Vísir - 21.11.1966, Síða 3

Vísir - 21.11.1966, Síða 3
VÍSIR . Mánudagur 21. nóvn-i’-.-'r RAFEINDA VÉLAR FORSENDA FRAMFARÁ að samsvarandi aðstæðum, sem hafa verið á sambæriiegum tíma árs og gefur þá spá, sem veðrið reyndist þá verða. — Við tölvu þessarar veðurstofu vinnur her manna og er því heldur ólíklegt að fsland komi á hjá sér sams konar veðurspárvinnslu, en það mætti vel hugsa sér að hægt væri að hafa samvinnu við fleiri lönd um úrvinnslu veðurspár á þessum grundvelli. Á þetta sér- staklega við þegar veðurathug- anir frá gervihnöttum verða ítarlegri. — Þarf varla að fjöl- yrða um hvert þjóðhagslegt gildi yrði af slíkum veöurspám. Jjjóðfélagslegt gildi þessara skýrsluvéla og tölva er þegar orðið gífurlegt hér á landi, en það er þó ekki óvarlegt að áætla að það aukist mjög á næstu árum. Framfarir í gerð þessara tækja er mjög ör. Þann- ig hefur IBM nú á boðstólum þriðju kynslóð tölva, þar sem tölva Háskólans er af annarri kynslóð. (Innan hverrar kyn- slóðar eru margar gerðir). Minnin, sem voru á stærð við spjöld lítillar vasabókar eru nú á stærð við mannsnögl. Nokkur íslenzk fyrirtæki hafa þegar pantað tölvur af þriðju kynslóð hjá IBM. — Þetta eru IBM-360, model 20. — Fyrir- tækin eru: Landsbanki íslands, Samband ísl. samvinnufélaga, Loftleiðir, Sláturfélag Suður- lands og Mjólkursamsalan. Öll eru þessi fyrirtæki og stofnanir stór á íslenzkan mælikvarða og með flókna og margs konar út- reikninga. Nú er svo komið, 14 árum eftir að fyrsta skýrsluvélin kom til landsins, aö þrjár stofnanir hafa í sinni þjónustu tölvur. Fimm tölvur koma til landsins eftir skamman tíma og 29, — tuttugu og níu — fyrirtæki eiga eigin skýrsluvélar, auk þeirra fjöldamörgu fyrirtækja, sem leigja sér afnotarétt af annarra skýrsluvélum og tölvum. 1950 fóru fyrstu tveir Islend- ingarnir til náms í meöferð skýrsluvéla. I dag vinna yfir hundrað manns við stjórn þess- ara véla, og framleiða margvís- legar upplýsingar fyrir þjóöfé- lagið. Ef þessi tæki væru ekki til, þyrfti mörg hundruð manns til að framkvæma þessi verk, og sum mundi alls ekki vera hægt að vinna vegna kostnaðar, og að upplýsingar væru úreltar, þegar þær væru fyrir hendi. Til gamans má geta þess að öll Egils Saga hefur verið sett á gatspjöld og eru nú vísinda- menn önnum kafnir við að vinna úr spjöldunum í mjög stórum rafreikni í Harvard-háskóla i Bandaríkjunum. Ekki er ósennilegt að handrit- in verði rannsökuð í rafreikni, þegar þaú koma heim. V. J. Jakob Sigurðsson stjórnar skýrslugerðardeild Sláturfélags Suðurlands. Með honum vinna einn maður og 3—4 stúlkur. Verkefnin, sem eru unnin í deild inni eru m. a.: Um 200 sölu- reikningar á dag, uppgjör við um 5000 bændur og aðra, sem leggja inn til fyrirtækisins, en fyrirtækið þarf aö vita stöðu þeirra við ýmis tækifæri. 350 manns vinna að staðaldri við fyrirtækið, ýmist á viku- eða mánaðarlaunaskrá. Á haustin í sláturtíðinni, bætast við um 1000 manns, sem allir eru á vikulaunaskrá. Kaup alls þess mannafla er reiknaö út í skýrslu vélunum. Einnig er allt bók- haldið unnið í deildinni. — Til að sinna þessum verk- efnum án vélanna, gæti ég áætl- að lauslega að bæta þyrfti við 10 manns, segir Jakob Sigurðs- son. — Þaö vrði þó aldrei um sama hraða og gæði í vinnu- brögðum að ræða. Sláturfélagið leigir skýrslugerðarvélarnar fyrir um 40.000 kr. á mánuði. Ef vélanna nyti ekki við þyrfti að greiða 10 mönnum og konum kaup til viðbótar þeim, sem fyrir eru. Einnig þyrfti aö stækka húsrými deildarinnar verulega, sem auk þess að vera dýrt, er næstum ómögulegt eins og á stendur. Reynsla Sláturfélagsins af skýrslugerðarvélunum hefir ver- ið slík, að um mitt næsta ár, fær þar nýjan rafeindaskýrslu- vél, — tölvu, að gerð IBH 360, model 20. Nýja tölvan hefur margfaldan vinnuhraða á við skýrslugerðavéjina, sem Slátur- félagið leigir nú. — Við munum einnig leigja tölvuna, segir Jakob. Það borgar sig varla að kaupa þessar vélar, því framfar- ir í gerð þeirra er svo stór- stígar, að þær verða úreltar á nokkrum árum. Framhald af bls. 13. sú, sem Skýrsluvélar fengu árið áður og notuð 1 almennum rekstri fyrirtækisins. TVTeð tölvuninni, sem kom til Háskóla Islands 8. desem- ber 1964, kemur ný tegund tölva til landsins. Hún er af IBM-1620-gerð og mjög ólík þeim tölvum, sem fyrir voru. Hún skrifar frekar hægt, en hefur geysilegt minni miðað við hina rafreiknana. Gerir það hana hæfa til að vinna úr margs konar flóknum verkefnum. Þegar tölva Háskólans kom til lands hafði hún 40.000 tölustafa innbyrðisminni. Síðan tölvan kom hefur verið bætt við hana tveimur seguldiskum, sem hver hefur 2 milljóna tölustafa- minni. Aukinn tækjakostur við þessa seguldiska var mjög dýr, en hann fékkst hingað vegna þess að íslenzkur vísindamaður fékk styrk til að gera erfafræði- rannsóknir, sem krefjast vélar sem þessarar végna flókinna út- reikninga. Tölva Háskólans er hentug til að reikna út flókin verkefni eins og t.d. landmælingar- og lóðaútreikninga. Hvert skipti, sem reiknað er með „heilanum“, þarf að gefa honum forskrift (program), en tölvan getur að- eins lagt saman og dregið frá áður en hún fær þessa forskrift. Vinnan við þessa forskrift er töluvert mikil og tekur lengri tfma, en sjálfur útreikningurinn í sjálfri vélinni eftir að búið er að fóðra tölvuna með forskrift- inni. Forskriftin er gerð á sér- stöku máli, FORTRAN, sem tölvan skilur og þýðir sjálf yfir á sitt eigiö mál. Þetta getur hún þar sem búið er að gefa henni þýðingu á málinu, sem hún man. Þarf því ekki að undirbúa tölvuna sérstaklega hvert skipti, sem hún fæst við nýtt verkefni, eins og þegar minni vélamar, skýrsluvélamar eiga í hlut. Sem dæmi um stofnanir sem nota tölvu H.í. má nefna Haf- rannsóknarstofnunjna. Vísinda- menn hennar hafa gatað á spjöld upplýsingar um t.d. þorsk, síld og kola marga áratugi aftur í tímann. Geta þeir með stuttum fyrirvara og lítilli vinnu til við- bótar aflaö upplýsinga um t.d. dreifingu á lengd eða þyngd eftir aldri fiskárganga. Raforkumálaskrifstofan hefur notað tölvuna m.a. til að reikna út hvernig hagkvæmast sé að hagnýta vatnakerfi landsins. Almanakið er nú allt reiknað út í tölvunni. Útreikningar borgarverkfræð- ingaskrifstofunnar eru nú gerðir þar. Hafa þc:r sparað sér einn eða tvo menn í útreikningum með því að nota tölvuna. Keflavíkurvegurinn nýi var reiknaður út í tölvunni með til- liti til staðsetningar og hæðar- punkta. Rannsóknarstofnun landbún- aðarins hefur notað tölvuna til margs konar starfa. Erfðafræði- rannsóknir m. a. til þess gerðar að auka gæði ullar hafa verið reiknaður út í tölvunni, sem og útreikingar á fallþunga dilka o. s. frv. Þessi verkefni tölvunnar eru aðeins nefnd sem dæmi. Fyrir utan þau hafa fjöldamörg verk- fræðileg og vfsindaleg verkefni verið unnin þar. '\/reðurstofa íslands notar ekki tölvu Háskólans, en mun notast eitthvaö við tölvu Skýrsluvéla. Báðar tölvunar eru of litlar til þess að Veðurstofan geti haft af þeim verulegt gagn við veöurspár, en ef stærri tölva kæmi til landsins væri hægt að hafa af henni ómetan- legt gagn við veðurspár. Veður- stofa Bandaríkjanna notar eina stærstu tölvu heims við sínar veðurspár. Vinnur tölvan í gróf- um dráttum þannig, að hún er fóðruð á geysilegum fjölda upp- lýsinga um veðurathuganir og Reiknistofa Raunvísindastofn- unarinnar sér nú um tölvuna, en fjöldi stofnana leitar með verk- efni sín til úrlausnar í tölvunni. — Tölvan er hvergi nærri full- nýtt enn. Reiknivélin sjálf er að 50—60 klst. á mánuði, en ef tekið er tillit til þess að vélin vinnur verk á fáum mínútum, sem. maður væri mánuði að vinna úr, sézt að hér er um geysilegan tímasparnað aö ræða. Þar fyrir utan er hægt að gera margt það með tölvunni, sem engum hefði dottið í hug að gera, ef hennar hefði ekki notið við. Á myndinni er Agneta Krist- jánsson, starfsstúlka Reiknis- stofnunarinnar, að vinna að út- reikningum fyrir borgarverk- fræðingsskrifstófumar. Fremst á myndinni eru tækin sem gata og lesa, þá reiknivélin sjálf. Fjærst er tækið með seguldisk- unum tveimur, sem hver um sig hefur 2 milljónir minniseininga. hvernig veðrið varð eftir þeim veðurfræðilegu forsendum, sem fyrir hendi voru. Geymir tölvan þessar upplýsingar í minni sínu. Veðurfræðingarnir fóðra síðan tölvuna á 'veðurat- hugunum, sem gerðar eru á hverjum tíma og leitar tölvan Háskóli Islands fékk tölvu, IBM 1620, í desember 1964, en skömmu áður hafði Ottó Michel- sen staðiö fvrir þvl að fá hing- að til lands tölvu til sýnis. Hafði hann áður haft námskeið á sínum vegum, þar sem fjöldi vísindamanna lærði mál „heil- ans“, FORTRAN. — Var sýning- artölvan notuð dag og nótt með- an hún var hér og fékkst frekari skilningur á notagildi tölva hér á landi.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.