Vísir - 26.01.1967, Qupperneq 2
1
VI S IR . Fimmtudagur 26. janúar 1967.
Verkamannafélagið
Hlíf Hafnarfirði
Tillögur uppstillingamefndar og trúnaðarráðs félagsins um
stjóm og aðra trúnaðarmenn Verkamannafélagsins Hlifar
árið 1967 liggja frammi i skrifstofu Vmf. Hlífar Vestur-
götu 10. öðrum tillögum ber að skila í skrifstofu Vmf.
Hlífar fyrir kl. 2 e. h. sunudaginn 29. janúar 1967, og er þá
framboðsfrestur útrunninn.
Kjörstjóm Verkamannafélagsins Hlífar.
Skáldskapur og •••
Framh. af bls. 9
gert, þ.e, að falla ekki strax
frá frumvarpi sínu og þeir
fréttu um stjómarskiptin I Dan
mörku. Verður örðugt að neita
þvi, hverjar sem ástæðumar
hafa verið.
Skáldaminni Þorsteins Gísla-
sonar eru í senn skemmtileg
og skýrandi. Þó að hann kvæði
stundum nokkuð fast að orði
um íslenzka ritdóma, var hann
sjálfur mjög jákvæður í dóm-
um sínum, vildi fremur byggja
á kostum en göllum verka, sem
hann dæmdi, vildi fremur skýra
en rífa niður. Enda gafst þaö
vel, sbr. ritdóminn um 1 heima-
högum eftir Guðmund Frið-
jónsson, sem margir rifu niður,
en Þorsteinn lagði mikla á-
herzlu á þá kosti, sem sýndu,
að hér var skáld á ferðinni, en
hann minntist auðvitað á gall-
ana Ifka. 1 samræmi við þetta
er sú afstaða Þorsteins, að
meiri áherzlu ætti aö leggja á
að gefa út úrvalsljóð skálda en
heildarverk, þar sem allt væri
tínt til, gott og vont, sbr. um-
mæli hans um Bólu-Hjálmar á
bls. 255 f þessari bók.
Enn vildi ég minnast á einn
þátt hér, sem gott var að koma
með, þ.e. íslenzkar bókmenntir
við háskólann f Kaupmanna-
höfn. Þorsteinn ætlaði að velja
sér að ritgerðarefni við háskól-
ann íslenzkar bókmenntir eftir
1400, en fékk það ekki viður-
kennt sem verðugt viðfangsefni,
þar eð Wimmer gamli sagði, að
slíkar bókmenntir væru ekki til,
ekki væri um neinar íslenzkar
bókmenntir að ræða, er nefna
mætti þvf nafni, aðrar en forn-
ritin. Er þetta í sjálfu sér furðu
leg afstaða háskóla, sem var há
skóli Islands, þar eð Island var
hluti af Danmörku. Og ekki
verður þvf kennt um, að Wimm
er gamli hafi verið ólæs á þéss
ar bókmenntir, ef hann hefði
kært sig um. En hann hirti ekki
að kynna sér þetta og ekki held
ur kennslumálaráðuneytið, þó
að því hefði auðvitað verið í
lófa lagið að spyrja Valtý Guð-
mundsson, sem var dósent við
háskólann. Ættu sem flestir að
lesa þessa grein Þorsteins, því
hún sýnir betur en flest annað,
sem ég minnist að hafa lesið
hversu ísland var f rauninni Ht
ilsvirt í Danmörku, þótt komið
væri fram undir síðustu alda-
mót. Einnig sýnir þetta glöggt
Iðnaðarmannafélagið
i Reykjavík
100 ára afmælisfagnaður
félagsins verður haldinn að Hótel Sögu föstudaginn 3. febrúar og hefst
með borðhaldi kl. 19.30 stundvíslega.
Aðgöngumiðar eru seldir í skrifstofu Landssambands iðnaðarmanna, Iðn-
aðarbankanum, skrifstofu Meistarasambands byggingarmanna, Skip-
holti 70, og Iðnskólanum, Skólavörðuhæð, á venjulegum skrifstofutíma.
(Borð verða tekin frá í Hótel Sögu þ. 30. og 31. jan. kl. 17—19).
100 ára saga / máli og myndum
Sýning á 100 ára starfi Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík í máli og
myndum verður opnuð almenningi í Iðnskólanum á Skólavörðuhæð —
inngangur frá Vitastíg — kl. 18.00 laugardaginn 28. janúar. — Sýning-
in verður síðan opin daglega kl. 15—22 til og með 5. febrúar.
Félagsstjórnin
hversu brýn nauðsyn var að
stofna íslenzkan háskóla, enda
átti þetta eigi lítinn þátt f að
flýta fyrir í þvi máli. Þorsteini
var þetta auðvitað ekki að skapi
og nam hann ekki meira við
þennan skóla, en hóf baráttu
fyrir háskóla hér.
Þessi bók er kærkomin.
Hljótt hefur verið um höfund
hennar um sinn, þótt hann eigi
gleymsku sízt skilið. Og þegar
við fáum í hendur svo ágætt úr-
val og hér, sjáum við, að það
á ekki síður erindi til okkar nú
á dögum en það átti, þegar það
var ritað.
Erlent —
Framh. af bls. 8
Miniére hefur án efa stutt Mo-
ise Tsjombe fyrrum forsætis-
ráðherra, sem nú er í útlegð, —
og Kongóstjóm telur félagið
vinna að áformum um að hann
nái völdunum aftur, — en Mo
buto hrifsaði til sín völdin eftir
að Tsjombe var kominn í útlegð
ina.
Mobuto lítur á Katanga sem
peningakistu landsins og treyst
ir á, að með yfirráðum yfir
henni gæti hann treyst völd sín
og hindrað Tsjombe f að kom
ast aftur til valda, — en það
er litið svo á, að Mobuto spili
áhættuspil og ef í odda skerst
milli Kongó og Belgíu vegna
sérfræðinganna gæti Mobuto
grafið undan sjálfum sér með
því að eyðileggja efnahag lands
ins og þá fengí'Tsjombe nýtt
tækifæri.
Mobuto verðúr sem sé, hvern
ig sem allt velkist að geta sótt
gullegg í hreiður Katangahæn-
unnar — og til þess þarf hann
velvild og starf þeirra manna
sem hann nú reynir að þvinga
til að vera kyrra í landinu og
starfa fyrir sig .
ÞILJUIFNI þykkt 12 mm
Abachi
Limba
Milliveggja-plötur 50 mm þykkar: Fura
Abachi Oregon Pine
Limba Sen
Oregon Pine Eik Panfanir sækisf
Fura Askur strax
Sen Teak
Eik Ný sending
vænfanleg fljótlega Palisander þiljur væntanlegar í 12 mm þykkt.
Allar upplýsingar fúslega veittar á skrifstofunni og einnig í vöruafgreiðslunni að Ármúla 5.
ÁSBJÖRN ÓLAFSSON H.F.
Grettisgötu 2 Simi 24440 Armúla 5