Vísir - 15.10.1966, Side 6
6
VISIR . Laugardagur 15. október 1966.
„Nýbakað“ brauð úr frystinum
Þaö er gatnan aö geta boðið
upp á „nýbakaö“ brauð eða bollur
ef gesti ber óvænt að garöi og
þær húsmæður, sem eiga frysti-
kistur geta gert það án þess að
þurfa að rjúka til og fara að
baka eða hlaupa út í brauðbúð.
Flestar brauðtegundir má
frysta með góöum árangri og
geyma þannig um lengri eða
skemmri tíma — það eina sem
veröur að athuga, er, aö skorp-
an á brauðinu sé ekki of hörð
eða stökk, því að ef svo er, get-
ur hún losnað frá brauðinu.
Nú kunna þær húsmæður, sem
ekki hafa reynt frystingu brauðs
að halda að brauðið hljóti aö
missa „nýjabragðiö“, en bezta
sönnunin fyrir að svo er ekki,
hlýtur að vera sú, að frændur
vorir Danir, sem eru manna vand
látastir á allt brauðmeti,, full-
yrða, að þeir finni engan mun á
nýju brauöi og brauöi, sem hef-
ur verið fryst. rétt eftir að það
var bakað.
Þegar frysta á brauðmeti á það
að vera alveg nýbakað, en þó-
þarf það að hafa náð að kólna.
Því er pakkað inn í plastumbúöir,
lokað vel fyrir og stungið í
frystinn.
Þegar að því kemur að brauðið
skuli á borð borið, er þaö tekið
úr frystinum £ tæka tíð og þítt.
en brauðið má þ£ða á tvennan
hátt.
Ef nægur tími er til stefnu,
er brauðið, i plastumbúðunum,
lagt á eldhúsborðið og látið
standa þar unz það hefur þiðnaö
alveg, en venjulegt hveitibrauð
þarf um þrjá tíma. Rúnnstykki,
bollur og þess háttar brauömeti
þarf mun styttri tíma. Þegar allt
„frost“ er farið úr brauðinu er
það sem nýtt og getur geymzt
eins lengi og nýbakað brauð.
Ef þrjár klukkustundir eru of
langur tími má þíðá brauðið á
þann hátt, að það er tekið úr
plastumbúöunum og sett £ ofn.
Hveitibrauð og önnur stór brauð
eru látin vera f u. þ. b. 150 gráða
heitum ofni f þrjá stundarfjórð-
unga en lítil brauð, t. d. bollur,
eru látin vera i 12 minútur i
200 gráða heitum ofni. Þegar
brauið er þítt í ofni er það sem
nýtt stráx á eftir, en ef það er
geymt þomar það fljótt, vegna
áhrifa hitans í ofniniim.
Þrir stundarfjórðungar kunna
að virðast langur tími fyrir venju
legt hveitibrauð og því má flýta
gangi málanna með þvi að skera
brauðið í sneiðar áður en það er
fryst. Þegar það hefur verið skor-
ið £ sneiðar er þeim raðað sam-
an og brauöinu pakkaö niður sem
væri það heilt. Þetta er hentugt
ef maður ætlar aðeins að nota
nokkrar brauðsneiöar í einu, t. d.
með morgunkaffinu, því að brauö
sneiðamar má setia beint í brauð
ristina. Séu þær látnar þiðna
„hægt“ tekur þaö um hálfa
klukkustund.
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
Kvikmyndin um Zivago
lækni skapar nýja tízku:
Siða frakka, há
Það er ekkert nýtt að kvik-
myndir komi fatatízku af stað
og það nýjasta af því taginu
er Zlvago-tízkan, sem kennd er
við söguna og kvikmyndina um
rússneska lækninn Zivago. Tízk
an breiðist út með sama hraða
kvtkmyndin og kom þvi ný-
lega th Norðurlandanna. þegar
kvikmyndin var frumsýnd þar.
Þessari tízku, sem saman-
stendur af þrennu : síðum ullar-
frakka með hermannasniði, eöa
síðum pels, hnéháum stfgvélum
og loðhúfu, ætti að vera tek-
ið opnum örmum þar sem vet-
ur eru harðir, jafnvel hér á ís-
st'igvél og loðhúfur
landi, þótt hitamælirinn fari
aldrei eins lágt og víða á meg-
inlandinu.
Eins og við minnumst sýndi
Diór-tízkuhúsið siöa „hermanna
frakka“ á tízkusýningum í haust
og þóttu þessir frakkar stinga
skemmtilega í stúf við alla
stuttu kjólana
En nú er það svo aö unga
fólkið, sem er hvaö ginnkeypt-
ast fyrir nýjungum, hefur ekki
ráð á því að labba inn hjá
Dior og „fá einn“. Það verður
að hafa önnur ráð. Og það stend
ur ekki á þeim.
Oti á meginlandinu er leitað
á öllum háaloftum og í kjöilur-
um til að sjá hvort ekki er til
gamall frakki af afa gamla eða
þá frakki, sem einhver úr fjöl-
skyldunni notaöi í stríðinu. Her-
mönnum þykir þetta ekki sæm-
andi að unga fólkið „leiki sér“
með einkennisbúninga her-
manna, en þeir mega sín lítils
og í London renna gamlir her-
mannafrakkar og aðrir gamlir
einkennisbúningar hermanna út
eins og heitar lummur.
Hér á íslandi höfum við sem
betur fer ekki slíkar minjar um
heimsstyrjöldina, en við eigum
mikið af góðum loðhúfum og
ættum þvi að taka þeim hluta
Zivago-tízkunnar fegins hendi.
Heimilisstörfin eru beztu
líkamsæfingarnar
segir i niðurstöðum visindalegra athugana,
sem gerðar voru i Sviþjóð
Finnst ykkur leiðinlegt að bóna
gólf eða berj^ teppi ? Svarið
Veröur í flestum tilfellum JÁ.
En hvemig væri að segja held-
ur NEI og hætta að líta á þessa
tvo þætti heimilisstarfanna sem
illa nauösyn, en líta heldur á
þá sem heilsubót, því að nú hef-
ur það verið vísindalega sannað
að heimilisstörfin eru einhverjar
beztu líkamsæfingar, sem hægt er
að fá. Þaö hafa verið gerðar vís-
indalegar athuganir á þessu viö
„Karolinska" £ Stokkhólmi og
niðurstöðurnar vom nýlega birt-
ar í blaöi sænskra lækná.
Þessar ódýru „heimaæfingar",
(já, ódýrar eru þær, spara bæði
bónvél og dýra leikfimitíma),
gera meira en styrkja líkamann,
þær halda um leið óvelkomn-
um hitaeiningum í skefjum.
□
Á fögrum haustdögum, eins og
þeir hafa verið undanfarið, er
tilvalið að fara út með teppin
og berja úr þeim allt ryk. Þaö
er gott að berja teppin í sólskini,
einnig eftir að snjór er kominn,
en sé mikill raki í lofti, er betra
að bíða með það. Munið aö berja
teppin á röngunni, þanniö að ryk-
ið fari út úr þeim, en ekki inn
í teppin, eins og "hætt er viö,
ef teppin eru barin á réttunni.
Nómskeið
Myndlista- og handíðaskólans
Nokkrir nemendur geta enn komizt að í:
1. Undirbúningsnámskeið í teiknun fyrir nemendur mennta-
skólans og stúdenta til undirbúnings tæknináms (arki-
tektur, verkfræði)). Kennt verður þriðjudaga og föstu-
daga kl. 8-10.15 síðdegis.
2. Fjarvíddarteiknun. Kennt mánudaga og fimmtudaga kl.
8-10.15 siðdegis.
Umsóknir berist skrifstofu skólans, Skipholti 1, sem fyrst
(Sími 19821)
SKÓLASTJÓRl