreið okkar um N'orður-
land er að verða lokið og má
búast við, að skýrslu um at-
huganir okkar og tilheyrandi
framkvæmdaáætlun verði lokið
í vetur, sagði Bjarni Einarsson,
hagfræðingur hjá Efnahags-
stofnuninni, í viðtali við Vísi í
gær.
Efnahagsstofnunin hefur £
sumar unnið að gerö Noröur-
landsáætlunar, og hefur Bjarni
Einarsson haft umsjón með á-
ætlunargerðinni. Hafa sérfræö-
ingar farið um Noröurland og
kynnt sér efnahags og atvinnu-
ástand þar, og er Bjarni ný-
kominn úr ferð um Skagafjörð.
— Við hófunv þessar ferðir
£ jún£ og fórum þá um Húna-
flóasvæðið, Strandasýslu og
Húnavatnssýslur. Víð höfum
þegar skilað skýrslu um þá ferð
til Atvinnujöfnunarsjóös. í
ágúst fórum við um austasta
hluta svæöisins, frá Ljósavatns-
skarði austur £ Vopnafjörö, þ.
e. um Þingeyjarsýslu og nyrzta
hluta Norður-Múlasýslu. Við er-
um nýkomnir úr ferð til Skaga-
fjarðar og erutn nú að vinna
1 Framh. á bls. 6.
TÍZKUÞÁTTUR
í SJÓNVARPINU
Innanlandsflugið hefur einnig stóraukizt
Sjónvarpið islenzka ætlar ekki
að gleyma kvenþjóðinni þegar það
byrjar útsendingar dagskrár. í gær
var tekinn npp þáttnr Steinunnar
S. Briem „í svipmyndum“ og fjall-
aði hann um vetrartízkuna 1966—
67. Fékk Steinunn þær Báru Sigur-
jónsdóttur og Rúnu Guðmunds-
dóttur til viðræðu um vetrartízk-
una en síðan sýndu María Guð-
kfimundsdóttir, Pálina Jónmundsdótt-
ir, Sigriður Þorvaldsdóttir og Unn-
ur Amgrímsdóttir sýnishom af
vetrartízkunni.
Fjölda gesta var boðrð að vera
við töku þáttarins og þötíS þeim
gaman að fyigjast með „að tjalda-
baki“ og biða spenntir þess að is-
lenzka dagskráin hefjist og þátt-
urinn „I svipmyndum" biríist á
skerminum.
Flugvélar Loftleiða og Flugfé-
lags íslands fluttu í millilandaflugi
á síðasta ári álika marga farþega
AAAA/WSAAAAAAA^WVy
Reykjavík
viðurkennd
stórborg?
Reykjavikursvæðið, eða Stór-
Reykjavik eins og það er stund-
um kallað, telur nú yfir 100.000
íbúa. Er Reykjavík þá komin í
tölu stórborga samkvæmt skil-
greiningu Kalifomiuháskóla í
Berkeley. Til þess þarf borgin
sjálf að telja yfir 50.000 íbúa
og þéttbýlið í borginni og um-
hverfis hana 100.000 íbúa. Verð-
ur ekki séð annað, en Reykja-
vík fullnægi öllum skilyrðum í
þessu efni. Það er stofnunin
„Intemational Urban Research“
sem heldur skrá yfir borgar-
svæði heims, er þeir kalla
„Metropolitan Areas of the
World“. Með Reykjavíkursvæð-
inu eru talin Reykjavík, Kópa-
vogur, Garðahreppur, Bessa-
Framh. á bls. 6
og íbúatala íslands er, — eða 189.
860 farþega alls. Var þetta mikil
aukning frá árinu áður, þegar far-
þegar voru 144.179. Árið 1950 var
farþegatalan aðeins 5.702, og hef-
ur hún síðan aukizt ár frá ári. í
fyrra voru farþegakílómetrar 886.
911.000 talsins í millilandaflugi.
Frá þessu segir í grein um sam-
göngur, sem birt er í nýju hefti af
Fjármálatíðindum.
Farþegaflutningar innanlands hafa
einnig stóraukizt. Flugfélagið eitt
flutti 93.489 farþega á árinu. Mest-
ir flutningar voru á leiðinni Reykja
vík-Akureyri eða 31.701, og hefur
farþegatalan rúmlega tvöfaldazt síð
an 1955. Næst í röðinni er leiðin
Reykjavík-Egilsstaðir með 17.170
farþega, og hefur farþegatalan rúm
lega fjórfaldazt á þeirri leið síðan
1955. Mikil aukning hefur líka ver-
ið á leiðunum til Eyja og ísafjarð-
ar, og er farþegatalan á fyrri leið-
inni orðin yfir 16.000 og á hinni
um 11.700.
Frá töku sjónvarpsþáttarins „í svipmyndum“ í gær. Pálína, Sigríður, Unnur og María sýna vetrartízkuna.
GlæsHegasta landshappdrættið til þessa:
Vinningsbílar yfir millj. að verðmæti
1
gjálfstæðisflokkurinn hefur nú
stofnað til glæsilegasta lands
happdrættis flokksins og
stærsta bílahappdrættis, sem
haldið hefur verið hér á landi
til þessa. Eru vinningarnir 3
bandarískir 6-manna bílar, sam-
tals að verðmæti yfir milljón
krónur. Þetta er landshapp-
drætti, en Sjálfstæðisflokkurinn
hefur ekki efnt til landshapp-
drættis nú í ll/2 ár. — Vinnings-
bifreiðirnar þrjár, Dodge Dart
’67 Plymouth Valiant ’67 og
Rambler Americán ’67, koma til
landsins á morgun með bifreiða-
flutningaskipi. Verða bifreiðirn-
ar fluttar í Miðbæinn, þegar og
búið er að afgreiða þær og þær
hafðar þar unz dregið verður,
8. nóvember.
Útsending miöanna hefst þegar
upp úr helginni. Verða rrfíðar send-
ir til stuðningsmanna og velunn-
ara Sjálfstæðisflokksins um land
allt, en auk þess verða miðar seld-
ir úr bifreiðunum í Miðbænum og
í aðalskrifstofu flokksins við Aust-
urvöll.
Með happdrættismiöunum er sent
bréf frá miðstjórn Sjálfstæðisflokks
ins og segir þar m. a.:
„Einstaklingar og félög hafa end-
urheimt frjálsræöi í viðskiptum og
atvinnuháttum og losnað úr úreltu
Frainh. á bls. 6.