Vísir - 09.11.1966, Blaðsíða 5
KOSNINGARNAR í BANDARÍKJUNUM í GÆRs
morgun útlönd í morgun
útlönd
VÍSIR . Miðvikudagur 9. nóvember 1966.
REPUBLIKANAR
Óvenju mikil kjörsókn
NUTÖLUVERÐAN SIGUR
.
útlönd í morgun
©
Rockefeller
£
lítlönd í morguit dtlönd; i morgun
' • O.í ' 1 • ' •
New York og víöar í morgun (NTB, Reuter, AFP).
Margt gerðist óvænt í kosningunum í Bandaríkj-
unum í gær.
Kjörsókn varð miklum mun meiri en búizt hafði
verið við.
Republikanar unnu meiri sigur en almennt hafði
verið reiknað með.
Reagan sigraði Brown í ríkisstjórakjöri í Kali-
fomíu.
Percy sigraði Douglas í öldungadeildarkosningu
í Hlinois.
Rockefeller sigraði í New York.
Blökkumaðurinn Edward Brooke sigraði í öld-
ungadeildarkosningu í Massachusetts.
Frú Lurleen Wallace sigraði í ríkisstjórakjöri í
Alabama.
Óvenjulega mikil þátttaka var í
kosningunum i Bandaríkjunum í
gær. Hafði veriö búizt viö þátttöku
55 milljóna, en nú er taliö að um
60 milljónir manna hafi neytt at-
kvæðisréttar. Er það óvenjulega
hátt hiutfall í kosningum, sem fara
fram í „millikosningum", þ. e. a. s.
kosningum, sem fára fram milli
forsetákosninga.
Republikanar unnu talsvert mik-
inn sigur, allmiklu meiri sigur en
reiknað hafði verið meö. Síðast þeg-
ar vitað var höfðu þeir unnið sex
ríkisstjórasæti ,af demokrötum, virt
ust ætla að bæta viö sig allt að
50 sætum í fulltrúadeildinni og
höfðu unnið þrjú sæti í öldunga-
deiklinni. Alls var kosið um 35
ríkisstjóraembætti, jafnmörg sæti í
öldungadeild Bandarikjaþings og
öll sætin í fulltrúadeildinni, 435
talsins. í morgun var staðan þessi:
Öldungadeildin: Demokratar 17
sæti, republikanar 16 sæti. Ótalið
í tveimur. Fulltrúadeildin: Demo-
kratar höfðu unnið 231 sæti, repu-
blikanar 166. Ótalið í 38 kjör-
dæmum. — I rikisstjórakosningun-
um höfðu demokratar unnið í 11
ríkjum en republikanar í 20 ríkj-
um. Ótalið var í fjórum ríkjum.
Heildartölur lágu yfirleitt ekki
fyrir.
Fru Wallace
Frú Wallace sigr-
aði í Alabanta
••
Onnur úrslit
Af öðrum úrslitum má nefna aö
hægrisinninn Lester Maddox sigr-
aði í Georgia í ríkisstjórakosning-
unum. Hann er mjög andvígur því
að blökkumönnum verði veitt auk-
in réttindi.
Republikanar unnu sögulegan sig-
ur í öldungadeildarkosningunum í
Tennessee. Þetta er I fyrsta sinn
sem þeir sigra í ríkinu, sem til-
heyrir Suðurríkjunum. Sigurvegar-
inn, Howard Baker er tengdasonur
Everett Dirksen, leiðtoga Republik-
ana í öldungadeild Bandaríkjaþings.
Republikaninn Reymond Shafer
sigraði i ríkisstjórakjöri í Pensyl-
vania. Andstæðingur hans var kunn
ur milljónamæringur Milton Shapp,
sem rak dýrustu kosningabaráttu
þessara kosninga, að því álitiö er.
Kosningar í Kalifor níu, Mich-
igan, New York og lllinois
Mesta athygli vekja úrslitin í
Kaliforníu, New York, Illinois og
Michigan.
KALIFORNÍA
í ríkisstjórakosningunum í Kali-
foríiu sigráði Reþublikáriin'n og
kvikmyndaleikarinn Ronald Reagan
núverandi ríkisstjóra, Demokratann
Pat Brown, sem setið hafði tvö
kjörtímabil. Sigur Reagans er tal-
inn gefa honum möguleika til aö
verða virkur þátttakandi í keppn-
inni um forsetaframboö Republik-
ana eftir tvö ár. Hann lét hafa
eftir sér í morgun, að hann væri
aö vísu tiltölulega lítt reyndur, en
mundi engu að síður hefja skipu-
lega baráttu fyrir því að fá áhrif
á flokksþingi Republikana, sem vel-
ur næsta frambjóðenda þeirra til
forsetakosninga. Reagan hefur ver-
ið talinn til hægri sinna og studdi
Frú Lurleen Wallace, 39 ára
gömul, eiginkóna George Wallace;
ríkisstjóra í Alabama sigraði nú í
ríkisstjórakjörinu í þessu ríki.
Maður hennar sem var búinn að
vera ríkisstjóri í allmörg ár, mátti
nú ekki bjóða sig fram á nýjan
leik, sámkvæmt lögum ríkisins. Var
þá ákveðið aö frúin skyldi bjóöa
sig fram og var kjósendum gerð
grein fyrir því að hann mundi
eftir sem áður sjá um stjóm rík-
isins. Kjósendur virtust taka þessu
vel, enda haföi George Wall-
ace gertiö sér gott orð i þeirra aug-
um í, baráttu hvítra manna gegn
réttindahreyfingum blökkumanna í
ríkinu.
Brooke
Blökkumaður í öldungadeild-
inni í fyrsta sinn i 90 ár
Republikaninn Edward Brooke,
sem sigraði í öldungadeildarkosn-
ingunum í Massachusetts, er fyrsti
blökkumaðurinn, sem s'.tur á
Bandaríkjaþingi í 90 ár. Hann er
um leið fyrsti blökkumaðurinn,
sem býður sig fram til Bandaríkja-
þings á vegum stóru flokkanna.
Brooke er 47 ára gamall, dóms-
málaráðherra í Massachusettsríki
og hefur þar að auki gegnt fjölda
trúnaðarstarfa. Hann tekur nú viö
sæti Leverett Saltonstall, Republi-
kana, sem var búinn að sitia mörg
ár á Bandaríkjaþingi. Brooke barð-
ist ekki kynþáttabaráttu i kosn-
ingunum, enda naut hann eins og
úrslitin sýna. stuðnings jafnt hvít;a
sem svartra. Andstæðingur hans
var Endicott Peabody, fyrrum rík-
isstjóri Massachusetts.
Goldwater dyggilega í síöustu for-
setakosningum.
MICHIGAN
í Michigan sigraði núverandi rík-
isstjóri, Republikaninn George
Rorrinéy rrieö meiri yfirburðum en
í síðustu kosningum. Úrsli.t.in eru
talin styrkja aðstöðu háris tnikiö
með tilliti til næstu forsetakosn-
inga, þá sigraði skjólstæöingur hans
Robert Griffin í öldungadeildarkosn
ingu gegn Mennan Williams, fyrr-
um ríkisstjóra. Romney tilheyrir
frjálslyndari armi Republikana-
flokksins og má búast viö að þeir
geti oröið keppinautar Reagan og
hann þegar Republikanar velja
riæsta forsetaefni. í það minnsta
undirstrika þessi tvenn úrslit vand-
ann. sem klofningur Republikana
skapar þeim. Það verður ekki unnt
að segja þegar litið er á þessi úr-
slit og úrslitin í heild, að annar
armur flokksins hafi komið sterk-
ari úr leik.
NEW YORK
í New York sigraði ríkisstjórinn
Nelson Rockefeller Demokratann
Frank O’Connor. Er þaö talinn mik-
ill sigur fyrir Rockefeller, þar sem
margir voru farnir að spá honum
tapi. Talið er, að framboð demo-
kratans Franklin Roosevelt yngri
á vegum Frjálslynda flokksins hafi
tryggt Rockefeller sigur.
ILLINOIS
Charles Percy sigraöi í öldunga-
deildarkosningunum í Illinois. And-
stæöingur hans var núverandi öld-
ungadeildarþingmaður, Demokrat-
inn Paul Douglas, 74 ára gamall,
einn virtasti maður öldungadeildar-
innar. Percy er talinn líklegastur
keppinautur Romneys og Reagans
um forsetaframboö Republikana.
Percy
London í morgun (NTB, Reuter)
Edward T'eath, leiðtogi íhalds-
flokksins brezka, hefur krafizt þess
að brezka ríkisstjómin lýsi yfir
þvf, að hún muni beita sér fyrir
skilyrðislausri inngöngu Breta í
Efnahagsbandalag Evrópu.
Hann sagði í ræöu sinni, að Bret-
land væri ekki í minnstu aðstöðu
til aö semja ur inngöngu í Efna-
hagsbandalagið. Hann sagði, aö
bandalagið væri nú í svo föstum
skorðum, aö ékki væri að vænta
þess að því yrði breytt.
Talið er, að brezka ríkisstjómin
sé nú aö kanna aðrar leiðir, sem
komið gætu í stað inngöngu Breta
í Efnahagsbandalagið. Sagt er, að
skoðanir um það mál séu'skiptar
hjá Wilson forsætisráðherra ann-
ars vegar og Brown utanríkisráð-
herra hins vegar. Brown er talinn
bess fýsandi að Bretar gangi sem
allra fyrst inn í Efnahagsbandalagiö
en Wilson vill eiga annarra kosta
völ áður en gengur til samninga
við bandalagið. Talið er, að hann
sé að hugleiða möguleika á ein-
hvers konar efnahagslegu banöa-
lagi við Bandaríkin, sem komið gæti
í stað markaösþátttöku f Evrópu
innan EBE.